Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1986, Side 24
32
DV. FÖSTUDAGUR17. JANÚAR1986.
4
Tryggvi Ólafsson lést 10. janúar sl.
Hann var fæddur 16. mars 1923.
Foreldrar hans voru Ólafur Ólafsson
og Guðrún Þórðardóttir. Tryggvi
starfaði lengst af í Vélsmiðjunni
Héðni. Hann var kvæntur Önnu
Steinsdóttur, en hún lést árið 1970.
Þau hjónin eignuðust tvo syni og er
annar á lífi. Útför Tryggva verður
gerð frá Fossvogskirkju í dag kl. 15.
Útför Sigriðar Hjartardóttur, áður
hjúkrunarkonu á Kleppsspítala, sem
andaðist 10. þessa mánaðar, fer fram
frá Fossvogskirkju mánudaginn 20.
janúar kl'. 15.
Stanley Jónsson andaðist 28. des-
ember 1985. Jarðarförin hefui^farið
fram.
Asdis Árnadóttir, Tómasarhaga 32,
Reykjavík, andaðist í Landspítalan-
um að kvöldi miðvikudagsins 15.
janúar.
Valborg Sandholt, Njálsgötu 59, lést
á gjörgæsludeild Landspítalans 16.
janúar.
Kjartan Ó. Bjarnason húsasmíða-
meistari, Fálkagötu 14, Reykjavík,
andaðist af slysförum 14. janúar sl.
Ólafur A. Kristjánsson, Álfaskeiði 70,
Hafnarfirði, lést aðfaranótt 16. jan-
úar.
Hjalti Pálmason, Selsvöllum 7,
Grindavík, lést af slysförum að
kvöldi 14. janúar.
Tilboð
óskast í eftirtaldar bifreiðir skemmdar eftir
umferðaróhöpp.
Nissan Sunny árg. 1985.
Subaru Justy árg. 1985.
Mercedes Bens árg. 1969.
Peugeot 604 D árg. 1982.
Fiat Uno árg.1984.
Datsun Bluebird D árg.1981.
Mazda 626 árg. 1980.
Mftsubishi L 300 árg. 1985.
Suzuki Fox Delux árg. 1985.
Datsun Laurel D árg. 1985.
Mazda 323 árg. 1985.
Dahaitsu Charmant árg.1979.
Ford Escort árg.1977.
Ford Mustang Ghia árg. 1975.
Cherolet Malibu Classic árg.1977.
Buick Skylark árg. 1980.
Bifreiðirnar verða til sýnis að Smiðjuvegi 1,
Kópavogi, laugardaginn 18. 13.00-17.00. janúar frá kl.
Tilboðum sé skilað til aðalskrifstofu Lauga- vegi 103 fyrir kl. 17.00 mánudaginn 20.
janúar.
Brunabótafélag íslands.
>
Starfslaun handa
listamönnum árið 1986
Hér með eru auglýst til umsóknar starfslaun til
handa íslenskum listamönnum árið 1 986. Umsóknir
skulu hafa borist úthlutunarnefnd starfslauna,
menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, fyrir 20.
febrúar nk. Umsóknír skulu auðkenndar: Starfslaun
listamanna.
í umsókn skulu eftirfarandi atriði tilgreind:
1. Nafn, heimilisfang, fæðingardagur og -ár,
ásamt nafnnúmeri.
2. Upplýsingar um náms- og starfsferil.
3. Greinargerð um verkefni sem liggur umsókn
til grundvallar.
4. Sótt skal um starfslaun til ákveðins tíma.
Veróa þau veitt til þriggja mánaða hið
skemmsta en eins árs hið lengsta og nema
sem næst byrjunarlaunum menntaskóla-
kennara.
5. Umsækjandi skal tilgreina tekjur sínar árið
1985.
6. Skilyrði fyrir starfslaunum er að umsækjandi
sé ekki í föstu starfi meðan hann nýtur
starfslauna, enda til þess ætlast að hann
helgi sig óskiptur verkefni sínu.
7. Að loknu verkefni skal gerð grein fyrir ár-
angri starfslauna til úthlutunarnefndar.
Tekið skal fram að umsóknir um starfslaun árið
1985 gilda ekki í ár.
15. janúar1986.
Menntamálaráðuneytið.
Ólína Bæringsdóttir, Völusteins-
stræti 28, Bolungarvík, sem lést i
sjúkrahúsi, ísafjarðar 10. janúar,
verður jarðsungin frá Hólskirkju,
Bolungarvík, laugardaginn 18. jan-
úarkl. 14.
Sýningar
Sýning erlendra listamanna í
Slunkaríki
Laugardaginn 18. janúar kl. 15 hefst
í Slunkaríki, Aðalstræti 22, Isafirði,
sýning á verkum 9 erlendra mynd-
listarmanna. Allir starfa þeir í Hol-
landi og eru í tengslum við ríkisaka-
demíuna í Amsterdam og stunda þar
nám. Hver listamaður sýnir verk sín
í eina viku í senn og hefst sýningin
á verkum Christine Hamelberg frá
Þýskalandi, síðan kemur Morten
Thomsen frá Danmörku, þá Erik
Petersen frá Hollandi, Henk van der
Spoel frá Hollandi og Mark Met,
einnig frá Hollandi. Þá Petra Dolle-
man frá Hollandi. Verkin eru mál-
verk, teikningar, grafík og skúlptúr.
