Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1986, Qupperneq 6
6
DV. LAUGARDAGUR11. JANÚAR1986.
Afengis- og tóbaksverzlun ríkisins:
Falsar
framboð
hvítvína
Eftir nokkrar vikur tekur nýr for-
stjóri við Áfengis- og tóbaksverzlun
ríkisins. Þau skipti eru tilhlökkunar-
efai, því að núna er úrval léttra vína
i Ríkinu sumpart tilviljanakennt,
sumpart ömurlegt og sumpart bein-
línis grunsamlegt. Ástandið er slíkt,
að breytingar geta eingöngu orðið
til bóta.
Fyrir hálfu ári birti ég hér í blaðinu
nokkrar greinar um létt vín, bæði
hvít og rauð. í lokagreininni birtist
listi yfir nokkur vín, er ég taldi vera
drykkjarhæf af þeim, sem þá voru
fáanleg. Því miður varð birtingin til
þess, að vínin seldust mörg hver upp.
Sum hafa ekki sézt síðan.
Að sumu leyti getur þetta stafað
af, að innkaup Ríkisins eru afar föst
í skorðum og taka lítið tillit til breyt-
inga á markaði. Tölva fyrirtækisins
virðist halda áfram að kaupa sömu
vín í svipuðu magni, þótt neyzluvenj-
ur breytist. Einnig bjóða tvö dæmi
mér í grun, að reynt sé að lauma inn
lakari vínum undir yfirvarpi ann-
arra, sem hafa fengið góðar viðtökur.
„Hang“fyrir
„Berg“
Bezta hvítvínið var þá Senheimer
RosenBERG Kabinett 1983, fékk 7,5
í einkunn. Það seldist upp nokkrum
dögum eftir birtingu greinarinnar og
hefur síðan ekki fengizt. Snemma í
vetur kom svo til sögunnar hvítvínið
Senheimer RosenHANG Kabinett
1983, selt undir númeri og nafni
gamla vínsins og á verði þess.
Rosenberg og Rosenhang er alls
ekki sami hluturinn. Fyrra iiafnið
táknar einn allra bezta vínakur
hreppsins eða þorpsins Senheim í
Móseldal, en síðara nafnið er sam-
heiti lélegustu vínakra þessa hrepps.
Að selja Rosenhang undir nafninu
Rosenberg eru hrein vörusvik, fölsun
staðreynda.
í blindri prófun fékk nýkomna
vínið 6 í einkunn. Það er að vísu
tiltölulega frambærilegt við hinar
sérkennilega lélegu aðstæður í ein-
okuninni nér á landi, en samt mikil
breyting til hins verra frá einkunn-
inni 7,5, sem fyrra vínið fékk, einnig
í blindri prófun.
Til bóta er, að annað vín frá Mó-
seldal, Graacher Himmelreich Spát-
lese 1982, hefur í vetur bragðazt
betur en sending af árganginum 1983,
sem var á boðstólum í fyrrasumar.
Þá fékk árgangurinn 1983 ekki nema
5,5 í einkunn í blindri prófun, en í
síðara skiptið hlaut árgangurinn
1982 7,5 í einkunn eða hæst allra
hvítvína í Ríkinu.
Ekki geta þétta þó talizt jöfn skipti,
því að þetta vín kostar 410 krónur á
flöskuna, en hitt, sem áður var Ros-
enberg og nú er Rosenhang, kostar
270 krónur. Hin sérdeilis góðu kaup,
sem áður voru í Rosenberg, eru ekki
núna í Himmelreich.
Af sanngirnisástæðum verður þó
að taka fram, að í Graacher Himmel-
reich eru góð kaup í samanburði við
annað hvítvínsframboð Ríkisins. Þar
eru til mörg dýrari hvftvín.
Hættan er svo sú, að nú seljist vínið
upp, þegar þetta birtist. Þá verður
fyrst langt hlé. Síðan kemur hugsan-
lega vetrarsending af þessu við-
kvæma víni, sem engan veginn þolir,
að hitastig umhverfisins fari niður
fyrir frostmark. En það er einmitt
eitt einkenna Ríkisins að láta eyði-
leggja létt vín í vetrarflutningum
milli landa.
Annað slys eða önnur vörusvik
hafa orðið í framboði Ríkisins. I stað
Wormser Liebfrauenstift Spátlese
1983 frá Rínardal er nú komið
Wormser Liebfrauenstift QbA 1984.
