Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1985, Side 17
DV. ÞRIÐJUDAGUR10. SEPTEMBER1985.
17'
íþróttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir
Br United. Einn litríkasti knatt-
illdórs er nœr öruggt aö hann
unnudag.
„98% öruggt að
Dennis Law mætir”
— segir Halldór „Henson” Einarsson. Uppskeruhátíð knattspyrnumanna
í Broadway á sunnudag. Þar verður valinn besti og efnilegasti
leikmaður ársins
„Jú, þaö er 98% öruggt að Dennis
Law kemur hingað sem heiðursgestur
á lokahóf knattspyrnumanna sem
haldið verður á Broadway næstkom-
andi sunnudag. Við höfum undanfarna
daga verið að reyna að fá frægan
knattspyrnumann til að mæta til ís-
lands og ég get næstum því fullyrt að
Law kemur,” sagði Halldór Einarsson
í samtali við DV í gærkvöidi, en hann
er einn þeirra sem unnið hafa að komu
heiðursgestsins á hátiðina í Broadway.
Hátíð þessi mun hefjast meö því að
allir leikmenn 1. deildar félaganna
munu koma saman í félagsheimili Is-
landsmeistaranna (verði þeir reyk-
vískir) og þaöan verður haldið í rútum
að veitingastaðnum Broadway. Þar
verður boöið upp á hanastél og það
sötrað utan dyra ef veður leyfir. Síðan
verða skemmtiatriði innanhúss að af-
lokinni flugeldasýningu og þá mun
verða boöið upp á skemmtiatriði af
leikmönnum 1. deildar. Líklegt er að
Ömar Ragnarsson láti sjá sig. Síðan
verður húsiö opnað almenningi klukk-
an tíu og er þaö einlæg von aðstand-
enda hátíðarinnar aö sem flestir knatt-
spyrnuunnendur láti sjá sig. Hápunkt-
ur kvöldsins verður síðan klukkan tólf
á miðnætti en þá verður tilkynnt val á
knattspyrnumanni ársins og efnileg-
asta knattspyrnumanni ársins og mun
Dennis Law afhenda viðkomandi verð-
laun sín. Dennis Law er óþarfi að
kynna. Hann er einn frægasti knatt-
spyrnumaður heims, lék lengst af með
Manchester United og fjölmarga
landsleiki fyrir Skotland. -SK.
Enn möguleiki
á titli hjá Öster
Frá Gunnlaugi A. Jónssyni, frétta-
manni DV í Svíþjóð: \
Öster, lið Teits Þórðarsónar, á enn
möguleika á að tryggja sér rétt til
þátttöku í fjögurra liöa úrslitunum í
sænsku knattspyrnunni. Um helgina
síðustu sigraði Öster lið Malmö FF
mjög óvænt á útivelli en Maimö er í
efsta sæti Allsvenskan. Teitur kom
ekki mikið við sögu i leiknum og náði
ekki að skora.
Eggert Guðmundsson og félagar hjá
Halmstad náðu að knýja fram jafn-
tefli, 2:2, gegn Hammarby á útivelli.
Eggert átti þokkalegan leik í marki
Halmstad. Þetta stig sem Halmstad
fékk bjargar líklega liðinu frá falli.
— eftir útisigur gegn
Malmö FF,0:1
Þriðja „Islendingaliöiö”, Vasalund,
sem þeir Sigurlás Þorleifsson og Pálmi
Jónsson leika með, í nyrðri hluta 2.
deildarinnar, lék gegn neðsta liðinu,
Falun og sigraði, 1—0. Vasalund hækk-
aði á stigatöflunni um tvö sæti og er nú
Í5. sæti.
Urslit urðu annars, þessi í All-
svenskan um síöustu helgi:
Brage-Trælleborg
Norköping-M j állby
Kalmar FF-Aik
4- 0
5- 3
0-5
Malmö FF-Öster
Hammarby-Halmstad
0-1
2-2
Staöan er nú þannig í deildinni þegar
19 umf eröir haf a veriö leiknar af 22:
MalmöFF 27stig
KalmarFF 23 stig
IFK Gautaborg 22 stig
Örgryte 22 stig
AIK 21 stig
Öster 20 stig
Hammarby 19 stig
Norköping 17 stig
Halmstad 17 stig
Brage 15 stig
Mjállby 15 stig
Trælleborg 10 stig
Pétur Guðmundsson til
Tampa Bay Thrillers
„Ég er búinn að skrifa undir samn-
ing við Tampa Bay Thrillers sem leik-
ur í CBA-deildinui og mun leika með
þeim í vetur,” sagði körfuknattleiks-
maðurinu Pétur Guðmundsson í sam-
, tali við DV í gærkvöldi.
