Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1985, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1985, Blaðsíða 24
24 DV. MÁNUDAGUR 26. ÁGUST1985. íþróttir PéturOrmslev. Tvö mörk hjá Pétri Pétur Ormslev var óumdeilanlega sá Ieikmaður sem kom mest á óvart í bikarúrslitaleiknum milli Fram og Keflavíkur. Þessi fyrrum atvinnu- maöur hefur ekki veriö einn af at- kvæöameiri mönnum Fram í vetur, átt við meiðsli að striða og ekki fyllilega náðsérástrik. 1 g®r var þó annaö uppi á teningnum. Pétur lék þá í fyrsta sinn í sumar stöðu sóknartengiliðs og skoraði helming marka leiksins sem fór 3—1 fyrir Fram. -fros. Fer ÍBK Evrópukeppni? Með sigrinum I bikarúrslltaleiknum tryggði iið Fram sér þátttökuréttinn í Evrópukeppni bikarhafa á næsta ári. Eins og staðan er í dag lítur þó allt eins ~fit~fyrir að Keflavík hljóti réttindin. Það gerist ef Fram nær að vinna 1. deildina en úr þvi fæst að líkindum ekki skorið fyrr en 14. september. Þá leikur Fram við Akranes í síðustu um- ferðlslandsmótsins. -fros. „Vantaði baráttuandann” — sagðiGunnar Oddsson, ÍBK „Það vantaði baráttuandann. Það sýndi sig er við skoruðum markið, þá náðu þeir strax að svara fyrir sig. Menn voru ekki nógu einbeittir,” sagði Gunnar Oddsson, ÍBK. „Það kom okkur l opna skjöldu í byrjun að fá Pétur sem þriðja senter, við áttum von á Ömari í þeirri stöðu. -fros „Sigur lids- heildarinnar” - sagði ÓmarTorfason Þaö hefði verið þungt sálrænt áfall fyrir okkur að tapa þessum leik vegna þess að það má lítið bregða út af í deildinni. Það ollí Keflavík vandræð- um í byrjun að Pétur skyldi ieika í þeirri stöðu er ég hef leikið i í sumar og það virtíst koma þeim í vandræði. Ég kunni vel við mig í stöðu afturliggjandi tengiliðs, ég lék með Víkingi í þeirri stöðu,” sagði Ömar Torfason, Fram. „Eg er nú búinn að vinna öll verö- laun í boltanum og við stefnum á Islandsmeistaratitilinn. Annars var sigurinn sigur liðsheiidarinnar. Við náöum undirtökunum strax á fyrstu mínútunum og Keflavíkurliðiö náði aldrei að finna sig í leiknum,” sagði, Omar -fros Þrjú spjöld Hvenærogfyrirhvað? Guðmundur Haraldsson dómari gaf þremur leikmönnum gnl spjöld í bikar- úrslltaieiknum í gær. Viðar Þorkeis- son, bakvörðurinn snjalli hjá Fram, reið á vaðið á 10. min. er hann kastaði boltanum á eftir Ola Þór Magnfissyni eftlr að sá síðarnefndi hafði brotið á honum. Tvö spjöld tók Guðmundur upp fir vasa sinum i seinni hálfleiknum. Það fyrra fékk ÓIi Þór fyrir ljótt brot á Guðmundl Steinssyni á 65. minútn og á 80. minútu fékk Asgeir Eiíasson að iita gula spjaldið fyrir brot á Helga Bents- synl. -fros Iþfóttir fþróttir fþróttir fþrc rx|L l4IAí ^rOIK naroi meiri trúá Keflvík ingum” — sagði Guðmundur Torfason Guðmundur Torf ason. 1" — „Sigurvilji okkar var mjög mikill. Við fundum að fólk hafði meiri trfi á Keflvikingum sem bikarmeisturum. Þó held ég að það hafi komið okkur mjög til góða að við höfðum reynslu- mikið liö,” sagði Guðmundur Torfa- son, Fram, eftir bikarfirslitaleikinn á milli Fram og ÍBK. „Eg tel