Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1986, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1986, Blaðsíða 2
2 DV. MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR1986. Svalbarðs- eyrarmálið hefur víð- tæk áhrif Frá Jóni G. Haukssyni, blaða- glað; um ótrúlega fjármálaóreiðu; manni DV á Akureyri: um það hvort Samvinnubankinn, Sambandið og bændur séu að tapa Mál Kaupfélags Svalbarðseyrar er tugum milljóna í fyrirsjáanlegu stórmál. Það snýst um uppsagnir gjaldþroti kaupfélagsins. Það snýst 70 manns, framtíð heils þorps; um b'ka um sameiningu við KEA sem úttekt kaupfélagsstjórans og gjald- Kaupfélag Svalbarðseyrar hefur kera upp á milljónir á meðan kaup- veitt samkeppni. Og kannski síðast félagið sjálft hefur verið í buliandi en ekki síst um bilið sem getur greiðsluörðugleikum. Það snýst myndast á milli bændanna, eigenda um innbrot í kjötgeymslu og stuld kaupfélaganna og starfsmanna á kjöti sem Sambandið hafði innsi- þeirra. Gjaldþrotíd blasir við: Hvað fæst fyrir eignirnar? Frá Jóni G. Haukssyni, blaða- lóðir, sláturhús, réttarbyggingu og manni DV á Akureyri: kartöflugeymslu. Þá á félagið Heildarskuldir Kaupfélags Sval- nokkurhús. barðseyrareru sagðar um 280 millj- Skammtímaskuldir eru vanda- ónir króna. Samvinnubankinn , málið. Þær eru tugi milljóna yfir Sambandið, Áburðarvcrksmiðjan skammtímaeignum, svokölluðu og bændur eiga mest inni hjá veltufé. Rætt er um að mismunur- Kaupfélaginu, hátt í 200 milljónir innséalltað50milljónir. króna. Ótrúleg vanskil hafa verið hjá Bókhaldslega séð er rætt um að Kaupfélaginu, þau hafa reynst félagið sé á núlli, að eignir hrökkvi óhemjudýr. Verið er að greiða þetta fyrir skuldum. Menn spyrja sig 50-70% vexti af flestum lánum, hins vegar hvað fáist fyrir eignirn- vegna dráttarvaxta og innheimtu- arverðifélagiðgertupp. kostnaðar. Helstu eignir eru fasteignir, af- Staðan er því sú að geysileg urðir og útistandandi skuldir. Af vanskil hanga yfir Kaupfélaginu fasteignunum, sem metnar eru í og skammtímaskuldir þess eru heild á um 125 milljónir, eru kart- tugir milljóna umfram skamm- öfluverksmiðjan og nýtt kjötfrysti- tímaeignir. Þetta kallar aftur á hús þær heistu, metnar á um 670 skuldbreytingu lánanna; sölu á milljónirtilsamans. fastaflármunum, fasteignum; eða Af öðrum fasteignum má nefna nauðungaruppboð á Kaupfélaginu. Bændur standa tæpt: „Bjarga mér á víxlum” Frá Jóni G. Haukssyni, blaða- manni DV á Akureyri: Þeim bændum, sem hafa átt inni hjá Kaupfélagi Svalbarðseyrar, hefur gengið ákaflega ílla að fá greidda inneign sína. Hægt hefur samt verið að greiða eitthvað til þeirra, oftast talsvert eftir að þeir innheimtu. Einn bóndi sagði við DV: „Ég er kominn í algjört þrot. Ég hef bjarg- að mér á víxlum, krítarkorti og öðrum lánum til að (Tamíleyta mér. Þeta er allt að gjaldfalla. Það eru engir peningar til hjá Kaupfélag- inu.“ KAABERKAFFILÍKA í LÖGREGLURANNSÓKN — Verðlagsstof nun fann ekkert athugavert fyrir ári Ríkissaksóknari hefur mælst til þess að Rannsóknarlögregla ríkisins rannsaki kaffiinnílutning 0. Jo- hnson & Kaaber hf. á árunum 1980 og 1981. Kemur þetta í kjölfar ákæru á hendur yfirmönnum Sambands ís- lenskra samvinnufélaga vegna inn- flutnings á kaffi fyrir Kaffibrennslu Akureyrar. „Það hlýtur að vera töluvert tilefni að mæla fyrir um rannsókn,“ sagði Jónatan Sveinsson saksóknari. „Við viljum freista þess að fá það upplýst hvort 0. Johnson & Kaaber hafi flutt inn kaffi á óhagstæðari kjörum en reynslan og rannsókn hefur sýnt fram á að Kaffibrennsla Akureyrar átti kost á,“ sagði Jónat- an. „Verðlagsyfirvöld fóru yfir alla okkar reikninga í fyrra og fundu ekkert athugavert við þá,“ sagði Ólafur Ó. Johnson, forstjóri 0. Jo- hnson & Kaaber. „Við fengum afslætti. Þeir voru notaðir