Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1986, Síða 17
DV. FÖSTUDAGUR17. JANÚAR1986.
25
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
ðsins, sem sýndi þokkalegan leik i
sti leikmaður íslenska liðsins með
DV-mynd Bjarnleifur.
„Islenska liðið
lék mjög illa”
— sagði þjálfari sovéska liðsins, Anatoli, eftir leikinn
Frá Stefáni Kristjánssyni, frétta-
manni DV á Baltic Cup:
„Eg sem þjálfari get aldrei verið
ánægður en þetta var mjög góður
sigur,“ sagði þjálfari sovéska lands-
liðsins, Anatoly Ewtuschenko,
„íslendingar verða að gera sér ljóst
að það er ekki hægt að búast við
miklum árangri þegar samæfmg er
lítil. Það er erfitt að meta íslenska
liðið eftir þennan leik, það lék mjög
illa og á eflaust eftir að sýna mun
betri frammistöðu. í liðinu eru marg-
ir mjög góðir leikmenn og það er
mín skoðun að íslendingar eigi góða
möguleika á að spjara sig á HM í
Sviss í næsta mánuði. Hornamenn
liðsins eru veikasti hlekkurinn og
ég held að það væri heppilegt fyrir
liðið að finna einhverja taktik sem
hentaði þeim betur. En þetta er í
fyrsta sinn sem íslenska landsliðið
getur teflt fram likamlega sterku liði
og leikmenn þess geta orðið enn
sterkari," sagði Ewtuschenko.
Nú tapaði lið þitt með tveimur
mörkum fyrir Dönum og þið sigruð-
uð íslendinga með fimmtán mörk-
um. Hvort liðið er sterkara að þínu
mati. Það íslenska eða danska? „ís-
land og Danmörk eiga einn hlut
sameiginlegan. Það er að allan stöð-
ugleika vantar í bæði þessi lið. Bæði
liðin gætu náð mjög langt í Sviss en
ég treysti mér ekki til þess að gera
upp á milli þeirra. -fros
í 24 míiiútur
síðari hálfleik hjá íslenska landsliðinu
fyrirSovétmönnum
Skellur sem þessi ætti kannski að
minnka eitthvað af þeirri pressu sem
á liðinu er fyrir HM í Sviss. Það er
jú aðalmálið að standa sig vel þar.
Það er vonlaust verk að ætla sér
að hrósa nokkrum íslenskum leik-
manni fyrir góða frammistöðu í þess-
urn leik: Leikur þessi var fyrir íslend-
inga ekki ósvipaður byrjunarmínút-
unum í leiknum við A-Þjóðverja.
Einn leikmanna íslenska liðsins
sagði við blaðamann DV að hann
hefði mest langað til að hlaupa heim
til sín, frá öllu saman, þegar staðan
var sem verst. Slík var vanmáttar-
kenndin og ekki er að efa að mörgum
öðrum leikmönnum hefur liðið eins.
Sovéska liðið var skipað öllum sínum
sterkustu leikmönnum. Meira að segja
hvíldu fiórir sterkustu leikmenn þeirra
Danaleikinn til þess að geta komið betur
undirbúnir í þennan leik. Hafa eílaust
átt von á harðari mótspyrnu frá landan-
um sem sigraði Dani í fyrsta leik. Gopin
var markahæstur í sovéska liðinu með
átta mörk.
-fros
Þjófóttur þjálfari
Frá Stefáni Kristjánssyni, frétta-
manni DV á Baltic Cup:
Eins og við greindum frá í blaðinu
í gær er þjálfari sovéska landsliðsins,
Ewtuschenko, skapstór maður. En
hann hefur líka á sér fleiri hliðar.
Eftir leik íslands og Sovétríkjanna í
gær voru fréttamenn að hringja til
síns heima úr símaklefum í íþrótta-
höllinni. Ewtuschenko nýtti sér einn-
ig þá þjónustu og hringdi til Moskvu.
Það kom hins vegar undrunarsvipur
á blaðamann DV þegar hann fór inn
í klefann á eftir Sovétmanninum.
Fullur poki af'pennum, er verið hafði
í klefanum, var horfinn og út gekk
Sovétmaðurinn með sakleysisvip.
-fros
Frá Stefáni Kristjánssyni
fréttamanni DV
á Baltic Cup
„Fráleitt að við séum
15 mörkum slakari”
sagði Atli Hilmarsson
Frá Stefáni Kristjánssyni, frétta-
manni DV á Baltic Cup:
„Þetta var mikið klúður hjá okkur
í sóknarleiknum og niðurdrepandi að
fá öll þessi mörk á okkur úr hraða-
upphlaupum. Þetta er með lélegustu
landsleikjum sem ég hef tekið þátt í
en það er fráleitt að við séum fimmt-
án mörkum slakari en Rússar. Ég hef
oft séð sterkari lið hjá þeim en þetta,“
sagði Atli Hilmarsson.
