Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1986, Page 19
DV. MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR1986.
19
Endapunkturinn settur á ár æskunnar:
„UMFJÖLLUN FJÖL-
MIÐLA SLÖKUST”
„Persónulega finnst mér árið
hafa heppnast með ágætum þó svo
að alltaf sé hægt að gera betur. Það
sem mér finnst þó vera slakast var
umfjöllun fjölmiðla um unglingana
en hún var nánast engin,“ sagði
Ágúst Orri Sigurðsson í ræðu á
Kjarvalsstöðum þegar endapunkt-
urinn var settur á ár.æskunnar á
Kjarvalsstöðum fyrrir skömmu.
Þar var rætt um skipulag og fram-
kvæmd árs æskunnar. Þar voru
sýnd myndbönd um helstu viðburði
ársins og fjórir fulltrúar unglinga
sögðu frá viðhorfum sínum til
framkvæmda á árinu. Ágúst Orri,
nemi í 9. bekk í Réttarholtsskóla,
var einn þeirra. Hann var líka
forseti borgarstjórnar Reykjavíkur
í rúman klukkutíma 24. október sl.
þegar borgarstjórnarfundur ungl-
inga var haldinn þar.
I ræðu sinni nefndi hann ýmsa
atburði liðins árs og sérstaklega
borgarstj órnarfundinn.
„Af öllum þeim fjölmörgu fundum
sem haldnir voru á árinu var einn
öðrum sérstæðari. Það var borgar-
stjórnarfundur unglinganna sem
haldinn var 24. október,“ sagði
forsetinn fyrrverandi í ræðu sinni
á Kjarvalsstöðum. Atriði, sem
unglingarnir fjölluðu um í fram-
söguræðum sínum á fundinum,
voru um byggingu æskulýðshallar,
breytingar hjá Strætisvögnum
Reykjavíkur og lögð var fram til-
laga um að stofnanir fyrir fíkni-
efna- og. afbrotaunglinga yrðu
bættar. Skorað var á borgaryfir-
völd að beita sér fyrir því að auka
fræðslu um skaðsemi fíkniefna.
Það var almennt mál manna, sem
hlýddu á málflutning unglinganna
á borgarstjórnarfundinum, að
hann hefði verið þeim öllum til
mikils sóma. Einn skuggi var á
setu unglinganna í borgarstjórn,
sagði Ágúst Orri, og það var fjar-
vera borgarstjórans.
Viðræðuþáttur, sem var í sjón-
varpinu þar sem unglingum gafst
kostur á að spyrja forsætisráðherra
og menntamálaráðherra spjörun-
um úr, mæltist vel fyrir á meðal
unglinganna.
„Það sem æskufólk landsins þarf
að sameinast um að gera núna er
að halda áfram að vinna að málefn-
um okkar þó að árið, sem okkur
var tileinkað, sé úti. Og umfram
allt skulum við vera jákvæð og líta
björtum augum til framtíðarinn-
ar.“ Með þessum orðum lauk Ágúst
Ágúst Orri Sigurðsson, einn fjög-
urra unglinga sem „gerðu úttekt á
áriæskunnar".
DV-myndirKAE
Orri Sigurðsson umfjöllun sinni um
ár æskunnar.
Hugmyndir kaffærðar
„Við unglingarnir bundum mikl-
ar vonir við það ár sem nú er nýlega
liðið. Það ár var tileinkað, eins og
flestir vita, æskulýðnum. Margar
góðar hugmyndir um ýmiss konar
uppákomur og gerðir skutu upp
kollinum. En raunin varð sú að þær
voru tlestar kaffærðar strax við
fæðingu," sagði Sæunn Þórðar-
dóttir í ræðu sem hún flutti á
Kjarvalsstöðum. Sæunn er nemi í
9. bekk Seljaskóla. Sæunn sagði í
ræðu sinni að ein hugmynd hefði
ekki verið kaffærð og það var borg-
arstjórnarfundurinn. En hún gagn-
rýndi fjarveru borgarstjórans og
litla umfjöllun fjölmiðla um fund-
inn.
„Fjölmiðlarnir hefðu líklega
slegið þessu upp í forsíðufrétt með
æsandi fyrirsögn ef þessir sömu
unglingar hefðu dottið rækilega í
það og hagað sér eins og fullorðna
fólkið hagar sér um helgar," sagði
Sæunn. „Þessi árátta fjölmiðla að
birta sem níðingslegastar fréttir
um þröngan hóp unglinga hefur
haft þær afleiðingar að margir telja
okkur aðeins heimtufreka og hug-
myndasnauða einstaklinga. Þessu
hefur ekki verið reynt að breyta á
ári æskunnar frekar en svo mörgu
öðru,“ sagði Sæunn Þórðardóttir
Leiðbeina fullorðnum
Hún gerði að umtalsefhi aðstöðu-
leysi í mörgum skólum og sérstak-
lega skort á bókasöfnum. Einnig
var hún ósátt við kynningar á
námsleiðum. Varðandi það sagði
hún: „Fram að þessu hefur sáralítið
verið gert til að kynna okkur
námsleiðir og starfsval í framtíð-
inni. Við unglingarnir munum
fylgjast með því að sú nefnd, sem
skipuð var til að ráða fram úr
þessum málum, verði ekki bara upp
á punt.
Ég vona að í framtíðinni fáum
við unglingarnir að leiðbeina full-
orðna fólkinu meira um málefni
æskunnar,“ voru lokaorð ræðu
Sæunnar.
Á fundinum á Kjarvalsstöðum voru
viðurkenningarskjöl afhent ungl-
ingum sem tóku þátt í félagsmála-
námskeiðum í nóvember sl. Til
fundarins boðaði íþrótta- og tóm-
stundaráð Reykjavikur (Æsku-
lýðsráð) og Skólaskrifstofan.
ÞG
STÆRSTU
AUGLÝSINGA-
STOFURNAR
SAMEINAST
Auglýsingastofa Gísla B. Björns-
sonar og Auglýsingaþjónustan, sem
var í eigu Gunnars Steins Pálssonar,
hafa verið sameinaðar í eitt fyrirtæki
undir nafninu GBB Auglýsingaþjón-
ustan. Verður fyrirtækið það stærsta
sinnar tegundar hérlendis.
„Ég er mjög ánægður með þetta,“
sagði Gunnar Steinn Pálsson, sem
verður stjórnarformaður i hinu nýja
fyrirtæki. „Það var kominn tíifti til
að hrista upp í þessum markaði. Ég
hef trú á því að við getum það með
því að sameina okkar krafta. Þessi
sameining er hugsuð til að auka
hagræðingu og þjónustu við við-
skiptavinina og um leið verður okkar
þjónusta ódýrari."
Eignarhlutföll í hinu nýja fyrirtæki
eru þannig að Gísli B. Björnsson á
34%, Gunnar .Steinn 20%, Halldór
Flutningar stóðu yfir í allan gærdag vegna sameiningar tveggja auglýsingafyrirtækja en þau eru GBB-Auglýsingastof-
an og Auglýsingaþjónustan. Hér er allt í fullum gangi. Gunnar Steinn Pálsson, fyrrum eigandi Auglýsingaþjónustunn-
ar, til hægri, ásamt félögum að flytja til húsgögn. DV-mynd KAE
Guðmundsson 17%, og verður hann Guðjón Eggertsson 17% og Haukur
framkvæmdastjóri fyrirtækisins, Hannesson 12%. Verður fyrirtækið
til húsa að Brautarholti 8 í Reykja-
vík. - KÞ