Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1985, Blaðsíða 43
DV. MÁNUDAGUR4. NOVEMBER1985.
43
Peningamarkaður
Innlán með sérkjörum
Alþýðubankinn: Stjörnureikningar eru
fyrir 15 ára og yngri og 65 ára og eldri. Inn-
stæður þeirra yngri eru bundnar þar til þeir
verða fullra 16 ára. 65 74 ára geta losað inn-
stæður með 6 mánaða fyrirvara, 75 ára og
eldri með 3ja mánaða fyrirvara. Reikningarn-
ir eru verðtryggðir og með 8% nafnvöxtum.
Þriggja stjörnu reikningar eru með hvert
innlegg bundið í tvö ár, verðtryggt og með
9% nafnvöxtum.
Lífeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá
lífeyrissjóðum eða almannatryggingum. Inn-
stæður eru óbundnar og óverðtryggðar. Nafn-
vextir eru 29% og ársávöxtun 29%.
Sérbók. Við fyrsta innlegg eru nafnvextir
27% en 2% bætast við eftir hverja þrjá mánuði
án úttektar upp í 33%. Ársávöxtun á óhreyfðri
innstæðu er 33,5% á fyrsta ári.
Búnaðarbankinn: Sparibók með sér-
vöxtum, Gullbókin, er óbundin með 34%
nafnvöxtum og 34% ársávöxtun á óhreyfðri
innstæðu eða ávöxtun 3ja mánaða verð-
tryggðs reiknings reynist hún betri. Af hverri
úttekt dragast 1,7% í svonefnda vaxtaleiðrétt-
ingu.
18 mánaða reikningur er með innstæðu
bundna í 18 mánuði á 36% nafnvöxtum og
39,2% ársávöxtun, eða ávöxtun 6 mánaða
verðtryggðs reiknings reynist hún betri.
Iðnaðarbankinn: Bónusreikningar eru
annaðhvort með 28% nafnvöxtum og 30%
ársávöxtun eða verðtryggðir og með 3,5%
vöxtum. Hærri ávöxtunin gildir hvern mánuð.
Á hreyfðum innstæðum gildir verðtrygging
auk 2% vaxta í úttektarmánuðinum. Taka
má út tvisvar á hverju 6 mánaða tímabili án
þess að vaxtakjör skerðist. Vextir eru færðir
30.06. og 31.12.
Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með
34% nafnvöxtum og 34% ársávöxtun eða
ávöxtun 3ja mánaða verðtryggðs reiknings
reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast
1,7% í svonefnda vaxtaleiðréttingu.
Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur
hefur stighækkandi vexti á hvert innlegg,
fyrst 22%, eftir 2 mánuði 23,5%, 3 mánuði
25%, 4 mánuði 26,5%, 5 mánuði 28%, eftir 6
mánuði 29,5% og eftir 12 mánuði 31,6%.
Ársávöxtun á óhreyfðu innleggi er 34,1%, eða
eins og á 3ja og 6 mánaða verðtryggðum
reikningum reynist hún betri. Vextir færast
tvisvar á ári.
Útvegsbankinn: Ábót ber annaðhvort
hæstu ávöxtun óverðtryggðra reikninga í
bankanum, nú 34,6%, eða ávöxtun 3ja mán-
aða verðtryggðs reiknings með 1% nafnvöxt-
um sé hún betri. Samanburður er gerður
mánaðarlega en vextir færðir í árslok. Sé
tekið út af reikningnum gilda almennir spari-
sjóðsvextir, 22%, þann mánuð.
Þau eru: Hefðbundin, til mest 14 ára en
innleysanleg eftir þrjú ár, 10.09.88. Nafnvextir
7%. Vextir, vaxtavextir og verðbætur greiðast
með höfuðstól við innlausn. Með vaxtamið-
um, skírteini til mest 15 ára, innleysanleg
eftir 5 ár, 10.09.90. Vextir eru 6,71% á höfuð-
stól og verðbætur, reiknaðir misserislega og
greiddir út gegn framvísun vaxtamiða. Verð-
bætur greiðast með höfuðstól við innlausn.