„Við eigum að geta unnið Pólverj-
ana og það er skylda okkar að leggja
Dani að velli í síðasta leiknum,"
sagði Atli en hann lék sinn fyrsta
leik á Baltic Cup í gærkvöldi. -fros
I
■ ■
i
I
I
I
• ■í :0 s O O) «o 1= 2 •fö jE* <0 iií LL k* 3 . o 2 « o 9- ca J2 C <5 _ C 3 r e -X o c .2 S 0Q 3 LL > 1 í 1! -I </> a
Kristján Arason Þorgils Óttar Mathies. 5 3 9 8 2 3 2 2 2 0 0 0 0 1 ; I • I 0 i 1 I
Þorbergur Aðalsteinsson 0 Alfreð Gíslason 1 5 4 4 1 0 2 2 0 0 0 0 0
Atli Hilmarsson 1 4 2 1 1 1 1
Þorbjörn Jensson Jakob Sigurðsson Valdimar Grímsson 1 1 0 1 4 1 0 2 1 0 1 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 1 0 1
Páll Ólafsson 0 2 1 1 1 0 0 1
Samtals 12 38 16 9 6 1 2 2 1
„Gerðum stór mistök”
— sagöi Bogdan Kowalczyk landsliðsþjálfari
Frá Stefáni Kristjánssyni, frétta-
manni DV á Baltic Cup:
„Við gerðum stór mistök í þessum
leik og það liggja þrjár ástæður fyrir
tapi okkar. I fyrsta lagi voru það
mistök að láta Pál, Atla og Alfreð
leika. Þeir voru á tólf tíma ferðalagi
fyrir leikinn. I öðru lagi þá er þetta
fyrsti leikur minn með liðið þegar
allir leikmenn þess leika illa og í
þriðja lagi léku Sovétmenn mjög
vel.“
„Leikmenn mínir voru mjög
óheppnir, við áttum átta stangarskot
en það breytir því ekki að úrslitin í
kvöld voru stórslys. Við eltum uppi
hraða Sovétmenn í stað þess að róa
leikinn niður. Þetta var þriðji leikur
okkar á mótinu og það vantaði allan
kraft í liðið. Þetta kraftleysi getur
komið niður á velgengni okkar í
Sviss.“
Er draumurinn að vinna Pólverja?
„Ég veit það ekki en eitt er víst að
leikmenn nn'nir munu ekki koma vel
fyrirkallaðir til leiksins. Þeir þurfa
að ferðast fimm tíma í rútu og það
mun örugglega hafa sitt að segja.
Aðalmarkmiðið í þessari keppni var
að vinna Dani, markmið númer tvö
var að vinna Pólverja og þrjú, b-lið
Dana. Tveir sigurleikir eru góður
árangur, þrír væru stórkostlegur
árangur," sagði hinn pólski lands-
liðsþjálfari íslendinga.
-fros
Fer Jóhann Ingi til
Essen?
Frá Stefáni Kristjánssyni, fréttarit-
araDV:
Margt þykir nú benda til þess að
Jóhann Ingi Gunnarsson, fyrrum
þjálfari íslenska landsliðsins, er þjálf-
ar nú lið Kiel, muni færa sig um set
og fara að þjálfa lið Essen sem Alfreð
Gíslason leikur með.
Forráðamenn Essen munu alvar-
— forráðamenn Essen
hafa mikinn áhuga
á honum
lega vera að íhuga að ráða Jóhann
Inga en samningur hans við Kiel
rennur út eftir þetta keppnistimabil.
Öll liðin í Bundesligunni eru nú í fríi
nema Essen. Þjálfarinn þar heldur
uppi ströngum þrekæfingum og það
hefur ekki mælst vel fyrir hjá leik-
monnum.
