Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1985, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1985, Blaðsíða 21
DV. FIMMTUDAGUR 3. OKTOBER1985. 21 íþróttir Iþróttir Iþróttir íþróttir gærkvöldi. Fram vann leikinn og DV-mynd S. /elí ur ff skiptið gegn Aberdeen i mmútum og töpuðu, 1:4 Skoska liðiö mætti mun frískara til leiks í seinni hálfleiknum eftir að sam- landar þess á áhorfendapöllunum höfðu baulað á þá í átt að búningsher- bergjunum. Skaginn hafði þó í fullu tré viö liöið fram að 18. mínútu er íslensku áhugamennimir fengu að þola þrjár vatnsgusur á fimm mínútum. Stuart Gray náði forystunni fyrir Aberdeen á 18. mínútu hálfleiksins, varamaðurinn John Hewitt bætti öðru marki við mín- útu seinna og þremur mínútum síöar gulltryggði hinn varamaður Skotanna sigurinn. „Taktisk mistök" Það voru fyrst og fremst taktisk mis- tök sem kostuðu okkur þessi mörk. Aberdeen skipti um leikaðferö. Lék 4— 2—4 í stað 4—3—3 áður og miðjuleik- menn okkar voru of seinir til að kveikja á perunni. Þeir fengu auka- menn í sóknina og þaö réðum viö ekki viö,” sagði Höröur Helgason um hinn slæma kafla Skagamanna. Karl Þórðarson lék á als oddi í þess- um leik fyrir Skagaliðið og átti hreint út sagt stórkostlegan leik. Þá stóð vinstri bakvörðurinn, Heimir Guð- mundsson, fyrir sínu auk annarra varnarmanna liösins sem oftast áttu létt með aö verjast sóknarmönnum heimaliðsins. -fros Kampavínið flaut f Belfast Frá Andrési Eiríkssyni, fréttaritara DV á leik Fram og Glentoran í Belfast: Það var öðru fremur mjög sterk vörn sem lagði grunninn að áfram- haldandi þátttöku Fram í Evrópu- keppni bikarhafa. Fyrir leikinn hafði Fram aldrei náð að tryggja sér sæti í annarri umferðá Evrópumóti en segja — sagði Friðrik Fridriksson, markvördur Fram, sem mátti þola ruddaskap frá einum íranum eftir leikinn Frá Andrési Eiríkssyni, fréttaritara DVíBelfast: „Einn írsku leikmannanna skall- aði mig að ástæðulausu eftir að leik- tímanum var lokið,” sagði Friðrik Friðriksson, markvörður Fram, sem var mjög sár yfir þeirri mcðferð er hann þurfti að þola frá hinum írsku mótherjum Fram. Atvikið, sem Frið- rik er að tala ura, skeði eftir leikinn. Friðrik var þá að veifa til áhorfcnd- anna er einn trinn vatt sér að honum og skallaði hann í andiitið. Sem betur fer varð hinum efnilega markverði ekki meint af. Friðrik þurfti ýmis- legt að þola er á leiknum stóð. Hann iá til dæmis dágóða stund á leikveil- inum í byrjun seinni háifleiksins ef tir að einn sóknarleikmauna Glentoran haföi sparkað í andlitið á honum. „Mér fannst þetta mjög harður leikur og mark þeirra var ekki lög- iegt. Einn leikmanna þeirra stjakaði . harkalega við mér þannig að ég náði ! ekki fyrirgjöf inni er markið kom úr. -fros Urslit: Evrópukeppni meistaraiiða Trakía Plovdiv (Búlgaríu) —Gautaborg (Sy.þjóð) Austria Vín(Austurríki)—Dynamo Berlin(A-Þýsk.) Fenerbache(Tyrkl.)—Bordeaux(FrakkU) BayernMiinchen(V-Þýsk.)—GornikZabre(Póllandi) Ajax(Hollandi)—Porto(Portúgal) Barcclona (Spáni) —Sparta Prag (Tékkósl.) Juventus(ítalíu)—Jaunesse(Lúxemborg) Aberdeen (Skotland) —í A (ísland) Serve tte (S viss) —Linf ield (N-í rl.) Valerengen(Nor.)—Zenit Leningrad(Sovét.) Steaua Búkarest (Rúmeníu)—Ve jle (Danm.) Omonia(Kýpur)—Ajax Rabit(Möltu) Sarajevo(Júgóslavíu)—Kuusi Lahti(Finnl.) Shamrock Rovers(írl.)—Honved(Ungverjal.) P AOK Salonika (Grikkl.) —V erona (ítalíu) Evrópukeppni bikarhafa Universitatea Craiova (F.úmeníu)—Monaco( Frakkl.) Tatabanya(Ungverjal.)—Rapid Vín( Austurríki) Widzev Lodz(Póll.)