Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1985, Blaðsíða 23
DV. MANUDAGUR 4. NÖVEMBER1985.
23
íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir
UBK vann slag
Kópavogsliðanna
vann HK 24-21 í 2. deild á laugardag
Breiöablik vann slag Kópavogsliö-
anna í 2. deild handboltans er liöin
áttust viö í Digranesskólanum á
laugardaginn. Lokatölur uröu 24—21,
Blikunum í hag, eftir aö liöiö haföi
haft fimm marka forskot í leikhléi,
13-8.
Stefán Halldórsson og Magnús
markvörður voru bestu leikmenn HK í
leiknum en Björn Jónsson, Kristján
Halldórsson og Guömundur mark-
vöröur voru bestir Breiðabliks-
manna.
Atkvæðamestir í liöi UBK voru
Bjöm og Kristján sem skoruöu báöir
átta mörk. Þóröur Davíðsson skoraöi
fjögur.
Hjá HK var Stefán Halldórsson at-
kvæðamestur. Hann skoraöi sjö
mörk, þar af sex í seinni hálfleik.
Björn Bjömsson var honum næstur
meðsexmörk. -fros
Grosswaldstadt
í efsta sæti
Frá Atla Hilmarssyni, fréttáritara DV í
Þýskaiandi:
Grosswaidstadt befur nú forystu í 1. deild v-
þýska handboltans. Li&ið befur hlotið sextán
stíg úr niu ieikjum, en lék ekki um helgina
fremur en Kiel og Gummersbacb en þessi lið
eru fulltrúar V-Þýskalands í Evrópu-
mótunum. Annars er staðan þessi, fyrst leika-
fjöldi, síðan stig.
Grosswaldstadt 9 16
Essen 7 12
Schwabing 8 11
Dusseldorf 7 10
Gummersbach 8 10
Kiel 7 8
Dortmund 8 8
Weiche Handewitt 8 8
Göppingen 8 7
Lemgo 8 6
Giinzburg 7 5
Dankersen 9 4
Hofweier 8 3
Berlín 8 2
Liðið sem Kristján Arason leikur með,
Hameln, er nú í 3. sæti með tiu stig, stigi á
eftir Bcrgkamen og Dormagen. Bjarni
Guðmundsson og félagar hjá Wanne Eyckel
cru nú í fjórða sæti ásamt Leverkusen með
átta stig. -fros.
RÍKISSPÍTALAFt
lausar stödur
Starfsfólk óskast til ræstinga við Kópavogshæli. Hluta-
starf eða fullt starf.
Upplýsingar gefur ræstingastjóri í síma 41500.
RÍKISSPÍTALAR
lausar stödur
Meinatæknar og aðstoðarfólk óskast nú þegar eða eftir
samkomulagi í fullt starf eða hlutastarf við rannsókna-
deildir Landspítalans í meinefnafræði og blóðmeinafræði.
Upplýsingar gefa deildarmeinatæknar viðkomandi deilda
í síma 29000.
St. Jósefsspítali, Landakoti
Lausar stöður
Hjúkrunarfræðingar óskast á lyflækningadeildir I—A og
II—A, handlækningadeildir I —B og II —B, barnadeild,
skurðdeild, svæfingadeild og gjörgæsludeild. Boðið er
upp á aðlögunarkennslu fyrstu vikurnar.
Sjúkraliðar óskast á allar vaktir á eftirtöldum deildum: lyf-
lækningadeildir I—A og II—A, handlækningadeildir I —B,
II —B og III — B. Fastar næturvaktir koma til greina.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf
sendist hjúkrunarforstjóra, sem veitir allar nánari
upplýsingar í síma 19600-220-300, alla virka daga.
Fóstra óskast á dagheimilið Brekkukot (börn á aldrin-
um 3—6ára).
Starfsmaður óskast á Skóladagheimili (börn á aldrinum
6—9 ára)
Upplýsingar í síma 19600-250-260 milli kl. 9.00 og 16.00.
Konur — karlar óskast til ræstinga. Upplýsingar veitir
ræstingastjóri í síma 19600-259.
Reykjavik 31.10.1985.
Þramuf leygur Ásgeirs
efst í markhoraið
—■ þegar Stuttgart gerði jafntefli í Frankfurt
Frá Atla Hilmarssyni, fréttaritara DV
ÍV-Þýskalandi:
A föstudagskvöld tapaði Werder
Bremen öðrum leik sinum á keppnis-
tímabilinu — steinlá fyrir Leverkusen,
5—1. Þaö var Suöur-Kóreumaðurinn
Bum-Kun Cha sem öðrum fremur lagöi
grunn aö sigri Leverkusen. Skoraði
þrennu í Ieiknum. Mesta tap Bremen-
liðsins frá 4—0 tapinu í Hamborg í
'fmars 1984. Þeir Christian Schreier og
varnarmaðurinn Dirk Schlegel skor-
uðu hin tvö mörk Leverkusen á föstu-
dag en Michael Kutzop eina mark
Werder Bremen.
Eftir leikinn sagði þjálfari Werder,
Otto Rehhagel: „Þaö gátu allir séö að
viö lékum þarna við lið sem hefur hvaö
mesta möguleika aö sigra í Bundeslíg-
unni.” Bum-Kun Cha skoraði fyrsta
mark sitt meö skalla á 4. mín., síöan
annaö á 16. mín og það þriöja á 56. mín.
