Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1986, Síða 32
mm*
32
DV. MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR1986.
Filippia M.S. Blöndal lést 23. janúar
sl. Hún fæddist 29. ágúst 1903. Hún
var dóttir sr. Filippusar Magnússon-
ar og konu hans Ólínu Jónsdóttur.
Filippía lærði hattasaum í Kaup-
mannahöfn. Hún rak Hattabúð
r
í
i
*
j
1
j
í
í
!
j
Reykjavíkur um margra ára skeið.
Filippía ól upp frænda sinn, Ólaf
Kristjánsson, frá fermingaraldri.
Útför hennar var gerð frá Hallgríms-
kirkju í morgun.
Július Jónsson bifreiðarstjóri,
Klapparstíg 3, Keflavík, andaðist í
Borgarspítalanum þriðjudaginn 28.
janúar.
Sigríður H. Stefánsdóttir, fyrrver-
andi kennari í Ólafsvík, Hátúni lOb,
Reykjavík, andaðist þriðjudaginn 28.
janúar í Landspítalanum.
Guðjón Jónsson frá Heiði í Sléttu-
hlíð, Hverfisgötu 54, Hafnarfirði, lést
þann26.janúarsl.
Björn Einarsson, áður til heimilis á
Suðurlandsbraut 95F, andaðist á
Hrafnistu aðfaranótt 27. janúar.
Esther Ingvarsdóttir, Asgarði 117,
Reykjavík, sem lést þann 23. þ. m.,
verður jarðsungin frá Fossvogs-
kirkju fimmtudaginn 30. janúar kl.
13.30.
Guðlaugur J. Alexandersson frá Sól-
bakka, Hellissandi, verður jarðsung-
inn frá Ingjaldshólskirkju laugar-
daginn 1. febrúar kl. 14. Sætaferðir
verða frá Hópferðamiðstöðinni, Ár-
túnshöfða, kl. 7 sama dag.
Sigurjón Hildibrandsson verður
jarðsunginn frá Fossvogskirkju
fimmtudaginn 30. janúar kl. 15.
Sigríður Jónsdóttir Thorlacius, Vest-
urgötu 55, verður jarðsungin frá
Dómkirkjunni31.janúarkl. 13.30.
Leiðrétting
Leiðrétting
Vegna ummæla sem höfð voru eftir
Erling Aspelund í frétt í blaðinu í
gær í tilefni af uppsögn Karls Sigur-
hjartarsonar hjá F'erðaskrifstofunni
Úrval, vill Erling koma þeirri leið-
réttingu á framfæri að hann telji það
af og frá að Karl hafi hætt hjá fyrir-
tækinu vegna sín. Ummæli þar að
lútandi í DV í gær eru á misskilningi
byggð, segir Erling Aspelund.
Fundir
Félag raungreinakennara
Almennur félagsfundur verður hald-
inn í félagi raungreinakennara laug-
ardaginn 8. febrúar kl. 14 á Sal
Menntaskólans í Reykjavík. Fundar-
efni: 1. Stærðfræðikeppni framhalds-
skólanna. Niðurstöður keppninnar
ligja nú fyrir. Greint verður frá töl-
fræðilegri úrvinnslu úr lausnum og
framhaldsþjálfun þeirra keppenda
sem stóðu sig best í forkeppninni. 2.
Sviðshugtakið og nemendur. Nýlega
hafa birst greinar í tímaritunum
Physics Teacher og European Jour-
nal of Physics eftir Leó Kristjánsson
um eðlisfræðikennslu. Hefur hann
sérstaklega fiallað um nýjar leiðir til
að gera tilraunir með rafsvið og
segulsvið. Leó hefur fallist á að koma
og greina frá þessum hugmyndum
og spjalla við félagsmenn. 3. Kaffi-
veitingar.
Aðalfundir
Kvenfélag Háteigssóknar
heldur aðalfund sinn þriðjudaginn
4. febrúar kl. 20.30 í Sjómannaskól-
anum. Venjuleg aðalfundarstörf.
LMætið vel. _____________
Ferðalög
íslandskynning i Hollandi
Arnarflug tók í síðustu viku þátt í
mikilli ferðasýningu í Utrecht í
Hollandi þar sem liðlega 100 þúsund
gestir komu. Arnarflug var með
sýningarsvæði í aðalsýningarhöll-
inni þar sem flestir gestanna áttu
leið hjá. Áhugi sýningargesta fyrir
Islandi var mjög mikill og í því
sambandi má geta þess að hollenskar
ferðaskrifstofur eru með mikið átak
í gangi til að auka ferðamanna-
strauminn til íslands í samvinnu við
Arnarfiug. I því sambandi hefur verið
gefinn út 24 síðna litprentaður ís-
landsbæklingur sem þrjár ferðaskrif-
stofur standa að. Hollendingum, sem
sækja fsland heim árlega, hefur
fiölgað stöðugt á liðnum árum, eða
frá því að Arnarflug hóf reglubundið
áætlunarfiug milli íslands og Hol-
lands. Á þessu ári má síðan búast
við verulegri fiölgun samfara miklu
markaðsátaki.
