Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1985, Side 24
24
DV. LAUGARDAGUR 23. NOVEl
Allt í einu virtust þeir komnir í hór
saman, Páll Pétursson, formaður
þingflokks framsóknarmanna, og
Steingrímur Hermannsson, formað-
ur flokksins og forsætisráðherra, út
af því hversu oft þeir færu til útlanda
í opinberum erindagerðum.
Páll er forseti forsætisnefndar
Norðurlandaróðs - og þarf oftlega
að ferðast til annarra Norðurlanda
í erindum þess embættis. Og Stein-
grímur þarf vitanlega að skreppa út
(fyrir landsteinana í krafti síns emb-
ættis líka.
Gunnar Gunnarsson ræddi við Pál.
Steingrímur byrjaði
- Hvemig kom þetta karp um utan-
landsferðir upp, Páll, - var það Stein-
grímur sem opnaði þessa umræðu?
„Það má segja það, já. Það var
haft við hann viðtal í tímariti sem
ég held að heiti Mannlíf. Þar kom
hann inn á það að sér ofbyðu utan-
ferðir mínar. Það var eitthvað verið
að sauma að honum fyrir ferðalög.
Ég gerði ekki annað í málinu en að
spyrja eftir því hvað hann hefði ferð-
ast sjálfur. Síðan óskaði hann eftir
skýrslu um utanferðir mínar og
annarra Norðurlandaróðsmanna. Að
sjálfsögðu var allt í lagi að láta hana
af hendi. Ég hafði nú ekki hugsað
mér þessa skrá til birtingar en mér
skilst að Steingrímur hafi heimilað
birtingu á þessu. Ég hafði svo sem
ekkert á móti því að þetta væri birt.
Við þurfum ekki að fyrirverða
okkur - hvorki ég né aðrir Norður-
landaráðsmenn - fyrir okkar ferða-
lög.
Við höfum að vísu farið nokkuð
margar ferðir. . .“
- Voru þær ekki 43?
„Ég man nú ekki töluna nákvæm-
lega. En ég er búinn að fara sjö ferðir
ó vegum Norðurlandaráðs. I skýrsl-
unni segir:..þar af fór Páll Péturs-
son sex (ferðir) og voru ferðadagarnir
30.“ Síðan er ég búinn að bæta einni
ferð við sem tók sjö daga.
Það má náttúrlega geta þess með
ferðadagana að þó við komum hing-
að heim um miðjan dag og skilum
töluverðu verki hér heima þá eru
þeir reiknaðir sem ferðadagar. Það
tekur alltaf töluverðan tíma að
komast utan og heim.“
Sérkennileg umræða
- Þessi sérkennilega umræða um
ferðalög - er hún ekki tilkomin
vegna pólitísks eða persónulegs
ágreinings ykkar Steingríms?
,Ég vona ekki. Svo er að minnsta
<osti ekki frá minni hólíú. En ég vil
gjaman fá að koma inn á það til
hvers við höfum verið að fara.
Á HEIMAVELLI - P6II Pótursson er
vifl sig i stóði. . .
Það stendur dálítið sérstaklega á
með starfsemi Norðurlandaráðs í ár.
Við íslendingar förum með mikil
trúnaðarstörf í ráðinu. Staða okkar
er sterkari en hún hefur áður verið.
Á síðasta óri var Matthías Á. Mat-
hiesen samstarfsráðherra og hann
sinnti því starfi mjög vel. Honum var
ljóst mikilvægi þess að styrkja stöðu
okkar.
Svo var haldið hér vel undirbúið
Norðurlandaráðsþing á síðasta ári.
Það þing varð okkur verulegur
styrkur - svona út á við. Það kom í
minn hlut að taka að mér forsæti í
ráðinu. Eiður Guðnason er formaður
hestamaflur og kann bersýnilega vel
menningarmálanefndar eins og hann
hefur verið. Guðrún Helgadóttir er
formaður upplýsinganefndar. Snjó-
laug Ólafsdóttir er formaður sam-
starfsnefndar ritaranna.
Af þessu sést að við getum ekki
skrópað á þeim fundum sem við eig-
um að stjórna sjólf.
Það leiðir líka af þessu að við för-
um að taka virkari þátt í sameigin-
legu starfi Norðurlandanna. Okkur
hefur lánast að fá ýmsu óorkað á
þessu ári.
Varðandi það sem við höfum áork-
að þá vil ég nefna að tveir íslending-
ar hafa verið ráðnir í lykilstöður hjá
. Pafl finnst fleirum en Páli, forseta forsæti:
norska Stórþinginu.
ERLENDIS — er auflvitað lika gaman
hópi annarra ferflaglaflra þingmanna i
Norðurlandaráði. Einar Karl Har-
aldsson var ráðinn aðalritstjóri fyrir
sameiginlegt málgagn Norðurlanda-
ráðs, Nordisk Kontakt; og nú síðast
var Tryggvi Gíslason skólameistari
ráðinn i deildarstjórastöðu hjá ráð-
herranefndinni. Hann kemur til með
að hafa yfir menningarmálum að
segja næstu fjögur árin. Þetta er í
fyrsta sinn sem íslendingar koma
nærri svona mikilvægum póstum í
norrænu samstarfi. Við höfðum
þarna sérlega góða kandídata. Þess
vegna tel ég að þetta sé afskaplega
mikilvægt.
Ég vonast til þess að staða okkar
verði mun sterkari eftir að þeir eru
komnir á þessa pósta."
París, Genf...
- Um þessa hluti vissi nú forsætis-
ráðherra, ekki satt?
„Hann vissi svona undan og ofan
af. Ég hugsa að hann hafi nú ekki
fylgst nákvæmlega með því. Ég gaf
honum að vísu skýrslu um ferð sem
við fórum til Evrópu. Forsætisnefnd-
in þáði heimboð til ýmissa alþjóða-
stofnana. Það er nýlunda í starfi
ráðsins. Við fórum í október til
Genfar, hittum þar yfirmenn EFTA
og yfirmenn ECE, heimsóttum Al-
.. naBKSJCiá-zu.