Þau eru öll til sölu. Sýningin verður
opin þriðjudaga, fimmtudaga og
föstudaga kl. 16-18 og laugardaga
og sunnudaga kl. 15-18. Ókeypis er
inn á allar sýningar á vegum Mynd-
listarfélagsins á Isafirði í Slunkaríki.
Sýningin stendur til 15. mars.
Ymislegt
Farsóttir í Reykjavík í nóvember 1985
samkvæmt skýrslum 15 lækna og
læknavaktar:
Inflúensa.......................24
lungnabólga.....................52
kvef, hálsbólga,
lungnakvef o. fl..............1066
streptokokkahálsbólga,
skarlatssótt....................40
einkirningasótt..................7
útbrot og kláði..................8
kláðamaur.......................14
hlaupabóla......................32
mislingar........................0
rauðir hundar....................0
hettusótt........................0
iðrakvef........................85
flatlús.........................15
önnur lúsasmitun ................4
lekandi ........................10
þvagrásarbólga
(þar af chlamydia 47)...........65
Tilkynningar
Vitni óskast
Keyrt var á rauða Mözdu 626, R-
13689, fyrir utan Glæsibæ í gærmorg-
un milli kl. 9 og 12. Þeir sem hafa
orðið vitni að því eru vinsamlegast
beðnir um að snúa sér til lögreglunn-
aríReykjavík.
Ferðaiög
Vináttufélag íslands og Kúbu
Páskaferð til Kúbu
Um páskana verður farið í fræðslu-
ferð til Kúbu á vegum tveggja dan-
skra félaga: Dansk-Cubansk foren-
ing og Mellemfolkeligt Samvirke.
Þessir aðilar hafa áður staðið að
slíkum ferðum, sem hafa heppnast
mjög vel, og m.a. hafa nokkrir íslend-
ingar tekið þátt í þeim. Ferðin í ár
er einnig opin íslendingum. Lagt
verður af stað frá Kaupmannahöfn
22. mars nk. og dvalist á Kúbu í tvær
vikur. Megináhersla verður lögð á
skóla- og uppeldismál, en fleiri þætt-
ir þjóðlífsins verða skoðaðir og ferð-
ast vítt og breitt um landið í því
skyni. Danskur fararstjóri og túlkur
verður með. Áætlað verð er 11.000
danskar krónur (frá Khöfn) fyrir
ferðir, uppihald og dagskrá. Nánari
upplýsingar fást hjá VIK í síma
20798. Væntanlegum umsækjendum
er bent á að hafa hraðan á því fyrir-
varinn er stuttur.
NíelsÁmi
við
stjómina
Níels Árni Lund hefur verið ráðinn
ritstjóri Tímans eftir að Helgi Pét-
ursson ákvað að taka sér frí frá
stjóm blaðsins í að minnsta kosti
þrjá mánuði.
Níels Árni hefur verið ritstjórnar-
fulltrúi á blaðinu um nokkurt skeið
eða í um rúmt hálft ár. Hann starfaði
áður sem æskulýðsfulltrúi ríkisins.
KÞ
Iþróttir
Fyrirtækjakeppni Badminton-
sambands Islands
Fyrirtækjakeppni BSl verður haldin
í húsi TBR við Gnoðarvog 1 sunnu-
daginn 19. janúar kl. 13.30. Spilaður
verður tvíliðaleikur og er gert ráð
fyrir að a.m.k. annar keppandinn sé
frá viðkomandi fyrirtæki eða stofn-
un. Ekki megá tveir meistaraflokks-
menn spila saman nema annar þeirra
sé yfir 40 ára. Hvert lið sem tapar
fyrsta leik er sett í „heiðursflokk"
og fær þá annað tækifæri.
Happdrætti
Happdrætti HSÍ
10. janúar var dregið um 20 ferða-
vinninga. Eftirtalin númer drógust
út:
22631, 24020, 24370, 27187, 44974,
59697, 60880, 60948, 80581, 102046,
108730, 145416, 165057, 183418,
194056, 195799, 246997, 267372,
268614,288451.
Handknattleikssamband íslands
þakkar stuðning þinn við landslið
okkar.
Næst verður dregið 7. febrúar um
20 ferðavinninga og 21. febrúar um
15 bíla.
Miðinn gildir í hvert sinn eftir að
hann er greiddur.
Spilakvöld
Félagsvist Hún-
vetningafélagsins
verður spiluð laugardaginn 18. jan-
úar 1986 kl. 14 að Skeifunni 17. Állir
velkomnir meðan húsrúm leyfir.
