Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1986, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1986, Blaðsíða 15
 DV. FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR1986. 15 Menning Menning Menning Hómó lúdens Þór Vigfússon er grallarinn í hópi nýlistarmanna. Fyrir tíu árum, meðan félagar hans voru flæktir í alvarlega huglæga leik- fimi, bjó hann til marglita leik- skúlptúra handa litlum manneskj- um. Næst man ég eftir gríðarstór- um (leikfanga?) kubbum eftir hann í námunda við Korpúlfsstaði, í tengslum við sýninguna „Experi- mental Environment". Víkur svo sögunni að samsýn- ingu nokkurra nýlistarjaxla að Kjarvalsstöðum fyrir þremur árum, en þá gerði Þór fleiri en mig forviða með safni dýramynda úr gifsi, pappamassa o.fl. Þarna voru glað- legir gíraffar, fönguleg sebrahross, skælbrosandi krókódílar og fleiri skepnur úr örkinni hans Nóa. Þar var eins og myndasmiðurinn kærði sig kollóttan um þær kröfúr sem jafnan eru gerðar til skúlptöra. í stað þess að umskapa, byggja upp ný form, tók hann sér fyrir hendur að rifja upp myndveröld barnsins, sjálfum sér og vonandi öðrum til óblandinnar ánægju. Það er einmitt i þessari næstum dadaísku (eða flúxversku) leikgleði sem Þór sker sig úr hópi jafnaldra sinna og samferðamanna í listinni. Fyrir vikið verður hann að sitja undir þeim áburði að vera nokkurs konar flautaþyrill í listinni, á sí- felldum hlaupum undan alvöru lífs- I Edenslundi Sýning Þórs í Nýlistasafninu er rökrétt framhald á því sem áður hefur gerst í myndlist hans. Á sýningu Myndhöggvarafélagsins í fyrra var hann með standmyndir af teiknimyndahetjum eins og Batman og Tarsan. Nú viðrar hann einnig standmyndir, fimm að tölu. Þær eru úr máluðu gifsi og sýna kubbslega nútímamenn í einhvers konar sælureit, kannski á sólar- ströndum eða í Edenslundi, því allir eru þeir fáklæddir. Á slíkum stöðum hafa menn svo sem engin ósköp fyrir stafni, þeir Þór Vigfússon Myndlist AÐALSTEINN INGÓLFSSON góna út á hafið, glugga í bók(þó tæplega í „Án titils“ eftir Einar Guðmundsson, eins og einn af körlum Þórs gerir, með fullri virð- ingu fyrir höfúndi..), leita sér að átyllu til að nota nýju myndavélina sem þeir keyptu í tollinum, standa á haus,- kannski koma þeir eigin- konunum á óvart með því að færa þeim rósir buxaalausir. Eins og Einar Jónsson heiðrar Jón Sigurðsson og upphefur og Guðmundur Einarsson frá Miðdal gerir dittó fyrir Skúla fógeta veg- samar Þór hinn „venjulega" nú- tímamann, í einlægni sinni og ein- feldní Þetta er hans fólk, kannski hann sjálfur. Ætli við séum ekki þarna líka, ef vel er að gáð. Utgerðarmenn Til sölu er ný 165 hestafla Delfin dísilvél, gír 1:3, skrúfubún- aður, tvær dælur og 65 lítra vökvadæla. Varahlutir samkvæmt kröfum SR. Verð með niðursetningu á vél 875.000 kr. Góðir greiðsluskilmálar. Mánavör hf., Skagaströnd, sími 95-4775. Á TIIBOÐ BUTASALA Nú er hægt að gera góð teppakaup Okkar árlega bútasala og afsláttarsa/a stendur yfir. Teppabútar af öllum mögulegum stærðum og gerðum með miklum afslætti og fjölmargar gerðir gólfteppa á ótrúlega góðu verði. IBYGGINGAVORUB l HRINGBRAUT120 Símar Byggingavörur 28600 Gólfteppadeild 28603 Timburdeild , 28604 Málningarvörur og verkfæn ^JbUb Flísaroghreinlætistæki • *íö4ðu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.