Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1986, Side 27

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1986, Side 27
DV. LAUGARDAGUR11. JANÚAR1986. 27 Peningamarkaður Innlán með sérkjörum Alþýðubankinn: Stjörnureikningar eru fyrir 15 ára og yngri og 65 ára og eldri. Inn- stæður þeirra yngri eru bundnar þar til þeir verða íullra 16 ára. 65-74 ára geta losað inn- stæður með 6 mánaða fyrirvara, 75 ára og eldri með 3ja mánaða fyrirvara. Reikningarn- ir eru verðtryggðir og með 8% nafnvöxtum. Þriggja stjörnu reikningar eru með hvert innlegg bundið í tvö ár, verðtryggt og með 9% nafnvöxtum. Lífeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá lífeyrissjóðum eða almannatryggingum. Inn- stæður eru óbundnar og óverðtryggðar. Nafn- vextir eru 29% og ársávöxtun 29%. Sérbók. Við fyrsta innlegg eru nafnvextir 27% en 2% bætast við eftir hverja þrjá mánuði án úttektar upp í 33%. Ársávöxtun á óhreyfðri innstæðu er 33,5% á fyrsta ári. Búnaðarbankinn: Sparibók með sér- vöxtum, Gullbókin, er óbundin með 36% nafnvöxtum og 36% ársávöxtun á óhreyfðri innstæðu eða ávöxtun 3ja mánaða verð- tryggðs reiknings reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast 1,7% í svonefnda vaxtaleiðrétt- ingu. Tvisvar á ári má taka út án þeSsa frá- dráttar. 18 mánaða reikningur er með innstæðu bundna í 18 mánuði á 39% nafnvöxtum og 42,8% ársávöxtun, eða ávöxtun 6 mánaða verðtryggðs reiknings reynist hún betri. Iðnaðarbankinn: Bónuf''eikningar eru annaðhvort með 28% nafnvo.rtum og 30% ársávöxtun eða verðtryggðir og með 3,5% vöxtum. Hærri ávöxtunin gildir hvern mánuð. Á hreyfðum innstæðum gildir verðtrygging auk 2% vaxta í úttektarmánuðinum. Taka má út tvisvar á hverju 6 mánaða tímabili án þess að vaxtakjör skérðist. Vextir eru færðir 30.06. og 31.12. Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með 36% nafnvöxtum og 34% ársávöxtun eða ávöxtun 3ja mánaða verðtryggðs reiknings reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast 1,7% í svonefnda vaxtaleiðréttingu. Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur hefur stighækkandi vexti á hvert innlegg, íyrst 22%, eftir 2 mánuði 25%, 3mánuði 27%, 4 mánuði 29%, 5 mánuði 31%, eftir 6 mánuði 37% og eftir 12 mánuði 37%. Ársávöxtun á óhreyfðu innleggi er 37%, eða eins og á 3ja og 6 mánaða verðtryggðum reikningum reyn- ist hún betri. Vextir færast einu sinni á ári. Útvegsbankinn: Ábót ber annaðhvort hæstu ávöxtun óverðtryggðra reikninga í bankanum, nú 34,6%, eða ávöxtun 3ja mán- aða verðtryggðs reiknings með 1% nafnvöxt- um sé hún betri. Samanburður er gerður mánaðarlega en vextir færðir í árslok. Sé tekið út af reikningnum gilda almennir spari- sjóðsvextir, 22%, þann mánuð. Öndvegisreikningur er bundinn til 18 mánaðar, verðtryggður og með 7% nafnvöxt- um á binditímanum. Eftir það reiknast sömu vextir og á 3ja mánaða reikning í bankanum. Verslunarbankinn: Kaskóreikningur er óbundinn. Þá ársfjórðunga sem innstæða er óhreyfð eða aðeins hefur verið tekið út einu sinni eru reiknaðir hæstu vextir sparifjár- reikninga í bankanum. Nú er ársávöxtun annaðhvort 34,8% eða eins og á verðtryggðum . 