Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1986, Qupperneq 4
4
DV. MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR1986.
Niðurstöður skoðanakönnunar DV:
Greinilegur meirihluti
styður ríkisstjórnina
Ríkisstjórnin hefur nú aftur
traustan meirihluta landsmanna á
bak við sig. Það sýnir skoðana-
könnun sem DV gerði um síðustu
helgi. I næstu könnun á undan, í
septemberlok, munaði mjóu á fylg-
ismönnum og andstæðingum
stjórnarinnar. Nú hefur bilið
breikkað.
I könnuninni nú sögðust 35 pró-
sent vera fylgjandi stjóminni, sem
er aukning um 0,2 prósentustig frá
septemberkönnuninni. 31 prósent
kváðust andvígir stjórninni, sem
er fækkun um 1,7 prósentustig frá
fyrri könnun. Óákveðnir eru nú
26,7 prósent, sem er minnkun um
0,8 prósentustig frá september. 7,3
prósent vildu ekki svara spurning-
unni, en voru 5 prósent í september.
Þetta þýðir að 53 prósent þeirra,
sem taka afstöðu, styðja stjómina.
Þeir vom 51,6 prósent í september.
47 prósent eru andvígir stjóminni
en voru 48,4 prósent í september.
Þetta er ekki mjög mikill munur
frá fyrri könnun en gerir þó það
að verkum að meirihluti rikis-
stjórnarinnar er nú klár en var
Niðurstöður skoðanakönnv •irinnar um fylgi rikisstjórnarinnar urðu þessar. Til samanburðar eru
..iðurstöður fyrri DV-kannana á kjörtimabilinu:
Nú Sept. '85 Júni ‘85 Mars '85 J»n. ’85 Okt. ’84 M»i '84 Mars'84 Okt. '83
Fylgjandi 210 eða 35% 34,8% 36,7% 40% 35% 34% 49.5% 56,8% 48,2%
Andvigir 186 eða 31% 32,7% 31,3% 37,8% 41% 38,5% 23.7% 17,2% 27,7%
Úákveðnir 160 eða 26.7% 27.5% 23,7% 15,8% 13,3% 16,8% 19,2% 21,5% 20,7%
Svara ekki 44 eða 7.3% 5% 8.3% 6.3% 17.7% 10,7% 7,7% 4,5% 3,5%
Ef aðeins eru teknir þeir, sem tóku afstöðu, verða niðurstöðurnar þessar:
Nú Sept. '85 Júní '85 Mars '85 Jan. '85 Okt. '84 Mal 'B4 Mars '84 Okt. '83
Fylgjandi 53% 51,6% 53,9% 51.4% 46,1% 46,9% 67,7% 76,8% 63.5%
Andvígir 47% 48,4% 46,1% 48,6% 53,9% 53,1% 32,3% 23,2% 36,5%
Ummæli fólks
í skoðanakönnuninni:
„SÉ EKKERT BETRA”
Karl á Reykjavíkursvæðinu
sagði að ríkisstjórnin hefði margt
gott gert, þegar hann svaraði
spurningu DV. Kona á Reykjavík-
ursvæðinu kvaðst styðja stjórnina
af því að við fengjum ekkert betra,
færi stjómin frá. Karl á Reykjavík-
ursvæðinu sagði að stjómin gerði
ekki nokkum skapaðan hlut. Kona
á höfuðborgarsvæðinu kvaðst ekk-
ert hafa spáð í þetta og hún fylgdist
illa með. Kona á Reykjavíkursvæð-
inu sagðist ekki trúa að við fengj-
utn nokkra betri stjórn. Önnur
sagðist telja að hver maður í þess-
ari stjóm gerði það sem hann gæti.
Karl í Borgarnesi kvað stjómina
lifa of flott. Ráðherrar hefðu of
flotta bíla. Karl á Akranesi taldi
stjómina mjög lélega. Karl í Ól-
afsvík kvað þetta verstu stjórn
sem setið hefði. Kona á Reykjavík-
ursvæðinu var andvíg stjóminni
af því að kjörin færu versnandi.
Karl á Reykjavíkursvæðinu sagð-
ist fylgjandi stjóminni en hana
skorti festu. Kona á Norðurlandi
sagðist fylgja ríkisstjórninni. Hún
kvaðst vilja halda friðinn. Karl á
Norðurlandi sagðist ekki sjá neitt
betra. Kona í Eyjum sagði að
stjómin mætti sigla sinn sjó.
- HH
tæpast marktækur í fyrri könnun-
inni.
Ríkisstjómin hefurstundum áður
haft meira fylgi en nú, einkum í
byrjun kjörtímabilsins. Sjá töflu og
línurit.
Konur eru andvígari ríkisstjórn-
inni en karlar. Lítilsháttar meiri-
hluti kvenna er andvígur stjórn-
inni en töluverður meirihluti karla
fylgjandi henni. Fylgi stjómarinn-
ar er meira úti á landi en á höfuð-
borgarsvæðinu.