Gladbach efst
Síöar á föstudagskvöld komst Bor-
ussia Mönchengladbach í efsta sæti í
Bundeslígunni þegar liðiö sigraöi Dort-
mund 2—3 í Dortmund. Frank Mill skor-
aöi tvö af mörkum Gladbach. Kaisers-
lautern tapaöi sínum fyrsta leik á
heimavelli þegar Bayern Miinchen
kom í heimsókn — fyrsti leikur Kaiser-
slautern eftir að nafni leikvangsins í
borginni var breytt í „Fritz Walter-
leikvanginn”. Þeir Helmut Winklhof-
er, 49. mín., og Norbert Nachteih, 82.
mín., skoruðu mörk Bayern.
Ásgeir skoraði með hægri
Ásgeir Sigurvinsson skoraði sitt
sjötta mark fyrir Stuttgart á keppnis-
tímabilinu er liöiö mætti Eintracht
Frankfurt í Frankfurt. Hann skoraöi
mark sitt á 69. minútu eftir að hafa
fengiö sendingu frá Karl Allgöver inn í
vítateiginn, skaut boltanum meö
hægra fæti efst í markhornið, af fjórt-
án metra færi. Stuttgart fékk tvö góö
færi til aö auka muninn en þau fóru
bæði forgörðum. Heimamenn sóttu síö-
an stíft og þaö bar árangur er Theiss
skoraöi beint úr aukaspyrnu af 25
Asgeir skoraði meö hægra fæti.
metra færi. Ásgeir fékk fjóra í einkunn
hjá Bild.
Loontiens á skotskónum
Islendingarnir Lárus Guömundsson
og Atli Eðvaldsson komu lítiö viö sögu
fyrir liö Uerdingen að þessu sinni. Lár-
us gat ekki leikið og Atli kom inn á sem
varamaður þegar aöeins fimm mínút-
ur voru til leiksloka. Loontiens tók
stööu Lárusar í framlínunni og skoraöi
fyrsta mark leiksins á 7. mínútu.
Pierre Littbarski jafnaöi fyrir Köln á
13. mínútu meö fallegu marki af 18
metra færi eftir aö hafa leikiö á fimm
leikmenn Uerdingen. Köln náði síðan
forystunni með marki Geilenkirchen á
34. mín. I seinni hálfleiknum tryggöi
Uerdingen sér sigurinn meö tveimur
mörkum, fyrst Schafer úr vítaspyrnu
eftir að brotið hafði verið á Loontiens
og sigurmarkiö skoraði Loontiens
sjálfur. Pierre Littbarski var langbesti
maður vallarins.
Nýliðar Niimberg máttu þola tap á
laugardaginn er liöið fékk Hamburger
Sportverein í heimsókn. Þaö var
Schröder sem skoraöi eina mark leiks-
insfyrirHSV.
Mannheim-leikmaöurinn Thomas
Remark var á skotskónum fyrir Uö sitt
um helgina, skoraði tvívegis og hefur
því gert tólf mörk á keppnistímabilinu.
Onnur mörk liösins skoruðu Scholz,
Buhrer og Tsionanis. Eina mark Hann-
overskoraðiGue.
Bochum og Schake skildu jöfn á
heimavelli Bochum, 1—1. Það var
Kuntz sem skoraöi mark Bochum en
Diessen jafnaði metin fyrir Schalke.
Blatter og Mohr komu Dusseldorf í
2—0 gegn Saarbrucken en Keim náöi
að jafna metin fyrir Saarbrucken.
Urslit:
Mannheim — Hanover 5—1
Diisseldorf — Saarbrucken 2—2
Bochum — Schalke 1—1
Frankf urt—Stuttgart 1—1
Uerdingen — Köln 3—2
Nuremberg — Hamborg 0—1
Föstudagskvöld
Leverkusen — Bremen 5—1
Dortmund — Gladbach 2—3
Kaiserslautern — Bayern Miin. 0—2
Staðanernúþessi:
Gladbach 13 8 3 2 30 16 19
Bremen 13 8 3 2 35 22 19
Miinchen 13 8 2 3 25 13 18
Leverkusen 13 6 4 3 27 17 16
Mannheim 13 6 4 3 26 19 16
Hamborg 13 6 3 4 21 13 15
Stuttgart 13 6 2 5 26 20 14
Kaiserslautern 13 6 2 5 21 18 14
Bochum 13 6 1 6 28 23 13
Uerdingen 13 5 3 5 21 31 13
Köln 13 3 6 4 19 22 12
Schalke 13 4 3 6 17 21 11
Frankfurt 13 2 7 4 11 19 11
Hannover 13 3 4 6 21 38 10
Saarbrucken 13 2 5 6 16 23 9
Nurnberg 13 3 2 8 18 24 8
Diisseldorf 13 3 2 8 21 32 8
Dortmund 13 2 4 7 20 32 8
Hsim/-fros
eru frábærir
GRASSKOR .
FRÁJÍ^
Skórnir eru topp gervigrasskór með sérstak-
lega hönnuðum sóla fyrir gervigras og hart
undirlag.
-► Litur:
T grár/svartur
ÚTSÖLUSTAÐIR
Sportbúð
Ómars
Iþróttabúðin
Borgartúni 20
t Boltamaðurinn