Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1985, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1985, Blaðsíða 20
20 DV. LAUGARDAGUR 23. NOVEMBER1985. Nauðungaruppboð annað og siðasta á hluta I Fálkagötu 20, þingl. eign önnu F. Sigurðar- dóttur og Hans Gústafssonar, fer fram eftir kröfu Guöjóns Á. Jónsson- ar hdl., Valgeirs Pálssonar hdl., Gjaldheimtunnar l 'Reykjavik, Lands- banka islands, Guömundar Jónssonar hdl., Sveins H. Valdimarssonar hrl., Skúla J. Páimasonar hrl., Veödeildar Landsbankans og Búnaöar- banka Islands á eigninni sjálfri miövikudaginn 27. nóvember 1985 kl. 10.30. Borgarfógetaembættiö I Reykjavík. Nauðungaruppboð annað og siöasta á hluta I Fornhaga 19, þingl. eign Siguröar Björnsson- ar, fer fram eftir kröfu Landsbanka Islands á eigninni sjálfri miövikudag- inn27. nóvember 1985 kl. 10.45. Borgarfógetaembættiö í Reykjavik. Nauðungaruppboð annaö og slöasta á hluta I Ránargötu 11, þingl. eign Daöa Kristjánsson- ar og Hafdisar Leifsdóttur, fer fram eftir kröfu Guöjóns Steingrimssonar hrl. á eigninni sjálfri miðvikudaginn 27. nóvember 1985 kl. 11.15. Borgarfógetaembættiö í Reykjavík. Nauðungaruppboð annaö og slöasta á hluta I Hólmgaröi 50, þingl. eign Jakobs V. Hafstein, ferfram eftir kröfu Útvegsbanka Islands á eigninni sjálfri miövikudaginn 27. nóvember 1985 kl. 14.30. Borgarfógetaembættiö I Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var 171., 75. og 81. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á hluta i As- vallagötu 15, þingl. eign Elsu Jóhannesdótturog Péturs Jóh. Guðlaugs- sonar, fer fram eftir kröfu Veödeildar Landsbankans á eigninni sjálfri miövikudaginn 27. nóvember 1985 kl. 11.30. Borgarfógetaembættiö I Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var 1111., 116. og 121. tbl. Lögbirtingablaös 1985 á hluta I Háaleitisbraut 43, þingl. eign Hilmars Sigurbjartssonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar I Reykjavik á eigninni sjálfri miövikudaginn 27. nóvember 1985 kl. 16.30. Borgarfógetaembættiö í Reykjavlk. Nauðungaruppboð sem auglýst var I 86., 95. og 100. tbl. Lögbirtingablaös 1985 á hluta í Borgargeröi 4, þingl. eign Einars A. Péturssonar og Kolbrúnar Thomas, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar I Reykjavík á eigninni sjálfri miö- vikudaginn 27. nóvember 1985 kl. 15.00. Borgarfógetaembættið I Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var I 71., 75. og 81. tbl. Lögbirtingablaös 1985 á hluta I Háaleitisbraut 42, þingl. eign Gunnars Jónssonar og Ingibjargar Gunn- arsdóttur, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík á eigninni sjálfri miövikudaginn 27. nóvember 1985 kl. 16.15. Borgarfógetaembættið I Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var I 86., 95. og 100. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á Bakka- geröi 16, þingl. eign Ingimundar Konráössonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar I Reykjavík á eigninni sjálfri miövikudaginn 27. nóv- ember 1985 kl. 14.45. Borgarfógetaembælttið I Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var I 71., 75. og 81. tbl. Lögbirtingablaös 1985 á hluta I Gnoöarvogi 50, þingl. eign Gunnars Ingólfssonar, fer fram eftir kröfu Veödeildar Landsbankans, Gjaldheimtunnar I Reykjavik og Ólafs Gúst- afssonar hdl. á eigninni sjálfri miövikudaginn 27. nóvember 1985 kl. 16.00. Borgarfógetaembættiö I Reykjavik. Nauðungaruppboð annað og slöasta á hluta I Hringbraut 109, þingl. eign Ómars Imsland, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar I Reykjavlk á eigninni sjálfri miö- vikudaginn 27. nóvember 1985 kl. 11.00. Borgarfógetaembættiö I Reykjavik. SYNGJAIMDIBELGAR ÁÍSLAIMDSn/HÐUM Belgíski sönghópurinn „Ijslandsuite" heíur sent frá sér hljómplötu þar sem eingöngu eru sungin lög við texta sem byggja á skipsbókum, bréfum og sögum af belgískum sjómönnum sem sóttu íslandsmið á síðustu öld og jafrtvel íyrr. Hefur hljómplatan notið töluverðra vin- sælda í Belgíu og heyrist oft leikin í útvarpi. Plötuumslagið er helgað íslandi, kort fylgir þar sem lesa má skringilegar nafhgiftir á annars alþekktum stöðum hér á landi. Snæfellsjökull heitir Sneeuwkegel, Ingólfshöfði Engelsch Hoofd og Selvogur Sulferbronnen. Þegar plötuumslagið er opnað