-fros
Jóhannes óstöðvandi
íbikarsigriUMFN
— skoraði 35 stig og átti mestan þátt í sigri
liðs síns á KR í Hagaskólanum
íslandsmeistarar Njarðvíkinga
lentu í hinu mesta basli með KR-inga
er liðin leiddu saman hesta sína í fyrri
Sivebæk til
Man. United
— skifar undir í dag
Danski landsliðsmaðurinn John
Sivebæk hjá Vejle gerist leikmaður
hjá Man. Utd i dag. Þá verður endan-
lega gengið frá samningi hans við
félagið sem kostar United 300 þúsund
sterlingspund. Leikmaðurinn fær 200
þúsund. Sivebæk skrifaði undir
samning við Man. Utd rétt fyrir jól
en komst þá ekki í gegnum læknis-
skoðun. Siðan fór hann til hjartasér-
fræðinga sem sögðu - eftir nákvæma
rannsókn - að leikmaðurinn væri
fullfær i erfiðustu leiki. Martin Ed-
i wards, forseti Man. Utd, ákvað þá að
hannkæmitilfélagsins. -hsím
leik 8-liða úrslita í bikarkeppni KKl
i gærkvöldi. Eftir að liðin höfðu verið
jöfn að venjulegum leiktíma loknum,
82-82, reyndust Njarðvíkingar ofur-
lítið sterkari í framlengingunni og
náðu að trygga sér eins stigs sigur,
89-87. Staðan í hálfleik var 46-40
Njarðvík í hag.
Það var Jóhannes Kristbjörnsson
sem var maðurinn á hak við sigur
Njarðvíkinga í gærkvöldi. Hann
skoraði 35 stig og fer vaxandi með
hverjum leik. Valur Ingimundarson
átti einnig góðan leik, en hann skor-
aði 21 stig. Aðrir stigaskorarar
UMFN voru: Kristinn Einarsson 11,
Helgi Rafnsson 10, ísak Tómasson
6, Ingimar Jónsson 3, Ellert Magn-
ússon 2, Hreiðar Hreiðarsson 1.
Garðar Jóhannesson var atkvæða-
mestur vesturbæjarliðsins með 23
stig, Birgir Mikaelsson skoraði 21,
Páll Kolbeinsson 17, Guðni Guðna-
son 12, Guðmundur Björnsson 8 og
Þorsteinn Wilkins Gunnarsson 7.
Ron gaf st
upp
Birmingham
' Ron Saunders, hinn kunni fram-
kvæmdastjóri Birmingham, sagði í
gær starfi sínu lausu hjá félaginu 48
klukkustundum eftir að Birminghám
var slegið út í bikarkeppninni af
Altrincham, liði utan deildanna.
Saunders, sem tók við Birmingham
fyrir fjórum áruin eftir snjallan ár-
angur hjá Aston Villa, vildi ekki
ræða uppsögn sína við fróttamenn.
Hún kom þó verulega á óvart. Þetta
er í íjórða sinn sem Saunders hættir
að eigin ósk sem stjóri. Það kom sem
þruma úr heiðskíru lofti 1982 þegar
hann hætti hjá Villa eftir að hafa
gert liðið að enskum meisturum árið
áður. Hann hætti einnig hjá Oxford
og Norwich'en var hins vegar sagt
upp hjá Man. City eftir 5 mánaða
starf á Maine Road. Birmingham er
nú í næstneðsta sæti í 1. deildinni
ensku, skuldar tvær milljónir sterl-
ingspunda og ástæðan fvrir uppsögn
Saunders er eflaust sú að honum
hefur verið neitað um peninga tii að
kaupa nýja leikmenn. -hsim
Sheff. Wed.
í 4. umferð
Sheff. Wed. tryggði sér rétt i fjórðu
umferð ensku bikarkeppninnar i
gærkvöldi þegar liðið sigraði WBA,
3-2, í West Bromwich, Mark Cham-
berlain skoraði sigurmark Sheff.
Wed. þremur mínútum fyrir leikslok
með skalla. I fjórðu umferð leikur
Sheffield-liðið á heimavelli sínum,
Hillsborough, við Orient úr 4. deild.
Leikurinn verður 25. janúar.
Sheff.Wed. náði tvivegis forustu i
leiknum í gær með mörkum Steve
Marwood og Lee Chapman. WBA
tókst að jafna i 1-1 með marki Steve
Hunt og í 2-2 þegar Mickey Thompas
skoraði. Barátta leikmanna liðsins
mikilenþaðnægðiekki. -hsim
Óskar Ingimundarson.
Óskar þjálfari
Leifturs
Frá Þráni Stefánssyni, fréttamanni
DV á Akureyri.
Óskar Ingimundarson, fyrrum
leikmaður KA og KR, sem var leik-
maður og þjálfari Leiknis, Fáskrúðs-
firði, i knattspyrnunni sl.sumar, hef-
ur verið ráðinn þjálfari Leifturs,
Ólafsfirði. Hann mun einnig leika
með liðinu i 3. deild. Um tíma leit út
fyrir að Helgi Helgason, leikmaður
Völsungs, Húsavik, fyrrum íslands-
meistari með Víkingum, yrði þjálfari
Leifturs en meiðsli hafa sett strik í
reikninginn hjá honum. -hsím