Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1985, Qupperneq 12
12
DV. LAUGARDAGUR 23. NOVEMBER1985.
Rokkspildan
Rokkspíldan
Rokkspildan
Hörður Torfason verður fyrr á
ferð. Á mánudagskvöldið beldur
hann tónleika í ÍCafarí og hefjast
þeir klukkan 9. Með Herði á
tónleikunum verða þau Lisa
Pálsdóttir og Björgúlfur Emils-
son, sem í eina tið léku með
Kamarorghestum. Á efnis-
skránni verða gömul og ný lög af
plötum Harðar.
Áð lokum frétt sem ekki beint
tengist tónleikahaldi. Hljómsveit
er starfandi sem heitir því stutta
og laggóða nafni F. Hún hefur
starfað frá því í sumar, þó að
ekki hafi félagarnir i henni komið
fram opinberlega. Þeir hafa hins
vegar unnið bak við tjöldin við
gerð hljómplötu sem væntanleg
er á markað um mánaðamótin.
Er hér á ferðinni plata með jóla-
lögum, en ekki í venjulegum
skilningi þess orðs. Hægu og hug-
ljúfu jólaútsetningunum hefur
verið ýtt til hliðar og aðrar rokk-
aðri notaðar í staðinn. Er hér
sem sagt á ferðinni f jögurra laga
rokk-jólapiata. Heims um ból,
rokk um jól.
-ÞJV.
Bídó, Kolbrá og Hjödda (Dilla trommari var veik). Hljómsveitin þeirra,
Amý, fær hvergi inni. DV-mynd Kristján Ari.
Mm aðvar mikið hlegið þegar
Grýlurnar léku í fyrsta sinn opinber-
lega í Austurbæjarbíói í „den”. En
sá hlær best... og áður en yfir lauk
höfðu þær Grýlur sannaö sig svo um
munaði. Þær ruddu líka brautina fyr-
ir fleiri. Dúkkulísurnar fylgdu í kjöl-
farið og gerðu kynsystur sína í Dall-
as ódauölega.
Skulu nú nefndar til sögunnar f jór-
ar stúlkur, þær Dilla, Hjödda, Kolbrá
og Bídó. Saman skipa þær sveit sem
vegna kynferðis þeirra mun væntan-
lega fá viðurnefnið kvennahljóm-
sveit.
Hljómsveitin hefur verið starfandi
í rúmt ár, með ýmsum breytingum
þó. Bídó og Kolbrá hafa verið með
frá upphafi. Eg hitti þær og söngkon-
una Hjöddu á Mokka í vikunni sem
leið. Umræðuefnið: Félagslega staöa
kvennahljómsveita.. .
Tvær hljómsveitir á heimil-
inu
Það sem öðru fremur hefur ein-
kennt feril hljómsveitarinnar er
skortur á æfingahúsnæði. Um tíma
æfðu stúlkumar heima hjá Bídó.
„The Voice fékk að æfa þar líka, meö
því skilyrði að við fengjum lánuð
hljóðfæri þeirra félaga og þeir
kennduokkurgrip.”
— Hvernig tók fjölskylda Bídó í að
tvær hljómsveitir æfðu á heimilinu?
„Það var svona upp og niður.
Voice strákarnir voru dálítið hávær-
ir. Við spiluöum ekki eins mikið, vor-
um meira í að semja. Þegar við hætt-
um að æfa heima hjá Bídó vorum við
búnar að semja fimm eða sex lög.”
Þetta var í ágúst. Eitthvað hefur
hljómsveitin komið saman síðan en
ekkert reglulega.
„Við höfum leitað víða fyrir okkur
um æfingahúsnæði en ekkert fengið.
Síðast talaöi Bídó við konurnar sem
keyptu húsin á Vesturgötunni. Þær
sögðu okkur að senda bréf.” Hér
færðist Kolbrá öll í aukana. „Það er
veriö að tala um ár æskunnar og viö
getum hvergi verið. Það þyrfti að
koma upp miðstöð þar sem hljóm-
sveitir gætu komið saman og æft. Ár
æskunnar hefur engu breytt. Getiö
þið ímyndað ykkur að fullorðna fólk-
ið færi aö selja penna til að styrkja
ungt fólk í aö koma sér upp húsi? ”
„Kyntröllin,"
ráðlagði Ragga
Andartakshlé var gert á umræð-
unni um húsnæöismálin.
— Þið hafið aldrei spilað opinber-
lega?
„Neei.” Þær líta hverjar á aðra.
„Það hafa mjög fáir heyrt í okkur
ennþá. Strákarnir í Voice fóru óund-
irbúnir að spila og voru strax dæmd-
ir lélegir. Við ætlum ekki að lenda í
þvi sama. Kannski spilum við næsta
sumar. En fyrst verðum við auövitað
að geta æft.” Þær voru sammála um
það.
— En hvað finnst ykkur um aðrar
kvennahljómsveitir?
„Dúkkulísurnar eru góöar og Grýl-
urnar voru líka ágætar.” Bídó: „Eg
og Harpa, sem var fyrst í hljómsveit-
inni, höfðum samband við Röggu
Gísla. Hún ráðlagði okkur hitt og
þetta og stakk upp á að við kölluðum
okkurKyntröllin.”
—Og notuðu þið það nafn?
„Nei, reyndar ekki. Kolbrá stakk
upp á nafninu Amý. Við fíluðum það
vel fyrst en núna finnst okkur það
ekkert sérstakt. Ætli við notum það
bara ekki til bráðabirgða.”
— Hvað finnst vinum ykkar og
kunningjum um að þið séuö í hljóm-
sveit?
„Þaö vita mjög fáir af þessu. Við
segjum alls ekki frá því að fyrra
bragði.”
— Hvers vegna ekki?
