Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1986, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1986, Síða 12
12 DV. LAUGARDAGUR11. JANÚAR1986. „Ég hef þá skoðun að menn verði að umgangast vín með sérstakri varúð,“ sagði Höskuldur Jónsson, ráðuneytisstjóri fjármálaráðuneytis- ins, en hann hefur nú verið ráðinn næsti forstjóri ÁTVR. Höskuldur tekur við sínu nýja starfi þann 1. apríl nk. Höskuldur kveðst ekki vera bind- indismaður - „en ég var orðinn 25 eða 26 ára þegar ég fyrst bragðaði vín," segir Höskuldur, „það var staup af íslensku brennivíni. Og til- gangurinn með inntöku þess var að koma niður bita afhákarli.“ -Það hefur kveikt í þér? „Ekki segi ég það nú kannski - það varð a.m.k. ekkert bál úr því.“ - Breytingar fyrirhugaðar á rekstri ÁTVR? „Ég geri ráð fyrir því. Eins og hjá öllum stofnunum, þar sem hugsað er til framtíðarinnar, þá verða ein- hverjar breytingar að verða. Ef þessi stofnun stirðnar koma bara til ein- hver utanaðkomandi öfl sem breyta henni. Það gildir ekki bara um ÁTVR - það gerist alls staðar." -Nú virðist ÁTVR fyrst og fremst vera til þess að afla ríkissjóði tekna - en síður til að veita viðskiptamör.n- um sínum þjónustu - „Það er alveg rétt skilið. Áfengis- og tóbaksverslunin verður til upp úr bannlögum á íslandi. Innflutningur á Islandi á sínum tíma er tengdur samningum sem við gerðum við Spán. Þama voru hreinir viðskipta- hagsmunir á ferðinni. Afstaðan feil bannsins, og þess ástands sem þá var, var mjög í huga manna þegar þessi stofnun var mótuð. Og stofnun- in hefur eiginlega lifað við þessa innri mótsögn alla tíð: annars vegar að selja vín til þess að ríkið fái tekj- ur; hins vegar að liaga rekstri sínum þannig að menn væru sem minnst hvattir til þess að eiga viðskipti við stofnunina. Forveri minn í starfinu, Jón Kjartansson, hafði mikinn hug á að breyta þessu þannig að jafn- framt því að afla ríkissjóði tekna væri ÁTVR þjónustustofnun við almenning í svo ríkum mæli sem slík stofnun getur verið þjónustustofnun. Við verðum að hafa i huga að lög banna auglýsingar á áfengi og tó- baki.“ -En er ekki hugsanlegt að setja fræðsludeild á laggirnar - gefa út upplýsingarit um vín? „Það hefur verið rætt. Og reyndar aðeins byrjað á undirbúningi varð- andi fræðslurit. Þar myndu koma fram upplýsingar um uppruna teg- unda. Hvernig framleiðendur vína telja að eigi að bera þau fram og geyma þau. En við munum gæta þess að þar verði ekkert mat á það lagt hvort vínin teljist góð eða slæm, heldur bent á hvernig þau skuli meðhöndluð þannig að þau reynist sem best í borðhaldi manna. Einkasalan í Svíþjóð lætur t.d. liggja frammi svona upplýs- ingabæklinga. Þetta hefur verið til umræðu hér í allnokkum tíma - þetta eru ekki nýjar hugmyndir frá mér.“ -Stendur ekki til að breyta af- greiðslufyrirkomulagi í verslunum ÁTVR? „Auk búðanna þriggja hér í Reykjavík eru áfengisútsölur á Akranesi, Isafirði, Siglufirði, Akur- éyri, Seyðisfirði, Selfossi, í Vest- mannaeyjum og Keflavík - og meiri- hluti íbúa á Norðfirði hefur sam- þykkt að þeir vilji fá ÁTVR-verslun þar. Það þýðir reyndar ekki að það sé komin útsala þar. Þetta þýðir að verslanimar eru misstórar; þær stærstu em hér í Reykjavík. Það fyrsta sem verður til breytinga er að tvær þessara verslana í Reykjavík flytja í nýtt húsnæði, ein mun fá endurnýjað húsnæði og ein bætist við í nýja miðbænum. Það er gert ráð fyrir því að við lokum útsölunum í Laugarásnum og á Snorrabrautinni á næstu ámm, en útsölur verði í Glæsibæ, I Mjóddinni, í nýja mið- bænum og svo áfram á Lindargö- tunni, en sú verslun mun fá rýmra húsnæði en hún hefur núna. Samstarfsaðili okkar, Alko í Finnl- andi, hefur tekið upp sjálfsaf- greiðslukerfi í sínum búðum. Að mati þeirra sem þar ráða ferðinni hefur það gefist mjög vel. Við höfum enga reynslu af því hér - nema í Fríhöfninni. Og þar er verslunin rekin umkvörtunarlaust. Stjórnendum útsalanna og af- greiðslumönnum hefur áratugum saman verið borið það á brýn að þeir stjórnist að einhverju leyti af hagsmunum umboðsmanna, m.a. varðandi það hvað rétt sé yfir borðið til þeirra sem versla. Það er öllum í nöp við svona ummæli - sjálfsaf- greiðsla hlýtur að draga úr svona gagnrýni." Um margra ára skeið hefur veríð

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.