Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1985, Side 48
FRÉTTASKOTIÐ
Sími ritstjórnar: 68-66-11. Auglýsingar, áskrift og tfreifing, sími 27022.
Hafir þú ábendingu
eða vitneskju um
frétt — hringdu þá i
sima 68-78-58. Fyrir
hvert fréttaskot,
sem birtist eða er
notað i DV, greið-
ast 1.000 krónur og
3.000 krónur fyrir
besta fréttaskotið í
hverri viku,
Fullrar nafnleyndar
er gœtt. Viö tökum
við fréttaskotum
allan sólarhringinn^
MÁNUDAGUR 19. ÁGÚST 1985.
mr Blanda af gleði og sorg á Evrópumótinu í hestaíþróttum í Svíþjóð:
Islendingarnir dæmdir
úr leik í gæðingakeppni
Frá Eiriki Jónssyni safnstjóra á EM
í hestaíþróttum i Svíþjóð:
Frammistaða íslensku keppnis-
sveitarinnar á Evrópumótinu í
hestaíþróttum í Svíþjóö var blanda
af gleði og sorg. Eftir mjög glæsilega
byrjun er íslenska hryssan Hilda frá
Olafsvík, sem Sigurbjöm Bárðarson
sýndi, efst í flokki hryssna á
kynbótahrossakeppninni. Sigraöi
Benedikt Þorbjörnsson, sá prúði og
hæverski knapi, á Styrmi i fimm-
gangi. Hann skaut þar aftur fyrir sig
m.a. Hoyos-bræðrunum, Piet og Jo-
hannesi. Johannes sat Fjölni frá
Kvíabekk og varð Evrópumeistari í
samanlögðu í fimmgangi og er það i
annaö skipti í röð á EM sem Fjölnir
nær þeim árangri. Tómas Ragnars-
son sat Fjölni í Þýskalandi 1983 og
urðu þeir Evrópumeistarar þar.
Síðan fór að halla undan fæti fyrir
íslensku keppendunum. Lauk keppni
svo að þeir Eiríkur Guðmundsson á
Hildingi og Aðalsteinn Aðalsteinsson
á Rúbín voru dæmdir úr leik í gæð-
ingaskeiði. Þar höfðu þeir lent í 2. og
3. sæti. Vom þeir félagar kæröir og
dómur þeim í ófiág. Eiríkur var
ákærður fyrir að nota ekki hjálm í
keppninni, en Aðalsteinn fyrir að
gegna ekki nafnakalli í öðrum spretti
í gæðingaskeiðinu. Alli fékk að fara
síðastur í gæöingaskeiðinu, en var
siðan kæröur og dæmdur úr leik.
Islensku keppendurnir vom mjög
óánægðir með svissneska dómarann,
sem dæmdi niður hægingu í gæðinga-
skeiði. Hann gaf lágar einkunnir fyr-
ir þaö sem á Islandi er talin nánast
fullkomin niðurhæging. Var mikið af
kærumálum í gangi og margar
nefndir aö störfum. Vildu margir Is-
lendinganna líkja þessu við „Jóns-
málið” fræga hér heima.
Aðrir sigurvegarar vom þessir: I
gæðingaskeiði sigraði Vera Reber,
Þýskalandi, á Frosta. I tölti sigraði
Wolfgang Berg, Þýskalandi, á Funa.
I hlýðnikeppni sigraði Lone Jensen,
Danmörku, á Grana. I 250 m skeiði
sigraði Dorte Rasmussen, Dan-
mörku, á Blossa. I f jórgangi sigraði
Danela Schmitz, Þýskalandi, á Seifi.
I víðavangshlaupi sigraði Line
Haugslin, Noregi, á Snækolli. Johann-
es Hoyos varð Evrópumeistari í
samanlögðum fimmgangsgreinum,
en hann átti einnig efsta stóöhestinn í
kynbótahrossakeppninni, Gáska frá
Gullberastöðum, sem hlaut 8,25 í
einkunn. Treben Troels-Smith, Dan-
mörku, sigraði í fjórgangsgreinun-
umáVæng.
Danir komu mjög á óvart með
góðri frammistööu, enda ríkti mikil
gleði í herbúðum þeirra. Islensku
keppendurnir höföu flestir selt hesta
sína og eru nú á leið heim.
-JSS
Útihúsin á Ósabakka
brunnu um helgina:
Kveikti Ijósa-
peraíheyinu?
Eldur kom upp í hlöðu og breiddist
skjótt út á bænum Osabakka á
skeiðum um miðnætti á sunnudags-
nótt. Varð eldsins fyrst vart í heyi i
hlöðunni. Klukkan rúmlega tólf
logaði í fjárhúsi, hrútakofa og
áhaldaskúr auk hlöðunnar.
