Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1986, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1986, Qupperneq 15
DV. MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR1986. 15 Menning Menning M^nning leikara og Manúelu Wiesler flautu- leikara, Jóns Ásgeirssonar tón- skálds, Árna Kristjánssonar píanó- leikara, Guðmundar Jónssonar söngvara, Jóns Nordals tónskálds og Einars Jóhannessonar klarínettu- leikara. Byggingalistin hefur verið með frá upphafi og hafa viðurkenningar verið veittar Gunnari Hanssyni arki- tekt, Manfreð Vilhjálmssyni og Þor- valdi S. Þorvaldssyni arkitektum, Gunnari Guðnasyni og Hákoni Hertevig arkitektum, Birnu Bjöms- dóttur arkitekt, Pétri Ingólfssyni byggingaverkfræðingi, Valdimar Harðarsyni, arkitekt og húsgagna- hönnuði, Stefáni Emi Stefánssyni arkitekt, Grétari Markússyni arki- tekt og Einari Sæmundsen lands- lagsarkitekt. Kvikmyndimar komu hins vegar ekki til sögunnar fyrr en 1981, en síðan hafa Menningarverðlaun DV verið veitt Sigurði Sverri Pálssyni kvikmyndatökumanni, kvikmynd- inni „Útlaganum", Erlendi Sveins- syni, þáverandi forstöðumanni Kvik- myndasafns íslands, Saga-film fyrir „Húsið“ og Film hf. fyrir „ Hrafninn flýgur". Fyrir utan Sigurjón Ólafsson, sem lést 1982, og Gallerí Suðurgötu 7, sem lagði upp laupana árið 1981, em allir verðlaunahafar DV enn í fullu fjöri og starfandi að hugðarefnum sínum. í nokkmm tilfellum hafa aðrar viðurkenningar fylgt í kjölfar Menn- ingarverðlauna DV. Þorgerður Ing- ólfsdóttir hefur hlotið Bröste verð- launin dönsku og fálkaorðuna, Vald- imar Harðarson hefur hlotið marg- háttaðar viðurkenningar fyrir stól sinn, Sóley, og kvikmynd Egils Eð- varðssonar, Húsið, hlaut fyrstu verð- laun á alþjóðlegri kvikmjmdahátíð í Belgíu. Eftir þrjár vikur verður sem sagt ljóst hvaða listafólk bætist í þennan fh'ða hóp. Á næstunni mun DV kynna dómnefndir vegna Menning- arverðlaunanna og segja frá störfum þeirra. Menningarverðlaunin 1983. F.v. : Guömundur Jónsson, Helgi Þorgils Friöjónsson, Briet Héðinsdóttir, Þuriður Baxter (t.h. Guöbergs Bergssonar ), Erlendur Sveinsson og Pétur Ingóltsson. Menningarverðlaunin 1984. F.v.: Egill Eðvarðsson, Valdimar Harðarson, Magnús Loftsson (f.h. Stúdentaleikhússins ), Katrin Briem (f.h. Jóhanns Briem ), Thor Vilhjálmsson og Jón Nordal. Menningarverðlaunin 1985. F.v. : Maria Sigurðardóttir (f.h. Alþýðuleikhússins), Einar Jóhannesson, Álfrún Gunnlaugsdóttir, Hrafn Gunnlaugsson, Jón Gunnar Árnason, Einar Sæmundsen, Grétar Markússon og Stefán Öm Stefánsson. Og rcmantíkin flæddi Tónlelkar Sinfóniuhljómsveitar Islands i Háskólabíói 23. janúar. Stjórnandi: Jean-Plerre Jacquillat. Einleikari: Guðný Guömundsdóttir. Efnisskrá: Ámi Björnsson: tvær Róm- önsur; Ernest Chausson: Poéme fyrir fiðiu og hljómsveit op. 25; Maurice Ravel: Tzigane, konsertrapsódia fyrir fiðlu og hljómsveit; Antonin Dvorák: Sinfónia nr. 8 i G-dúr op. 88. Ég held að það sé næsta sjaldgæft að einleikari með hljómsveit standi á sviðinu allan fyrri helming tón- leika, en það gerði Guðný Guð- mundsdóttir nú. Efnisskrána fram að hléi fylltu fjögur einleiksverk og var hér brugðið út af þeirri venju að hafa að minnsta kosti eitt inngangsverk fyrir hljómsveitina eingöngu. Rómönsur Áma Björns- sonar, sem hér vom fyrstar á dag- skrá, eru vel þekktar og Guðný hefur haft þær á verkefiiaskrá sinni um nokkurt skeið - Ekki sem nein aukalög heldur í þau skipti sem ég hef heyrt hana leika þær, upp- byggjandi þætti í vel uppsettri efnisskrá. Ræktarsemi Reyndar er Guðný eini fiðluleik- arinn sem ég hef vitað til að sýndi þessum fallegu smástykkjum þá ræktarsemi að leika þau á tónleik- um, síðustu árin að minnsta kosti. í hljómsveitarútsetningum Atla Heimis Sveinssonar á hver hending heima hjá þeim