mig hafa sýnt minn besta leik í sumar en annars er ég ánægðastur með frammistöðu liðsins sem heildar. Vonandi fara hlutirnir að ganga upp hjá okkur en við höfum ver- ið í nokkurri lægð að undanförnu. Eftir þennan sigur er lítið hægt að gera ann- aö en að hugsa um íslandsmótið og þá einn leik í einu. -fros I I I Með sigrinum í bikarkeppninní Jbiaut knattspyrnudeiid Fram N I þfisund krónur að gjöf frá tölvufyrir- I tækinu IBM. Sem kunnugt er ^augiýsir fyrirtækið á búningum félagsins og það var inni í aðilanna að ef Fram mundi tryggja sér sigur í öikarnum * þá fengi félagið þessa f jórhæð aö I rrlnt .(»AC ■ gjöf. •fros bm nJ Það var glatt á hjalla ó varamannabekkjum Fram or Guðmundur Haralds- son blós í flautu sína til merkis um það að leik Fram og ÍBK væri lokið. DV-mynd Bjarnleifur. Island neðst í báðum flokkum á NM í golfi sem háð var um helgina í Finnlandi Islenska landsliðið i golfi mátti sætta sig við neðsta sætið á Norðurlanda- meistaramótinu sem fram fór i Finn- landi um helgina. Danir unnu sigur bæði í karla- og kvennaflokki. Sigurður Pétursson stóð sig best íslensku kepp- endanna. Hpnn fór 72 holurnar á 298 böggum sem var fjórtándi besti árangurinn i karlaflokki af 32 keppendum. Steinunn Sæmundsdóttir stóð sig best kvennanna. Hún sló 331 bögg. Annars urðu úrslit þessi í karla- flokki: 1. Danmörk.......................1472 2. Sviþjóft..................... 1475 3. Finnland......................1480 4. Noregur...................... 1493 5. lsland........................1524 Islendingar voru því 52 höggum á eftir sigurvegurunum, Dönum. Árangur íslensku karlanna var scm hér segir: Sigurður Pétursson tllfar Jónsson Ragnar Ólafsson Hannes Eyvindsson Gylli Kristinsson Óskar Sæmundsson 73- 75—77-73 298 74— 76—77—82 309 74-80-79-74 307 78—75—79—77 309 82-76—78—75 311 78-75—78—80 318 1 kvennaflokki urðu úrslit þessi: 1. Danmörk......................1934 2. Noregur......................1954 I kvennaflokki munaði 77 höggum á Islandi og Danmörku. Bestum árangri náði Steinunn Sæmundsdóttir. Annars varö slagafjöldi íslensku keppendanna sem hérsegir: Steinunn Sæmundsdóttir 82—84—81—84 331 Ásgerður Sverrisdóttir 91—88—85—86 350 Ragnhildur Sigurðardóttir 96-88-85-86 355 Þórdis Geirsdóttir 98-89-88-92 367 -fros Fram: Bikarnu ff LEKUMI VEL SMU sagði hetja nýkrýndra bikarmeistara Fram e1 „Þetta var fyrst og fremst sigur liðs- heildarinnar, allir börðust af mikilli ó- sérhlífni og óeigingirni og þegar slíkt skeður þá þreytist maður ekki. Við lékum eins og vel smurð vél,” sagði Pétur Ormslev, hetja bikarmeistara Fram frá því í gær, en Pétur skoraði tvö af þremur mörkum Fram í sann- gjömum sigri liðsins á Keflavík, 3—1. Bikarinn er því kominn aftur í höfuðstaðinn eftir að hafa verið í umsjón Skagamanna síðastliðin þrjú ár. Það var Fram sem sló ÍA fit aö þessu sinni og þrátt fyrir nokkurt basl í leikjum liðsins í bikarnum er því vart annað en sanngjarnt að bikarinn dveljist í Álftamýrinni. Það má segja að sigur Fram hafi aldrei komistíneina