Spurt var: Ertu fylgjandi eða
andvígur ríkisstjórninni? Úrtakið
var 600 manns, og var jafnt skipt
milli kynja og jafnt milli Reykja-
víkursvæðisins og landsbyggðar-
innar. - HH
I dag mælir Dagfari_______I dag mælir Dagfari________I dag mælir Dagfari
Samvinnustefnan í framkvæmd
Kaupfélagið á Svalbarðseyri er ekki
stórt fyrirtæki á landsmælikvarða.
Þetta er eitt af þessum snotru
kaupfélögum, sem samvinnumenn
hafa rekið á kostnað byggðarlags-
ins undir því yfirskini að byggðar-
lagið lifði á kaupfélaginu. Má það
svosum til sanns vegar færa í ekki
stærra plássi heldur en Svalbarðs-
eyri, þar sem á annað hundrað
manns hafast við með því að vinna
hjá Kaupfélaginu. Sannast þar hin
gullna kenning Samvinnuhreyfmg-
arinnar að byggðarlagið komist
ekki af án kaupfélagsins og kaup-
félagið komist ekki heldur af án
byggðarlagsins.
Nú hefur komið í ljós að kaup-
félagsstjórinn og gjaldkerinn hafa
tekið þessa samvinnukenningu
bókstaflega. Þeir lánuðu sem sé
sjálfum sér allríflegar upphæðir úr
sjóðum Kaupfélagsins til að standa
undir húsakaupum sjálfra sín -
hafa sjálfsagt haldið að þitt væri
mitt og mitt þitt í öllu því bræðra-
lagi og þeim samvinnuanda, sem
ríkir á aðalfundum SIS, þegar
hugsjónirnar eru dregnar fram til
hátíðarbrigða.
Ekki er heldur ólíklegt að kaup-
félagsstjórinn og gjaldkerinn hafi
talið sér leyfast það sem höfðin-
gjarnir hafast að. Er þá átt við
kaffibaunamálið fræga þar sem
Sambandsforstjórinn og aðrir for-
kólfar færðu tvö hundruð milljónir
til í bókhaldinu og kölluðu það
millifærslur frá dótturfyrirtæki til
móðurskips. Það telst ekki svindl í
augum Samvinnuhreyfmgarinnar
meðan peningarnir fara ekki út
fyrir hennar eigið bókhald. Al-
menningi kemur ekki við hvað SÍS
er að aðhafast í reikningshaldi og
millifærslum meðan þeir sam-
bandsmenn eru með milljónirnar á
eigin vegum eða í eigin vösum.
Kaupfélagsstjórinn á Svalbarðs-
eyri hefur litið á kaffibaunirnar
sem gott fordæmi. Hann lánaði
sjálfum sér nokkrar milljónir til að
byggja sér einbýlishús og getur
vitaskuld bent á að þessir peningar
Kaupfélagsins hafi alls ekki farið
út úr vösum Samvinnuhreyfmgar-
innar. Það sem hann gerði var
einfaldlega að millifæra þessar
krónur frá Kaupfélaginu yfir til
sjálfs sín. Og þetta gerði gjaldker-
inn líka, svo báðir vissu um hinn
og sameiginlega bera þeir jú ábyrgð
á fjárreiðum þessa kaupfélags.
Af hveiju mega ekki smákallarn-
ir með kaupfélögin millifæra eins
og stóru kallarnir fyrir sunnan?
tEini munurinn er sá að í kaffi-
baunamálinu voru millifærðar tvö
hundruð milljónir en hjá þeím á
Svalbarðseyri voru þetta skitnar
ijórar eða fimm. Erlendur Einars-
son hefur réttilega bent á, að enda
þótt peningar séu teknir ófijálsri
hendi, skipti það ekki öllu meðan
enginn tekur neitt frá samfélaginu.
Sambandið mátti millifæra frá
Kaffibrennslunni. Af hverju mega
þá ekki kaupfélagsmenn millifæra
frá kaupfélaginu?
Þeir segja í fréttunum að Kaup-
félagið á Svalbarðseyri sé komið á
hausinn. En hver tapar á því? Ekki
fólkið á staðnum, sem hefur notið
þjónustunnar og fyrirgreiðslunnar.
Ef Kaupfélagið tapar þá er það af
því að hagnaðurinn hefur verið
yfirfærður til fólksins.
Ekki Samvinnubankinn, sem
hefur lánað áttatíu milljónir til
Svalbarðseyrar. Erlendur segir að
svona lánastarfsemi sé millifærsla
og banki Samvinnuhreyfingarinn-
ar hlýtur að starfa samkvæmt þess-
ari millifærsluaðferð. Ekki kaup-
félagsstjórinn eða gjaldkerinn sem
hafa geta byggt sér hús með aðstoð
Kaupfélagsins.
Nei, það hefur enginn tapað neinu
á Svalbarðseyri, þar sem sam-
vinnustefnan er nýtt til hins ýtr-
asta með millifærslum og gjald-
þrotum, samkvæmt þeirri kenn-
ingu að byggðarlagið lifi á kaup-
félaginu og kaupfélagið á byggðar-
laginu.
Dagfari