Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1986, Síða 8
DV. MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR1986.
Utlönd Utlönd Utlönd Utlönd
Soweto-
unglingar
af tur í
Blakkir skólakrakkar í blökku-
mannaborginni Soweto við Jóhann-
esarborg í Suður-Afríku sóttu aftur
tíma í skólum borgarinnar og enduðu
þar með mótmæli sín við kynþátta-
aðskilnaði stjórnarinnar.
Nemendurnir hafa ekki sótt
kennslustundir í tæpan mánuð á
þessu misseri.
Ráðstefna blakkra nemenda, kenn-
ara og foreldra, er haldin var í Suð-
ur-Afríku fyrr í þessum mánuði, hafði
hvatt til þess að skólafólkið sneri
aftur í skólann.
Á sama tíma og skólagangan hó. ‘
að nýju gaf ríkisstjórnin i Pretóríu
út yfirlýsingu þar sem lofað var
umbótum í kennslumálum blökku-
manna og sagt að stefnt skyldi að
jafnrétti allra kynþátta til náms
innan næstu tíu ára.
Ugandaforseti
sver
embættiseið
Yfirmenn skæruliða í Uganda, er
hertóku höfuðborgina Kampala um
helgina og steyptu stjórn Okello
hershöfðingja, lýstu því yfir í gær
að nýr forseti landsins myndi sverja
embættiseið sinn í dag.
Tilkynning skæruliða minntist
ekkert á hver yrði útnefndur forseti.
Erlendir stjórnarerindrekar í höf-
uðborginni kváðust enga staðfest-
ingu hafa á væntanlegu forsetaefni
en kváðu allar líkur á að það yrði
Yoweri Museveni, leiðtogi skærulið-
anna, er barist hafa við stjórnar-
herinn síðustu mánuði.
Ástandið í höfuðborginni er nú
óðum að færast í eðlilegt horf eftir
stjórnarskiptin og fólk farið að snúa
aftur til vinnu.
Áhöfnin á Challenger í stjórnklefanum gerir sig tilbúna fyrir hið örlagarika flug. Frá vinstri: Mike Smith, Ellison S. Onizuka, Judith A. Reznick og
Francis R. Scobee. Hinir þrír áhafnarmeðlimirnir sátu aftar í geimfeijunni.
AHOFN CHALLENGERS
Um borð í geimskutlunni „Chal-
lenger“ í þessari hinstu ferð hennar
voru sjö geimfarar, þar á meðal
fyrsti óbreytti borgarinn, mennta-
skólakennari að nafni Christa
McAuIiffe.
Hin 37 ára gamla McAuliffe frá
Concord í New Hampshire var
valin í júlí síðasta sumar úr hópi
meira en 11 þúsund kennara sem
sótt höfðu um þátttöku í þessari
áætlun.
Aðrir í áhöfninni voru:
Francis R. Scobee, 46 ára, með
commander-nafnbót úr flotanum,
gekk í þjónustu bandarísku geim-
ferðastofnunarinnar 1978. Hann
hafði byrjað herþjónustu 1965 og
meðal annars þjónað í Víetnam.
Hann var flugmaður í flugi skutl-
unnar 1984 og átti að baki 6.500
flugtíma í 45 mismunandi flugvél-
um.
Michael Smith, 40 ára commander,
varð geimfari 1980. Hann átti að
fljúga Challenger í þessari ferð.
Þegar hann þjónaði sem flugmaður
í Víetnam var hann heiðraður
nokkrum sinnum fyrir framgöngu.
Judith Resnick, 36 ára, ein af þrem
geimferðasérfræðingum í áhöfn-
inni. Hún varð geimfari 1978 og
átti að baki 145 flugtíma úti í
geimnum.
Ronald McNair, 35 ára geimferða-
sérfræðingur, varð geimfari 1978.
Hann hafði doktorsgráðu í eðlis-
fræði og hafði að baki 191 flugtíma
úti í geimnum.
Ellison Onizukas, 39 ára, ofursti
úr flughernum og tilraunaflug-
maður, gekk í þjónustu geimferða-
stofnunarinnar 1978.
Gregory Jarvis, 42 ára, rafeinda-
tæknir og hleðslustjóri leiðangurs-
ins.
*
OHAPPAUTIL SAGA
GEIMSKUTLANNA
Þrátt fyrir eilíf vandamál með hita-
vamarplötur, lendingarbúnað og
fleira voru menn famir að líta á
geimskutluflugið sem vanaverk, þar
til í gær. Allt til þess hafði geimskutl-
an reynst furðu traust farartæki.
Skutlumar hafa farið 24 ferðir út
í geiminn með tugi manna og millj-
óna dollara útbúnað, brautryðjendur
hagkvæmari geimferða, áætlunar-
bundinna í framtíðinni, jafnt í þágu
vísinda, hermála, verslunar og borg-
ara. - Það væri synd að segja að
skutluáætlunin hefði gengið eins og
ísögu.
Þessi mynd sýnir Challenger 15
sekúndum eftir að henni var skotið
á loft, tæpri minútu fyrir spreng-
inguna.
Þegar fyrsta skutlan, Columbía,
tókst á loft frá Kennedyhöfða 12.
apríl 1981 var áætlunin orðin mörg-
um árum á eftir því sem gert hafði
verið ráð fyrir og hún hafði kostað
milljörðum dollara meira en áætlað
hafði verið þegar drögin voru lögð í
byrjun áttunda áratugarins.
Fimm árum síðar var enn við ýmsa
tækniörðugleika að stríða og frest-
anir á frestanir ofan einkenndu
geimskotin. En alls hafa þetta orðið
tvær tylftir geimferða fjögurra
skutla, þar sem ávallt tókst að yfir-
stíga örðugleikana, og skutlumar
skiluðu sér jafnan heim aftur til
jarðar.
Það verk að hanna og byggja geim-
far, sem skjóta mætti á braut úti í
geimnum og ná aftur niður til jarðar
til áframhaldandi notkunar í fleiri
geimferðum, reyndist vandasamara
og dýrara en nokkum hafði órað
fyrir. Þar reyndist eitt erfiðasta
tæknivandamálið að veija skutluna
fyrir núningshitanum þegar hún
sneri aftur inn í gufuhvolfið á fiöm-
tíuföldum hraða hljóðsins. Aðrir
erfiðleikar snerust um aðalhreyfl-
ana, sem knúnir voru eldsneyti í
vökvaformi, spmngna hjólbarða eða
bilaða hjólhemla og galla í lending-
arbúnaði. Enda ekki annað látið
duga til viðgerða en það sem þætti
ömgg og endanleg lausn.
25 þúsund misstu
heimilin í flóði
Vitað er um sjö manns, að
minnsta kosti, sem farist hafa í
flóðunum í Puno-héraði í Perú,
en í þeim hafa um 25 þúsundir
misst heimili sín. Flæddi þar yfir
25 þúsund hektara af kartöflu-
ekrum og rúg og yfir þúsund
nautgripir dmkknuðu. - Úrhell-
isrigningar hafa komið vatninu
Titicaca til þess að flæða yfir
bakka, en það vatn stendur hæst
allra stöðuvatna í heimi. Smá-
bændur, sem bjuggu á bökkum
vatnsins, neyddust til þess að
flýja heimili sín.