Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1985, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1985, Síða 9
DV. FIMMTUDAGUR 3. OKT0BER1985. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Breska utanríkisráöu- neytið í björtu báli Mikill eldur kviknaði í húsibreska utanrikisráðuneytisins í morgun. Ott- ast var um tíma að eldurinn næði alla leiö að Downing stræti 10, þar sem Margaret Thatcher forsætisráðherra hefur aðsetur sitt. Fleiri en 70 slökkviliösmenn með 16 slökkviliðsbíla börðust gegn logunum í morgun. Mestur var eldurinn á tveim- ur efstu hæðum ráðuneytisbyggingar- innar sem er fimm hæða. „Það var fólk í byggingunni. Við er- um enn að leita aö fleira fólki sem gæti veriö í sjálfheldu,” sagði talsmaður slökkviliösins. Talsmaður lögreglu sagöi að eldur- inn hefði breiðst út í átt að Downing stræti en að nú virtist sem slökkviliðs- menn hefðu náð tökum á honum. Talsmaöur slökkviliðsins sagði aö of snemmt væri að segja hvort eldsupp- tök væru af grunsamlegum toga. Byggingarframkvæmdir voru í gangi þar sem upptökin voru. Eldurinn braust út um klukkan fjög- ur í nótt, að íslenskum tíma. Utanríkisráðuneytið er á milli Down- ing strætis og fjármálaráðuneytisins og um 100 metra frá þinghúsinu. Gömlu góðu dagarnir þegar Nkomo, til vinstri, og Mugabe voru vinir. í gær hittust þeir aftur til að reyna að jafna deilur sínar. NkomoogMu- gabe í við- ræðum saman 1 dag virðast góðar horfur á því að steypt verði saman tveim öndverðum stjórnmálaflokkum blökkumanna í Zimbabwe eftir aö þeir hittust til viðræðna, Robert Mugabe forsætisráö- herra og Joshua Nkomo, aðalandstæð- ingur Mugabes. Það eru liðin þrjú ár síöan þessir fyrrum samherjar úr skæruhernaöi blökkumanna gegn yfirráðum hvítra í Ródesíu hafa skipst á orðum augliti til auglitis. Þeir komu saman í gær til þess að ræða samruna flokka sinna, ZANU, sem er stjórnarflokkurinn, og ZAPU, sem er flokkur Nkomos og ættbræðra hans. Nkomo tók ráðherrasæti í fyrstu ríkisstjórn blökkumanna í Zimbabwe en hrökklaðist úr henni 1982, sakaður um valdasamsæri gegn Mugabe. Upp úr því hófust væringar í Matabele- landi þar sem Nkomo og ZAPU á aðal- fylgi að fagna. Stjórnarherinn var sak- aður um mörg óhæfuverk gegn Mata- bele-mönnum, en Mugabe bar þeim á brýn skæruhernað og skemmdarverk. Um hríö sá Nkomo sig knúinn til að flýja land. Samruni flokka þeirra er talinn mikilvægur áfangi í því aö koma á eins flokks-kerfi eða flokkseinræði í Zimb- abwe eins og gert var ráð fyrir í stjórnarskrárbreytingunum í ágúst í fyrra. Símskeyti frá Sakharov: ER ÞAÐ FALSAÐ EÐA ÓFALSAÐ? Stjúpdóttir sovéska andófsmannsins Andreis Sakharov sagðist hafa fengið símskeyti frá stúpföður sínum þaöan sem hann er í útlegð í Gorky. Hún sagöist ekki vera viss um hvort það væri ófalsað. Tatyana Yankelevits sagði á fundi, sem hópar sem berjast fyrir lausn Sakharovs hélt, að í skeytinu hefði Sakharov beðið um læknislyf. „Ég vildi gjarnan trúa því aö það sé ófalsað,” sagði Yankelevits á fundin- um. En hún sagði að fyrri símskeyti hefðu reynst fölsuð. Fundurinn var haldinn í París. Þar er nú í heimsókn Mikhaíl Gorbatsjov, aöalritari sovéska Kommúnistaflokks- ins. Frönsk stjórnvöld hafa bannað mótmælafundi gegn Gorbatsjov. Franskir stjórnmálamenn neituðu að taka þátt í fundinum með stjúpdóttur Sakharovs en 2.000 aðrir mættu. Kinnock sveigir fiokkinn nær miöju Neil Kinnock, formaður breska Verkamannaflokksins, hefur mjög hamrað á hinum herskárri vinstriarmi flokksins á flokksþinginu í Bourne- mouth, en það stendur yfir þar þessa vikuna. Með því aö færa stefnu Verka- mannaflokksins nær miöflokkslínum vonast hann til að höfða frekar til kjós- enda og endurheimta eitthvaö af því fylgi sem flokkurinn hefur tapað til