Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1985, Blaðsíða 25
DV. MÁNUDAGUR 26. ÁGUST1985.
25
ittir
Iþróttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir
„Númer 1 var að
ná upp baráttu”
— sagði Ásgeir Elíasson, þjálfari Fram
„Það var númer 1 að ná upp baráttu
og við vorum vissir um að ef við næð-
um tökum á leiknum í upphafi mynd-
um við sigra. Þá hefur Keflavíkurliðið
óneitanlega minni reynslu en við,”
sagði Ásgeir Elíasson, þjálfari og leik-
maður með Fram, eftir bikarsigurinn.
„Það er erfitt að segja hvort til-
færslan á Omari og Pétri hafi borgað
sig. Báöir léku vel en spurningin er
hvort Omar hefði skorað hefði hann
leikið framar.
Nú er það deildin sem næst er á dag-
skránni. Við eigum eftir aö leika f jóra
leiki. Tvo við lið úr toppbaráttunni og
tvö botnbaráttulið og það eru allir leik-
ir erfiðir þegar svona stendur á,” sagði
Ásgeir Elíasson
Rólmbert Friðjónsson.
„Léku
undir
getu
— sagði Hólmbert,
þjálfari ÍBK
„Sigur Fram var sanngjarn. Leik-
menn liðsins voru mun ákveðnari en
okkar leikmenn sem iéku margir undir
getu. Ástæðan fyrir því er kannski
helst sú að þá vantar reynslu og þeir
fóru of spenntir í leikinn,” sagði Hólm-
bert Friðjónsson, þjálfari ÍBK, eftir
bikarleikinn.
„Við áttum mun minna i leiknum. I
hálfleik reyndum við að pressa þá
svolítið með því að leika framar og
stundum voru ekki nema einn til þrír
varnarmenn tii staðar.
Þriðja mark þeirra var á mjög
slæmu augnabliki. Viö höfðum þá ný-
lega skipt um taktik. Akváðum að
leika maður á mann í staö svæðis-
vamar. Þá var Ragnar nýbúinn að skora
og menn voru í sjöunda himni. Það er
lítið fyrir okkur að gera nú annað en aö
hugsa um næsta leik okkar í deild-
inni,” sagöi Hólmbert sem var að
vonum ekki ánægður með gang mála.
-fros
Góð aðsókn
Það vöru 5.330 áhorfendur sem
borguðu sig inn á bikarúrslitaleikinn.
Það er 1655 áhorfendum fleira en á
siðasta bikarúrslitaleik er var miUi
Fram og Akraness. Margir þættir
hjálpuðust að við að gera aðsóknina
svo góða er raun ber vitni.
I fyrsta lagi voru félögin mjög
heppin með veður. Þurrt var og fánar
Laugardalsvallarins náðu ekki að
blakta í logninu. Ekki spiUtu félögin
fyrir aðsókn þvi bæði hafa leikið mjög
góða knattspyrnu það sem af er
sumri. Bikarúrslitaleikurinn hefur
veúð hápunktur sumarsins hjá inn-
lendu knattspyrnufélögunum og víst er
aö unnendur góðrar knattspyrnu fóru
ekki óánægöir heim. Fjögur mörk og
opinn sóknarleikur, hvað er hægt að
biðjaummeira?
-fros
Víkings-
hjátrúin stóðst
„Það voru ailir leUdrnir í bikarnum
erfiðir en ég heid að leikurinn við
Víking bafi tekið mest á. Við vorum
svo lengi undir í leiknum,” sagði
Asgeir Elíasson aðspurður hver hefði
verið erfiðasti bikarleikur Fram í ár.
„Þrátt fyrir að við hefðum slegið
Víkingana út úr keppninni taldi ég ekk-
ert pottþétt hjá okkur. Víkingshjátrúin
stóðstékki í fyrra. Þá lék ég með Þrótti
og viö slógum Víking út úr keppninni *
en vorum svo sjálfir slegnir út.”
