Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1985, Blaðsíða 25
DV. LAUGARDAGUR 23. NOVEMBER1985.
25
I
í
inafndar Norflurlandaráðs. Þarna er Páll í
samtaka væntanlega loftmengunar-
ráðstefnu sem haldin verður í Stokk-
hólmi - og það vakti undrun mína
hvað þessi ráðstefna vakti mikla
athygli. Þetta er ráðstefna sem á að
fjalla um loftmengun sem berst á
milli landa.
Menn voru ákaflega þakklátir fyrir
það frumkvæði sem þarna er tekið.
I þessu sambandi má nefna, að Pár
Stánbeck, áður utanríkisráðherra
Finna, lagði fram tillögu á síðasta
Norðurlandaráðsþingi (í Reykjavík)
um að athugað skyldi hvernig Norð-
urlönd gætu best látið í sér heyra
sameiginlega á alþjóðlegum vett-
vangi. Ég var meðflutningsmaður að
tillögunni.
Það er ekki búið að afgreiða þá
tillögu en það má segja að þetta sé
kannski eitt skref í þá átt.
Okkur finnst við nefnilega hafa
ýmislegt að segja - þegar við lítum
til hinna.“
„Menn missa ýmislegt
útúrsér"
- Við getum eflaust gengið út frá
því að þín staða í Norðurlandaráði
þyki mikilsverð - og að starf þess sé
merkilegt - þess vegna kemur það á
óvart að formaður þíns flokks
og forsætisráðherra sé að
senda þér tóninn, ekki
satt?
„Menn missa nú ýmislegt
út úr sér í dagsins önn.
Þetta var nú kannski
ekki þaulhugsað.
Þaðerrétt.
Samstarf Norðurlanda-
þjóðanna er einstakt í veröldinni -
að þjóðir skuli hafa þetta náið sam-
starf án þess að fórna neinu af þjóð-
legusjálfstæði...
Þetta er mikið mál fyrir íslendinga,
þegar við lítum til fortíðarinnar.
. Norðurlandaþjóðirnar hafa verið
alla vega samanhnýttar á undan-
förnum öldum. Þær bera vinarhug
hver til annarrar en kæra sig ekki
um að lúta hver annarri, m.a. vegna
gamallar reynslu.
Við njótum gagnkvæmra réttinda
á Norðurlöndum. Það er verulegur
munaður að geta verið einhvers stað-
ar annars staðar en þó eins og heima
hjá sér. Svo má nefna þessar stofnan-
ir eins og Norrænu eldfjallastöðina,
Norræna iðnþróunarsjóðinn, Fjár-
festingarbankann, Norræna verk-
efnaútflutningssjóðinn - og svo auð-
vitað samstarfið á sviði lista og
mennta.
Er samstarfið við
Sjálfstæðisflokkinn
farið að rugla
Framsókn?
- Svo við snúum á heimavöll aftur
- það er eins og það sé farið að
skarast eitthvað á milli ykkar í
Framsókn vegna samstarfsins við
Sjálfstæðisflokkinn?
„Ég vil nú ekki orða þetta þannig
- að það sé farið að skarast. Og ég
vil alveg mótmæla því að það sé um
nokkurn klofning að ræða. En það
kemur fyrir í stjórnmálasamtökum
að menn líta ekki alveg sömu augum
á silfrið. Og flokkar eru sprottnir úr
misjöfnum jarðvegi. Það er ekkert
við því að segja þó að hér verði ein-
hver meiningarmunur."
- Þú ert jafnan sagður vinstrisinn-
aður framsóknarmaður?
„Já, ég býst við að það sé með
réttu. Ég vildi síður láta kalla mig
hægri framsóknarmann."
- Hvað er það sem festir þig vinstra
megin - utanríkismálin kannski?
„Það má kannski segja það. Að
einhverju leyti. Ég hef ekki verið
neinn fylgismaður hersins.
En viðhorf mitt er það, að það bjóði
upp á vissa örðugleika að vinna með
Sjálfstæðisflokknum. Sérstaklega til
lengdar.
Sumir sjálfstæðismenn hugsa ákaf-
lega mikið öðruvísi en við. Reyndar
er Sjálfstæðisflokkurinn miklu gisn-
ari eða gleiðari en Framsóknarflokk-
urinn. Þar eru menn með miklu ólík-
ari lífsviðhorf en hjá okkur. Það eru
þarna ungir menn í Sjálfstæðis-
flokknum sem láta mikið til sín
heyra. Þeirra pólitík er ekki mér að
skapi.“
-Attu við frjálshyggjumennina?
„Ég á við það. Menn binda sig í
kenningar um að frjáls markaður
skili velferð. Og ótakmarkað at-
hafnafrelsi.