Með hreyfanlegum vöxtum og 50% vaxta-
auka, til 18 mánaða eða 10.03.87. Vextir eru
meðaltal vaxta á 6 mánaða verðtryggðum
reikningum bankanna og með 50% álagi.
Vextir, vaxtavextir, vaxtaauki og verðbætur
greiðast með höfuðstól við innlausn. Gengis-
tryggð skírteini eru til 5 ára, 10.09.90. Þau
eru bundin safngjaldeyrinum SDR og bera 9%
vexti. Vextir og vaxtavextir greiðast við inn-
lausn með höfuðstól, í samræini við stöðu
SDR.
Aimenn verðbréf
Fasteignatryggð verðbréf eru til sölu hjá
verðbréfasölum. Þau eru almennt tryggð með
veði undir 60% af brunabótamati fasteign-
anna. Bréfin eru ýmist verðtryggð eða óverð-
tryggð og með mismunandi nafnvöxtum. Þau
eru seld með afföllum og ársávöxtun er al-
mennt 12 18% umfram verðtryggingu.
Húsnæðislán
Nýbyggingarlán frá Byggingarsjóði ríkis-
ins, F-lán, nema á 4. ársíjórðungi 1985: Til
einstaklinga 720 þúsundum króna, 2 4 manna
fjölskyldna 916 þúsundum, 5 manna og fleiri
1.073 þúsundum, 7 manna og fleiri (í sértilvik-
um) 1.237 þúsundum. Lánin eru til 31 árs.
Lán til kaupa á eldri íbúðum, G-lán, nema
á 4. ársfjórðungi 1985: Til kaupa í fyrsta sinn
er hámark 348 þúsund krónur til einstaklings,
annars mest 139 174 þúsund. 2 4 manna fjöl-
skylda fær mest 442 þúsund til fyrstu kaupa,
annars mest 177 221 þúsund. 5 manna fjöl-
skylda eða stærri fær mest 518 þúsundir til
fyrstu kaupa, annars mest 207 259 þúsund.
Lánstími er 21 ár.
Húsnæðislánin eru verðtryggð með láns-
kjaravísitölu og með 3,5% nafnvöxtum.
Fyrstu tvö árin er ekki greitt af höfuðstól,
aðeins vextir og verðbætur.
Útlán lífeyrissjóða
Um 90 lífeyrissjóðir eru í landinu. Hver
sjóður ákveður sjóðfélögum lánsrétt, lánsupp-
hæðir, vexti og lánstíma. Stysti tími að láns-
rétti er 30 60 mánuðir. Sumir sjóðir bjóða
aukinn lánsrétt eftir lengra starf og áunnin
stig. Lán eru á bilinu 150 700 þúsund eftir
sjóðum, starfstíma og stigum. Lánin eru verð-
tryggð og með 5-8% vöxtum. Lánstími er
15 35 ár.
Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur.
Hægt er að færa lánsrétt við flutning milli
sjóða eða safna lánsrétti frá fyrri sjóðum.
Verslunarbankinn: Kaskóreikningur er
óbundinn. Þá ársfjórðunga sem innstæða er
óhreyfð eða aðeins hefur verið tekið út einu
sinni eru reiknaðir hæstu vextir spal-ifjár-
reikninga í bankanum. Nú er ársávöxtun
annaðhvort 34,8% eða eins og á verðtryggðum
6 mánaða reikningum með 3,5% nafnvöxtum.
Af úttekinni upphæð reiknast almennir spari-
sjóðsvextir, 22%, og eins á alla innstæðuna
innan þess ársfjórðungs þegar tekið hefur
verið út oftar en einu sinni. Innlegg fær strax
hæstu ávöxtun sé það óhreyft næsta heila
ársQórðung.
