Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1985, Síða 35
DV. FIMMTUDAGUR 3. OKTOBER1985.
35
„Fésun”—ny
atvinnugrein á
Suðumesjum
Frá Magnúsi Gíslasyni, Keflavík:
„Vélin hefur reynst hiö mesta þarfa-
þing. Afköstin eru 15-föld á við manns-
höndina og nýtingin miklu betri,”
sagöi Magnús Guðbergsson hjá fisk-
verkunarfyrirtækinu SÆR í Garöi,
hvar við sáum hann fimum höndun
leggja hvern þorskhausinn af öðrum.
Til þess notaði hann tiltölulega fyrir-
ferðarlítiö áhald sem klauf hausana og
skilaöi kinnunum, samhangandi á
gellunni, í einn bakka en miðhluta
haussins, eða heilanum eins og
Magnús nefndi hann, í annan bakka.
„Afkastagetan er um 90 kg á klst, þar
af helmingur kinnar sem fara til út-
flutnings í Portúgal. Annað fer í beina-
mjöl,” bættihann við.
Bara þorskhausar
Nánar spuröir um framleiðsluna,
sögðu þeir bræðurnir, Magnús og Ævar
Ingi Guðbergssynir hjá SÆR, að þarna
væri um mikla verömætasköpun að
ræða. Fyrir þorskhausa fengjust aöeins
35 aurar í „gúanó” en 35 krónur fyrir
kílóið þegar búið væri aö „fésa”, eins
og þeir kalla vinnsluaöferðina, — og
salta. „Við höfum unniö úr heilu
togaraförmunum frá því í vor, en
aðeins þorskhausa, — aðrar tegundir
eru ekki eftirsóttar. Eftirspurnin er
það mikil að framleiöslan fer ávallt í
næsta skip,” sagði Ævar Ingi, ,,og eftir
því sem ég best veit þá eru að opnast
markaðir fyrir þetta fiskmeti á fleiri
stööum en í Portúgal, jafnvel í Vestur-
heimi.”
Eins og vængir
Þegar kinnarnar koma úr „fésunar-
vélinni” líta þær út eins og vængir.
Lágmarksstæröin, vænghafið, má
vera 22—27 cm en við höfum aðeins
unnið 27 cm og þar yfir vegna
hagkvæmninnar, sögöu þeir bræður.
Kinnarnar eru pækilsaltaðar í tvo
sólarhringa á sama máta og
venjulegur saltfiskur. Síöan eru þær
rifnar upp og settar í 20 kílóa umbúðir.
Þeir Magnús og Ævar Ingi töldu að
þessi nýting á þorskhausum kæmi
alveg í staðinn fyrir þurrkuðu
hausana, sem nánast eru verðlausir í
dag.
Sjöstjarnan í Njarðvíkunum er út-
flutningsaðilinn en akkur þeirra er að
nýta ávallt hráefnið sem best og láta
þeir einskis ófreistað í þeim efnum.
Sjöstjarnan á vélina sem SÆR vinnur
húsana í og einnig útvegar hún hrá-
efnið.
íslensk-þýsk samvinna
„Möguleikarnir á hausavinnslunni
byggjast að langmestu leyti á
„fésunarvélinni”, sem er af Kvikk
Baader gerð og kostar um 800 þúsund
krónur. Hún er hönnuð af Kvikk,
íslensku fyrirtæki, en Baader í Þýska-
landi framleiðir hana. Hér er því um
íslensk-þýska samvinnu að ræða,”
sagði Ævar Ingi, „sem hefur gefið góða
raun.”
Magnús tjáði okkur að fyrsta
eintakið af vélinni hefði komið á
markaö árið 1982 og nokkrar munu
vera í notkun hér á landi. „Við höfum
haft vélina síðan í maí í vor. Ekkert
hefur bilað, — aöeins þurft að brýna
hnífana, sem er mjög góð útkoma.”
-EH
Sýnið stillingu ef slys ber að höndum
BLÁSTURSAOFERÐ OG HJARTAHNOÐ
Hafi ondun og hjarta stoövast vegna drukknunar eöa
annarra orsaka getur skipt skopum að veita retta hjálp
strax. þar til sjúkrabill kemur og frekari hjálp berst
Veggspjald um
björgun f rá drukknun
Á vegum Kiwanisklúbbsins Vífils í
Breiðholti veröur nú á næstunni dreift
til allra sundlauga á landinu vegg-
spjaldi með einföldum björgunar-
leiðbeiningum. Verður á spjaldinu út-
skýrt í máli og myndum hvernig má
koma mönnum til bjargar, þegar
mikið liggur viö, með því að blása í þá
lífi eða með hjartahnoði.
Veggspjaldiö hefur verið gert í
náinni samvinnu við Slysavarnafélag
Islands sem mun dreifa því í alla
fiskibáta, togara og farskip landsins.
Magnús Guðbergsson hjá SÆR i Garði við „fésunarvélina". DV-mynd emm.
Hitaeiningar
kolvetnisinnihald
áaugabragði
Langar þig til þess aö vita hve margar hitaeiningar eru í eplinu
sem þú ert aö fara aö boröa — eöa hve mörg kolvetni eru í því?
Kannski langar þig til aö vita hve miklar hitaeiningar
eru í lambakótelettunni sem þú ert aö fara aö leggja þér til munns,
nú eöa einum disk af kornflögum.
Þetta og margt fleira færöu aö vita á
augabragði meö nýrri rafeindavog sem
komin er á markaöinn.
Þetta er eldhúsvog sem gerir ýmis-
legt fleira en aö mæla hveiti og sykur.
• Hún gefur upp hitaeiningar-, fitu-,
kolvetna- og trefjainnihald teg-
unda.
• Breytirgrömmumíúnsurogöfugt
á augabragöi.
• Hefur tímastilli frá 30 sek. upp í 99
mínútur.
• Hægt er aö vigta margar tegundir
samtímis.
Vogin gengur fyrir venjulegri 9 volta
rafhlööu, sem á aö duga í eitt ár. Með
henni fylgir bók á ensku þar sem er aö
finna kóða til aö finna út næringargildi
nokkur hundruö fæöutegunda. íslensk
þýðing á bókinni er væntanleg innan
skamms.
Útsölustaöir: Clóey, Ármúla, H. Biering, Laugavegi, H. G. Cuöjónsson, Stigahlíð,
Hagkaup, Skeifunni, Heimilistæki, sætúni, Rafbúö Domus Medica, Egilsgötu,
versl. Rafmagn, vesturgötu.
je'