Þetta er sitt hvor varan, því að
Spátlese er sérstök útgáfa af náttúru-
legu víni, en QbA er sykurblandað
vín, eins konar brugg, sem framleitt
er í erfíðum vínárum í Þýzkalandi.
í blindri prófun í fyrrasumar fékk
fyrrnefnda vinið 7 í einkunn. í hlið-
stæðri prófun í vetur fékk hið síðar-
nefnda 6,5, sem er út af fyrir sig
sæmilegt, en þó lægri tala. I stað
víns, sem var nálægt mörkum þess
að vera eðalvín, er nú komið fremur
hversdagslegt vín.
Sitrónuvin
með fiski
Fleira hefur gerzt í framboði Ríkis-
ins á hvítvínum. Komið er til sög-
unnar franskt vín frá ósum Loire.
Það er af tegundinni Muscadet de
Sevre et Maine og heitir Chateau du
Cléray 1984. Þetta er virtur búgarður
með sögufrægu herrasetri og er á
vínsvæði, sem er afar fjölbreytt og
hefur hingað til skort fulltrúa í
Ríkinu.
Muscadet er hressandi sjávarrétta-
vín, allt að þvi skarpt, oftast fram-
leitt „sur lie“, sem þýðir, að því er
rennt án síu úr tunnu á flösku í
marz eða apríl eftir uppskeru. Vínið,
sem hingað er komið, er þessarar
tegundar. Aðferðin bindur koltvísýr-
ing í vininu og gefur því frísklegt og
jafnvel sítrónulegt bragð.
Chateau du Cléray er ekta „sítr-
ónuvín“ af þessu tagi og fékk 6,5 í
einkunn í blindri prófun í vetur. Það
er frambærileg einkunn og kemur
víninu í hóp nokkurra hvítvína, sem
deila þriðja sætinu í töflunni, sem
fylgir þessari grein. Til gamans má
geta þess, að þetta er sama einkunn-
in, sem þetta vín fékk í prófun
franska tímaritsins Gault-Millau í
október í vetur. Þar lenti það í fjóröa
sæti þeirra Muscadet-vína, sem próf-
uð voru.
LAND6NB6RG
: wm
M *
wAfWJf r
Qualítðtswein mií Príídikaí
^ran^r ^inunelrddi Jpárirfr
RIESLINCi « A;ntiich« PruluRgvuumiRftr I 625 213 12 83
f triljcvr u.íatibcuUcijt’édic ödjloðð-ítcllctci
EDICER-ELtHR SN-'-DÉR M.ÖSELO,7le
ALSACE
A Wl't.LA nos
JlSACt.
cosjhöUe
*
ALSACE
. PHOíWcr
DOPFF & IRION
GEWURZTRAMINER
aíííis ® mmm éisii
MIS t.N 9MIU1UE PA9 SCPÍt 6 i*!3S 4 #iCUt«t«S ill! HHIN í fHStiCt .
íilil*
ALSACE
APTO.IA1 IO.N AtóACli CON'rHðl.gj;
9
1639
RIESLING "HUGEL*
lOrie
MISE EN 80UTEIILE PíR HUÖELet FIIS - RIQUEWIHR - ALSACE-FR ANGE
DOMAINE DE LA SEIONEURIE DU-CLERAY
ALC. 12% i VOL. r
CHATEAUduCLÉMY
APPílUTIOK MDSCADET DE SEVRE ET MAIME CWTRKÍl
SUR UE
SAUVION FILS
phophié; r aihit
VITlCULTruH
r.MATCAU Otl Ct.fRAV 'TLfl
VA LLET m
Tlt. IMISt 11 «
MIS EN BOU7EILLE AU CHATEAU
AFENGIS' OG T0SAKSVERZLUN ftlKISlNS
Stig Heftuhvítvínin 1'AerÖ Nafn
7>J 470 Graacher Himmelreich Spatlese 1982
7 53° Gewurgtraminer
6,J 2C/0 Kremser Ecklfrdulein 1989
i 3J° Kiesiing Hugel 1984
3jo Wormser KiebfrauenstiftQbA 1984
4jo Chateau du Cléray 1984
6 240 Elierer Engelströpfchen QbA 1984
2J0 Hochheimer Daubhaus Kabinett 1989
2J0 Senheimer Kosenhang Kabinett 1989
2g0 Kallstadter Kobnert QbA 1989
920 Bemkasteler SchlossbergQbA 1982
J,J 169 Weisslack (áfengislaust)
RAUÐVfNS
PRESSAN
JónasKrístjínsson
Hins vegar er sá galli á gjöf Njarð-
ar, að vínið kostar í Ríkinu heilar
450 krónur á flöskuna, sem er hlut-
fallslega dýrt. I Frakklandi kostar
það hins vegar um 100 krónur í
búðum.
