Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1986, Qupperneq 3

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1986, Qupperneq 3
DV. FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR1986. 3 -Fréttaljós- SverrirHermannsson vill verulegarbreytingará Lánasjóði íslenskra námsmanna: Lán veröi endurgreidd að fullu og á skemmri tíma sérstakt frumvarp um námsstyrki verði lagt fram. Rætt hefur verið um sérstakan styrkþegasjóð óháð- an lánasjóðnum . Að úthlutun námslána verði óháð tekjuöflun námsmanna, þ.e. að námslánin verða ekki skert þótt laun náms- manns fari yfír einhver sérstök tekjumörk, er mikil breytingin frá núverandi fyrirkomulagi. Með þessum breytingum er endur- greiðslutíminn hertur en hann er nú, miðað við gildandi lög, 40 ár og endurgreiðast lánin ekki að fullu. Samkvæmt breytingunum er gert ráð fyrir að greiðsluhyrði námsmanna að námi loknu verði létt í fyrstu og þá tekið tillit til launatekna. Með þessum breytingum á lána- sjóðnum er ekki verið að lagfæra gamla kerfið heldur búa til nýtt. I málefnasamningi nýrra vald- hafa í stúdentaráði, sem samþykkt- ur var þar á dögunum á milli félaga í Félagi umbótasinnaðra stúdenta og Félagi vinstri manna, er hug- myndum um vaxtagreiðslur af námslánum og lántökugjald aifarið hafnað. Sömuleiðis „að fyrningar- tími lánanna verði lækkaður úr 40 árum í 30 ár eins og gert var ráð fyrir í drögum að frumvarpi til laga um námslán og námsstyrki", eins ogþarstendurorðrétt. . ÞG u**.**! né1KSnr?,anna Afgreiðsla 9.15 - 16.00 Lánasjóður íslenskra námsmanna hefur verið mikið í sviðsljósinu undanfarið. Nú vill Sverrir Her- mannssonbreyta sjóðsreglum verulega. Menntamálaráðherra, Sverrir Hermannsson, hefúr sagt að „fryst- ing“ námslána muni verða afhum- in. Sem kunnugt er breytti ráð- herrann reglugerð Lánasjóðs ís- lenskra námsmanna í ársbyrjun og stöðvaði sjálfvirka hækkun námsl- ána. Úthlutun námslána fyrir fyrsta ársfjórðung þessa árs stendur yfir og er að krónutölu sú sama og á haustlánum. Námsmaður sem stundar nám í háskólanum og er í leiguhúsnæði fær 20.900 krónur mánaðarlega. Ef „frysting" ráð- herrans hefði ekki komið til hefði þessi upphæð hækkað um þúsund krónur eða svo. Skerðing náms- lána hefur orsakað mikið fjaðrafok. Vantraust á stjórn stúdentaráðs var samþykkt og má rekja van- traustið til þessa máls að einhverju leyti. Nú hefur ráðherra sagt að námslánin verði færð aftur til fyrra horfs og miðuð við framfærsluvísi- tölu hverju sinni eins og úður. En hann hefur ekki sagt hvenær hann muni aflétta „frystingunni". Nýttfrumvarp Ráðherra hefur boðað breytinga- tillögur eða nýtt frumvarp um lánasjóðinn. Búist er við að sú smíð verði tilbúið fyrir helgi. Tryggvi Agnarsson lögfræðingur og Eiríkur Ingólfsson, fúlltrúi í menntamálaráðuneytinu, fengu það verkefni að semja nýtt frum- varp eftir ákveðnum formerkjum ráðherra. Starfshópur undir for- ystu Tryggva Agnarssonar hefur starfað síðan í október að endur- skipulagningu og tillögugerð um breytingar á starfsemi lánasjóðs- ins. Starfshópurinn var skipaður að beiðni fráfarandi stjórnar stúd- entaráðs, þeirri stjóm er hvarf frá stjórnarsetu sl. sunnudag. Helstu breytingamar sem verða á starfsemi Lánasjóðs íslenskra námsmanna verði nýja frumvarpið að lögum eru m.a. að námslánin Þórunn Gestsdóttír verða þá endurgreidd að fullu á 30 ára tímabili. Námslánin greiðist upp ásamt verðbótum og vöxtum. greitt verði lántökugjald og inn- heimtukostnaður standi undir kostnaði við lánveitinguna. Tekj- utillit við lánsúthlutun og styr- kveitingu verði afnumið og skýr afmörkun skal vera á milli lánþega og styrkþega. Hugsanlegt er að Húsbyggjendur: Nýjar reglur um neyðaraðstoð Ráðgjafarstöð Húsnæðisstofnunar mun líklega byrja að veita húsbyggj- endum aðstoð samkvæmt nýjum reglum sem nú em til umfjöllunar hjá stjóm stofnunarinnar. Á þessu ári er áætlað að 200 millj- ónir fari til aðstoðar þeim sem eru í vanda vegna húsnæðiskaupa. Ríkis- stjómin hefur lagt til að bankastofn- anir skuldbreyti skammtímalánum og jafnvel að Húsnæðisstofnun létti undir með því að kaupa hluta af þeirri skuldbreytingu. Þessi tilhögun virðist ekki eiga mikinn hljómgmnn í stjórn Húsnæðisstofnunar. Þar er vilji fyrir því að láta bankana sjá algjörlega um skuldbreytingar án aðstoðar frá ráðgjafarstöðinni. Hins vegar verði 200 milljónimar notaðar til að aðstoða hýsbyggjendur og kaupendur í sambandi við aðrar skuldir eins og t.d. vanskil hjá verk- tökum og efnissölum. Öll aðstoð mun fara í gegnum ráðgjafarstöðina og nýju reglumar fjalla ítarlega um hverjir uppfylla skilyrði til aðstoðar. -APH Þessir ungu og efnilegu skákmenn eru á leið til Svíþjóðar á Norðulanda- mótið i skólaskák. Skákmenn til 20 ára aldurs taka þátt í mótinu. Alls taka þátt I mótinu um 50 einstaklingar, 10 frá islandi. Fremst frá vinstri: Héðinn Steingrimsson, 11 ára, Magnús Ármann, 11 ára, og Guðmundur Sverrir Jónsson, 10 ára. í miðju frá vinstri: Óli H. Olafsson, fararstjóri strákanna, Þröstur Árnason, 13 ára, Oavið Ólafs- son, 17 áraj Andri Áss Grétarsson, 17 ára, Andri Bjömsson, 13 ára, og Olafur Asgrímsson, einnig fararstjóri. Efst frá vinstri: Halldór G. Einarsson, 19 ára, Þröstur Þórhallsson, 16 ára, og Hannes Hlífar Stef- ánsson, 13 ára. Hópurinn leggur af stað 29. jan. Mótið hefst 31. jan. og stendur til 3. fCbrUar' -KB/DV-mynd GVA. Vegna auglýsingar Utvegsbankans í gær, sem birtist á þessari síðu blaðsins, vill bankastjórn bankans taka fram að hún birtist þar án vitundar og vilja hennar. Bankastjóm Utvegsbankans telur ekki rétt að bera saman kjör ýmissa innlánsreikninga sem hver hefur sín sérkenni. Þar sem nafn Búnaðarbankans er ómak- lega dregið inn í framan- greinda auglýsingu vill bankastjórn Útvegsbankans hér með biðjast afsökunar á því. ÚTVEGSBANKINN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.