Ymislegt
Doktorsvörn
Laugardaginn 1. febrúar 1986 fer
fram doktorsvörn við læknadeild
Háskóla íslands. Ingvar Bjarnason
læknir ver doktorsritgerð sína sem
fjallar um rannsóknir á frásogseigin-
leikum garnaslímhúðar. Heiti rit-
gerðarinnar er „Studies on the Int-
estinal Mucosal Barrier“. Andmæl-
endur af hálfu læknadeildar verða
prófessor Davíð Davíðsson og Einar
Oddsson læknir. Deildarforseti
læknadeildar, prófessor Ásmundur
Brekkan, stjórnar athöfninni. Dokt-
orsvörnin fer fram í hátíðasal há-
skólans og hefst kl. 14. Öllum er
heimill aðgangur.
Tilkynningar
Eiðfaxi 1. tbl 1986 er kominn út
Þar er að finna greinar um hesta og
hestamennsku. Flosi Ólafsson,
landsfrægur hestamaður, er tekinn
tali, birt er grein um nýjar kynbóta-
einkunnir kynbótahrossa en þessar
einkunnir hefur Þorvaldur Árnason
tekið saman. Ættbók hryssna nr.
6358-6469 er birt, birtar eru mynopn-
ur í svart/hvítu og lit og fiallað er
um fiör hrossa. Nefnist greinin Vilj-
ugur, fiöróð, bráðólátur og tók Guð-
mundur Birkir Þorkelsson saman
greinina en Torfi Harðarson teiknaði
myndir. Jens Einarsson skrifar grein
um hross. Pálmi Rögnvaldsson skrif-
ar um hestamót Svaða á Hvamm-
kotseyrum og Hjalti Jón Sveinsson
skrifar um Falkenhorstbúgarðinn í
Þýskalandi. Einnig eru margar
smærri greinar um hesta og hesta-
mennsku.
Forseta afhent trúnaðarbréf
Fjórir nýskipaðir sendiherrar af-
hentu nýlega forseta Islands trúnað-
arbréf sín að viðstöddum Geir Hall-
grímssyni utanríkisráðherra. Þeir
eru: Sendiherra Sambandslýðveldis-
ins Þýskalands, hr. Hans Hermann
Haferkamp: sendiherra Ítalíu, hr.
Giuseppe Scaglia: sendiherra Sómal-
íu, hr. Ahmed Sheik Mohamoud: og
sendiherra lýðveldisins Kóreu hr.
Sung Han Song. Sendiherramir þáðu
síðan boð forseta Islands að Bessa-
stöðum ásamt fieiri gestum. Sendi-
herra Sambandslýðveldisins Þýska-
lands hefur aðsetur í Reykjavík,
sendiherra Italíu og Lýðveldisins
Kóreu í Osló, en sendiherra Sómalíu
hefur aðsetur í Stokkhólmi.
Hallgrímskirkja - starf aldraðra
Opið hús verður á morgun, fimmtu-
dag, í safnaðarsal kirkjunnar og
hefst kl. 14.30. Hulda Ólafsdóttir
kynnir fyrirhugaða leikfimi og Matt-
hildur Guðmundsdóttir les sögu.
Kafíiveitingar.
Utvarp Sjónvarp
Ásthildur Pétursdóttir bæjarfulltrúi:
Sjónvarpið alltaf að batna
Ég missti nú af ítalska þættinum
í gær en annars hef ég horft á hann
og þykir mjög góður. Mér finnast
margir framhaldsþættir sjónvarps-
ins virkilega skemmtilegir og það
er gaman að hafa þá á ýmsum
málum, það getur ekki verið nema
gott. Sérstaklega finnst mér gaman
að ítölskunni.
Ég sá aðeins íslenska þáttinn um
skipafélögin, það er að segja niður-
lag hans. Ég hef eiginlega jafnmest
gaman af þáttum svipuðum þess-
um, þar sem fjallað er um það sem
er að gerast í kringum okkur, hér
heima og erlendis. Þetta í gær,
umfjöllunin um skipaiðnaðinn,
kemur okkur við.
Við sækjumst náttúrulega öll
eftir því að sjá fréttimar í sjón-
varpinu en ég missti nú samt af
þeim í gær. Ég vil að það komi fram
að mér finnst sjónvarpið alltaf vera
að batna og er ekki með á þeim
nótum að þar sé ekkert gott gert.