Víkingshjátrúin hefur verið við lýði
nokkuö lengi en hún gengur út á þá trú
að það liö sem slær Vflúng út úr bikar-
keppninni standi uppi sem bikarmeist-
arar. -fros.
íistari KSI1985
EINS OG
RÐ VÉL”
Ftir sigurinn á Keflavík í bikarkeppninni í gær, 3-1
sem komið hafði út úr markinu, 2—0.
Leikmenn IBK mótmæltu markinu og
töldu Pétur rangstæðan en svo var
ekki. Brúnin var nú farin að þyngjast á
stuðningsmönnum IBK sem stutt höfðu
sína menn dyggilega í stúku Laugar-
dalsvallarins. Þeir vöknuðu þó
skyndilega til lífsins á 24. mínútu.
Hólmbert Friðjónsson, þjálfari liösins,
hafði þá látið gera tvær breytingar á
iiði sínu. Þeir Sigurjón Sveinsson og
Björgvin Björgvinsson tóku stööur
þeirra Freys Sverrissonar og Jóns Kr.
Magnússonar áður en aukaspyrna IBK
á vallarhelmingi Fram skyldi tekin.
Sigurjón Kristjánsson tók spyrnuna og
sendi boltann inn í vítateig Fram.
Ragnar Margeirsson var fljótur að
átta sig, náði valdi á knettinum og
skaut föstu skoti af stuttu færi,
óverjandi fyrir Friðrik Friðriksson,
2—1.
Húrrahrópin voru vart þögnuö er
Fram hafði svarað fyrir sig.
Guðmundarnir í liði Fram léku þá
saman vinstra megin á vallarhelmingi
Fram. Steinsson sendi boltann til
Torfasonar sem náði að hrista af sér
tvo varnarleikmenn IBK og brjótast
upp að vítateigshorni vinstra megin og
skjóta föstum stungubolta fram hjá
Þorsteini markverði og í netið. Segja
má að meö þessu marki hafi úrslitin
ráðist. Það var vitað mál að Kefla-
víkurliðið, sem oft hefur leikið betur,
gæti ekki sigrast á tveggja marka for-
skoti Fram sem sýnt hafði sannfær-
andi leik. Enda fór svo að þrátt fyrir að
Keflvíkingarnir næðu undirtökunum á
miðjunni þá voru sóknarlotur Reykja-
víkurliðsins mun hættulegri. Lítið
markvert skeði þó þessar síðustu
mínútur leiksins og Keflvíkingar virt-
ust vera búnir að sætta sig við hlut-
skipti sitt.
Það voru tæpar 48 mínútur liönar af
seinni hálfleiknum er Guðmundur Har-
aldsson dómari flautaði leikinn af og
fögnuöur Fram var mikill. Með
sigrinum tryggði liðið sér þriöja
titilinn á árinu en auk bikarsins hefur
liðið unnið Reykjavíkurmótið og
meistarakeppnina. Bikarinn telst þó
sjálfsagt eini „alvörubikarinn” sem
liðið hefur unnið og þeir eiga mesta
möguleika allra liöa til að vinna
Isiandsmeistaratitilinn.
Það var hvergi veikan blett að finna
í liði Fram í þessum leik. Allir leik-
menn börðust mjög vel og skiluðu sínu
hlutverki mjög vel. Sumir gerðu þó enn
betur. Guðmundur Torfason átti hreint
frábæran leik með Fram. Hann var
sívinnandi allan leikinn og hvaö eftir
annaö olli hann miklum usla í vörn
Keflavíkur. Pétur Ormslev fór á
kostiun í hlutverki sóknartengiliðs,
Viöar Þorkelsson var vel meö á
nótunum í bakvarðarstööunni og hægt
væri aö hafa upptalninguna mun
lengri.
Mikil barátta Fram virtist koma
Keflvíkingum í opna skjöldu. Liðið
virtist reyndar vera að finna taktinn
eftir tuttugu minútna leik en fyrra
mark Péturs virkaöi á þá sem rothögg.
