Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1985, Síða 40
FR ÉTTASKOTIÐ
Sími ritstjórnar: 68-66-11. Auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022.
Hafir þú ábendingu
eða vitneskju um
frétt — hringdu þá i
sima 68-78-58. Fyrir
hvert fréttaskot,
sem birtist eða er
notað i DV, greið-
ast 1.000 krúnur og
3.000 krónur fyrir
besta fréttaskotið i
hverri viku,
Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum
við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
Þessu ber
að fagna
— segir Eiríkur
* Ingólfsson á Hrafninum
„Það er ástæða til aö fagna þessum
niðurstöðum. Ég átti jafnvel frekar
von á því að það hefði dregið úr fylgi
bjórsins eftir þá útreið sem bjórmálið
fékk á Alþingi i vor.
Mér hefur fundist eins og dampurinn
væri farinn úr mönnum í sambandi við
hvort leyfa eigi bjórinn en samkvæmt
þessu þá virðist enn vera fullur áhugi
fyrir að leyfa sölu hans,” sagði Eiríkur
Ingólfsson, framkvæmdastjóri veit-
ingahússins Hrafnsins, um niðurstöður
skoðanakönnunar um afstöðu fólks til
sölu áfengs bjórs.
APH
Halldór Kristjánsson
frá Kirkjubóli:
„Engin stór-
breyting
á áliti fólks”
„Þetta er ósköp lík útkoma og var í
síöustu skoðanakönnun hjá DV og því
engin stórbreyting orðin á áliti fólks á
þessu máli,” sagði Halldór
Kristjánsson frá Kirkjubóli er hann
var spurður álits á niðurstöðum
skoðanakönnunarinnar um bjórmálið.
„En það er ekki alltaf nóg að spyrja
hvort menn vilji eða vilji ekki þetta eöa
hitt. Ef þeir sem samþykkir eru
bjórnum yrðu til dæmis einnig spurðir
að því hvar ætti að selja bjórinn, hvaö
hann ætti að kosta og annað í þeim dúr,
yrði hver höndin upp á móti annarri.”
-klp-
Glugginn á þingflokksher-
bergi Framsóknarflokksins
þar sem reynt var að henda
inn sprengjunni. Veg-
farendum tókst að stöðva
sprengjumanninn skammt
fró Alþingishúsinu.
DV-mynd S.
Vi
Tilraun gerð til að kveikja í Alþingishúsinu:
MÓL0T0FF-
K0KKTEIL
VARPAÐÁ
MNGHÚSIÐ
Tilraun var gerð til að kveikja í Al-
þingishúsinu í gærkvöldi. Var svoköll-
uðum Mólotoff-kokkteil varpað aö
glugga á austurgafli hússins sem snýr
aö Dómkirkjunni. Mólotoff-kokkteill er
eldsprengja þar sem bensíni er komið
fyrir í glerflösku með logandi kveik.
Vegfarendur sáu sprengjumanninn
hlaupast á brott og tókst að stöðva
hann við Dómkirkjuna. Var hann
handtekinn og færöur á lögreglustöð-
ina. Er þetta ungur maður og virðist
sem hann hafi fyrst varpað steini inn
um gluggann og brotið hann og síðan
ætlað aö koma sprengjunni inn í húsið.
Þetta mistókst og lenti sprengjan á
gluggapósti og hafnaði á gangstéttinni
fyrir framan húsið.
Erlendur Sveinsson þingvörður
sagði í samtali við DV í.morgun að
skemmdir á húsinu væru óverulegar.
Gluggapóstur væri sviöinn og ein rúða
brotin.
Erlendur sagði að nokkrir starfs-
menn Alþingis hefðu verið að undirbúa
þingsetninguna þegar atburðurinn
gerðist. Enginn þingmaður var í hús-
inu.
Ivar Hannesson hjá RLR sagði í
morgun að ekki væri enn fariö að tala
við sprengjumanninn. Hann var ölv-
aður þegar hann var handtekinn.
Maðurinn hefur áður komið við sögu
hjá lögreglunni. -EH.
Beðið eftir ráðherrum frá útlöndum:
Sker Matthías
á hnútinn?
Ráðherramál Sjálfstæðisflokksins
liggja í láginni fram aö helgi. Þá verða
væntanlega fimm af sex núverandi
ráöherrum á landinu. Þau Geir, Ragn-
hildur og Albert eru öll á leiðinni úr
ýmsum erindum í útlöndum. Matthías
Á. Mathiesen er hins vegar enn úti.
Meðal bollalegginga um breyttan
ráðherrahóp sjálfstæðismanna ber nú
æ meira á hugleiðingum um að Matthí-
as Bjarnason höggvi á hnútinn og
bjóðist til að standa upp. Það myndi
þýöa frekari tilfærslur, enda varla
reiknaö með öðru en Þorsteinn
Pálsson verði fjármálaráðherra taki
hann á annað borð ráðherrasæti.
-HERB.
EINANGRUNAR
GLER
666160
Tillögur stjórnarnef ndar Ríkisspítalanna:
Rannsóknir á alnæmi
hafnar fyrir áramót
— hommar og eiturlyf janeytendur ef stir á blaði
„I tillögum stjórnarnefndar ríkis-
spítalanna um alnæmisvarnir er gert
ráð fyrir að rannsóknir verði hafnar
hið fyrsta á vissum áhættuhópum.
Einnig að sett verði upp tæki fyrir
AIDS-rannsóknir þannig aö þær geti
hafist hér á landi fyrir áramót.”
Þetta sagöi Símon Steingrímsson,
forstjóri Rikisspítalanna, er DV
spurði hann um tillögur stjórnar-
nefndar Rikisspítalanna til varnar
alnæmi. Nefndin hefur sent
Matthíasi Bjarnasyni heilbrigðis-
ráðherra tillögurnar og hefur hann
þær nú til athugunar.
Símon sagði að tillögurnar gerðu
ráð fyrir að alnæmisrannsóknirnar
færu fram í húsnæöi sem til þess hlut-
verks yrði tekið á Landspítalanum, í
svokallaðri W-álmu. Það húsnæði er
enn í byggingu. Rannsóknarstofa
Háskólans í veirufræðum myndi síð-
an sjá um þær.
Eins og fram kemur annars
staöar í DV á Rannsóknarstofan við
mikla húsnæðisörðugleika að etja.
Hefur formaður hennar sagt upp
störfum af þeim sökum. Spurningu
um hvort Rannsóknarstofan yrði
flutt í W-álmuna þegar rannsóknir á
alnæmi hæfust svaraði Símon
neitandi.
„Húsnæðisvandi Rannsóknar-
stofunnar er sérstakt mál og það
þarf að vinna að því á næstu
mánuðum að leysa þann vanda. Inni
í því dæmi er gert ráö fyrir að
rannsóknir á alnæmisvörnum verði
einnig fluttar þannig að þetta verði
allt undir sama þaki. ’ ’
Aðspurður hverjir fylltu þá
áhættuhópa, sem tillögurnar geröu
ráð fyrir að rannsóknirnar beindust
einkum að, svaraði Símon:
„Þaö eru hommar og eiturlyfja-
neytendur, þ.e. þeir sem sprauta sig.
TiÚögurnar gera ráð fyrir að reynt
verðiaðnátilþessarahópa.” -JSS.