Sparisjóðir: Trompreikningur er verð-
tryggður og með ávöxtun 6 mánaða reikninga
með 3% nafnvöxtum. Sé reikningur orðinn
3ja mánaða er gerður samanburður á ávöxtun
með svokölluðum trompvöxtum, 32%, með
34,3% ársávöxtun. Miðað er við lægstu inn-
stæðu í hverjum ásfjórðungi. Reynist tromp-
vextir gefa betri ávöxtun er þeim mun bætt
á vaxtareikninginn. Hreyfðar innstæður inn-
an mánaðar bera trompvexti sé reikningurinn
eldri en 3ja mánaða, annars almenna spari-
sjóðsvexti, 22%. Vextir færast misserislega.
Spariskírteini
Spariskírteini Ríkissjóðs íslands eru seld í
Seðlabankanum, viðskiptabönkum, sparisjóð-
um, hjá verðbréfasölum og í pósthúsum.
Nýjustu skírteinin eru að nafnverði 5, 10 og
100 þúsund krónur.
Nafnvextir, ársávöxtun
Nafnvextir eru vextir í eitt ár og reiknaðir
í einu lagi yfir þann tíma. Séu vextir reiknaðir
og lagðir við höfuðstól oftar á ári verða til
vaxtavextir og ársávöxtunin verður þá hærri
en nafnvextirnir.
Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á
22% nafnvöxtum verður innstæðan í lok
tímans 1220 krónur og ársávöxtunin þannig
22%.
Liggi 1000 krónur inni í 6 + 6 mánuði á 22%
nafnvöxtum reiknast fyrst 11% vextir eftir 6
mánuði. Þá er upphæðin orðin 1110 krónur.
Á hana koma svo 11% vextir eftir næstu 6
mánuði. Þannig verður innstæðan í lok tím-
ans 1232 krónur og ársávöxtunin 23,2%.
Dráttarvextir
Dráttarvextir eru 3,75% á mánuði eða 45%
á ári. Dagvextir reiknast samkvæmt því
1,125%.
Vísitölur
Lánskjaravísitala í nóvember 1985 er 1301
stig en var 1266 stig í október. Miðað er við
grunninn 100 í júní 1979.
Byggingarvísitala á 4. ársfjórðungi 1985
er 229 stig á grunninum 100 frá janúar 1983
en 3392 stig á grunni 100 frá 1975.
VEXTIR BANKA 0G SPARISJÓÐA (%) 01 .-10.11.1985
INNLÁN MEÐ SÉRKJÖRUM sjAsérlista 6 I III! II II II Íí 11 11 II II Ú
innlAn óverðtryggð
SPARISJÓDSBÆKUR Óbundin innstæöa 22.0 22,0 22.0 22,0 22.0 22.0 22.0 22.0 22.0 22.0
SPARIREIKNINGAB 3ja mán. uppsögn 25,0 26,6 25.0 25.0 23.0 23.0 25.0 23.0 25.0 25.0
6 mán.uppsögn 31.0 33,4 30.0 28.0 28.0 30.0 29,0 31.0 28,0
12 mán.uppsögn 32.0 34.6 32.0 31.0 32.0
SPARNAÐUR- LANSRÉTTUR Sparafl 3-5 mán. 25,0 23.0 23.0 23.0 23.0 25.0 25.0
Sp. 6mán. ogm. 29.0 26.0 23.0 29.0 28.0
INNLÁNSSKÍRTEINI Tii5mán.ð. 28.0 30.0 28.0 28.0
TÉKKAREIKNINGAR Avisanaícikiiingar 17.0 17.0 8.0 8.0 10.0 8.0 8.0 10.0 10.0
Hlaupateikningar 10,0 10.0 8.0 8.0 10.0 8.0 8.0 10.0 10.0
INNLÁN VERDTRYGGD
SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsögn 2,0 1.5 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 2.0 1.0
6 mán.uppsögn 3.5 3.5 3.5 3.5 3.0 3.0 3.0 3.5 3.0
INNLÁN GENGISTRYGGÐ
GJALDEYRISREIKNINGAR Bamlarikjadollarar 8.0 8.0 7,5 7.0 7.5 7.5 7.5 7.5 8.0
Sterlingspund 11.5 11.5 11,0 11.0 11,5 11.5 11.0 11.5 11.5
Vestur-þýsk mörk 5.0 4.5 4,25 4.0 4.5 4.5 4.5 5.0 4.5
