Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1985, Blaðsíða 48
FRÉTTASKOTIÐ
Sími ritstjórnar: 68-66-11. Auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022.
Hafir þú ábendingu
aða vitneskju um
frétt — hringdu þé i
sima 68-78-58. Fyrir
hvert fréttaskot,
sam birtist eða er
notað i DV, greið-
ast 1.000 krónur og
3.000 krónur fyrir
besta fréttaskotið í
hverri viku,
Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum
við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
MÁNUDAGUR 4. NÓVEMBER 1985.
Þorvaldur Mawby hættir sem f ramkvæmdastjóri Byggung:
LAGT NIÐUR
EFTIR TVÖ ÁR
Hitaveita frá álverinu:
Verður kannað
strax í dag
— segirRagnar
Halldórsson forstjóri
„Ég læt mina menn athuga þetta
strax í dag,” sagði Ragnar Hall-
dórsson, forstjóri álversins, í sam
tali við DV um þá fullyrðingu að
hitinn frá álverinu nægði til aö hita
20.000 manna byggð. Hugmyndir
um nýtingu hitans komu fram á
fundi Samtaka sveitarfélaga á
höfuðborgarsvæðinu nú um
helgina.
Enginn viröist þó vita með vissu
hve mikill hitinn, sem berst með
kælivatni frá verksmiðjunni, er.
Ragnar Halldórsson sagöi að það
hefði aldrei verið kannað nákvæm-
lega þó vitaö væri að „þarna færi
geysimikill varmi ónýttur í sjóinn.
Hingað til hefur hluti af vatninu
veriö notaður við fiskeldi en ekki
nándar nærri allt. En þetta með að
nota vatniö til húshitunar er hug-
mynd sem þarf að skoða nánar,”
sagði Ragnar Halldórsson.
GK
Kvenna-
bylting hjá
Framsókn
Frá Jóni G. Haukssyni, blaða-
manni DV á Akureyri:
Kvennabylting varð bjá Fram-
sóknarflokknumáNorðuriandi um
helgina. Fimm konur og tveir karl-
menn voru kosin í stjórn kjördæm-
issambands flokksins í Norður-
landskjördæmi eystra.
Dæmið snerist þess vegna við frá
því sem áður var. Þá sátu í stjórn-
inni fimm karimenn og tvær konur.
Konurnar fengu einnig formann
stjórnarinnar að þessu sinni. Hann
er nú Valgerður Sverrisdóttir frá
Lómatjörn.
Fanginn enn laus
Fanginn frá Litla-Hrauni7 sem
slapp fyrir helgina, þegar hann var
hjá tannlækni í Reykjavík, gengur
enn laus.
-sos
BÍLSTJÓRARNIR
AÐSTOÐA
25050
SENDIBÍLASTÖÐIN Hf
LOKI
Ungliðarnir í Framsókn
reyna að brugga Jóni
launráð frekar en ekki
neitt!
„Stjórn Byggung hefur ákveöiö að
hætta starfsemi félagsins eftir tvö ár
þegar öllum framkvæmdum núna
verður lokið,” sagði Þorvaldur
Mawby sem að eigin ósk hefur
ákveðið að láta af starfi fram-
kvæmdastjóra um næstu áramót.
Þorvaldin- verður þó áfram for-
maður Byggung.
Astæðan fyrir því að Þorvaldur
hættir sem framkvæmdastjóri er sú
að hann og eiginkona hans, Helena
Albertsdóttir, eru aö flytja til
útlanda vegna sjúkdóms níu ára
gamals sonar þeirra. Sonurinn er
með soriasis.
Eins og DV hefur áður skýrt frá
hefur Byggung ákveðið að hægja á
framkvæmdum. Leiðir það til þess
að mörgum ibúðum seinkar um tvo
til þrjá mánuði.
Ástæður samdráttarins sagði
Þorvaldur einkum vera þrjár: Van-
skil Húsnæöisstofnunar, vanskil hús-
byggjenda og of miklar framkvæmd-
ir. Þetta hefði leitt til erfiðrar lausa-
fjárstöðu.
Byggung hefur sagt upp iðnaðar-
mönnum vegna samdráttarins en
einnig vegna þess að félagið hefur
ákveðiö aö bjóöa út innivinnu.
„Þegar félagið var stofnað fyrir
tíu árum var mikil þröf fyrir ódýrar
íbúðir fyrir ungt fólk. Staöan núna
er sú aö við eigum óseldar 20
þriggja herbergja íbúöir í Selási,
sumar fokheldar.
Verð á eldra húsnæði er orðið svip-
að og það verð sem við erum að selja
á þannig aö markaðurinn viröist
vera mettur. Verð á eldra húsnæði er
orðið mjög viðráðanlegt fyrir ungt
fólk,” sagöi Þorvaldur Mawby.