hljóðfærum sem hana hljóta. Hann flytur í raun píanómeðleikinn yfir á hljómsveit- ina af rakinni smekkvísi og skreyt- ir eða bætir því aðeins við að það hæfi og nauðsynlegt sé. , Og áfram hélt rómantíkin að flæða, því næst kom hið kyrrláta Tónaljóð Emests Chausson. Svo Portrett af Maurice Ravel eftir Nad- Tónlist EYJÓLFUR MELSTED skrýtilega vill til að íslenskir tón- leikagestir þekkja Chausson helst af söng amerískra ljóðasöngvara, sem valið hafa sér gallískan ljóða- söng að höfuðviðfangsefni. Hér fengu menn þó dæmi þess að Chausson kunni vel að skálda fyrir hljómsveit, þótt hann væri fyrst og ffemst maður hins smærra forms. Ekki var sagt skilið við franska músík alveg strax því næst kom Tzigan Ravels. Maður hefúr það á tilfinningunni að í Tzigan sé Ravel stöðugt að halda aftur af sér - bæla niður innri ólgu sem óneitan- lega er til staðar í músíkinni. Þess vegna er verkið spennu hlaðið án þess að nokkum tíma sé létt á. „Programme jacquillatique" Með Tzigan lauk þætti Guðnýjar Guðmundsdóttur á þessum tónleik- um. Var hann bæði mikill og góður. Hún lék hreint og fallega og af mikilli tilfinningu án þess að of- hlaða með henni leik sinn. í eina tíð þótti mér Guðný fremur kaldur spilari. Hygg ég að því hafi valdið hversu nákvæm hún er í öllum sínum leik og að lengi hafi hún fyrst og fremst hugað að leiktækni- legum atriðum á köstnað tilfinn- inganna. Ekkert væri eins fjarri og að viðhafa slík ummæli um leik hennar nú orðið. Nákvæmnin og vandvirknin hafa ekki orðið út- undan en hlýjan og blíðan bæst við og spennan komist í hámark. Áttunda Dvorák, sem einu sinni var talin sú fjórða (varð eitt sinn í munni útvarpsþular 8,4), var svo lokaverkið á skránni - enn eitt tilfinningríkt stykki. Hljómsveitin er orðin vel skóluð í rómantík og gerði Dvorák ágæt skil, þótt ekki væri það með sama þunga og trega og maður á að venjast af hans heimaslóð. Sérstaklega fannst mér vel takast til í Adagiokaflanum þar sem glöggt kom í ljós hve vel samspilandi tréð og strengimir eru. Raunar mátti bóka að eitthvað mikið væri að ef ekki gengi vel á þessum tónleikum. Efriisskráin var það sem nefna mætti „Programme Jacquillatique“, nákvæmlega af þeirri sort sem honum og hljóm- sveitinni tekst svo vel að leika saman. EM A óeins þaó besta fyrir ykkur. SKÍÐASKÁOnn Hveradölum. Sími 99-4414 og 10024. Árshátídir,' þorrablót, fundaþjónusta, einkasamk vœmi, brúðkaupsveislur. Sjáum um flutninga áfólki til ogjrá Hveradölum. Eigum til afgreiðslu nú þegar mikið úrval notaðra rafmagns- og dísillyftara, enn- fremur snúninga- og hliðarfærslur. Tökum lyftara upp í uppgerðan, lyftara. Flytjum lyftara, varahluta- gerðaþjónusta. Líttu inn - við gerum þér tilboð. leigjum og við- Tökum lyftara í umboðssölu. LYFTARASALAN HF., Vitastig 3, simar 26455 og 12452. _J SMÁAUGLÝSINGAR DV MARKAÐSTORG TÆKIFÆRANNA Þú átt kost á aö kaupa og selja allt sem gengur kaupum og sölum. Bara aö nefna þaö í smáauglýsingum DV, hinu ótrúlega markaöstorgi tækifæranná. Markaöstorgiö teygir sig víöa. Þaö er sunnanlands sem noröan, vestan sem austan, í bátum sem flug- vélum, snjóbílum sem fólksbílum, hvarvetna er DV lesiö. Einkamál. Já, paö er margt / gangi á markaöstorginu, en um hvaö er samiö er auövitaö einkamál hvers og eins. Sumir borga meö fínpressuöum seölum. Menn nýkomnir úr banka? Þarf alls ekki aö vera. Gætu hafa keypt straubretti á markaöstorginu daginn áöur. Smáauglýsingar DV eru markaöur meö mikinn mátt. Þar er allt sneisafullt af tækifærum. Þaö er bara aö grípa þau. Þú hringir... ViÖ birfim... Það ber árangurl Smáauglýsingadeildin er í Þverholti 11. Opið: Mánudaga-föstudaga, 9.00—22.00 -p laugardaga, 9.00— 14.00 sunnudaga, 18.00—22.00 ER SMÁAUGLÝSINGABLAÐK)

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.