Sama má segja um útvarpið, það
er gott líka þó ég kjósi sjónvarpið
frekar. Ég læt að vísu rás tvö dynja
á mér allan daginn.
Afmæli
90 ára er í dag, miðvikudaginn 29.
janúar, Guðrún Júlíana Jónatans-
dóttir, Hrófá í Steingrímsfirði. Eigin-
maður hennar var Sigurður Helga-
son er lést árið 1975. Eignuðust þau
10 böm og eru 8 þeirra á lífi. I dag
heldur hún heimili með tveimur
sonum sínum á Hrófá.
90 ára er í dag, miðvikudaginn 29.
janúar, Úlfar Karlsson, fyrrum skó-
smiður og síðar kaupmaður á Seyðis-
firði. Hann flutti til Reykjavíkur
1957 og gerðist þá innheimtumaður
hjá Skeljungi. Hann kvæntist Helgu
Jónínu Steindórsdóttur sem lést árið
1974. Þau eignuðust átta böm og eru
sjö þeirra á lífi. Úlfar er nú til heimil-
is að Eskihlíð 12 í Reykjavík. Hann
tekur á móti gestum í Domus Medica
við Egilsgötu nk. föstudag, 31. jan-
úar,milli kl. 19 og 23..
Fimmtug er í dag, miðvikudaginn 29.
janúar, Birna Hjördís Jóhannesdótt-
ir, Korná, Skagafirði. Hún tekur á
móti gestum föstudaginn 31. janúar
í félagsheimilinu Árgarði frá kl. 20.
50 ára er í dag, þriðjudaginn 29.
janúar, Guðlaugur Henrik Henriks-
en, sjómaður og útgerðarmaður á
Siglufirði. Hann er sonur hjónanna
Sigrúnar Guðlaugsdóttur og Ólafs
Henriksen, síldarkaupmanns frá
Haugasundi í Noregi.
OKURMÁLIÐ TIL
RÍKISSAKSÓKNARA
Ríkissaksóknari er nú með okurmál-
ið svonefnda í sínum höndum. Hann
mun taka afstöðu til ákæm á hendur
þeim 128 einstaklingmn sem voru
kærðir og teknir til yfirheyrslu í
málinu. Samkvæmt upplýsingum frá
Rannsóknarlögreglunni er það að
mestu leyti hún sem hefur kært þessa
einstaklinga. Ekki Hermann því
kæra barst á hendur honum og þar
með fór málið af stað. I ljós kom að
þessir 128 einstaklingar höfðu lagt
fé í okurstarfsemi Hermanns sem var
mjög víðfem. -KB
Geimferju-
slysið beint
á Hótel Holti
Gestir Hótel Holts, svo og þeir ís-
lendingar sem komið hafa sér upp
diski til gervihnattamóttöku, gátu
séð geimfeijuna Challenger farast í
beinni útsendingu.
Geimskotið var sýnt beint í frétta-
tíma vestur-þýskrar sjónvarpsstöðv-
ar sem næst á íslandi frá Éutelsat-
gervihnettinum með móttökuskermi.
Starfsmaður á Hótel Holti, sem DV
ræddi við, vissi ekki hvort einhver
hinna fáu gesta, sem voru inni á
herbergjum sínum þegar slysið varð,
hefði séð það beint. Hótelstarfsmenn
horfðu á slysið eftir á i ítalskri sjón-
varpsstöð.
„Eg sá þetta beint í vestur-þýskri
stöð,“ sagði einn eigandi slíks disks.
Sá vildi ekki að nafn sitt kæmi fram
af óvissu um hvort honum leyfðist
að horfa á stöðina.
-KMU
Spenna a skákþingi
Þröstur Ámason er nú efstur í
opna flokknum á Skákþingi Reykja-
víkur með 9 vinninga. Hann vann
skákina við Andra Áss í gær. Sigur
Þrastar á mótinu er þó ekki tryggð-
ur. Hannes Hlífar er með 8 vinninga
og biðskák við Héðin Steingrímsson.
Héðinn mun þó vera peði yfir í skák-
inni, þannig að staða Hannesar Hlíf-
ars er nokkuð ótrygg. Hann verður
að vinna biðskákina til þess að vera
.með 9 vinninga eins og Þröst.nr Úr
þessu verður skorið í kvöld er bið-
skákin verður tefld. -KB
Barnavagni stoliö
Það er greinilega orðið hart í ári
hjá mörgum. Bamavagni með kerru-
poka var stolið frá ungu fólki sem á
heima að Hverfisgötu 82. Bama-
vagninn, sem er blár, hvarf þaðan
aðfaranótt föstudagsins. Þeir sem
geta gefið upplýsingar um vagninn
em beðnir að hafa samband við rit-
jstjskaD.V -SOS