„Það er bara asnalegt að vera eitt-
hvað að monta sig af því.”
Slá hvert?
Framtíðin barst næst í tal.
— Hverjir eru framtíðardraum-
arnir?
„Slá í gegn. Nei, annars ekki skrifa
það.” „Jú,” segir Kolbrá ákveðin.
„Ef maður er í hljómsveit þá ætlar
maður að slá í gegn.” Bídó maldar í
móinn. „Það er í lagi að slá í gegn en
það er ekki endilega aöalatriðið. Við
erum fyrst og fremst að gera þetta
fyrir okkur sjálfar. Hitt kemur á eft-
ir.” Þögn. Hér fara skoðanir hljóm-
sveitarmeðlima á frægðinni ekki
saman.
„Jæja,” segi ég til þess aö segja
eitthvað og seilist eftir jakkanum.
Eitthvaðaölokum?
„Já, takk,” segir Hjödda, sem
fram að þessu hefur varla sagt orð.
„Veistu um æfingahúsnæði?” Nei, ég
vissi ekki um neitt. En til að reyna að
gera gott úr öllu saman er þessum
frómu iokaorðum hér með beint til
þín.
-ÞJV
„Veistu um
æfingahúsnæði?”
— spyrja stúlkumar f Amý
Og enn skal minnst á Zafari.
Annan sunnudag, 1. des., heldur
franska nýbylgjurokksveitin
Etron Fou Leloublan tónleika i
Zafarí ásamt nokkrum íslensk-
um listamönnum úr hópi skálda
og tónlistarmanna. Þessi fransk-
íslenska rokkbátíð hefur fengið
yfirskriftina Fáheyrður hvítur
úlfur og mun sú nafngift eitthvað
tengd frönsku gestunum. Forsala
aðgöngumiða er í Gramminu.
þjóaarinnar
Það er ekki algengt að tvennir
hijómleikar séu sama kvöldiö i
Reykjavík. Það var þó uppi á
teningnum á fimmtudagskvöldiö. Á
borginni léku Dá, Tic Tac og
Vonbrigði og í Zafari tróð upp sjálfur
Megas. Og sökum einlægrar
aðdáunar minnar á þeim manni lá
leið min niður á Skúlagötu.
Þangað lá ennfremur leið margra
annarra. 1 dag er Megas
almenningseign. Eftir öll þessi ár
hefur meginþorri fólks loks
uppgötvaö þennan gimstein i
íslensku tónlistarlífi. En ólíkt
flestum öðrum snillingum hefur
Megas hlotið viðurkenningu i lifanda
lífi. Guði sé lof og vonandi á hann
eftir mörg góð ár í „bransanum”.
Tvœr Heilræðavísur
Megas steig fram rúmlega tiu og
bauð fullum sal áhorfenda gott
kvöld.
Ekki er að orðlengja það f rekar, en
eftir það og til tæplega tólf var
kvöldið hans. Á efnisskrá voru gömul
lög og ný, flest eftir Megas sjálfan,
en inn á milli söng hann texta eftir
aöra. „Þú komst í hlaðið. . . ” eftir
Davíð Stef. fékk sérlegar góðar
undirtektir. Reyndar má segja þaö
um öll lögin. Ahorfendur voru vel
meö á nótunum og mikið klappaö
eftirhvertlag.
Megas var kátur þetta kvöld, fór
með einar tvær Heilræðavísur og lék
á als oddi. Klykkti hann út með „smá
pólitík” og söng lagið Svo skal böl
bæta.
Það var annars einkennandi
hversu vel textar Megasar nutu sín
við einfaldan undirleik gítarsins.
Þegar hann hefur sungiö með hljóm-
sveitum hafa þeir oft viljað týnast í
kröftugum hljóðfæraleik.
En svo var ekki nú og kaldhæðnis-
legur húmor hans naut sín sem
aldreifyrr.
Spáð í meistara
Og áheyrendur létu svo sannarlega
í ljós ánægju sína. 1 bljúgri bæn (sem
Megas virðist hafa eignað sér) var
fyrsta aukalagið og eftir kröftugt
klapp og stapp kom Megas aftur á
sviöið. Tók í annað sinn slagara ailra
slagara. og áheyrendur sátu dol-
fallnir og spáðu í þennan meistara
sinn. Aö flutningnum loknum bauð
hann í þriðja sinn góða nótt. Eg held
ég hafi ekki í annan tima skemmt
mér jafnvel. Og nú bíð ég spenntur
eftir að Megas gefi út nýja plötu, þá
fyrstu síðan Drög að sjálfsmorði.
Þær pælingar eru sem betur fer
löngu fyrir bí. Nú er komin betri tíð.
ÞJV
Tónleikar
— og sitthvað fleira
Hljómsveitin Svart-hvítur
draumur úr Kópavoginum heldur
tónleika í þeim hluta höfuðborg-
arsvæðisins á morgun. Verða
tónleikarnir í Hjáleigunni í Kópa-
vogsbíói og hefjast klukkan 9.
Fyrsta plata SH draums er vænt-
anleg innan skamms og eru þess-
ir tónleikar í tengslum við út-
komu hennar. SH draumur mun
ennfremur koma fram í Zafarí
annan sunnudag ásamt Etron
Fou Leloublan. Meira um það
síðar.
Tappi tíkarrass
í Zafarí
Þegar hljómsveitin Tappi
tikarrass lagði npp laupana á
sinum tima dreifðust meðlimlr
hennar í ýmsar áttir. Næstkom-
andi fimmtudagskvöld ætla þess-
ir fyrrum meðiimir hljómsveit-
arinnar að bittast á ný í Zafari,
en aðelns í þetta eina sinn.
„Missið því ekki af þessu
einstæða tækifæri.”
tlLJ