65 ára er í dag, föstudaginn 17. jan-
úar, Frú Elín Guðbrandsdóttir,
Hraunbraut 107 i Kópavogi. Þar
ætlar hún og eiginmaður hennar,
Garðar Sigurðsson, að taka á móti
gestum á morgun, laugardag, milli
kl. 15ogl7.
Reiknað er með að Varnarliðið fái
áfram að flytja inn kjöt frá Banda-
ríkjunum og að kjötflutningar hefjist
aftur sjóleiðis. Síðustu mánuði hefur
allt kjötið komið flugleiðis þar sem
Albert Guðmundsson Iokaði á upp-
skipun þess, sem yfirmaður toll-
heimtunnar, á sínum tíma. Þrír
sprenglærðir lögfræðingar telja, að
athuguðu máli, að þessi kjötinn-
flutningur sé Varnarliðinu heimill.
Þessir lögræðingar, prófessorarnir
Gaukur Jörundsson og Arnljótur
Björnsson og svo Jóhannes L.L.
Helgason hæstaréttarlögmaður,
urðu sammála um að íslenska ríkið
Það hefur verið upplýst að 13 ára
nemandi í grunnskóla í Reykjavík
tilkynnti lögreglunni að sprengju
hefði verið komið fyrir í brúnni tösku
i flughöfninni á Keflavíkurflugvelli.
Drengurinn hringdi til lögreglunnar
Borgarstjórn hefur endanlega
ákveðið að taka þátt í kynningar-
starfsemi á vegum fyrirtækisins Miss
World sem hefur umráðarétt yfir
fegurðardrottningu okkar þetta árið.
Það voru ekki allir borgarfulltrúar
sammála þessu. Magdalena Schram
sagði að þetta bryti í bága við jafn-
réttislög og taldi það ekki vera við
hæfi að borgaryfirvöld ættu hlut að
máli sem þessu. Hún vitnaði m.a. í
ummæli borgarstjóra frá fyrri fund-
um borgarstjórnar þar sem hann
hafði líkt saman ungfrú alheimi og
Vigdísi forseta. Borgarstjóri sagði
90 ára er í dag, 17. janúar, Guðrún
M. Andrésdóttir, síðast til heimilis
að Seljabraut 52 í Breiðholtshverfi
en nú vistmaður á Grund. Á langri
starfsævi starfaði hún víða í Reykja-
vík og næsta nágrenni. Hún dvelst
nú sér til hvíldar og hressingar á
hæli NLFÍ í Hveragerði.
70 ára verður á morgun, laugardag-
inn 18. janúar, Jón Þ. Einarsson,
bóndi í Neðra-Dal í Biskupstungum.
Eiginkona hans er Aðalheiður Guð-
mundsdóttir frá Böðmóðsstöðum í
Laugardal. Þau hafa búið í Neðra-
Dal frá því á árinu 1942. Hann verður
að heiman.
Leiðrétting
í frétt af Skákþingi Reykjavíkur,
sem birtist í blaðinu í fyrradag, er
sagt að Ægir Páll Stefánsson hafi
orðið unglingaskákmeistari Reykja-
víkur 1985. Hið rétta er að Hannes
Hlífar Stefánsson varð unglinga-
skákmeistari 1985. Hann er 13 ára
og teflir nú einnig i opna flokknum
á Skákþinginu. . {ýB
hefði skuldbundið sig með varnar-
samningnum til að hindra ekki að-
drætti Varnarliðsins. Lög frá 1928
um varnir gegn gin- og klaufaveiki
takmarkist í því sambandi. Líklegt
er að sett verði skilyrði um kjötinn-
flutninginn.
Þessi skilyrði lúta að því að ein-
göngu verði flutt inn hrátt kjöt frá
Bandaríkjunum, kjötið verði í engum
tilfellum flutt út fyrir athafnasvæði
Varnarliðsins og að innflutningur-
inn komi til endurskoðunar, verði
vart gin- og klaufaveiki í Bandaríkj-
unum. -HERB
úr sjálfsala í skólabyggingunni. Það
var kennari í skólanum sem heyrði
um sprengjuhótun og hafði samband
við lögregluna. Þegar lögreglan yfir-
heyrði drenginn viðurkenndi hann.
þetta vera á miskilningi byggt og hin
mesta ókurteisi af Magdalenu. Hann
sagði jafnframt að málflutningur
Kvennaframboðsins væri konum til
tjóns. Það væri ekki ástæða til að
hafa áhyggjur af þessari kynningar-
starfsemi. Við fengjum ekki hálfsíðu-
auglýsingu í stórblaði erlendis fyrir
þessa peninga sem borgin ætlar að
greiða fyrir þetta.
Ásakanir gengu á víxl nokkra hríð.
Að lokum var málið samþykkt gegn
atkvæðum alþýðubandalagsmanna,
kvennaframboðskvenna og Gerðar
Steinþórsdóttur í Framsóknarflokki.
-APH
Vamarliðiðfær kjötiðsitt áfram
13 ára drengur tilkynnti um sprengjuna
-sos
MissWorld