—Galatasaray(Tyrkl.) Flamurtari(Albaníu)—Helsinki(Finnl.) Celtic (Skotl.)—Atletico Madrid (Spáni) DynamoKiev(Sovét.)—Utrecht(Hollandi) Differdance(Lúx.)— AIK Stokkhólmi (Svíþjóð) Sa mpdoria (í talíu)—Larisa (Grikkl.) Dukla Prag (Tékkósl.) —Limassol (Kýpur) BangorCity(Wales)—-Frederikstadt(Noregi) Dynamo Dresden(A-Þýsl.)—Cercle Brugge(Belgíu) AArau(Sviss)—Rauða stjarnan(Júgósl.) BayerUerdingen(V-Þýsk.)— Zurrieq(Möltu) Glentoran (N-Irl) —Fram (Islandi) Gal way U nited (írl.)—Ly ngby (Danmörku) Evrópukeppni félagsliða Feyenoord(Hollandi)—Sporting Lissabon(Portúgal) Atletico Osasuna(Spáni)—Rangers(Skotl.) Nantes(FrakkL)—Valur(lsland) Lokamotive Leipzig (A-Þýsk.) —Colera ine (N-Irl.) SportingGijon(Spáni)—Köln(V-Þýsk.) Bohemians Prag(TékkósL)—Raba EtoGyordJngverjal.) ClubBrugge(Belgíu)—Boavista(Portúgal) PSV Eindhoven(Holl.)—Avenir Beggin( Lúx.) Malmö FF(Svíþjóð)—Videoton(Ungverjal.) AC Milano(ítalíu)—Auxerre(FrakkL) St. Mirren(SkotL)—Slavia Prag(Tékkósl.) WerderBremen(V-Þýsk.)—Odessa(SovéL) Dundee Ut.(SkotL)— Bohcmians Dublin(ÍrL) Pailoseura (Finnl.)—Spartak Moskva (Sovét) Lech Poznan(PólL)—Bor. Möuchcngladbach( V-Þýsk.) Hammarby(Svíþjóö)—Blagocvgrad(Búlgaríu) HSV (V-Þýsk.)—Sparta Rotterdam( Holl.) Viking(Noregi)—Legia Varsjá(Póllandi) Dnepropetrovsk(Sovét.)—Wismut Ave(A-Þýsk-) Arósar(Danmörku)—Waregem(Beigíu) St. Gallen(Sviss)—Inter Milano(italíu) Real Madrid (Spáni)— AEK Aþenu (Grikkl.) Hamrun(Möltu)—Dynamo Tirana(Albaníu) PartizanBelgrad(JúgósL)— Portimonense(Portúgal) VardarSkopje(JúgósL)—Dynamo Búkarest(Rúm.) Panathinkaikos(GrikkL)—Torino(italíu) Lokomotive Sofia(Búlgaríu)—Apoel(Kýpur) Innsbruck (Aus turriki) —Liege (Belgiu) 1— 2(3—5) 2— 1(4—1) 0—0(3—2) 4—1(3—2) 0-0(0—2) -1(2—2)B. áfr. 4—1(9—1) 4—1(7—1) 2—1(4—3) 0—2(0—4) 4—1(5—2) 5—0(10—0) 1—2(2—4) 1—3(1—5) l—2(2—5) 3— 0(3—2) 1—1(1—6) 2—1(2—2)G. áfr. 1—2(3—5) 1—1(2—3) 4— 1(5—3) 1—0(2—1) 4—0(6—2) 0—0(1—l)B.áfr. 2—1(4—l)D.áfr. 2—0(2—1) 3— 0(4—2) 5—0(6—1) l—2(l—2) 4— 1(5-4) 3— 1(6—5) 4— 0(6—0) 3—2(3—3)V. áfr. 3—0(4—3) 3—0(3—1) 1— 3(1—4) 0—2(1—3) 4—0(7—1) 2-0(2—2)S. áfr. 1-1(1—1) 2— 1(5—2) 4—0(4—1) 1—0(2—2)V. áfr. 1-1(2—3) 4—2(6—4) 1_3(1—4) — þegar Fram tryggði sér í fyrsta sinn réttinn til að leika í annarri umferð í Evrópukeppni þrátt fyrir 1:0 tap gegn Glentoran má að sætið hafi aldrei verið í neinni hættu hér í Belfast í gærkvöldi. Sóknar- lotur Glentoranliösins voru of einhæfar fyrir vörn Fram sem stóð sig hetjulega í leiknum. írarnir reyndu að mata framherja sína með háum sendingum inn í vítateig en Friðrik Friðriksson og félagar í Framvörninni brugðust ekki. Það var ekki fyrr en tíu mínútum fyrir leikslok að Glentoran náði aö skora sitt eina mark í leiknum. Mullen var þar að verki og var markið í meira lagi vafa- samt. Einn írinn hafði þá stjakað við Friðriki markverði sem við það missti af fyrirgjöf, og Muller var á réttum stað og skoraði sigurmark leiksins. Það voru þó Álftamýrarstrákarnir sem hrósuöu sigri í lokin og kampavin- ið flaut í búningsherbergjum þeirra eftir leikinn í orðsins fyllstu merkingu. Þrátt fyrir í írska liðið væri mun meira með blotann í gærkvöldi tókst þeim sjaldan að skapa nokkra teljandi hættu uppi við mark Fram. í fyrri hálf- leiknum fékk lið Glentoran tvö marktækifæri. Fyrirliði þeirra, Clairy, átti skot sem Friðrik varði vel í horn og síðan átti Blowers skot rétt fram hjá. Þá átti Manlcy skalla naumlega vfir en hættulegasta færi leiksins var Framara. Guðmundur Steinsson komst þá einn inn fyrir vörnina og átti aðeins markvörðinn eftir. írinn