Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1985, Side 27
DV. LAUGARDAGUR 23. NOVEMBER1985.
27
STUTTUR í ANNAN ENDANN?
Pálína prinsessa var hollensk og
uppi á síðustu öld. Hún var ekki
nema 61 cm á hæð og fræg fyrir
að vera stysta manneskja í heimi.
Hefði hún lifað á okkar dögum
hefði henni verið gefíð meðal til
að auka vöxtinn.
Nú eru í gangi tilraunir með
vaxtarhormón sem búið er til úr
bakteríum. Með því móti halda
menn sig komast hjá hinum hættu-
legu aukaverkunum sem hormóna-
lyf, búið til úr efnum, sem unnin
eru úr líkömum látinna manna,
hefur oft í för með sér.
Fólk er misjafnlega langt. Það
stafar af þvi að manneskjur hafa
mismikið af vaxtarhormónum í
líkamanum. Þeir sem óska eftir því
að verða sterkir sem naut nota
vaxtarhormón sem nokkurs konar
örvunarlyf.
Crecormon er vaxtarhormón sem
búið var til úr efnum unnum úr
líkum. En vaxtarhormón, unnið úr
bakteríum, er nú að koma á markað
í Bandaríkjunum, Bretlandi og
Belgíu.
Sá stærsti
En það er hægt að vera með of
stóran skammt af vaxtarhormón-
um í skrokknum líka. Lengsti
maður í heimi var risinn Robert
Wadlow. Hann var 272 cm langur.
Hann hefur aldeilis haft umfram-
hormón í skrokknum!
Fólk sem telst eðlilegt sprettur
hins vegar ekki til viðbótar þótt
því sé gefmn viðbótarskammtur af
hormónum.
Vöxtur fólks eða hormónamagn
erfist. Þannig eru pygmíarnir, sem
og aðrir dvergþjóðflokkar, ekki
nema 130 -140 cm háir.
Á kynþroskaskeiði mannsins
myndast kynhormón í líkamanum.
Það hormón verkar þannig á
beinagrindina að við hættum að
vaxa. Samt heldur líkaminn áfram
að framleiða vaxtarhormón. Við
þurfum á því að halda til ýmissa
efnabreytinga og reyndar margs
annars, svo sem til að græða sár.
Hvernig á að koma stærsta manni heims inn í lyftuna? Lengsti
maður í heimi, Robert Wadlow, var 272 cm langur. Lengdin hefur
augljóslega valdið honum ýmsum erfiðleikum í lífinu. Myndin var
tekin í október 1938.
Munið prófkjör
sjálfstæðismanna
um helgina
Anna K. Jónsdóttir
FULLTHUSAF
VILLIKÖTTUM
Munið okkar viðurkenndu varahlutaþjónustu
Opið laugardag og sunnudag frá kl. 10-16
a TIGRE ■ PANTERA ■ COUGAR ■ PANTHER ■ CHEETAH ■ JAG ■ KITTYCAT
Bifreiðar og Landbún-
aðarvélar hafa tekið að
sér söluumboð fyrir
vélsleða á íslandi
CHEETAH vélsleðinn hentar vel í leik og starfi, en einkum
viö hinar erfiðustu aöstæður. Hann er búinn langri A arma fjöðrun að
framan. Beltið er mjög langt (156" eða 396,2 cm) sem gerir það að
verkum að sleðinn flýtur vel við erfiðustu aðstæöur. A hinn bóginn er
CHEETAH eini „long track“ sleðinn sem lætur að stjórn eihs og stuttur sleði
á harðfenni vegna þess að ca. 1/3 af beltinu er uppsveigt á lið að aftan
sem nýtist í mjúkum snjó. Fáanlegar eru tvær vélastærðir, 529cc
vökvakæld og 500cc loftkæld. Báðar blanda olíu sjálfar. Innifalið í verði
er: Fullkomið mælaborð, stöðuhemill, vegalengdarmælir, upphituð
handföng, bögglaberi, sæti f. tvo.
KITTY CAT er einl barnasleðinn sem
framleiddur er og hefur notið mikilla vinsælda. Vélin
er mjög lítil og búin gangráði þannig að ekki er hægt
að aka hraðar en 12 km. Til öryggis loga stöðugt
fram og afturljós. Sjálflýsandi borði er hringinn um
kring. Oryggislykill.