Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1985, Side 11
DV. FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER1985.
11
Menning
Menning
Menning
Menning
VÖLUNDUR FRÁ FINNLANDI
— Sýning Bertels Gardeberg f Norræna húsinu
I því flóöi sýninga, sem nú gengur
yfir bæinn, hefur mörgum eflaust yfir-
sést lítil sýning í anddyri Norræna
hússins. Þar er á ferðinni Finnlands-
svíi, Bertel Gardeberg, einhver þekkt-
asti silfurhönnuöur þar í landi. Enginn
unnandi úrvalshönnunar eða skapandi
handverks yfirleitt ætti aö láta þessa
sýningu framhjá sér fara því hún er í
einu oröi sagt frábær og með því allra
besta sem Norræna húsiö hefur boðiö
upp á um árabil.
Sýningu Gardebergs fylgir einnig af-
buröafallegur bæklingur með myndum
af flestum þekktustu munum hans og
þönkum listamannsins um kollun sína.
Heimir Pálsson hefur þýtt skrif Garde-
bergs og ættu þau aö vera skyldulesn-
ing alls staöar þar sem listir og hönnun
eru kenndar.
Málsvari handverksmanns-
ins
Gardeberg er nokkuö sér á parti í
finnskri hönnun þar eö hann hefur nær
einskorðaö sig viö sköpun úr silfri, viöi
og hinum svokölluðu óæöri steinum.
Eftir hann liggja ókjör verka, boröbún-
aður, skart, handverkfæri, hurðarhún-
ar, ýmiss konar ílát, kirkjumunir, auk
litilla skúlptúra. Allt er þetta hvert
ööru fegurra. I gripum sínum og grein-
um hefur Gardeberg ótrauöur talaö
máli handverksmannsins á öld vélar-
vinnunnar. „Án þekkingar á handverk-
inu deyr menningin. Hæfileikinn til aö
nota hendurnar hefur gert manninn aö
manni. Eg vildi gjarnan vita hvaö ger-
ist þegar viö höfum nógu lengi unaö viö
þaö eitt aö ýta á takka.. .” segir hann.
Og hann heldur áfram: „Allt á upptök
sín í hendinni. Höndin er frumverkfæri
mannsins. En auk handarinnar þarf
hann áhöld sem henta verkinu: fyrir
þeirra tilstyrk heppnast verkiö frá
sjónarmiöi feguröarinnar. Gripurinn
fæöist úr samspili handar og áhalds, úr
bandalagi þeirra.”
Módelbók náttúrunnar
Mestan lærdóm dregur Gardeberg af
náttúrunni. „Rannsaki maöur hina
óþrjótandi módelbók náttúrunnar lær-
ast mörg mikilvæg undirstööuatriöi.
Til dæmis hvað þaö eru tilbúin og til-
gerðarleg mörk sem hafa veriö dregin
milli fígúratífrar og abstraktar listar.
Báöar geröirnar má finna í módelbók
náttúrunnar, þar eru þær hlið viö hlið
og á sama tíma og jafnréttisgrunni.”
Hálsmen, 1969, gull & obsidian.
Myndlist
Aðalsteinn Ingólfsson
Bertel Gardeberg — Hálsmen
skúlptúr, 1969. Slipaður steinn.
Sérstakan áhuga sinn á náttúrlegum
steinum skýrir Gardeberg á eftirfar-
andi hátt: „Þaö er ekki hægt aö greina
milli steinsins og mannsins, svo ná-
tengdir eru þeir. Tilfinning okkar fyrir
steinaríkinu og þekking okkar um
steina er að ég hygg meðfædd. Ósjálf-
ráöar tilfinningar okkar gagnvart
steininum eru eldforn frumþekking
sem enn lifir í okkur. Oendanlega
löngu fyrr en sögur hófust reikuðu
mennirnir um og rýndu á jöröina í leit
aö hæfilegum steinum til ólíkra verka,
svo sem að kljúfa bein eöa mýkja ræt-
ur. Hvar á aö finna þann stein sem
höndin viðurkennir sem áhald? Þenn-
an veg var augaö leitt af hagnýtu
minni: maöurinn sá í raun jafnmikiö
meö höndunum og augunum. Þetta var
heild, altæk starfsemi: líf sem stýröist
af endurminningu handariiinar.”
Trúarjátning
Af þessum oröum veröur vonandi
ljóst aö Gardeberg lítur ekki á hand-
verkið sem hverja aöra handavinnu,
heidur sem nokkurs konar trúarjátn-
ingu, leið til aö halda sönsum í fári -
ópersónulegrar fjöldaframleiöslu. Aö
lokum: ....sé gripurinn geröur meö
ástúö talar hann einnig ástúðlega til
verðandi eiganda.” Þótt gripir Garde-
bergs á þessari sýningu eigi ekki eftir
aö lenda hjá íslendingum þá tala þeir
engu aö síöur af ástúö til sýningar-
gesta.
AI
Rýmingarsala
á rúm-
teppum \0-
„Rúm "-bezta verzlun landsins
INGVAR 06 GYLFI I
GRENSASVEGI 3 108 REYKJAVIK, SIMI 81144 OG 33530
-- " -- --
Sérverzlun með rúm
I i
FLUGLEIÐIR GERA ÞÉR
KLEIFT AD TAKA
ELSKUNA Þ'NA MEÐ
■ t f\/vr
ÍNNANLANDS
Ef þú ferðast mikið með Flugleiðum innanlands átt þú það á
„hættu" að fá einn daginn frímiða upp í hendurnar, sem gildir
til hvaða áfangastaðar okkar sem er innanlands - fram og til
baka. Við gefum þér nefnilega puhkta í hvert skipti sem þú
ferðast með okkur og þegar þú ert búin/n að fljúga 13—17
sinnum á fjórum mánuðum finnst okkur tími til kominn að við
borgum farið — ekki þú. Fáðu safnkort hjá afgreiðslufólki
Flugleiða og láttu það kvitta fyrir þegar þú kaupir flugmiða. Við
munum sjá um það að skrá punktana og senda þér frímiðann
— og þá getur þú tekið elskuna með þér í flugið til tilbreytingar
— frítt...
FLUGLEIDIR