Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1985, Side 3
DV. LAUGARDAGUR 23. NOVEMBER1985.
3
Lækkun vaxta lífeyríssjóðanna:
„Gæti leitt til
spákaupmennsku”
- segir Hrafn Magnússon, framkvæmda-
stjóri Sambands almennra lífeyrissjóða
Kröfur um aö vextir á lífeyrissjóös-
lánum vegna húsnæðiskaupa lækki
hafa undanfariö verið samþykktar í
röðum verkalýöshreyfingarinnar.
Hrafn Magnússon, framkvæmda-
stjóri Sambands almennra Íífeyris-
sjóöa, var spuröur álits á þessum
kröfum.
„Eg held aö þaö sé almenn skoöun aö
lífeyrissjóðimir geti ekki veriö meö
aöra vexti en bankarnir. Þaö er
24skákséní
mætastáíslandi
ífebrúar
hugsanlegt aö lækkun vaxta hjá líf-
eyrissjóöunum gæti haft í för með sér
spákaupmennsku. Menn gætu fengið
ódýrt fjármagn hjá lifeyríssjóðunum
sem mögulegt væri að ávaxta annars
staöar á betri kjörum. Þá er líklegt aö
ásóknin i lán myndi aukast. Það gæti
haft í för með sér aö lífeyrissjóðimir
gætu ekki staðið viö skuldbindingar
sín£u- viö byggingarsjóöina,” sagöi
Hrafn.
Hann sagöi aö i þessu efni toguðust á
gagnstæð sjónarmið: annars vegar
gagnvart lántakandanum og hins
vegar sú ábyrgð sem lífeyrissjóöimir
hafa gagnvart lífeyrisþegum. APH
BABY-BOB snjóþotur fyrir böm
6 mán. til 2 ára. Ath. með
öryggisbelti.
Einnig stærri þotur, tvær gerðir,
og nýtt á markaðnum: Snjó-
diskurinn frábæri, fæst í öllum
helstu sportvöruverslunum,
leikfangaverslunum og stór-
mörkuðum.
Vonarlandi v/Sogaveg, sfmi 37710.
Tólf bestu skákmenn Noröurlanda
og tólf bestu skákmenn Bandaríkjanna
mætast í Reykjavík dagana 8.-9.
febrúar næstkomandi í tveggja daga
skákkeppni, eins og kom fram í DV í
gær.
Tefldar verða tvær umferðir á
hverju borði. Hver keppandi hefur einu
sinni hvítt og einu sinni svart.
Keppnin fer fram á vegum Skáksam-
bands Noröurlanda, sem er elsta milli-
rikjaskáksamband heims, stofnað áriö
1899. Var það einn fyrsti vísirinn af
norrænni samvinnu á menningarsviö-
inu.
Þetta verður í fyrsta sinn sem
Norðurlöndin stilla upp sameiginlegu
úrvalsliði ef frá er talin keppni
unglingaliðs gegn Sovétrikjunum áriö
1970.
Urvalsliöin verða þannig skipuö:
Norðurlönd:
1. Ulv Andersson (S) SM 2590
2. Bent Larsen (D) SM 2565
3. Margeir Pétursson (I) AM 2550
4. Lars Karlsson (S) SM 2530
5. Helgi Olafsson (I) SM 2515
6. Simen Agdestein (N) SM 2505
7. Jóhann Hjartarson (I) SM2505
8. Curt Hansen (D) SM 2500
9. Jón L. Ámason (I) AM2500
10. Guðmundur Sigurjónss. (I) SM2495
11. Harry Schussler (S) AM 2465
12. Jouni Yrjola (F) AM 2460
Meðalstig 2516
Bandaríkin
1. Yasser Seiravan SM 2570
2. Larry Christiansen SM 2560
3. Lubomir Kavalek SM 2555
4. Nick deFirmian SM 2545
5. Joel Ben jamin AM 2535
6. John Fedorowicz AM 2515
7. LevAlburt SM2510
8. Walter S. Browne SM 2510
9. William Lombardy SM 2510
10. Robert Byrne SM 2505
11. Ron W. Henley SM2505
12. Boris Kogan AM 2505
Meðalstig 2527
Val þátttakenda er byggt á alþjóð-
legum skákstigum virkra skákmanna
1. júlí síðastliðinn. Endanleg borðaröð
ræðst af skákstigum þeirra hinn 1.
janúar næstkomandi. -KMU.
Skákmót Flugleiða
Flugleiðaskákmót verður haldið nú
um helgina í Kristalssal Hótel Loft-
leiða. 24 sveitir frá hinum ýmsum
stofnunum og fyrirtækjum úti um allt
land taka þátt í mótinu. Er þetta í 7.
skipti sem slíkt skákmót er haldiö.
Tefldar verða 23 umferðir. Við mótslok
á sunnudag mun forstjóri Flugleiða
afhenda sigursveitinni verðlaun. Allir
sterkustu skákmenn þjóðarinnar taka
þáttímótinu. KB
S jö gámar í sjóinn
Bandaríska flutningaskipið Rainbow
Hope lenti í mjög slæmu veðri 500
mílur vestur af landinu nú í vikunni —
tólf vindstigum. Sjö gámar, sem voru á
dekki, fóru þá í sjóinn, þegar gáma-
festingar brustu. Engar skemmdir
urðu á skipinu. I gámunum voru hús-
gögn, grænmeti og annar varningur.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem skip á
leið til Islands, sem lendir í haugasjó,
missir gáma í sjóinn. -SOS
JÓLATILBOÐ NR.1
METSÖLUSAMSTÆÐAN FRÁ TECHNICS
SYSTEM Z-100 er mest selda Teclinics
hljómtækjasamstæðan á íslandi í dag.
Ástæðurnar fyrir vinsældum hennar eru margar
og augljósar.
Plöstuspilarinn er með hinu fullkomna og
nákvæma 4TP pick-up kerfi.
Kröftugur 70 watta magnari, útvarp með
FM-steríó, LB, MB, kassettutækið er með
snertitökkum, nákvæmum fluorcent mælum og að
sjálfsögðu Dolby kerfi.
Tveir 100 watta hátalarar sjá svo um hljóminn.
Ekki spillir glæsilegt útlit en tækin eru í
vönduðum skáp með lituðu gleri og á hjólum.
Nú gefst ykkur enn tækifæri til þess að eignast
þessa frábæru hljómtækjasamstæðu á einstöku
jólatilboðsverði.
Rétt verð 48.370,-
JÓLATILBOÐ 35.930.-
m
ÖJAPIS
BRAUTRHOLT 2 SlMI 27133.
gaeiMBWgz:....