Danskar krónur 10.0 9.5 8.0 8.0 9.0 9.0 9.0 10.0 9.0
ÚTLÁN ÚVERÐTRYGGÐ
ALMENNIRVlXLAR |lonr..tií) 30.0 30,0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0
VIÐSKIPTAVlXLAR (torvenir) 32.5(2) kg. 32.5 kge 32.5 kg. kg. kg. 32,5
ALMENN SKULDABHÉF 32.0(3) 32.0 32.0 32.0 32,0 32.0 32,0 32.0 32,0
VIÐSKIPTASKULDABRÉF 33.5(1) kge 35.0 kge 33,5 kg. kge kge 33.5
HLAUPAREIKNINGAR YFIRDRATTUR 31.5 31.5 31.5 31.5 31.5 31.5 31,5 31,5 31,5
útlán verðtryggð
SKULDABRÉF Aö z 1/2 áii 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0
Lengricn21/2 ár 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0
ÚTLÁN TIL FRAMUEIÐSLU
sjAneðanmAlsi)
l)Lan til ínnanlandstramleiöslu eru a Z/,b% voxtum. Vegna utílutnmgs, í fc>L>K y,t»70»
í Bandaríkjadollurum 9,75%, í sterlingspundum 12,75%, í vestur-þýskum mörkum 6,25%.
2) Við kaup á viðskiptavíxlum og viðskiptaskuldabréfum er miðað við sérstakt kaup-
gengi, kge, hjá þeim bönkum sem þannig er merkt við, einnig hjá sparisjóðunum í
Hafiuufirði, Kópavogi, Keflavík, Sparisjóði Reykjavíkur og Sparisj. vélstj.
3) Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs vanskdalána er 2% á ári, bseði á verðbyggð og
óverðtry ggð lán, nema í Alþýðubankanum og V erslunarbankanum.
Sandkorn
Sandkorn
Guðlaugur Tryggvi Karlsson.
Bedið eftir
kvikmynd
Þelr voru margir sem
höfftu fullan hug á að kom-
ast á Evrópumótið sem
hestamenn héldu í Svíþjóð í
sumar en komust ekki af
einhverjum ástæðum.
Þessum sömu til huggun-
ar skal greint frá því að
mótið var kvikmyndað í
bak og fyrir af íslenskum
athafnamanni. Sá er Guð-
laugur Tryggvi Karlsson.
Hefur staðið til að sjónvarp-
ið sýndi myndina í einhverj-
um iþróttaþátta sinna. En
af því hefur enn ekki orðið
því að filman llggur enn
ókiippt hjá þeim ágæta fjöl-
raiðli. Við skulum bara
vona að hún verði sýnd með
hækkandi sól.
enn
Enn eru það eftirhreytur
frá kvennaf rídeginum:
Viða um land minntust
konur þessa dags með við-
höfn. 1 Ólafsvfk mun hins
vegar hafa verlð lítið um
viðbúnað, svo lítið að dags-
ins var í engu minnst í fjöl-
miðlum staðarins.
Karlpeningurinn á
Ólsaranum, fréttablaði í
Ölafsvík, var harla óánægö-
ur með þessa frammistöðu
heimakvenna. Þvi hefur
hann ákveðið að helga kon-
um í héraðinu eitt ár til við-
bótar, það er frá 25. október
»85 - 25. október »86. Hefur
verið ákveðið að þetta tíma-
bil heiti: Ar hinnar breið-
firsku konu.
Mikil ólga er nú meðai
starfsmanna Pósts og síraa.
Stafar hún af ráðningu
stöðvarstjóra á Seltjarnar-
nesi.
Staðan var auglýst á sin-
um tíma eins og lög gera
ráð fyrir. Bárust ellefu um-
sóknir, margar frá starfs-
mönnum sem lokið hafa tii-
skildu námi í póstmanna-
skólanum. Þá höfðu sumir
umsækjenda langa starfs-
reynslu að baki og höfðu
jafnvel gegnt ábyrgðarstöð-
um innan stof nunarinnar.