Erfitt er að gera upp á miili leik-
manna liðsins en margir þeirra léku
langt undir getu. Valþór Sigþórsson lék
ágætlega þó að vörn liðsins væri langt
frá því að geta haft taumhald á sóknar-
mönnum Fram. Ingvar Guðmundsson
lék einnig þokkalega framan af.
Ragnar Margeirsson átti einstaka
spretti en fékk alltof litla hjálp frá
samherjum sínum. Liðiö var af
mörgum talið mun sigurstranglegra
og kannski að hugarfar leikmannanna
hafi ekki verið nógu ákveðið. Erfitt er að
segja um hver orsökin er en liðiö hefur
verið í mjög ströngu leikjaprógrammi
undanfarið, leikið fjóra leiki á níu dögum.
-fros.
„Opinn leikur
og skemmtilegur”
— sagði Ellert B. Schram, form. KSÍ
„Þetta var opinn leikur og skemmti-
legur og knattspyrnan var eins og hún
gerist best í bikarúrslitaleikjum.
Fram lék mun betur og verðskuldaði
sigur og ég vil óska þeim tii hamingju
með það,” sagði Ellert B. Schram, for-
maður knattspyrnusambandsins.
„Þetta var metaðsókn á bikarleiki
síðustu ára og framkvæmd leiksins
tókst með miklum ágætum. Þá var
stemmningin á áhorfendapöiiunum
eins og hún á að vera í bikarúrslita-
leikjum,” sagði Eliert.
-fros
Liðin
Lið Keflavíkur og Fram, er mættust í úrslitaleik bikarkeppninnar i gær, voru þannig skipufl:
Fram:
1. Friörik Friðriksson
2. Þorsteinn Þorsteinsson
3. Ormarr örlygsson
4. Pétur Ormslev
5. Viðar Þorkelsson
6. Kristinn Jónsson
7. Sverrir Einarsson
8. Guflmundur Steinsson
9. Ömar Torfason
10. Guflmundur Torfason
11. Ásgeir Eliasson
ÍBK:
1. Þorsteinn Bjarnason
2. Sigurjón Kristjánsson
3. ingvar Guðmundsson
4. Valþór Sigþórsson
5. Freyr Sverrisson
6. Sigurður Björgvinsson
7. Gunnar Oddsson
9. Ragnar Margeirsson
10. Óli Þór Magnússon
13. Helgi Bentsson
14. Jón Kr. Magnússon
Tvær skiptingar voru gerflar í leiknum, báflar í liöi ÍBK. Sigurjón Sveinsson og Björgvin Björg-
vinsson tóku sæti þeirra Freys Sverrissonar og Jóns Kr. Magnússonar.
-fros
sagði Ragnar Margeirsson, ÍBK
I
| „Það er greinllega mikil þreyta í
I liðinu eftir að hafa leikið fjóra leikl á
■ níu dögum. Við náðum aldrei að
I komast verulega inn í leikinn. Nú
Ihlýtur stefnan einungis að vera sett
á Islandsmeistaratitilinn. Við eigum
| raunhæfa mögnleika ef við vinnum
■ þá leiki sem við eigum eftir,” sagði
I Ragnar Margcirsson, Keflavik.
_ Framarar voru allan tímann mun
| ákveðnari en viö og þeir náöu að
jjsomast vel inn í leikinn. Utslagiö
gerði þegar þeir svöruðu marki *
okkar f jörutíu sekúndum seínna. Þá |
vorum við greinilega orönir þreyttir .
og við náöum ekki að sýna jafngóðal
frammistöðu eins og við höfum gert|
aðundanfömu. I
Ég tel mig vera í 80—85% æfingu. I
Eg datt niður i úthaldi viö meiðslin,” ■
sagði Ragnar að iokum en miklarl
vangaveltur voru um það fyr-
leikinn hvort hann myndi leika.
Eina mark Keflavíkur staðreynd. Ragnar Margeirsson nær að athafna sig inni í marktoig Fram og þá er
ekki að sökum að spyrja. Inn fór boltinn en það dugði ÍBK þó skammt. DV-mynd Bjarnleifur.