Að öðru leyti en því, sem segir frá
hér að framan, er ástandið svipað á
toppi hvítvína í Ríkinu. Gewurz-
traminer frá Elsass, 330 krónur, fékk
aftur 7 í einkunn og heldur öðru
sæti. Sveitungur þess frá Elsass,
Riesling Hugel 1984, 350 krónur,
hefur bætzt í hóp þeirra vína, sem
fengu 6,5 í einkunn. Þar var fyrir og
er enn Kremser Edelfráulein 1983 frá
Austurríki, 290 krónur, örugglega
laust við frostlög.
Með 6 í einkunn eru nú eins og í
fyrra 230 króna Ellerer Engelströpf-
chen QbA, sem þá var frá 1982 og
nú frá 1984, 290 króna Kallstadter
Kobnert QbA 1983 og 320 króna
Bernkasteler Schlossberg QbA, sem
nýlega var enn frá 1982. Niður í
þennan lágmarksflokk hafa fallið
Senheimer Rosenhang, sem fyrr var
sagt frá, og Hochheimer Daubhaus
Kabinett, sem enn er af árgangi 1983,
en hefur komið í lakari sendingu.
Bæði þessi vín kosta 270 krónur.
Fleiri hvítvín hafa bætzt í hópinn
hjá Ríkinu, öll lítils eða einskis virði.
Þau eru öll frönsk, Monsieur de
Luze, sem fékk 4,5 í einkunn, Lion
dÓr, sem fékk 5, Bordeaux-vínið
Maitre dÉstournel 1983, sem einnig
náði 5, og loks hið hræðilega Doma-
ine de la Renarde frá héraðinu Rully,
með 3 í einkunn. Flest eru þess vín
án árgangs og sum án öruggs upp-
runa.
í þessum blindu prófunum stað-
festist í framhjáhlaupi enn einu
sinni, að Pouilly-Fuisse stendur ekki
undir 780 króna verði á flösku. Vínið
með þessu kunna nafni fékk að þessu
sinni aðeins 4 í einkunn.
11 nothæf
60 ónothæf
Með þessari grein birtist ný skrá
yfir beztu hvítvín Ríkisins, að við-
bættu einu áfengislausu hvítvíni,
sem er nánast frambærilegt. Ein-
kunnin 7,5 táknar, að vínið sé í
lægsta flokki eðalvína. Einkunnin 7
táknar, að vínið mundi sóma sér sem
mjög gott vín hússins. Einkunnin 6,5
táknar, að það mundi geta talizt
frekar gott húsvín. Einkunnin 6
táknar svo, að það sé sæmilega
drykkjarhæft.
Áðeins eitt þeirra hefur þann kost
að vera til á hálfflöskum og hentar
því vel fólki, sem vill fá sér örlítið
bragð af hvítvíni með forrétti úr ríki
sjávarins, þótt það stefni að rauðvíni
með kjötrétti á eftir. Það er Riesling
Hugel á 200 krónur hálfflaskan.
Raunar er hart, að einungis skuli
vera til eitt drykkjarhæft hvítvín á
hálfum flöskum hér á landi.
I heilum flöskum teljast ellefu
hvítvín Ríkisins vera í slíkum flokki,
- vera sæmilega drykkjarhæf eða
skárri. Hin, sem ekki einu sinni ná
því að vera sæmilega drykkjarhæf
og eru sum hver meira eða minna
óhæf til drykkjar, eru hvorki fleiri
né færri en 60 talsins.
Þess vegna er full ástæða til að
binda vonir við nýj an forstj óra.
- JónasKristjánsson
OPIÐ TIL KL. 41 DAG
I P Ver*‘í® errrn08t ^
/A A ▲ ▲ A ▲
V/SA
Jón Loftsson hf.
I w i j > t -U hJi J
Hringbraut 121 Sími 10600