Vantraustiö á
Jón Helgason:
„Fóráská”
Frá Jóni G. Haukssyni, blaða-
manni DV á Akureyri:
„Það fór á ská fyrir henni. Þaö
kom frávísunartillaga frá Magnúsi
Olafssyni, fyrrum ritstjóra NT, og
hún var samþykkt við dræma þátt-
töku. Það voru tíu með, fjórir á
móti,” sagði Valdimar Guðmanns-
son bóndi um vantrauststillögu
sína á Jón Helgason ráöherra, sem
hann. flutti á miðstjórnarfundi
Sambands ungra framsóknar-
manna um helgina.
Valdimar sagði að þrjátíu
manns hefðu setið miðstjórnar-
fundinn, en þó eitthvað færri haft
atkvæðisrétt. „Tíllaga mín var
áskorun á þingflokkinn að skipa
annan mann sem ráðherra þegar í
stað.
Eg gagnrýni Jón mest fyrir
landbúnaðarmálin. En í umræðun-
um um tillöguna fór þaö þó svo að
áfengismálin bar hæst,” sagði
V aldimar G uðmannsson.
Ungirframsóknarmenn:
Vilja bjórinn
Frá Jóni G. Haukssyni, blaða-
manni DV á Akureyri:
Ungir framsóknarmenn vilja
bjórinn. Á miðstjórnarfundi Sam-
bands ungra framsóknarmanna á
Blönduósi um helgina var sam-
þykkt tillaga um að leyfa bruggun
og sölu áfengs öis á Islandi.
Fundurinn samþykkti einnig til-
lögu um að þaö verði eingöngu á
valdi sveitarstjórna hvernig vín-
veitingamálum sé háttað. Gert er
ráð fyrir að ráðherra eigi aðeins að
staðfesta samþykktir sveitar-
stjórnanna í þessum málum.
Kindakjötlækkar
um20prósent
Helstu tegundir kindakjöts
lækka í dag um 20 prósent til neyt-
enda. Gert er ráð fyrir að um 90
milljónum veröi variö til að niður-
greiöa kjötið og mun þaö duga til
niðurgreiöslna á um 2000 tonnum.
Tilgangurinn með þessari lækk-
un er að draga úr birgöahaldi og
auka neyslu innanlands tH þess að
minnka þörfina fyrir útflutning
sem tUtölulega lágt verð fæst fyrir.
—HHEI
-KMU.
Umferðaróhapp varð á Svalbarðsstrandarvegi beint á móti Akureyri skömmu fyrir hádegi í gær. Þar fór
bilaleigubíll út af sjö metra kanti og hafnaði á túni. Einn maður var i bilnum. Hann kastaði sér út úr honum
um leið og billinn stoppaði. Eldur kom upp i bilnum og varð hann alelda á svipstundu. Talið er að bíllinn
hafi farið út af þegar hann lenti á hálkubletti. SOS/DV-mynd JGH
„Ég beið bara meðan
húsið fyiltist af sjó"
- sagði Trausti Aðalsteinsson, sem var í olíubíl, sem hafnaði í sjónum í Vatnsf irði
„Hún var ekki neitt glæsileg vistin
þarna á meðan ég beið eftir að húsið
fylltist af sjó. En mér tókst einhvern
veginn að harka þetta af mér og
komast út og synda í land og ganga
síðan að næsta bæ. Það var nú erfiö-
ast við þetta, því þaö er hátt í klukku-
stundar gangur og ég bara á buxun-
um og skyrtunni og holdvotur og
kaldur.”
Þetta sagði Trausti Aðalsteinsson,
bifreiðarstjóri á Patreksfirði, í viðtaii
við DV í gær, en hann lenti í því
snemma á laugardagsmorguninn aö
stór olíubUl, sem hann ók, fór út af
veginum á Hörgnesi í Vatnsfirði og
endaði úti í sjó eina 12 metra frá
landi.
Trausti var með fullhlaðinn bíl af
gasoh'u á leiö að vegavinnuflokki frá
Norðurverki þegar óhappið varð.
Fór bUlinn út af veginum og á kaf í
sjóinn, en hásjávað var og mjög að-
djúpt þama við veginn.
„Ég hélt sem betur fer rænu og
beið bara á meðan húsið fylltist af
sjó,” sagði Trausti. „Það gekk ágæt-
lega að komast út úr bílnum eftir það
og síðan synti ég í land og gekk að
næsta bæ sem er Fossá,” sagði
Trausti og vildi sem minnst gera úr
þessu öUu.
Er það talið mikið af rek hjá honum
að komast alla þá leið kaldur og
blautur. Hann var illa skorinn á enni
og einnig meiddur á hendi.
I gær átti að gera tilraun tU að
dæla olíunni úr bUnum þegar hann
kæmi upp á fjöru, en hann er um 12
metra frá landi, eins og fyrr segir.
Síðan átti að ná honum upp. Eitthvað
af oliunni mun hafa lekiö i sjóinn.
Olíubrák var á f jörunni í gær en ekki
er vitað hvað mikið magn hefur lekið
úrhonum.
-klp-