6 mánaða reikningum með 3,5% nafnvöxtum. Af úttekinni upphæð reiknast almennir spari- sjóðsvextir, 22%, og eins á alla innstæðuna innan þess ársfjórðungs þegar tekið hefur verið út oftar en einu sinni. Innlegg fær strax hæstu ávöxtun sé það óhreyft næsta heila ársfjórðung. Sparisjóðir: Trompreikningur er verð- tryggður og með ávöxtun 6 mánaða reikninga með 3% nafnvöxtum. Sé reikningur orðinn 3ja mánaða er gerður samanburður á ávöxtun með svokölluðum trompvöxtum, 32%, með 34,3% ársávöxtun. Miðað er við lægstu inn- stæðu í hverjum ásfjórðungi. Reynist tromp- vextir gefa betri ávöxtun er þeim mun bætt á vaxtareikninginn. Hreyfðar innstæður inn- an mánaðar bera trompvexti sé .innstæðan eldri en 3ja mánaða, annars almenna spari- sjóðsvexti, 22%. Vextir færast misserislega. Spariskírteini Spariskírteini Ríkissjóðs íslands eru seld í Seðlabankanum, viðskiptabönkum, sparisjóð- um, hjá verðbréfasölum og í pósthúsum. Nýjustu skírteinin eru að nafnverði 5, 10 og 100 þúsund krónur. Þau eru: Hefðbundin, til mest 14 ára en innleysanleg eftir þrjú ár, 10.09.88. Nafnvextir 7%. Vextir, vaxtavextir og verðbætur greiðast með höfuðstól við innlausn. Með vaxtamið- um, skírteini til mest 15 ára, innleysanleg eftir 5 ár, 10.09.90. Vextir eru 6,71% á höfuð- stól og verðbætur, reiknaðir misserislega og greiddir út gegn framvísun vaxtamiða. Verð- bætur greiðast með höfuðstól við innlausn. Með hreyfanlegum vöxtum og 50% vaxta- auka, til 18 mánaða eða 10.03.87. Vextir eru meðaltal vaxta á 6 mánaða verðtryggðum reikningum bankanna og með 50% álagi. Vextir, vaxtavextir, vaxtaauki og verðbætur greiðast með höfuðstól við innlausn. Gengis- tryggð skírteini eru til 5 ára, 10.09.90. Þau eru bundin safngjaldeyrinum SDR og bera 9% vexti. Vextir og vaxtavextir greiðast við inn- lausn með höfuðstól, í samræmi við stöðu SDR. Almenn verðbréf Fasteignatryggð verðbréf eru til sölu hjá verðbréfasölum. Þau eru almennt tryggð með veði undir 60% af brunabótamati fasteign- anna. Bréfin eru ýmist verðtryggð eða óverð- tryggð og með mismunandi nafnvöxtum. Þau eru seld með afföllum og ársávöxtun er al- mennt 12-18% umfram verðtryggingu. Húsnæðislán Nýbyggingarlán frá Byggingarsjóði ríkis- ins, F-lán, nema á 4. ársfjórðungi 1985: Til einstaklinga 720 þúsundum króna, 2-4 manna fjölskyldna 916 þúsundum, 5 manna og fleiri 1.073 þúsundum, 7 manna og fleiri (í sértilvik- um) 1.237 þúsundum. Lánin eru til 31 árs. Lán til kaupa á eldri íbúðum, G-lán, nema á 4. ársfjórðungi 1985: Til kaupa í fyrsta sinn er hámark 348 þúsund krónur til einstaklings, annars mest 139-174 þúsund. 2-4 manna fjöl- skylda fær mest 442 þúsund til fyrstu kaupa, annars mest 177-221 þúsund. 5 manna fjöl- skylda eða stærri fær mest 518 þúsundir til fyrstu kaupa, annars mest 207-259 þúsund. Lánstími er 21 ár. Húsnæðislánin eru verðtryggð með láns- kjaravísitölu og með 3,5% nafnvöxtum. Fyrstu tvö árin er ekki greitt af höfuðstól, aðeins vextir og verðbætur. Útlán lífeyrissjóða Um 90 lífeyrissjóðir eru í landinu. Hver sjóður ákveður sjóðfélögum lánsrétt, lánsupp- hæðir, vexti og lánstíma. Stysti tími að láns- rétti er 30-60 mánuðir. Sumir sjóðir bjóða aukinn lánsrétt eftir lengra starf og áunnin stig. Lán eru á bilinu 150-700 þúsund eftir sjóðum, starfstíma og stigum. Lánin eru verð- tryggð og með 5-8% vöxtum. Lánstími er 15-35 ár. Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur. Hægt er að færa lánsrétt við flutning milli sjóða eða safna lánsrétti frá fyrri sjóðum. Nafnvextir, ársávöxtun Nafnvextir eru vextir í eitt ár og reiknaðir í einu lagi yfir þann tíma. Séu vextir reiknaðir og lagðir við höfuðstól oftar á ári verða til vaxtavextir og ársávöxtunin verður þá hærri en nafnvextirnir. Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á 22% nafnvöxtum verður innstæðan í lok tímans 1220 krónur og ársávöxtunin þannig 22%. Liggi 1000 krónur inni í 6 + 6 mánuði á 22% nafnvöxtum reiknast fyrst 11% vextir eftir 6 mánuði. Þá er upphæðin orðin 1110 krónur. Á hana koma svo 11% vextir eftir næstu 6 mánuði. Þannig verður innstæðan í lok tím- ans 1232 krónur og ársávöxtunin 23,2%. Dráttarvextir Dráttarvextir eru 3,75% á mánuði eða 45% á ári. Dagvextir reiknast samkvæmt því 0,125%. Vísitölur Lánskjaravísitala í janúar 1986 er 1364 stig en var 1337 stig í des. 1985. Miðað er við grunninn 100 í júní 1979. Byggingarvísitala á 1. ársfjórðungi 1986 er 250 stig á grunninum 100 frá janúar 1983 en 3699 stig á grunni 100 frá 1975. VEXTIR BANKA 0G SPARISJÓÐA (%) 1.-10.1.1986 INNLÁN MEÐ SÉRKJÓRUM sjAsérlista INNLÁN ÓVERÐTRYGGÐ SPARISJÓÐSBÆKUR Óbundin innstæða 22,0 22,0 22,0 22,0 22.0 22.0 22.0 22.0 22.0 22,0 SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsögn 25,0 26,6 25,0 25,0 23.0 23.0 25.0 23.0 25.0 25.0 úmán.uppsögn 31,0 33,4 30,0 28,0 26.5 30,0 29.0 31.0 28.0 12 mán.uppsögn 32,0 34,6 32,0 31.0 33,3 SPARNAÐUR - LANSRÉTTURSparað3-5mán. 25,0 23.0 23.0 23.0 23.0 25.0 25.0 INNLÁNSSKlP.TEINI Sp. 6mán. ogm. 29,0 26.0 23.0 29.0 28.0 TilGmánaða 28,0 30,0 28,0 28.0 TÉKKAREIKNINGAR Ávisanareikningar 17,0 17,0 8.0 8.0 10.0 10.0 8.0 10.0 10.0 Hlaupareikningar 10,0 10,0 8.0 8.0 10.0 10.0 8.0 10.0 10.0 INNLÁN VERÐTRYGGÐ SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsögn 2.0 1.5 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 2.0 1.0 6 mán.uppsögn 3.5 3.5 3.5 3.0 3.5 3.5 3.0 3.5 3.0 INNLÁN GENGISTRYGGÐ GJALDEYRISREIKNINGAR Bandarikjadollarar 8.0 8.0 7.5 7.0 7.5 7.5 7.5 7.5 8.0 Sterlingspund 11.5 11.5 11.0 11.0 11.5 11.5 11,0 11.5 11.5 Vestur-þýsk mörk 5.0 4,5 4.25 4.0 4.5 4.5 4.5 5.0 4.5 Dansxar krónur 10,0 9.5 8.0 8.0 9.0 9.0 9.0 10.0 9.0 ÚTLÁN ÓVERÐTRYGGÐ ALMENNIRVlXLAR (forvextir) 30,0 30,0 30.0 30.0 30.0 30,0 30.0 30.0 30.0 VIÐSKIPTAVlXLAR (forvextir) 34,02) kge 34.0 kge 32.5 kge kge kge 34.0 ALMENN SKULDABRÉF 32,03) 32.0 32.0 32.0 32.0 32.0 32.0 32,0 32.0 viðskiptaskuldabréf 35,0 2) kge 35.0 kge 33.5 kge kge kge 35.0 HLAUPAREIKNINGAR YFIRDRÁTTUR 31,5 31.5 31,5 31.5 31.5 31.5 31,5 31.5 31.5 ÚTLÁN VERÐTRYGGÐ SKULDABRÉF Aö 21/2 ári 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 Lengri en21/2ár 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 IITLÁN TIL FRAMLEIDSLU sjAneoanmAlsi) 1) Lán til innanlandsframleiðslu eru á 28,5% vöxtum. Vegna útflutnings, í SDR 9,75%, í Bandaríkjadollurum 9,5%, í sterlingspundum 13%, í vestur-þýskum mörkum 6,25%. 2) Við kaup á viðskiptavíxlum og viðskiptaskuldabréfúm er miðað við sérstakt kaup- gengi, kge, hjá þeim bönkum sem þannig er merkt við, einnig hjá sparisjóðimum í Hafnarfirði, Kópavogi, Keflavlk. Sparisjóði ReykjavíkurogSparisj. vélstj. 3) Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjöre vanskUalána er 2% á ári, bæði á verðtryggð og óverðtryggð lán, nema í Alþýðubankanum og Vemlunarbankanum. íslensk tunga Þetta fólk er í fleirtölu. Eintala og fleirtala Öllum finnst okkur eðlilegt að hægt sé að greina á milli eintölu og fleirtölu orða. Þetta er í raun og veru jafneðlilegt og það að hlutir og verur eru til ýmist einar eða fleiri. Til að túlka það er nauð- synlegt, eða virðist nauðsynlegt, að hafa þetta málfræðilega fyrir- bæri, eintölu og fleirtölu. En um þetta einfalda og sjálf- sagða atriði er hægt að hafa mörg orð og jafnvel skrifa heila grein um íslenska tungu. Hvaða orð beygjast í tölum? Ekki búa öll orð yfir þessum sjálf- sagða eiginleika að beygjast í tölum. Smáorð eins og forsetning- ar, samtengingar og atviksorð búa að sjálfsögðu