Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1985, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1985, Blaðsíða 31
DV. MÁNUDAGUR 26. ÁGUST1985. 31 „Ég er á langversta staö á Islandi sem hugsast getur með tilliti til sölu- möguleika á framleiðslu minni. En ég hef bara hvergi prófað aö vera edrú nema hérna í þorpinu þannig að ég þori varla að hreyfa mig,” sagði Guðmund- ur S. Guömundsson, listhönnuður á Suðureyri við Súgandafjörð. Guð- mundur framleiðir allsérstæða vegg- skildi á verkstæði sínu á Suðureyri og selur í nágrannabyggöunum. Stærsta framleiðslueiningin er Islandsskjöldur með víkingaskiþi í miðju en þann skjöld er hægt aö fá í þrem litum. Þá er kirkjuskjöldur en Guðmundur hefur hug á að framleiða þá skildi með myndum af öllum kirkju- byggingum hér á landi. tsafjaröar- kaupstaður skreytir einn skjöldinn og er hann að sjálfsögðu sérhannaður tU sölu þar í bæ. „Ástæðan fyrir því að ég fór út í þessa framleiðslu var sú að ég var sjó- maður og bilaöi i baki. Eg er ekki einn um að hafa þurft að fara í land vegna heilsubrests,” segir Guömundur sem nú er aö reyna aö hasla sér völl á nýju starfssviði. Tekjurnar af skjaldargerð- inni drýgir hann svo með því að reka videoleigu í forherbergi á verkstæði Framleiðir veggskildi með kirkjum, skipum og útlínum íslands: „Er á lang- versta stað á íslandi” sínu. Þar keppir hann við tvær aðrar leigur á Suðureyri um hylli 460 íbúa. -EIR. • Guðmundur S. Guðmundsson og eiginkona hans, Guðrún Svavarsdöttir, með veggskildina ö verkstœð- inu á Suðureyri við Súgandafjörð. Tekjurnar eru svo drýgðar með leigu á myndböndum. DV-mynd KAE Loksins höfiim við fiindið keppinaut íVrir IBM PC: Gamall maður kaupir trillu Frá Regínu Thorarensen, Gjögri: Valdimar Thorarensen, 81 árs, frá Gjögri skrapp nýlega til tsafjarðar og keypti sér trillu sem er rúm tvö tonn með nýrri Volvo-Penta vél. Valdimar átti fyrstu vélknúnu trill- una í Árneshreppi, þá ungur maður og hefur hann átt margar trillurnar síð- an. Síðasta trillan hans hét Húni og varð vélarvana í vor. Gamli maðurinn greip því til þess ráðs aö fá sér gang- vissa trillu á Isafirði. Trillunni var skipað upp á Norðurfirði síðastliðinn laugardag og var það í fyrsta skipti sem skip lagðist þar að bryggju. En ekki hefur gefið fyrir Valdimar að koma siglandi á trillunni til síns heima vegna óveðurs en tveggja tíma sigling er frá Noröurfirði í Gjögur. Eg óska Valdimar til hamingju með nýju trilluna en hún hefur hlotið nafnið Sóley. Ég vona og veit aö Valdimar á eftir að draga mikla björg í bú þrátt fyrir háan aldur því hann er hress, heilsugóður og bráðskemmtilegur. -EIR. Þurrkaður grenipanell í miklu úrvali, tilvalinn á baðherbergið. HÚSTRÉ, Ármúla 38, sími 81818. Söluumboð: Gísli J. Johnsen Skrifstofubúnaður sf., Smiðjuvegi 8, Kópavogi, sími 73111 f Skrifstofuvélar hf. Örtölvutækni hf., Ármúla 38, Ottó A. Michelsen, Hverfisgötu 33, Reykjavík, sími 687220 Reykjavík, sími 20560 ARGUSCO

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.