Þegar ráðið var í starfið
valdist í það kona sem ekki
hefur lokið námi í ofan-
greindum skóla. Þótti hin-
ura umsækjendum, sem
flestir eru konur, mjög
fram hjá sér gengið. Hefur
verlð mlkil óánægja með
þessa tilhögun mála meðal
starfsmanna, eins og áður
Önundur Björnsson.
Forvhnileg
bók á ferðinni
A næstu dögum kemur út
hjá bókaklúbbnum Veröld
dálítið forvitnileg bók. Hún
heitir: Ég vil lifa, eftir þá
önund Björnsson og Guð-
mund Árna Stefánsson, þá
sömn og sáu um raorgunút-
varp i sumar.
1 bókinni segja niu manns
frá þelrri lifsreynslu sinni
að hafa staðið andspænis
dauðanum. Ein þeirra er
Doris Sigriður Magnúsdótt-
ir, stúlkan scra misþyrrat
var í Þverholtinu fyrir
nokkrum árum. i bókinni
segist henni þannig frá:
„Mér fannst eins og fingra-
för árásarmannsins væru á
líkaraa minum, skitug og
ógeðsleg. Ég man hvað ég
beið þess að marbiettirnir á
Gubraundur Ámi Stefánsson.
bandleggjunum hyrfu, þvi
þeir minntu mig svo á
árásarmanninn. Ég var
einhvern veginn óhrein á
meðan þessi handarför
voru á mér...”.
Af öðrum sem segja frá
lífsreynslu sinni á þessum
vettvangi má nefna Guð-
laug Friðþórsson, sjómann
í Vestmannaeyjum, og Inga
Stein Gunnarsson. Sá síðar-
nefndi varð fyrir því að
lenda i bílveltu og lamast
upp að hálsi...
Tuddi í
aftursætinu
Það gekk ekki andskota-
laust fyrir bóndann á Aust-
f jörðum að koma nauti sinu
tU slátrunar um daginn.
Bóndi hafði sumsé ákveð-
ið að láta iarga nautinu. Þvi
iagði hann af stað raeð það í
kerru tU ÉgUsstaða. Kerr-
una dró blæjujeppi, kröft-
ugur farkostur, sem bóndl
hafði valið tfl fararinnar.
Þegar ekið hafði verið um
hrið heyrði bóndi einhvern
skarkala fyrir aftan sig.
Hann leit við og sá þá sér tU
hrellingar hvar boU sat f
aftursætinu. Hafði honum
greinUega leiðst vistin í
kerrunni og þvi rutt sér leið
yfir í jeppann.
En ekki undi boU lengi
þessum ferðamáta. Hann
ruddist því út úr bilnura og
tók á rás, með bóndann á
hælunum. Tókst að góraa
dýrið eftir drjúgan eltingar-
leik og var það samstundis
sent yf ir móðuna miklu.
Umsjón: JóhannaS.
Sigþórsdóttir.
cristal
vönduðu bresku
vegg-og gólfflísarnar
Steinprýði hf. hefur tekið við
umboði John Lindsay hf. á
Islandi fyrir hinar þekktu
framleiðsluvörur breska fyrir-
tækisins H & R Johnson
Tiles, og fyrirtækjanna A G
Tiles og Maw & Co.
Fyrirtækin eru þekkt fyrir
vandaða og fjölbreytta fram-
leiðslu á CRISTAL vegg- og
gólfflísum, auk fylgihluta og
margvíslegrar gjafavöru úr
gleri.
Verðið er hagstætt og í
sumum tilvikum lægra, en
áður hefur þekkst hér á landi.
Steinprýði hefur fyrirliggj-
andi sýnishorn ásamt öllum
nánari upplýsingum, og
býður nýja viðskiptavini og
að sjálfsögðu gamla viðskipta-
menn velkomna.
Nýr umboðsmaður á Islandi
ISsteinprýðihf.
Stórhöföa16 slmi 83340-84780
Umboðsmaður á Akureyri:
^skaptií