„Ég er nú ekki inni í þessu Haf-
skipsmáli. En mér finnst þetta ágætt
dæmi um þessa frjálshyggju - at-
hafnamennirnir vildu frjálsa sam-
keppni við Eimskip - sú samkeppni
byggðist reyndar á flutningum fyrir
herinn. Og svo þegar það bregst þá
feralltum koll.
Ég veit ekki hversu heppilegt það
er fyrir samvinnuhreyfinguna að
ganga til þessa leiks.
Páll Pétursson
ræðirum
ferðalögogpólitík
Skipadeildin hefur dugað þjóðinni
vel. Ég vil gjarna sjá hana eflast.
En það getur orðið of dýru verði
keypt.“
Steingrímur leggur
kapp á að halda
rikisstjórninni saman
„Varðandi það hvort það sé ágrein-
ingur innan Framsóknarflokksins -
þá má kannski segja það - Steingrím-
ur er afar duglegur maður. Hinn
mesti vinnuþjarkur. Hann leggur
mikið kapp á að halda þessari ríkis-
stjórn saman. Það verður aldrei gert
nema með málamiðlunum. Þá er það
stundum álitamál hve mikið eigi að
slaka á fyrir samstarfið.
Ég er ekki að leggja til að stjórnar-
samstarfinu verði slitið.
Ég studdi myndun þessarar ríkis-
stjórnar. Fyrst og fremst vegna þess
að það var engin leið að mynda starf-
hæfa ríkisstjórn á íslandi með öðru
móti. Og sé ekki þann möguleika
enn...“
- Verður þá Steingrímur ekki að
halda áfram að halda saman stjórn-
inni?
„Ég vil sjá sem mest af hugsjóna-
og stefnumálum Framsóknarflokks-
ins rætast. Og þá á ég ekki síður við
þjóðfélagsuppbyggingu þegar til
lengri tíma er litið.
Steingrímur lét að því liggja í þessu
EN HEIMA ER BEST — gamli Fergusoninn ber eiganda sinn, Höllustaflabóndann, mefl sóma enda kann
nútimabúmaður eins að handfjatla vélar og búfé.
þjóða vinnumálasambandið og Al-
þjóða tollabandalagið.
Við fórum til Strassborgar, heim-
sóttum þar Evrópuráðið og þing
Efnahagsbandalagsins. Síðan fórum
við til Parísar og komum í stöðvar
OECD.
Á þessum ferðum kynntum við
starfsemi Norðurlandaráðs - og
kynntumst viðhorfum mannanna
sem stjórna þessum stofnunum.
Þetta var stórfróðleg ferð fyrir
okkur. Og við vonutn að við höfum
getað kynnt vel Norðurlandaráð á
þessari ferð.
Við kynntum fulltrúum þessara
Samstarf Norðurlandanna skilar
sér víða. Það blasir kannski ekki
alveg við öllum. En ég get nefnt
gagnkvæm réttindi til náms og at-
vinnu. Þetta notfærum við íslending-
ar okkur mjög mikið. Eins og við
vitum eru íslendingar þúsundum
saman búsettir tímabundið á Norð-
urlöndum."
- Koma frændur vorir í svipuðu
hlutfalli hingað?
„Það eru að vísu kvótar á þessu
hér. En hér eru jafnan einhverjir
annars staðar af Norðurlöndum, t.d.
við nám.
Kannski getur það verið í sumum
tilfellum en þetta er ekkert allsherj-
arúrræði. Allra síst í þjóð'félagi sem
er svona sérstætt eins og okkar. Við
erum ekki nema 240 þúsund. Það
þýðir ekki að ætla að yfirfæra banda-
rískt hagkerfi á íslendinga. Og svo
er bandarískt efnahagslíf reyndar
allt úr skorðum.
Við komumst ekki af í þessu landi
án þess að hjálpa hver öðrum."
- En einkafjármagnið virðist þó
geta átt samleið með samvinnuhreyf-
ingunni - sbr. Hafskip og skipadeild
Sambandsins núna?
viðtali, sem ég nefndi í upphafi, að
Framsóknarflokknum væri jafnvel
fórnandi fyrir það að ná verðbólg-
unni niður í 10% og stöðva erlenda
skuldasöfnun. Ég er hjartanlega
sammála Steingrími um það, að það
er ákaflega mikilvægt að stöðva er-
lenda skuldasöfnun. Og ég er líka
sammála honum í því að það er mjög
mikilvægt að það takist að draga
töluvert úr verðbólguhraðanum.
En Framsóknarflokkurinn var
ekki stofnaður til þess á sínum tíma
að halda verðbólgunni neðan við
10%.
Hann var stofnaður um rniklu,
miklu fleira en þessi mál. Þess vegna
er honum ekki fómandi fyrir áfanga
sem eru kannski góðra gjalda verðir.
