Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1985, Side 15
DV. LAUGARDAGUR 23. NOVEMBER1985.
15
Hafliði Vilhelrr
sX-.l
i með nýja bók á eigin vegum:
PSORIASIS OG
ENID BLYTON
„Ég er að hugsa um að hafa
næstu bók mína í anda ævintýra-
bóka Enid Blyton. Hún gæti til
dæmis heitið „5 og týnda hassið“,“
sagði Hafliði Vilhelmsson. að-
spurður um afrek í bókaútgáfu, en
hann gefur nú út sjálfur fjórðu
skáldsögu sína, „Beygur". Hún
fjallar um blaðburðarstrák sem
þjáist af psoriasis og er svo beygður
að hann getur varla lifað. Sagan
gerist í Reykjavík og á Húsavík
en er skrifuð að hluta í París.
En hvemig verður ævintýra-
bókin byggð upp ef af verður á
næsta ári?
„Eins og margir aðrir stend ég í
mikilli þakkarskuld við Enid Bly-
ton. Ævintýrabókin mín yrði í anda
hennar. Þar væri faðir barnanna
vísindamaður, eitthvað væri um
vonda negra, kynhverfinga og tal-
andi hunda.“
Hafliði Vilhelmsson starfar á
verkfræðistofu á milli þess
sem hann skrifar, enda er hann
menntaður tækniteiknari:
„Það er skemmtilegt að vinna
hérna á verkfræðistofunni. Þetta
er andlegt og lifandi starf. í dag er
ég til dæmis búinn að draga 100
strik, 200 þverstrik og 5 hringi.“
Landsmenn geta átt von á þvi að
sjá útdrátt úr hinni nýju bók Haf-
liða á plastpokum eins og notaðir
eru í verslunum áður en langt um
líður. Helgarblað DV birtir aftur á
móti kafla strax í dag þar sem
aðalsöguhetjumar eru hljómsveit-
in Mezzoforte og Bubbi Morthens
- á friðarfundi á Laíkjartorgi. EIR.
Hafliði Vilhelmsson: - Talandi hundar í næstu bók.
Oink, og aðrar eru undirtektirnar
ekki hjá Lilla.
Vongóður um betri viðtökur, snýr
Tíma-Tóti sér að næsta manni og
tilkynnir: fimmtán þrjátíu og fimm
þrjátiu, bip!
Snáfaðu burt, helvítis kúkú! hvæsir
maðurinn.
Þér væri nær að telja niður, ráð-
leggur samúðarfull kona í lopapeysu.
Manni skilst nú á öllu að tíminn sé
að renna okkur úr greipum, bætir
hún við og kímir í afsökunarskyni.
Það segja kommarnir, hnussar í
ungum manni í dýrum, smekklausum
jakkafötum. Kommarnir viija bara
að við leggjum niður vopnin svo
vinirnir frá Moskva geti marserað
yfir okkur með lúðrablæstri og nall-
anum. Og hvað yrði þá um frelsið?
Flýr heim til Chicago! svarar ungur
pönkari að bragði.
Lilli þrýstir sér að brúarhandrið-
inu, litast yfir mannfjöldann. Kennir
Sigurgeir blómafífl og þarna er Siggi
rokk að aðstoða hljómsveitina, Jó-
hanna berst á móti straumi og sveifl-
ar í kringum sig hækjunum svo allir
hrökkva undan, þarna er ógæfumað-
urinn Friðrik unglingaforingi sem
handtekinn var fyrir barnaklám,
alþingismaðurinn úr fjónska húsinu
sem ekki er rukkaður um Stundina
þótt Lilli verði að bera honum blaðið
skilvíslega. Þarna er líka Vídeó-
Runki í Pétursbæ sem vakir allár
nætur fvrir framan tækið og fer ekki
að sofa fyrr en Stundin er komin,
Ólafur stórgrósser með rauða húfu,
þekktur fakúrufalsari og fleiri og
fleiri.
Á Torginu eru fulltrúar allra stétta
hins stéttlausa þjóðfélags, menn af
öllum stigum þjóðfélagsins, fólk á
öllum aldri sem fátt á sameiginlegt
nema að tala nokkurn veginn sama
tungumálið og vera flest fylgjandi.
veru bandaríkjahers hér á landi,
samanber niðurstöður skoðana-
kannana.
Það sem hefur dregið þennan fjölda
saman til fundar á Torginu er sam-
eiginlegur ótti um sameiginlegan
dauða, kjarnorkuváin er því hugstæð
og allt er það á einu máli um að
stöðva beri frekari fjölgun kjarn-
orkuvopna. Að því skilyrtu að and-
stæðingurinn svokallaði sem er þó
enginn andstæðingur hvað verslun-
arviðskipti áhrærir, leggi fyrst niður
sín vopn. Um það geta flestir verið
sammála enda nýtur stefna ríkis-
stjórnarinnar í utanríkismálum
meirihlutafylgis.