verulega hættu. Strax á fyrstu mínútum leiksins náðu þeir undirtökunum og pressuðu stíft á Keflavíkurmarkið. Pétur Ormslev Omar Torfason og Guðmundur Steinsson fengu allir þokkaleg færi fyrir Fram á byrjunar- mínfitunum en mark ÍBK slapp áfalla- laust í öll skiptin. Keflvíkingarnir voru reyndar heldur ekki án færa en þrumu- skot þeirra Valþórs og Ingvars Guðmundssonar, þess síðarnefnda af stuttu færi, fóru bæði rétt fram hjá. Það var síðan á 30. mínfitu að Fram náöi forystunni. Guðmundur Torfason, hinn stóri og stæðilegi framherji Fram, sýndi þá styrkleika sinn í loftinu er hann vann skallaeinvígi við einn Keflvíking. Hann skallaði boltann til Péturs Ormslev sem komst fram hjá einum varnarmanni'Keflavíkur og inn í vítateiginn hægra megin, þar sem hann lét hörkuskot ríða af. Þorsteinn Bjarnason, markvörður Suðurnesja- liðsins, átti líklega von á því að Pétur mundi skjóta í fjærhornið en það gerði hann ekki, fast skot hans þandi út marknetið hægra megin og Fram hafði náö forystunni. Áður en markið kom hafði virst sem IBK væri að ná yfir- tökunum en við þetta áfall virtist liðið hörfa og Fram hélt enn góöum völdum á miöju vallarins. Átta mínfitum síðar hefði staðan hæglega getað orðið 2—0 en Guðmundur Torfason gaf lága fyrir- gjöf fyrir iBK-markið þar sem nafni hans Steinsson var á auöum sjó en skot hans fór í þverslána og barst síöan til Omars Torfasonar sem náði ekki að koma að skoti. Þremur mínútum fyrir hlé var síðan enn hætta viö Keflavíkur- markið en Jón Kr. Magnfisson bjargaði skalla Guðmundar Torfa- sonar fiti við stöng. Keflavík var heldur frískari aðilinn fyrst í seinni hálfleiknum þó að mun- urinn á liöunum væri ekki mikill. Sigurjón Kristjánsson fékk til að mynda upplagt tækifæri á 48. mínfitu eftir fyrirgjöf Freys Sverrissonar en Sigurjón skallaði boltann fit af í upplögöu færi. Hinum megin á vellinum fór Omar Torfason illa að ráði sínu er hann skaut yfir frá markteig. Og áfram héldu dauöafærin að bylja á mörkunum. Ragnar Margeirsson komst einn inn fyrir vörn Fram en hann náði ekki að miða nógu gaumgæfilega og skot hans fór yfir. Þá fékk Guðmundur Steins- son, Fram, óskafæri eftir að hann hafði leikið á Þorstein Bjarnason, markvörð. Keflavíkur, en kappið var forsjánni yfirsterkara og skot Guðmundar fór yfir eftir að hann hafði misst jafn- vægið. Það var því ljóst á öllu að markatöflunni yrði breytt á næstu mínútum. Það skeði síöan á 18. mínútu. Guðmundur Torfason, sem hefur Uklega aldrei leikið betur en í gær, átti sendingu inn fyrir vörn IBK, á Pétur Ormslev. Varnarmenn IBK stóðu hreinlega kyrrir og virtust hafa stein- gleymt Pétri sem fékk tíma til þess að leggja boltann fyrir sig áður en hann sendi hann yfir Þorstein markvörð, Sýningaraðilar, Heimilið 1985 í Laugardalshöll Við sérprentum á fatnað starfsfólks, útbúum nafnmerki, prentum á gólfmottur og annað sem prýða mætti sýning- arsvæðið. X-prent hf ■ Skipholti 1, kjallara. Simi 25400. íþróttir íþróttir íþrc

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.