ekki yfir þessu. Á hinn bóginn beygjast flest fallorð (nafnorð, lýsingarorð o.fl.) í tölum. Sömuleiðis sagnorð. Reyndar getum við sagt að nafn- orð leiki aðalhlutverkið í þessum leik. Eftir þeim fer með tölur ann- arra orða. Þau laga sig að tölu nafnorðsins. Þetta liggur auðvitað í augum uppi en engu að síður skal hér sýnt dæmi: Bókin er nýkomin út og þykir skemmtileg. Ef um er að ræða fleiri bækur lítur þetta svona út: Bækurnar eru nýkomnar út og þykja skemmtilegar. Öll orð laga sig eftir nafnorðinu (frumlagi eða geranda setningarinnar) nema smáorðin. Fleirtalan af bók eru bækur. Með öðrum orðum bók + bók + bók o.s.frv. Fornöfn haga sér á allt annan hátt. Fleirtalan af fyrsta persónufornafninu ég er til að mynda alls ekki ég+ég + ég heldur ég + þú eða eitthvað í þá áttina. Af þessu sést að orð haga sér á misjafnan hátt í þessu tilliti. Einnartöluorð . Sum nafnorð hafa aðeins aðra töluna. Eru annaðhvort til í eintölu eða fleirtölu en ekki báðum eins og flest þeirra. bíll. (Samanber tvennar buxur, ekki tvær buxur.) Að lokum skal þess getið að fleir- tala sumra orða getur haft aðra merkingu en eintalan. Af augljós- um ástæðum verður hér nefnt sem dæmi orðið vöxtur sem er í fleirtölu vextir. Okur er hins vegar eintölu- orð. Tvítala í forníslensku dugðu ekki minna en þrjár tölur. Þá notuðust menn við eintölu, tvítölu og fieirtölu. Tvítala á við um orð sem einungis voru notuð þegar um tvennt af einhverju var að ræða. Einungis tvö fornöfn höfðu þennan eigin- leika, persónufornöfn og eignarfor- nöfn. Persónufomöfn fyrstu persónu voru þá sem hér segir: Eintölufor- nafnið var ég (eða ek), tvítölufor- nafn var við (eða vit) og fleirtölu- fornafnið þér. Væri maður að tala um sjálfan sig og einn annan þá notaði hann orðið við. Væri hann hins vegar að tala um sjálfan sig og marga aðra þá notaði hann orðið vér. Sama gilti um eignarfornöfnin. Þetta breytist síðan og tvítalan hverfur, sjálfsagt vegna þess að hennar var ekki þörf í málinu. En orðin hverfa ekki. Þau fá nýtt hlutverk. Gömlu tvítöluorðin eru núverandi fleirtöluorð en fleirtölu- orðin fengu á hinn bóginn annað hlutverk, urðu þéring sem notuð var í hátíðlegu máli. Örlög þéringa eru síðan öllum kunn. Eiginlega má segja að þró- unin komi fram í þessari upptaln- ingu: Á síðustu öld þekktust dæmi þess að börr þéruðu foreldra sína (a.m.k. feðurna), framundir miðja þessa öld þekktist það að nemend- um væri uppálagt að þéra kennara sína sem þéruðu þá á móti. Núna kannast unglingar ekki við þéring- ar. Slík geta orðið örlög málfræði- reglna. Önnur eintöluorð gætu merking- ar vegna myndað fleirtölu en á móti því kemur að hefð ríkir að þau séu notuð i eintölu eingöngu. Af slíkum orðum má nefna flug, verð. Það er ekkert sem mælir á móti því að nota þessi orð í fleirtölu og segja mörg flug, mörg verð. Engu að síður er oft amast við fleirtölu þessara orða. Ástæðan er auðvitað sú að menn eru óvanir þvi. Á sama hátt eru til fleirtöluorð. Sem dæmi má nefna læti, dyr, buxur. Dyr hefur þarna nokkra sérstöðu því í einu tilviki er það notað eins og um væri að ræða orð sem beyg- ist i tölum. Við segjum nefnilega tveggja, þriggja og fjögurra dyra bíll þar sem „réttara" væri að segja tvennra, þrennra og femra dyra Af eintöluorðum má nefna ýms safnheiti eins og mjólk, kjöt. Vegna merkingar þessara orða er einfald- lega ekki unnt að mynda af þeim fleirtölu. Þau tákna ákveðið efni af ótiltekinni stærð eða fjölda. Eiríkur Brynjólísson v.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.