Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1986, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1986, Síða 16
16 DV. MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR1986. Spurningin Finnst þér þorramatur góður? Vignir Arnarson bifvélavirki: Já hann er ágætur, alveg ágætur. Ég er sólginn í sumt en mér fmnst þetta súra ekkert sælgæti. Þorvaldur Halldórsson nemi: Hann er já ágætur, hangikjötiö best en hákarl finnst mér ekki góður. Mér fmnst þorramatur yfirleitt góður. Gunnar Karlsson verslunarmaður: Mjög góður, mér fmnst hann allur jafn góður. Ég borða allt sem nöfnum tjáirað nefna. Arndís Sigurðardóttir húsmóðir: Al- veg svona ágætur, en það er innan um sem ég borða ekki. Mér finnst hákarlinn sérstaklega góður, tala nú ekki um með óbörðum hákarli eða lúðu. Ragnhildur Lárusdóttir, í verslunar- störfum: Já, mjög góður en mér þykir ekkert sérstaklega betra en annað. Ég borða ekki hákarl en allt annað með bestu lyst. Agnes Ýr Þorláksdóttir, vinnur í Hagkaup: Ég hef aldrei smakkað hann nema náttúrulega hangikjöt sem er ágætt. Ég borða ekki svið, þau eru ógeðsleg og sama er að segja um hrútspunga. Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur „Glæpamönnum á að standa ógn afvörðumlagaogréttar.“ Vopnuð löggæsla sjálfsögð - en breytinga þörf Löghlýðinn skrifar: Það var mjög tímabær ráðstöfun að koma á fót vopnaðri gæslu á Keflavíkurflugvelli. Raunar verður ekki séð að það ástand sé tímabundið að verja eina millilandaflugvöll okkar fyrir hryðjuverkamönnum. Völlurinn er jafnopinn fyrir slíkum mönnum næsta sumar og þar næsta og nú í janúar, 1986. Það er samt ýmislegt sem aðgæta verður í þessu sambandi. Það er ekki rétta aðferðin til að framkvæma þessa vopnuðu gæslu að hafa hina vopnuðu öryggisverði við anddyri farþegaafgreiðslu og með fingur á gikk. Alls staðar þar sem vopnað eftirlit er til staðar eru vopnaðir verðir hafðir afsíðis, jafnvel þar sem enginn ferðamaður getur séð þá og eiga verðirinir þó greiðan aðgang að athafnasvæði ef eitthvað ber út af. Léttvopnaðir löggæslumenn ættu einnig að vera þama og þá geta þeir verið á ferli innan um farþega og almenning eins og víða tíðkast. Eins er ekki heppilegt, hvorki fyrir verðina sjálfa eða þá sem verða á vegi þeirra, að þeir séu klæddir borg- aralegum lögregluþjónsbúningi. Þessir menn ættu miklu fremur að vera klæddir léttum og liprum bún- ingi, líkt og víkingasveitarmenn okkar klæðast, og ávallt að bera skotheld vesti innan klæða eða utan. En mest er um vert að þessi varð- gæsla er komin í gang og engin ástæða er til að slaka þar á um ókomna framtíð. Þetta leiðir hugann að því hvort ekki er tími til kominn að götulög- reglan hér í höfuðborginni sé búin skotvopnum, eins og alls staðar tíðk- ast, einnig á öllum Norðurlöndunum. Það er ekki vansalaust að lög- reglumenn skuli ekki geta verið óhultir fyrir afbrotamönnum sem ætíð ganga hér lausir, eins og dæmin sanna. Við borgaramir erum heldur ekki óhultir fyrir hvers kyns glæpa- mönnum nema að við séum þess full- vissir að lögreglan geti fengist við glæpamenn ef í harðbakka slær en það gerist nú æ oftar. Glæpamönnum á að standa ógn af vörðum laga og réttar. Og borgar- amir bera mun meiri virðingu fyrir mönnum sem eru þess umkomnir að bregðast við fljótt og vel. Það er einunigs einn angi hinnar séríslensku minnimáttarkenndar sem orsakast af sterkri einangmn frá öðrum þjóðum og sambandsleysi við þær (nema maður greiði offjár fyrir símtöl eða fargjöld) að halda að þessi þjóð sé löghlýðnari en aðrar þjóðir. Léleg f rétta- þjónusta útvarps ogsjónvarps Kristinn Sigurður skrifar: Mér finnst fréttaþjónusta útvarps og sjónvarps léleg, t.d. hlusta ég oft á það í BBC og fleiri stöðvum sem ekki heyrist í okkar útvarpi og sjón- varpi. Dæmi um það er þegar flugvél var rænt í Sovétríkjunum, nánar tiltekið i innanlandsflugi og vélinni snúið til Kína. Aldrei heyrði ég minnst á þetta í okkar sjónvarpi eða útvarpi. En það má segja að þetta sé stórfrétt enda sagði BBC frá þessu í mörgum fréttatímum. Annað dæmi er þegar ensk hús- móðir fannst myrt á sólarströnd Spánar, eða á Torremólínos. Hún hafði verið þar með manni sínum og börnum. Þessi frétt komst aldrei til skila gegnum íslenska fjölmiðla. Ótal dæmi önnur gæti ég tekið en þetta nægir. Hvað veldur? Einnig er furðulegt að sömu fréttir eru klukkan 19, 22 og 24. Yfirleitt er efnið það sama þó svo að ýmsu mætti bæta við. Hlustið á BBC-fréttir sem eru á heilum tímum og þá má sjá hversu lélegar fréttir íslenska sjónvarpsins og útvarpsins eru. Bréfritari er ekki nógu ánægður með íslenskan fréttaflutning. -Bifretðastoð teínúdrs Almenningur vill Jóhann G. Guðjónsson skrifar: „Forseta borgarstjómar afhent mótmæli 250 leigubifreiðastjóra". Þetta las ég í blöðum fyrir nokkru. Leigubílstjórar mótmæltu með undirskrift sinni. Þeir mótmæltu því að almenningur nyti þjónustu sem mikil þörf virðist vera fyrir, að minnsta kosti notar almenning- ur bíla stöðvarinnar mikið. Það er að segja: ljóst er að almenningur hefur mikla þörf fyrir þessa þjón- ustu. Almenningur vill þjónustu smásendibílanna, ella hefðu bíl- stjórar þeirra gefist upp strax á fyrstu vikunum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.