blasir við mynd af belgískum kútter, landslagsmyndir frá ís- landi og kort sem sýnir sjóleiðina frá Dunkirk til Papeyjar. Ekki stutt sjóferð það. Kristján Bemburg, fréttaritari DV í Belgíu, hefúr snarað texta sem fylgir hljómplötunni þar sem gerð er grein fyrir lífi belgískra sjómanna við íslandsstrendur. Fer hann hér á eftir. -EIR. Dauði og vosbúð — þrælavinna við íslandsstrendur Hvað voru menn að flækjast til Islands á síðustu öld? Tæpast til að líta eldfjallið Heklu augum, skoða Geysi eða Reykjavík né þá að eiga 2-3 þægilega daga á .eyju íss og elda á leið til Bandaríkjanna. Nei, þá komu menn til íslands til að veiða fisk. Það var hart líf sem ekki var tekið út með sældinni. Árið 1826 fórust 56 belgískir sjó- menn á íslandsmiðum. Tíu árum síðar fórust 132 landar þeirra ó sömu miðum. Árið 1839 var tala drukknaðra Belga hér við land 185 og 163 árið 1888. Svona mætti lengi telja. Vot gröf Sumir urðu ruglaðir í þessum ferðum. Dæmi eru um unga menn sem bundnir voru niður í stóla svo þeir færu sér ekki að voða. Venju- leg ferð tók 6 mánuði og voru þessir menn jafnvel bundnir allan þann tíma. Aðrir þoldu ekki vosbúðina og enduðu í íslenskum kirkjugörð- um, til dæmis á Fáskrúðsfirði. Margir urðu veikir í þessum ferð- um eins og Cissen Ooms sem barð- ist við dauðann svo dögum skipti á hafi úti, skammt undan fslands- ströndum. Að lokum lét hann í minni pokann og gaf upp öndina. Þá var ekki annað til ráða en kasta líkinu fyrir borð: Einn, tveir, þrír, í guðs nafni - og líkinu var varpað ísjó. Sá Belgi sem komst í 33 íslands- siglingar var álitinn sterkur sem björn. Því marki náðu menn ekki nema byrja siglingarnar á unga aldri. Einn þessara manna var Corteel frá Oostudemerke sem náði 36 ferðum. August sonur hans fór í 28 ferðir, Henry bróðir hans í 20 og barnabarnið Emil hafði það af að sigla á íslandsmið 22 sinnum. Bamabamabarnið Leopold lét sér nægja8ferðir. Framhlið belgísku hljómplöt- unnar, úfinn sær og snjór í fjöll- um. Bakhlið plötunnar. Kort af íslandi þar sem helstu staðir eru merktir jafnt á íslensku sem belgísku. Corteel með stóra nefið Corteel gamli varð 85 óra og naut mikillar virðingar vegna afreka sinna við sjósókn. Hann varð þekktur maður í frosthörkunum 1888 þegar nefið á honum fraus með þeim afleiðingum að það stækkaði svo hroðalega að með eindæmum þótti. Var lítið við því að gera og þurfti hann að burðast með kjötköggul á stærð við epli á nefinu það sem eftir var. Þeir sem komust í 30 ferðir á íslandsmið voru álitnir miklir harðjaxlar. Þeir sem náðu 20 ferð- um fengu á sig orð fyrir að vera sterkir og 10-ferða menn nutu virð- ingar sjómanna og fólks i landi. En þetta var þrælavinna i orðsins fyllstu merkingu. Sá er fór til íslands fékk greitt fyrirfram upp í þau laun sem búist var við að ferðin gæfi af sér. En oft var veiðin lítil og þá þurfti margur maðurinn að endurgreiða hluta af fyrirframgreiðslunni. Þess utan urðu sjómennirnir sjálfir að greiða fyrir svefnpláss, mat, tóbak og drykk. Konur og börn biðu heima og urðu að vinna fyrir sér sjálf. Á meðan reyndu eiginmennirnir að fiska sem mest þeir máttu og sagt er að þeir hafi ekki farið í land ó íslandi nema í eitt skipti í bverri veiðiferð. Var það yfirleitt í maí- mánuði og þá til að ná sér í ferskt vatn, þvo föt, raka sig og snyrta eftir margra mánaða sjávarseltu, svita og drullu. Sjúkir voru settir í land og tóbaki og áfengi smyglað til innfæddra sem gáfu ull á móti. íslandsplatan rokselst Belgísku sjómennirnir á ísland- smiðum voru við veiðar dag og nótt. Færið var alltaf úti. Allt sem veiddist var nýtt. Ef mikið veiddist var fiskurinn saltaður um borð og fiskhausarnir taldir. Þeir voru síð- an soðnir og étnir af áhöfninni. Ef einhver varð uppvís að því að stela þorskbita var honum hegnt með því að binda hann við mastrið í einn dag. Að auki missti hann laun þann dag. Um þetta og margt annað syngur belgíski sönghópurinn „Ijsland- suite“við góðar undirtektir í heimalandi sínu. íslandsplatan rokselst. Þegar hljómplötuumslagið er opnað getur að líta belgískan kútter, landslagsmyndir frá Islandi, sjóleiðina frá Belgíu og texta þar sem kjörum sjómannanna er lýst. Frá Kristjáni Bernburg, fréttaritara DV í Belgíu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.