Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1985, Síða 18
18
DV. LAUGARDAGUR 23. NOVEMBER1985.
Frá Fjölbrautaskólanum
við Ármúla
Innritun nýnema á vorönn 1986 lýkur 6. desember. Innrit-
un fer fram á skrifstofu skólans alla virka daga frá kl. 9—
^ Skólameistari.
Auglýsing
frá Reykjavíkurhöfn
Eigendum smábáta, sem báta eiga í höfninni, stendur til
boða upptaka og flutningur báta laugardaginn 23.
nóvember frá kl. 9—18. Upptaka báta fer fram við Bótar-
bryggju í Vesturhöfn. Gjald fyrir upptöku og flutning á
bátasvæði á landi Reykjavíkurhafnar í örfirisey er kr.
1.400,- og greiðist við upptöku báta á staðnum.
Skipaþjónustustjóri.
Frá Alþingi:
UMFERÐARLÖG:
Frumvarp til umferðarlaga er nú til meðferðar hjá efri
deild Alþingis.
Þeir, sem beðnir hafa verið umsagnar um frumvarpið eða
vilja koma á framfæri athugasemdum eða ábendingum,
skulu skila þeim til nefndarinnar eigi síðar en 15. des. nk.
Allsherjarnefnd efri deildar.
BORGARSKIPULAG REYKJAVÍKUR
y f PVERHOtT 15 - SÍMAR: 2G102, 27355
Frá Borgarskipulagi
Reykjavíkur:
Teikningar og líkan af deiliskipulagstillögu Kvosarinnar
eru til sýnis og kynningar dagana 21,—28. nóvember í
Gallerí Borg.
Opið virka daga kl. 12.00-18.00 og helgidaga kl. 14.00-
18.00.
Fulltrúar Borgarskipulags og höfunda verða á staðnum
föstudaginn 22. og laugardaginn 23. nóv. milli kl. 16.00
og 18.00 og svara fyrirspurnum.
Borgarskipulag Reykjavikur.
^RARIK
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
Rafmagnsveitur ríkisins auglýsa laust til umsóknar starf
tæknifulltrúa á svæðisskrifstofu Rafmagnsveitnanna í
Stykkishólmi.
Menntun í rafmagnsverkfræði eða rafmagnstæknifræði
áskilin.
Upplýsingar um starfið gefur rafveitustjóri Rafmagns-
veitnanna í Stykkishólmi.
Umsóknir, er greini menntun, aldur og fyrri störf, sendist
starfsmannahaldi fyrir 7. desember nk.
Rafmagnsveitur rikisins
Laugavegi 118
105 Reykjavík.
TONLEIKAR I HLEGARÐI
Mosfellssveit
Mennlngarmólanefnd Mosfellssveitar gengst fyrir tónleikum i
Hlógarfll I dag, laugard. 23. þ.m. kl. 16.
Þesair tónlelkar eru f tllefni 75 óra afmælis Ólafs Magnússonar
fró Mosfelll (f. 1.1.1910).
Borflapantanlr verfla I Hóraðsbókasafninu i Mosfellssveit í sima
668822 föstud. kl. 13-20.
Menningarmólanefnd Mosfellssveitar.
LEY N DAI Rli m u Ð
um systur fegurðardrottningarinnar
„Samband okkar systranna hefur
alltaf verið mjög gott. Það væri svei
mér gaman að hitta hana núna,“
sagði Rósa Karlsdóttir í símaviðtali
frá Osló. Rósa er hálfsystir Hólm-
fríðar Karlsdóttur sem um þessar
mundir er frægasta fegurðardrottn-
ing í heimi og eru þær samfeðra.
Rósa er 34 ára og býr rétt utan við
Osló ásamt eiginmanni sínum, John
Fenger, sem starfar hjá Elkem járn-
blendifélaginu, og þremur sonum.
Hávaxnar
„Nei, ég hef aldrei tekið þátt í
fegurðarsamkeppni, hef líklega verið
of hávaxin til að koma til greina í
slíka keppni," sagði Rósa sem er 180
sentímetrar á hæð. Til samanburðar
má geta þess að Hólmfríður systir
hennar er 175 sentímetrar.
„Ég fylgdist spennt með sjónvarpi
og útvarpi fimmtudagskvöldið sem
keppnin fór fram en Norðmenn
sinntu þessu máli ekkert. Það var
ekki fyrr en daginn eftir að smá-
klausa birtist í blöðum um að íslensk
Hólmfriflur Karlsdóttir, ungfrú
heimur, á sundbol.
stúlka hefði sigrað í keppninni. Eg
varð náttúrlega ofsalega stolt fyrir
eigin hönd og systur minnar, hvað
getur maður annað?“
Sami háralitur
Upplýsingaar DV um hálfsystur
fegurðardrottningarinnar hljóta að
koma mörgum á óvart. Það hefur
margsinnis verið á það minnst í
innlendum jafnt sem erlendum íjöl-
miðlum að Hólmfríður væri einbirni.
Síðast kom besta vinkona hennar
fram í sjónvarpsþætti hjá Bryndísi
Schram og lýsti því yfir að Hólm-
fríður ætti enga systur.
Helgarblað DV lítur á það sem ljúfa
skyldu sína að segja sannleikann í
máli þessu. Hólmfriður á hálfsystur
sem býr í Osló. Það eru 12 ár milli
þeirra og þær eru með sama háralit.
„Ég vildi óska þess að Hólmfríður
hefði tíma til að skreppa yfir til mín
núna en það er vart að búast við því
að hún hafi mikinn tíma til þess
næsta árið,“ sagði Rósa Karlsdóttir.
-EIR
of hóvaxin til afl taka þótt í fegurflarsamkeppni."