Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1985, Blaðsíða 2
2
DV. LAUGARDAGUR 23. NOVEMBER1985.
Lokuðu Reykjavíkurhöfn f hálfa aðra klukkustund:
T rillukarlar opnuðu þegar
Bjarki mætti með lið sitt
Innsiglingin i Reykjavikurhöfn var
lokuð í hálfa aðra klukkustund í gær-
morgun vegna mótmæla eigenda
smábáta. Trillukarlar rufu keðju
sína klukkan 11.10 eftir að lögreglan
skarstíleikinn.
Akraborgin haf ði þá orðið að hætta
við áætlunarferð frá Reykjavík
klukkan tíu. Ennfremur hafði brott-
för oliuskipsins Héðins Valdimars-
sonartafist.
Hafnsögubátur með Bjarka Elías-
son yfiriögregluþjón um borð sigldi
út aö triUuköriunum laust eftir
klukkan 11. A sama tima fóru lög-
reglumenn að vitunum begg ja vegna
innsiglingarinnar til að losa frá
kaðlana sem bundu bátana við.
„Þeir hlýddu umyrðalaust og
hreyföu engum mótmælum,” sagði
Bjarki Elíasson. „Þeir sögðust vilja
tala viö Halldór Asgrímsson en ég
sagði þeim að hann væri ekki á
staðnum,” sagði Bjarki.
Varöskipið Oðinn, sem lónaö haföi
úti á ytri höfninni, og varðskipið Æg-
ir, sem fyrr um morguninn hafði
siglt inn í höfnina, tóku ekki þátt í
lögregluaðgerðum.
Sjómennimir lokuðu Reykjavíkur-
höfn til þess að mótmæla banni sjáv-
arútvegsráðherra á veiðar smábáta,
svo og til þess að vekja athygli á mál-
umsínum. -KMU.
Magnús Einarsson aðstoðaryfir-
lögregluþjónn losar kaðal sem
batt einn bótinn við syðri innsigl-
ingarvitann.
Bjarki Eliasson yfirlögregluþjónn fór með hafnsögubát að innsigling-
unni til að skipa sjómönnunum að opna. DV-myndir KAE.
Lögreglumenn ganga að nyrðri innsiglingarvitanum til að losa kaðlana frá honum
AlvaHeg aðför að
tilverurétti okkar
— segja bátasjómenn sem telja veðurfar takmarka sókn þeirra nóg
„Við teljum að veðurfar takmarki
sókn okkar nóg. Frumvarp sjávarút-
vegsráöherra er alvarleg aðför að til-
verurétti okkar,” sögðu bátasjómenn
sem DV ræddi við á Grandagarði í gær
að loknum mótmælum þeirra í Reykja-
víkurhöfn.
„Bann á veiöar smábáta frá 15. nóv-
ember veldur því að veiöar okkar
veröa nánast engar á þessu hausti.
Undanfarin ár hefur einmitt þessi tími
ásamt janúar og febrúar verið grund-
völlur smábátaútgerðar á Suðvestur-
landi.
Við getum alveg sætt okkur við stopp
en við viljum fá að ráða þeim tima
sjálfir. Það er eðlilegast að smábáta-
sjómenn geti sjálfir ákveðið hvenær
þeir róa án þess að vera undir pressu ó-
réttlátra laga.
Núverandi stjórnun fiskveiða, þar
sem stofnaö er til keppni um einn alls-
herjarkvóta smábáta, sem veiða verð-
ur á fyrirfram ákveðnum dögum, án
tillits til veðurlags, eykur slysahættu
þeirra manna sem hafa þessar veiðar
aöaöalatvinnu.
Stefna sjávarútvegsráðherra mun
valda því að menn sem með góðum
árangri hafa stundað veiðar á smábát-
um undanfarin ár, munu á næstu miss-
erum gefast upp. Frumvarpið gerir
ráð fyrir því að smábátar megi helst
ekki stunda veiðar nema á þeim tíma-
bilum sem veiðar eru óhagkvæmar. ”
Bátasjómennimir sögðu að með
veiðibanni væri mörgum stefnt í fjár-
hagslega óvissu. Menn þyrftu að
greiða afborganir af bátum, sem
margir væru 3—5 milljóna króna viröi.
Einn nefndi sem dæmi að hann þyrfti
að greiða 400 þúsund króna afborganir
af bátnum á næstu þrem mánuöum en
mætti ekkert veiða á meðan.
„Ætli viö verðum ekki allir í Lögbirt-
ingi,” sagði hann.
Bátasjómennimir vildu að fram
kæmi að Arthúr Bogason væri ekki
talsmaður þeirra. Kváðust þeir hafa
hug á að stofna sérsamband smábáta-
eigenda sunnan- og vestanlands. -KMU.
Bátasjómenn sem DV rseddi viö eftir mótmælin. Frá vinstri: Sigvaldi Lofts-
son, Eymar Einarsson, Ásgeir Samúelsson, Þröstur Kristófersson, Einar
Ásgeirsson og Guðlaugur Kristinsson. DV-mynd PK.