„Eg er mjög ánægður með þennan
samning. Þessi CBA-deild er mjög
sterk atvinnumannadeild og mjög
mikilvægur undirbúningur fyrir mig
að því markmiði að komast í NBA-
• Pétur Guðmundsson fœr með
samningi sínum við Tampa Bay
Thrillers gott tækifæri til að sanna
hæfni sína og vekja áhuga forráða-
manna liðanna i NBA-deildinni.
deildina. Keppnistímabilið byrjar í lok
nóvember og þangað til er bara áð æfa
og reyna að koma sér í sem allra besta
æfingu. Ef ég stend mig í stykkinu á ég
góða möguleika á að komast að hjá liði
í NBA-deildinni og það er draumur-
inn,” sagði Pétur.
Pétur Guömundsson hefur undanfar-
ið verið að reyna að komast að hjá lið-
um einhvers staðar í Evrópu en hefur
gengið það frekar illa. Með því að gera
þennan samning við Tampa Bay
Thrillers hefur Pétur fyrirgert rétti
sínum á aö leika körfuknattleik í
Evrópu og er það í samræmi við reglur
alþjóða körfuknattleikssambandsins.
„Eg æfi á fullu næsta mánuðinn en þá
fer ég til Florida og byrja hjá Tampa
Bay Thrillers. Það er langt síðan ég
hef verið samningsbundinn hjá félagi
og ég er mjög bjartsýnn á framhaldið.
Vonandi gengur mér vel hjá nýa félag-
inu,” sagði Pétur Guðmundsson í gær-
kvöldi.
-SK.
■ -
rd
• Egill Steinþórsson.
Egill hættir- -
á Skaganum
„Við erum búnir að æfa mjög vel og
ég er bara nokkuð bjartsýnn á kom-
andi keppnistimabii,” sagði Egill
Steinþórsson í samtali við DV i gær en
hann hefur tilkynnt félagaskipti úr lA
yfir í sitt gamla félag, Armann.
Egill hefur dvalið á Akranesi tvö
undanfarin ár og þjálfað og leikið með
iA. Hann hyggst leika sem útileik-
maður með Ármanni í 2. dcildinni i vet-
ur en hann er einnig vel liðtækur mark-
vörður. Ármenningar hafa gengið frá
ráðningu Péturs Bjarnasonar en hann
þjálfaði liðið líka í fyrra.
Við starfi þjálfara á Ákranesi tekur
Gissur Ágústsson en hann lék áður
með Breiðabliki og Fram og er mjög
efnilegur markvörður. -SK.
ÍR-ingar
meistarar
í 4. deild
ÍR-ingar náðu glæsilegum árangri í
4. deild islandsmótsins í knattspyrnu i
sumar. Liöið tapaði ekki leik i sumar
og um síðustu helgi sigraöi liðið Reyni
frá Árskógsströnd í úrslitaleik með
þremur mörkum gegn einu. Leikið var
á Akureyri.
Vignir Sigurðsson, Páll Rafnsson og
Guðmundur Ingi Magnússon skoruðu
mörk ÍR en Björn Friðþjófsson skoraði
mark Reynis. ÍR-ingar eru sem sagt
islandsmeistarar en bæði þessi lið
leika i 3. deild næsta sumar.
-SK.
óttir
Iþróttir
Tværraðir
með tólf
— réttum í 3. leikviku
getrauna
Tvær raðir komu fram með 12 rétt-
um leikjum í 3. leikviku íslenskra get-
rauna. Vinningur fyrir hverja tólfu var
kr. 224.145 — en 11 réttir gáfu kr. 2.043
en 94 slikar raöir komu fram.
Heildarvinningsupphæö var þvi
640.417, en alls voru seldar 341.556 rað-
ir.
Knattspyrnudeild Fram sló út Fylk-
ismenn þessa vikuna og seldi lang-
mest allra umboðsaðila eða um 40.000
raðir. Af félögum utan Stór-Reykjavík-
ursvæðisins standa Keflvíkingar sig
best í sölunni.
Nýi seðillinn með 64 röðum hefur
selst vel og er sala hans um f jórðungur
af heildarsölu.
Óskar með
6. besta
árangurinn
ÍR-ingurinn Óskar Thorarensen náði
á sunnudagskvöldið besta árangri í
spjótkasti. Oskar kastaöi spjótinu 70,06
metra sem er sjötti besti árangur Is-
lendings frá upphafi. öskar náði þess-
um árangri á innanfélagsmóti KR.
-SK.
íþróttir