Slökkvilið frá Brunavörnum
Árnessýslu kom á staðinn klukkan
rúmlega tólf. Unnið var við slökkvi-
störf fram til klukkan niu næsta
morgun. Tókst að bjarga um
helmingi heysins en alls voru 8.000
baggar í hlöðunni. Ibúðarhúsið, sem
stendur norðan við Skálholtsveginn,
var aldrei í hættu vegna eldsins.
Otihúsin standa sunnan viö veginn.
FéUu þau alveg í brunanum.
Rafmagn var á hlöðunni. Grunur
leikur á að kviknað hafi í út frá ljósa-
peru. Ekki er talið að eldsupptökin
hafi verið í sjálfu heyinu.
-EH.
• Þó stutt sé I íshafið kvörtuðu krakkarnir á Suðureyri við Súgandafjörð ekki um kulda þar sem þeir syntu
og busluðu í sjónum i góðviðrinu í siðustu viku. Eftir nokkrar minútur í vatninu þótti þeim þó gott að
leggjast i heitan sandinn í fjörunni og láta sólina verma sig.
Svo stungu þeir sár i sjóinn aftur.
StofnaðLands-
fjárbænda
Landssamband sauöfjárbænda
var stofnað á Hvanneyri nú um
helgina. Fimm manna stjórn var
kjörin á stofnfundinum og er for-
maöur hennar Jóhannes Kristjáns-
son, bóndi á Höfðabrekku í Mýrdal.
Jóhannes sagði í samtali við DV í
morgun að undirbúningur að stofnun
sambandsins hefði hafist í fyrravor
þegar stofnuð voru félög sauðfjár-
bænda í hverri sýslu, og voru 58 full-
trúar þessara félaga þátttakendur á
fundinum um helgina. Drög að
lögum fyrir sambandiö voru unnin
núívor.
„Markmiðið með stofnun þessara
samtaka er að vinna að eflingu bú-
greinarinnar en það eru markaðs-
málin sem eru stóri höfuðverkurinn.
Við teljum að þetta geti hugsanlega
haft þau áhrif til bóta, að tekið verði
upp strangara kjötmat sem skiiaði
svo betri vöru til neytenda. Eins má
nefna aö það þyrfti að lækka vöru-
verðið ef þess er nokkur kostur,”
sagðiJóhannesKristjánsson. -pó
BENSÍNÞJÓFUR
Bensínþjófur var tekinn í Breið-
holti í gærkvöldi. Var maðurinn að
stela bensíni af bifreið sem stóð við
Völvufell. þegar hann var gómaður
klukkan rúmlega ellefu.
Tók lögreglan manninn í sína
vörslu. Var hann færður á lögreglu-
stöðina til yfirheyrslu. .rh
Reiði ríkir í Færeyjum vegna komu Sea Shepard:
STEFNIR í ÁTÖK
Þá er fokið I flest skjól
ef mörlandinn getur
ekki riðið skammlaust,
lengur!;
Frá Edvard T. Jónssyni, fréttaritara
DVíFæreyjum:
Sea Shepard, skip samnefndra
náttúruverndarsamtaka, kom til
Færeyja frá Islandi snemma á laug-
ardagsmorgun og liggur nú við fest-
ar í Nolseyjarsundi skammt fyrir ut-
an Þórshöfn.
Skipverjar, sem eru 15 talsins, eru
komnir til að stöðva grindhvalaveið-
ar Færeyinga. Þeir segjast ætla að
sveima kringum eyjarnar næstu
daga og bíöa átekta en þeir muni
ekki fara frá Færeyjum fyrr en þeir
hafi gert eitthvað fyrir grindina.
Tollverðir framkvæmdu leit í skip-
inu á laugardag og fundu ekkert
óeðlilegt um borð. Aðspurðir sögðust
skipverjar vera óvopnaðir.
Mikil reiði ríkir nú i Færeyjum
vegna komu þessa skips. Er ljóst að
til átaka mun koma skipti Sea Shep-
ard-menn sér af grindarveiöunum.
Atli Dam lögmaður sagði í viðtali
fyrir helgi að félagar Sea Shepard
mættu vera velkomnir til Færeyja.
Þeim skyldi þó ekki til hugar koma
að þeir gætu truflað grindhvalaveið-
arFæreyinga.
EA
• Lögreglan fylgdist grannt mefl
Sea Shepard þegar það lá við fest-
ar í Reykjavíkurhöfn i síðustu
víku. DV-mynd S
4
4
4
4
4
4
4
4
í
í
A
P
A
I
W
A
y
K;i
w