Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1986, Side 7
DV. FÖSTUDAGUR17. JANÚAR 1986.
7
Neytendur
Tómatarsem
fegrunarlyf
í blaðinu um daginn birtist grein
um fegrunarlyf í eldhúsinu. Nú lang-
ar mig til að vita hvernig á að nota
tómata við fílapenslum.
Eru tómatarnir hafðir sem maski
eða safinn látinn vera á húðinni
allan daginn sem dagkrem ?
Með ósk um svar.
Sigríður Jóhannesdóttir.
Sneiðar eða mauk
Tómatarnir eru notaðir sem maski.
Þeir eru skornir niður í þunnar
sneiðar eða búið til úr þeim mauk
sem síðan er raðað eða smurt á þá
staði á andlitinu sem fílapenslarnir
eru. Þaið getur verið erfitt að koma
sneiðum fyrir á nasavængjunum en
þá ér bara að búa til svolítið mauk
og smyrja því á andlitið.
-A.Bj.
Ekki skylda
aðdag-
stimpla brauð
„Mér finnst að dagstimplun á
brauðum í stórmörkuðum ætti að
vera komin á fyrir löngu. Ég er orðin
langþreytt á því að lenda í að kaupa
eldgömul brauð, en þægindi eru að
því að kaupa brauðin um leið og
aðrar matvörur í stórmörkuðunum,“
sagði Sigríður í samtali við neyt-
endasíðuna.
„Ég er hér með brauð frá Samsöl-
unni. Brauðið er merkt með kg-verði
og verði samkvæmt þyngd en hvergi
er dagstimpil að finna. Mér finnst
hann eiginlega vera aðalatriðið.
Það má finna dagstimplun á ótrúle-
gustu matvælum eins og t.d. þurrk-
uðum baunum í pökkum sem ég held
að hafi gífurlegt geymsluþol. Nær
væri að dagstimpla brauðin."
Dagstimplun ekki skylda
Við höfðum samband við Heil-
brigðiseftirlit Reykjavíkur þar sem
við fengum upplýst að ekki væri
skylda að dagstimpla brauð. Það
væri þó mjög æskilegt að koma slíkri
reglugerð í framkvæmd.
Það er hins vegar skylda að verð-
merkja brauð og geta jafnframt um
kg-verð eins og gert er á Samsölu-
brauðunum og raunar fleiri brauð-
tegundum. Því miður eru alls ekki
allar brauðtegundir, sem á boðstól-
um eru í stórmörkuðum, merktar á
þann hátt sem vera ber.
-A.Bj.
Áhrifaríkt
hreinsiefni
Neytendasíðunni barst nýlega
ábending um áhrifaríkt hreinsiefni
sem nota má til að fjarlægja óhrein-
indi og bletti af veggjum, teppum,
áhöldum, bílum, flísum, speglum og
nánast hverju sem nöfnum tjáir að
nefna.
Bréfritari, Sigríður Ágústsdóttir,
sagðist meðal annars hafa náð 5 ára
gömlum appelsínublettum úr gólf-
teppinu hjá sér og að rauðvíns- og
kaffiblettir væru auðhreinsaðir úr
dúkunum.
Hreinsiefnið heitir MOX og er
Höndlun hf. umboðsaðili fyrir það
hér á landi. Fullkomnar leiðbeining-
ar og notkunarreglur á íslensku
fylgja hverri flösku til að tryggja
rétta meðhöndlun.
-S.Konn.
Ný hugmynd beint frá Ameríku
í fyrsta sinn 1 Evrópu.
FIMMTUDAG - FÖSTUDAG - LAUGARDAG - SUNNUDAG
Þú klippir út frímiðann hér á síðunni kemur
á Sprengisand kaupir einn hamborgara og
W færð annan frítt.
VEITIN G AHUSIÐ
BUSTAÐAVEG 153 s. 688088
VERIÐ VELKOMIN, VERÐI YKKUR AÐ GOÐU - TOMMI
5138
Islenska víkinga-
sveitin
Einstæðar myndir og
frásögn af æfingum
Islenska leiðin til
frægðar, fiár og
frama
Hugleiðingarog leið
beiningar
Fjallamennska er
fíkn
Torfi Hjaltason segirfrá
starfsemi Islenska
Alpaklúbbsins
Varð sjálfstæðismaður af þv
að bera út Morgunblaðið
lllugi Jökulsson talar við Hannes
Hólmstein Gissurarson
3. tbl. 48. árg. 16. -22. janúar 1986. Verð 110 kr.