Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1985, Blaðsíða 10
10
DV. LAUGARDAGUR 23. NOVEMBER1985.
Athyglisverð þróun hefur orðið í
hórgreiðslu Vigdísar Finnbogadótt-
ur á þeim 5 árum sem liðin eru frá
því hún sór embættiseið sinn sem
forseti íslands. Slétt, ljóst hórið, eilít-
ið blásið, sem lengi var vörumerki
forsetans og vakti oftar en einu sinni
heimsathygli, hefur nú vikið fyrir
öðrum og nýrri stíl: smágerðum
krullum.
Höfundur gömlu hárgreiðslunnar
var íslensk stúlka, Doddý að nafni
sem lengi vann ó hárgreiðslustofunni
á Hótel Loftleiðum. Hún hefur und-
anfarin ár verið búsett í Kaup-
mannahöfn og unnið að iðn sinni
þar. Þá var hún löngum í fylgdarliði
forsetans á ferðum hennar erlendis
og greiddi henni milli flugferða.
Höfundur nýju línunnar er hins
vegar Herdís Þorsteinsdóttir sem
starfar á hágreiðslustofunni Valhöll
við Óðinsgötu í Reykjavik:
„Ég veit nú ekki hvort kalla ætti
þetta byltingu, en þetta er töluverð
breyting, því verður ekki neitað,"
sagði Herdís Þorsteinsdóttir í sam-
tali við DV. „Fyrirmynd þessarar
nýju greiðslu er ekki sótt til útlanda,
það má segja að greiðslan sé hand-
unnin á Islandi (handmade in Ice-
land). Við klipptum forsetann oft
áður en þessi árangur náðist og við
þurftum ekki að hafa áhyggjur af
krullunum vegna þess að Vigdís er
með náttúrlegar krullur í hári sínu.“
-Var Vigdís þá hrokkinhærð sem
bam?
„Það hlýtur að vera. Þetta eru
náttúrlegar krullur. Ætli hún hafi
ekki blásið þær úr.“
- Má búast við að nýja krulluhár-
greiðslan komist í tísku eins og sumir
hafa haldið fram að gerst hafi með
þá gömlu. Menn hafa jafnvel gert því
skóna að Díana prinsessa í Bretlandi
Vigdís Finnbogadóttir með nýju hárgreiðsluna, smákrullurnar hafa tekið völdin. Með henni á myndinni eru forsætisráðherra og bandaríski
sendiherrann á Islandi.
■l
Á svölum Konunglega leikhússins í Kaupmannahöfn með Ingiríði drottningarmóður, Margréti Dana-
drottningu og Hinriki prinsi. Þarna er hárgreiðslan verk Doddýjar í Kaupmannahöfn, greiðsla sem síðan
hefur verið kennd við Díönu prinsessu í Bretlandi.
Vigdís með Juan Carlos Spánarkonungi. Ein síðasta myndin sem
tekin var af forsetanum áður en lokkarnir féllu og krullurnar tóku
völdin.