til að lækka kaffiverð," sagði Ólafur. Fréttatilkynning Verðlagsstofnun- ar, dagsett 21. febrúar 1985, um rann- sókn sína á verðlagningu á kaffi, var svohljóðandi: „Að gefnu tilefni hefur Verðlags- stofnun gert athugun á kaffi á árun- um 1979-1981. Þeirri athugun er lokið og telur stofnunin ekki tilefpi til frekari aðgerða i málinu." Leyfilegt hámarksverð á kaffi á þessum tíma var miðað við gögn frá O. Johnson & Kaaber. I yfirlýsingu Erlends Einarssonar, forstjóra Sam- bandsins, fyrir helgi segir að Kaffi- brennsla Akureyrar hafi selt á því verði sem verðlagsyfirvöld ákváðu og stundum neðan við hámarksverð. -KMU Frá Emil Thorarensen, fréttaritara á Eskifirði: Mikil ófærð hefur verið að undanförnu á Eskifirði vegna sjókomu. Má nú ætla að jafnfallinn snjór sé þar um 120 sentímetrar. Samgöngur hafa því verið erfiðar og þar af leiðandi hefur póstur borist seint í byggðarlagið. Þess eru dæmi að dagblöðin hafi verið orðin allt að vikugömul þegar þau hafa komist í hendur kaupenda. DV-mynd Emil Ríkisstjórnin fær falleinkunn hjá stjórnarandstöðunni: r A að segja af sér og efna til kosninga „Ríkisstjómin á að fara frá og efna til kosninga. Innan ríkisstjórnarinn- ar er enginn vilji né samstaða nema um að skerða kaupmáttinn enda ekki stofnuð til annars," sagði Svavar Gestsson, formaður Alþýðubanda- lagsins, sem hóf hina almennu um- ræðu um stjórnmálaástandið í landinu, sem fram fór á Alþingi í gær. Svavar sagði að allt ræki á reiðan- um hjá ríkisstjóminni og óheilindin milli stjómarflokkanna og einnig milli ráðherra annars stjórnar- flokksins væm einsdæmi. Hann nefndi landráðabrigsl ráðherra, halla ríkissjóðs, dauðadæmt Þróun- arfélag, landsflótta, hrokafullan menntamálaráðherra í garð Lána- sjóðsins, Seðlabankann, gerðan að útibúi Sjálfstæðisflokksins og að- gerðaleysi í sambandi við kjara- samninga, svo eitthvað sé nefnt. Aðrir fulltrúar stjórnarandstöðunn- ar tóku í sama streng og nefndu dæmi máli sínu til stuðnings. Jó- hanna Sigurðardóttir, Alþýðuflokki, sagði að öll lætin í ráðhemmum skiptu ekki höfuðmáli. Það væm skýrslur félagsstofnunar og fjöldi nauðungarmála sem töluðu sínu máli. Hins vegar tækju ráðherramir ekki eftir þessum staðreyndum því þeir væm svo uppteknir að leika á fiðlu á meðan Róm brynni. Steingrímur Hermannsson forsæt- isráðherra sagði að fátt nýtt hefði komið fram í málflutningi stjórnar- andstöðunnar. Hann sagði að hagur flestra hefði batnað á síðasta ári og skýrði firá því að kaupmáttur launa hefði hækkað um 6 % á síðasta ári. Hann sagði að nú væm batamerki í ljárhagsmálum þjóðarinnar. Fis- kverð hefði hækkað og fyrirsjáanleg væri olíuverðslækkun. Þetta gæfi Mínútugjald fyrir símtöl frá íslandi til Bandaríkjanna lækkar úr 82 krónum í sjálfvali í 70 krónur frá og með 1 febrúar. Þetta er 15% lækkun. Einnig lækkar mínútugjald fyrir telexþjónustu vemlega, eða um 32%, úr 84 krónum í 57 krónur. Milli íslands og Kanada nemur lækkun í sjálfvali líka 15% og verður frá sama tíma 70 krónur á mínútu. von um lækkun verðbólgunnar, sem þó væri háð því hvemig til tækist í yfirstandandi kjarasamningum. Friðrik Sophusson, Sjálfstæðis- flokki, talaði fyrir hönd síns flokks. Hann sagði að vilji væri innan ríkis- stjórnarinnar um að kaupmáttur yrði tryggður en samt ekki þannig að verðbólga færi vaxandi. Þetta væri markmið sem flestir hefðu skilning á. -APH Telexþjónusta til Kanada lækkar hins vegar um 50%, úr 115 krónum í 57 krónur á mínútu. Ástæða lækkunarinnar er sú, sam- kvæmt upplýsingum ffá Póst- og símamálastofnuninni, að tekist hafa samningar við hlutaðeigandi banda- rísk símafyrirtæki um lækkun á uppgjörsgjöldum síma- og telexþjón- ustu. -KB Símtöl til Banda- ríkjanna og Kanada lækka

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.