Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1986, Blaðsíða 11
DV. MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR1986.
11
Langbrækur
hætta
—annaðgallerí tekurvið
Nú um helgina voru síðustu opn-
unardagar í Gallerí Langbrók á
Bernhoftstorfu. Ástæðan er of há
leiga á húsnæði Langbrókar sem
hækkuð var til muna sl. sumar, úr
5-8 þúsundum á mánuði í 30 þúsund
og frá áramótum upp í 35 þúsund.
„Af gallerírekstri verður engin
feitur og við stöndum ekki undir svo
hárri leigu. Nefnd þeirri sem rekur
húsin á Bernhöftstorfu, Minjavernd,
var bent á að þeim væri til álitsauka
að styðja við bakið á menningar-
starfsemi sem þessari sem áunnið
hefur sér sess á Bernhöftstorfu.
Minjavernd varð ekki við okkar
óskum og því var sú ákvörðun tekin
að leggja Langbrókina niður,“ sagði
Sigrún Eldjárn, ein af Langbrókun-
um.
„Við urðum að breyta öllum gömlu
og lágu leigukjörunum. Minjavernd
er hætt að fá styrki frá opinberum
aðilum til þess að byggja upp Bern-
höftstorfuna. Leigan verður að
standa undir framkvæmdum og
rekstri. Leigutakar voru látnir vita
af þessu fyrir löngu og Langbræk-
urnar skrifuðu undir leigusamning í
sumar sem hljóðaði upp á 30 þúsund
á mánuði. Þær samþykktu þá. Við
höfum reynt að miðla málum við
þær, okkur finnst sárt að sjá þær
fara, en það tókst ekki. En nokkrar
af þeim ætla að halda áfram rekstri
Gallerís þarna, sem kemur til með
að heita Gallerí Gimli, svo að þarna
heldur áfram að vera menningar-
starfsemi," sagði Þröstur Ólafsson
framkvæmdastjóri Dagsbrúnar, en
hann er formaður Minjaverndar.
-KB
Gerðuberg:
Fundur í Gerðu
bergi um vímu-
efnafræðslu
Á morgun verður haldinn fundur í
Gerðubergi um vímuefnafræðslu. Til
fundarins er boðið formönnum og
fulltrúum foreldra- og kennarafélaga
i grunnskólum Reykjavikur. Mark-
mið fundarins er að kynna bæklinga
um vímuefni sem ætlaðir eru foreld-
rum og skólabörnum. Skipulagning
á hugsanlegu samstarfi um dreifingu
bæklinganna verður rædd. Það er
samstarfshópur borgarstarfsmanna
frá Æskulýðsráði, Fræðsluskrifstof-
unni og Félagsmálaráði Reykjavíkur
sem boða til fundarins annað kvöld
í Gerðubergi. Allt áhugafólk er vel-
komið. .j>q
„Eg stefni hátt i skákinni,“segir Þröstur Árnason sem varð unglingaskákmeistari Reykjavíkur 1986 eftir erfiða
skák við Hannes Hlífar Stefánsson, sem endandi seint á sunnudagskvöld með sigri Þrastar. DV-mynd KAE
„GAMAN AÐ SIGRA”
segir nýbakaður unglingaskákmeistari
Reykjavíkur 1986
„Það er alltaf gaman að sigra.
Ég átti alveg eins von á að verða
unglingaskákmeistari þetta árið,“
sagði hin 13 ára gamli Þröstur
Árnason sem hefur verið skákmað-
ur af Iífi og sál síðan hann byrjaði
að fara á laugardagsæfingar hjá
Taflfélaginu 9 ára gamall.
Þröstur vann allar sinar skákir,
eða 9, i unglingaflokki Skákþings
Reykjavíkur, en siðustu umferðirn-
ar fóru fram um helgina.
í öðru sæti varð Hannes Hlífar
Stefánsson með 8 vinninga og í
þriðja sæti Guðríður Lilja Grétars-
dóttir með 7 vinninga.
,. Mig langar til að taka þátt í
Reykjavikurskákmótinu. Kannski
verð ég einn af þeim ungu efnilegu
og Elo-stigalausu sem boðið verður
að taka þátt i því,“ sagði Þröstur.
Næst á dagskrá hjá Þresti er Norð-
urlandamótið í skólaskák sem
haldið verður í Svíþjóð um mán-
aðamótin.
„Ég stefni hátt í skákinni,“ sagði
Þröstur.
Þröstur er einnig hæstur í opna
flokknum á Skákþinginu ásamt
Hannesi Hlífari og Andra Áss
Grétarssyni. Þeir eru allir með 8
vinninga. Keppni í opna flokknum
lýkurámiðvikudag. -KB
AÐAL-
DALS-
FLUG-
STÖD
TILBÚIN
í MARS
Húsvíkingar og aðrir Þingeyingar
sjá nú loksins fram á að komast í
nýja flugstöð.
„Við höfum verið að gæla við að
það verði í mars,“ sagði Pétur Ein-
arsson flugmálastjóri er DV spurði
hvenær nýja flugstöðin á Aðaldals-
flugvelli í Suður-Þingeyjarsýslu yrði
tekin i notkun.
Að sögn Sigurðar Karlssonar flug-
vallareftirlitsmanns er lítilræði eftir.
Innréttingar eru frágengnar að
mestu en þó vantar borð og stóla.
Verið er að tengja radíó en sima
vantar.
Akvegur að flugstöð, svo og stæði,
bæði fyrir bíla og flugvélar, eru til-
búin.
Framkvæmdir við þessa 570 fer-
metra flugstöð hófust haustið 1981.
Verktaki er fyrirtækið Norðurvík hf.
á Húsavík.
-KMU
Þessi mynd var tekin af flugstöðinni i Aðaldal í sumar. Fyrir framan húsið eru smiðirnir.