jafnaðarflokksins og frjálslyndra. í ræðum síðustu tvo daga hefur Kinn- ock veist mjög að vinstrimönnum og sakar þá um að spilla mjög fyrir Verkamannaflokknum og möguleikum hans í næstu þingkosningum. Kinnock veittist í gær sérstaklega að Arthur Scargill, leiðtoga kolanámu- manna, sem hafði lagt fram kröfu um að kæmist Verkamannaflokkurinn í ríkisstjórn í framtíðinni mundi kola- námumönnum endurgreiddar skaöa- bæturnar sem samtök þeirra voru dæmd til að greiða eftir árslangt verk- fallþeirrasíðast. „Það væri ekki heiðarlegt af flokkn- um að gefa nokkrum aðila slíkt lof- orð,” sagöi Kinnock í gær en tapaði samt atkvæðagreiðslu um tillöguna þar sem margir fulltrúar verkalýðsfé- laga höfðu áður bundiö fastmælum við kolanámumennina að greiöa atkvæði með tillögu Scargills. — Þó fékk Scar- gill því ekki til leiðar komið aö endur- greiðslan yrði sett inn í stefnuyfirlýs- ingu flokksins. Piacido Domingo hættiríeittár Söngvarinn mikli Placido Dominge hefur ákveðið að hætta söng í atvinnuskyni í eitt ár og syngja einungis í góðgerðarskyni. Placido Domingo ákvað þetta eftir að f jórir ættingja hans fórust í jarð- skjálftunum í Mexíkó. Það voru vinir söngvarans sem sögðu fréttamönnum frá þessu. Placido Domingo sjálfur hefur ekki viljað tala við fréttamenn undan farið. Vinirnir sögðu að söngvarinn hefði tekið lát ættingjanna mjög nærri sér. Placido Domingo er 41 árs. Mikið úrval varahluta í fólksbifreiðar og jeppa Sendum í póstkröfu um land allt. Höfum á lager m.a. bremsuklossa, stýrisenda, spindilkúlur, kveikju- hluti, vatnsdælur, kúplingar, mæla, spegla, högg- deyfa, tímahjól og keðjur, dráttarbeisli og margt fleira. VARAHLUTAVERSL U N I N 'SIÐUMULA 3-5 SlMAR: 34980 og 37273 Þessar 3 nýju myndir koma á myndabandaleigur | dag: Breakdance II, Bleiku náttfötin, (She'll be wearing pink pyjamas), * Hennessy leitar hefnda. LEITAR HEFNDA Hennessy ser Breta myrða Ijolskyldu sina. Hann breyttist i Oargadyr. sem þyrstir i hetnd Hundeltur af Scotland Yard og IRA, byður hann hættunni birgin . . SAKAMÁLAMYND ADALHLUTVERK: ROD STEIGER - LEE REMICK - TREVOR HOWARD - RICHARD JOHNSON - ERIK PORTER - PETER EGAN. ÍSLENSKUR TEXTI Meirirhattar dansmynd J með öllu bestu Break- dönsurum i heimi, þeir leika listir sinar sem þeim einum er lagið. f I ÍKSUf J'4 * ? Z A h * ÍSLEM5KUR TEKTI Juíie WaÖers fer ii lioslurn í Jkssuri fróbcvru rrtyruf W"1 (Sfit’íí bc Wearing Piníi Pyjanuu;) ÍSLENSKU TEXTI Hennessy leitar hefnda Hennessy er friðelskandi maður sem sér fjölskyldu sína myrta af breskum hermönn- um og IRA á Norður-lrlandi. Við þetta umhverfist hann gjörsamlega. Hann hefur nú ekkert að lifa fyrir nema hefndina. Þegar Hennessy á í hlut er ekki setið viðorðin tóm. Aðalhlutverk: Rod Steiger — Lee Remick. Það þarf varla að segja meira. Breakdance II fjallar um unglinga sem vilja fá að vera í friði viö eftirlætisiðju sína, dansa break- dans. Þeir halda til í samkomuhúsi sem nú á að víkja fyrir verslunarmiðstöð. Ungl- ingarnir taka þessu ekki þegjandi og hljóðalaust. . . I Breakdansi er boöið upp á nokkur frábær breakdansatriði. Meðal annars atriði sem sýnt var í Skonrokki ný- lega. Bleiku náttfötin (She'll be wearing pink pyjamas) Þessi mynd er í einu oröi sagt frábær. Þessi skemmtilega mynd segir frá viðhorf- um átta kvenna til lífsins og tilverunnar. Sjaldan hefur tekist að gera tilfinningalífi kvenna jafngóð skil og í Bleiku náttfötun- um. Leikararnir fara allir á kostum í mynd- inni, sérstaklega þó Julie Walters sem sló svo eftirminnilega í gegn i Educating Rita. Bleiku náttfötin er mynd sem allar konur hreinlega verðaaðsjá. Fáanlegar á myndbandaleigum um allt land. TEFLI VIDEO Dreifing Síðumúla 21 sími 686250.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.