Á hljómsveitarpallinum er nú
komin frægasta hljómsveit landsins
sem sérstaklega kom frá London til
að spila á fundinum og loftið titrar
af stolti þegar þungir bassahljómarn-
ir skella á fólkinu og taktfastur
trumbuslátturinn bylur í hlustum.
Þetta er vinsæl og virðingarverð
hljómsveit af því að virðing hennar
er sótt til útlanda, á íslandi nennti
enginn að hlusta á spiliríið fyrr en
hljómsveitin varð heimsfræg.
Máfarnir á þaki íslandsbanka vita
samt ekkert um frægðina og bregðast
ókvæða við, fljúga gargandi reiðir á
hljóðlátari slóðir.
Hljómsveitin spilar lagið sem lengi
var á topp 50 Rásar 2: ísland fyrir
stafni (Rainbow Navigation), stutt
og kröftugt lag sem grípur alla við
fyrstu áheyrn. Strax að laginu leiknu
bregður hljómsveitin sér í hitt lagið
sem komst í BBC: Radar Deploy-
ment, betur þekkt á íslandi sem
Fögurer hlíðin.
Á eftir seinna laginu ríkir andar-
taksþögn, síðan brjótast út fagnaðar-
læti, hljómsveitinni er ákaft klappað
lof í lófa nema af nokkrum úti í
horni, þar er púað og hrópuð ókvæð-
isorð: landráðamenn, svikarar, kvisl-
ingar en svo drukkna svívirðingarn-
ar í drunum frá Landhelgisfokkern-
um sem flýgur lágflug yfir Kvosina
... Slappiði af! hrópaði Bubbi til
fólksins. Og um leið upphófst þessi
rafmagnaða tónlist sem engu var lík
né er nokkru lík sem ég hef heyrt
um dagana, að vísu hef ég ekki heyrt
mikið síðan Seasons in the sun var
vinsælast.
Takturinn var grípandi, samt léttur
og ómstríður og lagið hlýtur að vera
vinsælt á Rásinni því ekki leið á
löngu að fólkið, þó mest unglingarn-
ir, urðu rólegri og sumir dilluðu sér
í takt við hljómana. Fólk sem fallið
hafði í Lækinn kom nú brosandi upp
á bakkann.
Ef til er kraftaverk þá gerðist það
þarna. Hann Bubbi tók hvert lagið
af öðru, engin hlé, engir formálar,
bara einn samfelldur galdur og Bubbi
keyrði af orku sem H. Pjeturs hefði
sagt koma frá öðrum stjörnum, að
minnsta kosti streymdu lífsgeislarnir
frá Bubba.
Ég var mest hissa á mér, einhvern
veginn hafði mér ekki dottið í hug
að Bubbi hefði sömu áhrif á almenn-
ing og hann hafði á mig í æsku.
Þegar Bubba tókst sem best upp var
ég dáleiddur af honum og fylgdi
honum í blindni, stundum svitna ég
ennþá ef ég hugsa um klettana sem
ég kleif fyrir Bubba, af því að hann
vildi það.
Já, ef ég sker í gegnum sárindi mín
og reyni að láta ekki beiskjuna eitra
hug minn verð ég að viðurkenna að
Bubbi er einstakur. I sveitinni var
hann okkar fremstur á flestum svið-
um, sérstaklega þó í leikjunum.
Hann lék af svo mikilli innlifun og
sannfæringu og tók hlutverk sitt svo
alvarlega að stundum held ég að
hann hafi beitt sjálfssefjun, að
minnsta kosti gleymdi hann sér oft
í leiknum og varð sá sem hann var
að leika. Þá fór stundum um mann
hrollur, óhugnaður og spenna þess
óþekkta, eins og að sjá draug, þegar
Bubbi brá sér í gervi til dæmis dokt-
ors Mengeles eða Goebbels.
ÞU
LEGGUR
AFSTA
í sjóferð, ert þú þá með það á hreinu hvar allur björgunarbúnaður skipsins er staðsettur og
hvort öll siglingatæki eru virk?
Það er góð regla í upphafi hverrar sjóferðar, að glöggva sig á staðsetningu og ástandi
öryggisbúnaðar skipsins.
REYNSLAN SÝNIR AÐ EKKERT KEMUR í VEG FYRIR SLYS Á SJÓ NEMA
ÁRVEKNI, DÓMGREIND OG KUNNÁTTA SJÓMANNA SJÁLFRA.
ÖRYGGISMÁLANEFND SJÓMANNA
midas