sá í þetta skiptið við honum, var eld- snöggur niður og náði að verja skot hans. Sverrir Einarsson átti bestan leik hjá Fram, stjórnaði vörninni eins og hershöfðingi. Þá átti Friðrik góðan dag í markinu þrátt fyrir nokkra „pústra” og þeir Ásgeir Elíasson og Pétur Ormslev skiluðu hlutverki sínu vel. Sá síðaruefndi sýndi sérstaklega góðan leik í fyrri hálf leiknum. Pétur fékk reyndar að sjá gula spjaldið hjá ágætum írsk-dönskum dó'mara. Spjaldið var gefið eftir að Pétur hafði mótmælt innkasti Glentoran er hann taldi eign Fram. Áhorfendur voru um fimm þúsund. -fros. Lífláts- hótanir til stjóra PSV Líflátshótanir til framkvæmdastjóra hollenska félagsins PSV Eindhoven eru nú í rannsókn hjá hollensku lög- reglunni. Kraay fékk bréf er á stóð. „Á morgun drepum við þig, Kraay.” Stjórninn lét bréfið sem vind um eyru þjóta en næsta dag blasti við honum dauður köttur er skorinn haföi verið á háls í aftursæti bifreiðar hans. Hann ákvað að vera heima er PSV lék útileik við Ajax og 2—4 sigur liðs hans gerði lítið til að létta á áhyggjunum. Svipað mál kom upp á síðasta ári. Þá fengu fimm leikmenn PSV liðsins lif- látshótanir en lögreglan telur þó ekki víst að hótanirnar komi frá sömu aðil- um. PSV er nú í efsta sæti hollensku deildarinnar. -fros. Fram reynir aðfá gervigrasið „Við munum senda mann til Zúrich og reyna að fá heimaleikinn í annarri umferð á gervigrasið. Við þurfum þá einuig að fá Ieyfi hjá Reykjavíkurborg. Takist ekki að fá undanþágu þá er aUt óráðið hvar við leikum,” sagði Eyjólfur Bergþórsson, varaformaður knattspyrnudeildar Fram, í gærkvöldi. Möguleikar félagsins á að fá leikinn á gervigrasið eru þó vart miklir. QPR reyndi aö fá leik sinn við KR á Loftus Road, heimavöll félagsins, er liðin léku saman í Evrópukeppuinni en beiðni þeirra var hafnað. Þá léku KR-ingar á Highbury, heimavelli Arsenal. Áðstæöur hér heima eru reyndar mun erfiðari svo að ef til vill er ekki öll von úti. Drátturinn í aöra umferö fer fram í Zúrich á hádegi á föstudaginn. Þangaö til er víst lítið annaö hægt aö gera en að bíöa. -fros. „Uerdingen er óskaliðið” — sagði Guðmumdur Steinsson um næstu mótherja Frá Audrési Eirikssyni, fréttaritara DV iDublin: „Bayer Uerdingen er óskaliöið mitt í annarri umferð,” sagði Guðmundur Steinsson, Fram, eftir leikinn við Glentoran. „Mér fannst viö ekki leika vel og þaö var erfitt aö leika í sókninni. Eg var aöeins of fljótur á mér þegar ég komst einn inn fyrir og markvörður þeirra sá viö mér. -fros. „Við vorum sterkirfyrir” — sagði Ásgeir EMasson, þjálfariFram „Glentoran fékú varia nein uratais- verð færi í leiknum. Liðið brenndi sig á sama soðinu æ ofan í æ að dæla háum scndingum inn í teiginn. Eg vissi það fyrir leikinn að við vorum sterkir fyrir þar og hafði því ekki neinar teljandi áhyggjur. Annars var liðið eins og ég bjóst við þvi, ég er mjög ánægöur með úrslitin,” sagði Ásgeir Elíasson, þjálfari og leikmaður, kampakátur eftir sigur Fram í Bclfast. -fros. „Gerðum okkur miklar — sagði Clairy, fyrirliði Glentoran Frá Andrési Eiríkssyni, fréttaritara DV á leik Fram og Glentoran i Belfast: „Eg er mjög vonsvikinn. Við gerðum okkur miklar vonir um að slá Fram út úr keppniuni,” sagði Clairy, fyrirlíði írska liðsins, eftir leikinn. „Mér fannst viö ekki leika neitt vitlaust, ég hafði þaö á tilfinningunni aö leikaðferöin mundi gefa annaö mark en svo varö ekki. Eg vU óska Fram til hamingju meö von um aö liðinu gangi vel,” sagði Clairy að lokum. -fros.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.