Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1985, Blaðsíða 13
DV. LAUGARDAGUR 23. NÖVEMBER1985.
13
Menning
Menning
Menning
Menning
Augnablikið og eilífðin
-sýning Hildar Hákonardóttur í Listmunahúsinu
Það fer ekki á milli mála að
Hildur Hákonardóttir hefur gegnt
mikilvægu hlutverki í íslensku
myndlistarlífi sl. tvo áratugi sem
vefari, aktífisti og skólastjóri
Myndlista- og handíðaskólans.
Árið 1972 hélt Hildur t.d. merki-
lega textílsýningu í Gallerí SUM
og var þá ekki með „venjulegar“
veftir í tvívídd heldur ofna eða
prjónaða „objekta" og fyrirbæri úr
daglega lífinu. Ég veit ekki til þess
að þrívíðar veftir hafi áður verið
til sýnis á landinu. Um svipað leyti
tók Hildur einnig við rekstri Gal-
lerí SÚM, ásamt Gylfa Gíslasyni,
og stóðu þau fyrir nokkrum at-
hyglisverðum sýningum. Stuttu
síðar, eða árið 1975, varð Hildur
síðan skólastjóri og setti á stofn
Nýlistadeildina frægu, með aðstoð
Magnúsar Pálssonar. Sú deild
ungaði síðan út mörgum helstu
hæfileikamönnum þeirrar kynslóð-
ar myndlistarmanna sem nú er að
komast.til þroska.
Þjóðfrelsi og kvennabarátta
Myndlist Hildar sjálfrar þróaðist
í átt til þjóðfélagslegra ígrundana,
myndrænna hugleiðinga um þjóð-
frelsi og kvennabaráttu. Sjálfum
þótti mér veftin ekki réttur vett-
vangur fyrir slíkar hugleiðingar og
fagnaði því er Hildur hvarf frá
tímabundnum viðfangsefnum og
tók til við að gera veftir með víðari
skírskotun.
Að því er listakonan segir urðu
þessi umskipti í myndlist hennar
er hún fluttist upp í sveit, nánar
tiltekið í námunda við Selfoss.
Enda eru náttúruminni tíð í verk-
*»
■»
Hildur Hákonardóttir ásamt einu verka sinna.
um hennar upp frá því, græn grös,
hnjúkar, lækir, umskrifaðir fyrir
vef.
Einna voldugust þessara verka
er myndröð sú sem Hildur vann á
árunum 1980-81 og sýndi á sýning-
unni „Form Island“ við mikið lof.
Landið á sínum stað
Þar var eins og Hildur væri í
Myndlist
Aðalsteinn Ingólfsson
tengslum við æðri náttúrukrafta,
landið upphafið. Sýning hennar í
Listmunahúsinu er í senn framhald
á þessari náttúruskynjun og mark-
ar ný spor á listferli hennar. Landið
er þar á sínum stað, annaðhvort
einfaldað uns það verður að eins
konar íkon eða þá bútað sundur
og sett saman með blönduðum
miðlum. Garn kemur þar lítið ná-
lægt heldur allt annað, spýtur og
flekar, grisjur, ljósmyndir, grös og
snæri. Þessi blönduðu verk Hildar
hafa skáldlegan sannfæringarkraft
í öfugu hlutfalli við hinn fábrotna
efnivið. Annars konar nýnæmi er
að „kínversku" veftunum sem
mynda þungamiðju sýningarinnar
í Listmunahúsinu. Þar gerir Hildur
tilraun til að framlengja augna-
blikið, ef svo má að orði komast.
Uppistaða þessara verka eru
skyndiskissur af andlitum og nökt-
um fyrirsætum, sem hljóta síðan
myndlistarlega eilífð í veftum.
Þessum fyrirsætum tengjast síðan
kínversk minni og tákn, sem eru
sömuleiðis „augnabliksverk" að
uppruna.
Snöggsoðið
Það læðist að mér efi við grand-
skoðun nokkurra þessara vefta.
Þótt ég skilji (að ég held) þá fílósóf-
íu, sem liggur að baki þessum
vinnubrögðum Hildar, en hún
gengur út á leitina að sannleika
augnabliksins, hina skyndilegu
óyfirveguðu innsýn í æðri tilveru
eða hugsun, þá sýnist mér styrkur
þeirrar austurlensku myndlistar,
sem þannig verður til, felast ein-
mitt í því hve snöggsoðin, innileg
og smágerð hún er.
Þegar riss af því tagi er komið í
annað form, ég tala nú ekki um
vefnað, sem er miðill þolinmæðinn-
ar og eilífðarinnar, þá er eins og
það glati einhverju af elskuleg-
heitum sínum. Rissið er ekki lengur
augnabliksverk, heldur augnablik-
ið endurunnið.
En þótt ég sé ekki fyllilega sann-
færður um gildi þessara „kín-
versku" mynda virði ég listamann-
inn fyrir dirfskuna.
AI
'ÞÚ LEST EKKI ÚRVAL MEÐAN ÞÚ ERT AÐ KEYRA'
Leyndardómur hjartans og lín-
urnar í hendinni
— gefur góðar upplýsingar um
hvernig lesa má í lófa — nú getur
hver og einn séð lífshlaup sitt i hendi
sér.
13 leiðir til að losna við|
— eða kannski að halda í 1
gerum þveröfugt við þeá
leiðbeiningar.
IMuddnautnin
— nudd er til margra hluta nytsam-
legt — skemmtun, slökun og krydd í
ástarlífið.
Þriggja ára 1
Lífshlaup Carol Vignal
— segir frá baráttu ungrar konu við
brjóstakrabba og
hennff^FÍi að sigrd
tjulegri
iJOi
kynnj
;rrtlefur
Ist.
uim
tölvu
Tnarað apar hafa rökræna
hugsun.
lilsunnar \
okkur skref fyrir skref
hvernig við getum í alvöru slakað á og
notið fyllstu hvíldar — betri sjúk-
dómavörn en margan grunar.
Þrjár algengar fæðutegundir
ie^\aldið ofnæmi
lík^pfi^' engin fæðutegund svo
IRflð plcAi megi að henni finna.
ét\-r fljl^jlfnæmi sem hlotist getur
þremur algengum fæðutegundum.
Hin hliðin á geðveikinni
— frásögn móður af örvæntingar-
fullri baráttu við geðveiki sonar síns.
r
EINA TÍMARITIÐ SINNAR TEGUNDAR Urval
TIMARIT
FYRIR
ALLA
Atynœli$
5% AF SAMNINGUM,
15% VIÐ STAÐGREIÐSLU.
fcslattur
HÚSGAGNADEILDAR
Jl! HÚSSINS
[j □ l Q ii 13'
lucec j lji jrjájiríý,
□ jMi-iprijriTTri&l
uciariaauiuMutii iiin.
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121 Sími 10600