Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1986, Qupperneq 17
DV. MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR1986.
17
Lesendur Lesendur Lesendur
,Nú nenntu menn að standa í þessu og hröpuðu ekki fyrir björg egóhúmorsins.
Nú hlær Vörður
Sigurgeir vélritar:
Kæri Vörður! Ertu snarvitlaus?
Nei, elsku vinir, ég er ekki einn
af þeim holu. Allir sem náðu ekki
upp í nef sér fyrir hneykslun höfðu
sig að Ingjaldsfiflum. Hvort sem
þau bölvuðu bak við eldhúsborð
eða skrifuðu í blöðin. En auðvitað
eru þau aðal Ingjaldarnir sem
skrifuðu. Þar fékk lesendasíðan
feitan bita. Ekkert er skemmtilegra
en að lesa þessar hneykslisgreinar
sem lýsa best smáborgarahætti
samfélagsins. Nú veltist Vörður um
af hlátri. Markmiðið hjá honum
var einmitt þetta. Sama má segja
um þann sem vildi láta skrúfa niður
í hljómsveitunum. Hann hlær líka.
Auðvitað var skaupið fyndið,
margfalt fyndnara og betur unnið
en í hittifyrra. Nú nenntu menn
að standa í þessu og hröpuðu ekki
fyrir björg egóhúmorsins. Trúlega
var líka meira fé varið i þetta. Eg
skal éta skóna mína og reimarnar
og mannbroddana og skóhorn og
skóáburð með húð og hári upp á
að Vörður hafi hlegið manna hæst
og mest. Jafnvel heila skóbúð.
Þeir sem hafa gaman af ómældum
hlátri ættu að verða sér úti um
myndina Top Secret. Ef þeir eru
þegar búnir að sjá hana þá bara
aftur. Hún er að mínum dómi og
kannski þeirra sem sköpuðu
skaupið ein besta grínmynd sem
gerð hefur verið. Áhrifa hennar
gætir víða. Sjónvarpið hefur verið.
eitt aðalþrætuefni þjóðarinnar frá
upphafi. Allir eru hundóánægðir
og sífellt kvartandi. Ein miðstýrð,
ríkisrekin sjónvarpsrás er vonlaus.
Hún getur ekki fylgt tímanum,
sama hvaða fuglar eru settir á tafl-
borðið. Eins og Gorbatsjov. Sem
betur fer er þetta á undanhaldi.
Við vorum nokkrir vinnufélagar
að tala um nokkra vinnufélaga sem
voru að tala um löggurnar á Kefla-
víkurflugvelli. Þó fáir séu júðamir
hér þá höfum við mjög gott frétta-
samband við útlönd og það sem
vakir fyrir hermdarverkamönnum
er að vekja athygli á sér og sínum
málstað. Hvaða land er betra en
ísland? Vörður er sniðugur.
L í-'O' :
Þættir ó borð við Á líðandi stundu eru merki um þó góðu þróun sem að sögn önnu ó sér stað í sjónvarpinu,
Hárgreiðslustofa
Eddu Hinriks,
Æsufelli 6, Breiðholti
Sími 72910.
Opið til kl. 8.00 á fimmtudögum
og laugardögum kl. 10-16.
St. Jósefsspítali Landakoti
Fóstra
óskast á dagheimilið Brekkukot (börn á aldrinum 3-6
ára). Upplýsingar í síma 19600-250 milli kl. 9 og 16.
Reykjavik 28.01.1986.
NÝTT! - NÝTT!
Ertu með gamalt og slitið baðsett?
Gerum gamla baðsettið eins og nýtt á 24 tímum!
Völ erá 21 lit!
Eins árs ábyrgð á verki.
Hafðu samband og við gerum þér tilboð að kostnað-
arlausu.
Ragnar Karlsson,
símí 39990.
getrguna-
VINNINGAR!
VINNINGSRÚÐ:
1 X 2-1 2 1 -X X 1 -X X X
1. VINNINGUR: 12 RÉTTIR,
kr. 276.680
42337(4/11) 53771(4/11) 65890(4/11) 99909(6/11)
2. VINNINGUR: 11 RÉTTIR,
kr. 4.839
8275 48443 + 65891 96398 105180+ 126578 129364 136214+
12163 50316 69184 96506+ 106021 126869 131697*
19675+ 51689+ 71662+ 96850+ 109539+ 127112 131903+ Úr 21. v.:
20388 51813 74297 97578+ 110498 127885+ 131904 15296+
29589 + 56561 74298 100730 111075 127984* 132070+ 15386+
40475 56562 74706 100910+ 111119+ 128532 133329+ 15689+
42336 59677 76913 101517 111490+ 128597 133427 110938
42338 62010 78989+ 104030 125044 128688* 134714+
45138 65701+ 80442*+ 104655+ 125618 128732 134778 * = 2/11
46414 65889 81537 104975+ 125848* 129217 136195+
Kærufrestur er til mánudagsins 17. febr. 1986. kl. 12.00 á hádegi.
Gott Ríkisútvarpið
Anna skrifar.
Mig langar til í þessu bréfi að
lýsa yfir ónægju minni með dag-
skrá sjónvarpsins. Og ekki myndi
' það spilla fyrir ef það gæti orðið
innlegg í jákvæða umfjöllun um
stofnunina Ríkisútvarpið- sjón-
varp. Mér hefur fundist dagskrá
sjónvarpsins taka miklum og góð-
um breytingum í rétta átt og vona
ég að svo verði áfram. Einkum og
sér í lagi hefur innlent efni breyst,
allt frjálsara, opnara og eðlilegra.
Eru þættir á borð við Á líðandi
stundu prýðilegt dæmi um þessa
þróun. Nú, annar þáttur kemur upp
í hugann en þar á ég við þáttinn
Kvöldstund með listamanni. Mér
leist vel á hann. Þeir félagar Megas
og Bubbi komu eðlilega fyrir, eins
og þeirra var von og vísa, létu fara
vel um sig og spjölluðu tæpitungu-
laust. Ungir, nýir menn, sem ráðnir
hafa verið við RÚV, eiga vafalítið
sjónvarp
sterkan þátt í þessari þróun, með
fullri virðingu fyrir öðrum. En
hvað um það, haldið áfram ó þess-
ari braut.
En það er allt í lagi að sýna
Dallas áfram og annað viðlíka efni.
Margir hafa gaman af því og er
ekki nema gott eitt um það að
segja. En ég má ekki vera að því
að sitja alltaf fyrir framan sjón-
varpið.
íslenskar Getraunir, íþróttamidstöðinni v/Sigtún, Reykjavík
Kærur skulu vera skriflegar. Kærueyðublöð fást hjá umboðsmönn-
um og á skrifstofunni I Reykjavík. Vinningsupphæðir geta lækkað,
ef kærur verða teknar til greina.
Handhafar nafnlausra seðla (+-) verða að framvísa stofni eða
senda stofninn og fullar upplýsingar um nafn og heimilifang til
islenskra Getrauna fyrir lok kærufrests.