Flokkurinn hefur hlutverki að
gegna. Þess vegna er honum ekki
fórnandi fyrir smærri mál.“ (
Að sýna allan hausinn
- Reynir ekki Framsókn að lafa í
rácjherrastólunum vegna ótta við
afhroð í kosningum?
„Þetta er ekki makleg ásökun.
Framsóknarflokkurinn hefur verið í
ríkisstjóm lengi. En það byggist á
því að framsóknarmenn bjóða sig
fram til þess að stjóma. Þeir bjóða
fram sín úrræði og sína starfskrafta.
Og flokkurinn er í miðlægri aðstöðu
í íslenskri pólitík og hann hefur verið
í stjórn með öllum gömlu flokkunum
í fjórtán ár (síðan'71). Við höfum í'
meira að segja prófað samstarf við
alla hina flokkana síðan 1978. Þetta
leiðir af því að við viljum hafa áhrif
á stjórn landsins. En þetta er ekki
leiðin til að fá kjörfylgi. Ef við hefð-
um verið að hugsa um kjörfylgi þá
hefðum við farið í stjórnarandstöðu
eftir kosningamar 1983. í stjómar-
andstöðu þurfa menn ekki að vera
eins ábyrgir. Og geta oft hagað sínum
málflutningi hressilegar en ella.“
- Reynir Framsóknarflokkurinn að
skerpa svipmót sitt þegar líður að
næstu kosningabaráttu?
„Ég legg áherslu á það að við reyn-
um að hafa skarpan prófíl."
- Hvort á að sýna prófílinn frá
vinstri eða hægri?
„Ég - ég vona að við sýnum haus-
inn allan. Og reynum að halda hon-
um uppi. En það er ákaflega mikil-
vægt fyrir miðflokka, sem em í
samstarfi við aðra flokka, sérstak-
lega stærri flokka, að þeir reyni að
halda sínum persónueinkennum."
- En það hefur oft reynst miðflokk-
um viða um Norðurlönd erfitt, ekki
satt?
„Já. Og einmitt vegna þess að ég
hef kynnst náið pólitík á Norðurl-
öndunum leyfi ég mér að halda þessu
fram. Sumir miðflokkanna hafa ekki
gætt þess nóg að halda vissri sér-
stöðu. Það hefur leitt til þess að
kjósendur hafa laðast að þeim sem
sterkari eru.
Hagalín orðaði þetta prýðilega á
sínum tíma. Hann hafði verið al-
þýðuflokksmaður en var svo allt í
einu farinn að kjósa íhaldið. Þegar
hann var spurður um þetta sagði
hann: Ég vil heldur vera á höfuð-
bólinu en hjáleigunni. Það eru marg-
ir sem hugsa svona.“
Það á ekki að blanda
saman bindindi
og pólitík
- Jón Helgason hefur sætt ákúrum
úr herbúðum ungra framsóknar-
manna fyrir sakir bindindismennsku
„Já, já. Bindindi á ekki alltaf
samleið með pólitík dagsins. Það
þarf að gera á þessu greinarmun. Ég
held að sumt í þessum áfengismálum
hafi tekist ólipurlega.
Ég er reyndar ekki bjórmaður. Ég
er ekki bindindismaður en ég hef
ekki viljað fallast á frjálsan innflutn-
ing á bjór.“
- En færðu þér ekki bjórglas þegar
þú skreppur til Kaupmannahafnar?
„Jú, jú. Það geri ég. Það er í þessu
þversögn. Ég viðurkenni það. Én ég
óttast afleiðingar af því að bjór fari
að flæða hér. Ég vil síður að menn
séu mikið undir áhrifum á vinnu- v-*
stöðum. Ég held að bjórinn myndi
auka áfengisneyslu, sem er nægjan-
leg fyrir að mínum dómi.
En ég er svo sem ekkert heitur
baráttumaður gegn bjórnum."
Poul Pedersen
- Eftir síðasta Norðurlandaráðs-
þing fóru sumir þingmenn að kalla
þig Poul Pedersen. Fer það ekki í
taugarnar áþér?
„Nei alls ekki. Það er mönnum
ekki of gott. Árni Johnsen sagðist
hafa haft löggiltan skjalaþýðanda að
ræðu sem hann flutti, svo þetta hlýt- ~c
ur að hafa verið alveg hárrétt hjá.
Árna. Eins og flest annað.“
- í tilefni af þessu karpi um utan-
landsferðir ykkar Steingríms - finnst
þér gaman að ferðast?
„Mér finnst skemmtilegast heima
hjá mér. En ég hef gaman af öllu sem
ég tek mér fyrir hendur. En mér
finnst ekki gaman að bíða í flug-‘
stöðvum.