Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1986, Page 34

Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1986, Page 34
34 DV. MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR1986. Kennarar, Kvikmyndir, námslán, Útvegsbanki Ekkert lát var á spurningunum til Sverris Hermannssonar á beinni línu í gærkvöldi Kennarar voru ósparir á spurningar til Sverr- þá einu og hálfu klukkustund sem ráðherr- is Hermannssonar menntamálaráðherra á ann svaraði í síma DV. Svör hans voru skr<Lð beinni línu á ritstjórn DV í gærkvöldi. Ýmsir af blaðamönnunum Þórunni Gestsdóttur, voru áhugasamir um málefni Lánasjóðs ís- Kristjáni Má Unnarssyni, Arnari Páli Hauks- lenskra námsmanna og fjölmörg önnur mál syni og Katrínu Baldursdóttur. Svörin fara bar á góma. Ekkert lát var á spurningum í hér á eftir -óm Háskasam- legur vandi Helga Stefánsdóttir, Varmárskóla: H vernig hyggst þú standa að þeim framkvæmdum að bæta kjör kenn- ara? „Ég geri mér grein fyrir vandanum. Og fyrsta skilyrði til þess að geta brugðist við vanda er að gera sér grein fyrir honum. Hann er að mín- um dómi háskasamlegur. Á morgun (í dag) er ég boðaður til fundar við kennarasamtökin á Hótel Sögu, þar vona ég að ég hafi eitthvað að segja þeim. Eg vil ekki togast lengi á við samtök kennara í landinu, hvort þeir hafi heimild og rétt til að semja um kaup sitt og kjör. Það er nú undir- staða að mínum dómi að fólk hafi leyfi til þess að semja um sölu á vinnunni sinni. Eins þykir mér nú hart undir því að búa og hef ekki trú á því að ég komist langt áfram með þessi mál ef maður fær ekki að leiðrétta og sam- ræma við það sem aðrir hafa fengið." -ÞG Ábyrgð, stjórnar LÍN töluverð Margrét Eiriksdóttir, Kópavogi: Hver er ábyrgð stjórnar Lána- sjóðsins á sjóðnum? „Hún er töluverð. Það er óhjá- kvæmilegt. Nú er verið að gera út- tekt á starfsemi sjóðsins og þá fæ ég að vita hvernig stjórnin hefur staðið sig í stykkinu." Eru ekki einhver lög til um þessa stjórn? „Það eru lögin um Lánasjóðinn sem innihalda ákvæði um stjórnina og í reglugerðum má lesa um verk- svið hennar." Hver er réttur menntamálaráð- herra til afskipta af einstaklings- bundnum afgreiðslum í Lánasjóðn- um? „Ég lít svo á að hann geti ekki átt þann rétt. Ég mundi ekki fyrirskipa nokkurn skapaðan hlut um það. Það mundi ég aldrei taka í mál. Það er straumurinn af ungu fólki að barma sér og kvarta yfir afgreiðslum þarna innfrá og biðja um að mál þess séu rannsökuð. Ég tek við þessum kvört- unum og sendi þær til sjóðsins með fyrirspurnum um það sem beðið er skýringar á. Það er allt og sumt. Ég trúi því ekki að nokkur menntamála- ráðherra hafi nokkum tíma skipt sér af einstökum afgreiðslum. Það er útilokað." Ákafur Útvegsbanka- maður Sveinn Kjartansson, Reykjavík: - Þú sem einn af ráðherrunum, hvað getur þú sagt okkur, viðskipta- mönnum Útvegsbankans, um mál- efni bankans, fær hann að vinna sig út úr vandanum eða verður hann sameinaður öðrum bönkum? „Nú skal ég segja þér að ég er gamall Útvegsbankamaður, þetta er viðkvæm spuming fyrir mig. Við bræðurnir höfum rekið fyrirtæki og þetta er okkar banki. Ég var aldrei hrifinn af hugmyndum um samein- ingu Útvegsbankans og Búnaðar- bankans og hafnaði alla tíð þeim hugmyndum. Það eru uppi alls konar hugmyndir um sameiningu banka. Ég gæti einna helst fellt mig við þá hugmynd að hann sameinaðist ein- um voldugum einkabanka, helst Iðnaðarbankanum, og myndaði með honum einn stóran, voldugan einka- banka. Við eigum nógu marga banka en ég er af grónum ástæðum ákafur Útvegsbankamaður." Borgarbara milljón til baka Guðmundur Hagalínsson, Hruni á Ingjaldssandi við Önundarfjörð - Ef ég færi allt í einu í skóla og fengi lán hjá Lánasjóði ísl. náms- manna og kláraði og skuldaði síðan um 5-6 milljónir þegar ég hætti. Hvað yrði innheimt árlega af mér? „Þú mundir ekki borga milljón til baka.“ - Er það eðhlegt? „Nei, og þetta ætla ég að afnema og er í miðjum klíðum. Ég er ekki tilbúinn með mínar tillögur ennþá, en þessu verður ekki framhaldið svona.“ - Er það rétt að fyrrverandi for- maður lánasjóðs hafi farið í utan- landsreisu til þess að skoða hvort þessi eða hinn væri lánshæfur, eytt svo og svo miklu fi*á lánasjóðnum í ferðalög og skemmtanir án þess að þurfa að gera skil á því? „Ég hef ekki hugmynd um þetta. Það eru menn frá mér að endurskoða starfshætti sjóðsins, en ég hef ekki heyrt svona sögur og ég vona að þetta séu bara sögusagnir." Fóstur- eyðingareru viðkvæmt mál Jón Valur Jensson, Reykjavík: - Ert þú reiðubúinn að beita þér fyrir markvissri kynfi*æðslu í skól- um, m.a. til að stemma stigu við frekari mannfórnum af völdum fóstureyðinga? „Þetta var ekki lítil spurning. Því hefur nú verið haldið að mér að kynlífsfræðslan fari úrskeiðis í skól- um. Þó eru ekki allir á eitt sáttir um það. Ég hef sagt að ég muni taka til hendi í þessum málum ef á sannast að hún fari ekki vel úr hendi. Spum- ingin um fóstureyðingar er risavaxið vandamál. í svona stuttu spjalli get ég ekki gert þessu skil. Þetta er eitt- hvað það viðkvæmasta og erfiðasta sem maður ræðir.“ - Hefur þú gert upp hug þinn varð- andi frumvarp Þorvalds Garðars Kristjánssonar og fleiri til verndar ófæddum börnum og styrktar mæð- rum þeirra? „Þorvaldur hefur borið þetta ítrek- að fram og haldið fast á þessu máli. En ég get ekki orðið honum alveg samferða í þeim málflutningi sem hann flytur. Ég var á sínum tíma einn þeirra sem fylgdu þeirri niður- stöðu sem við komumst að með þessi fóstureyðingarlög." Parkinson veður yfir garða Sveinn Gíslason, Kópavogi: - Mín spurning er varðandi styrkjakerfið sem þú ætlar að koma á. Óttast þú ekki um kunningsskap og pólitík við styrkjaúthlutunina? „Það eru háaumræða um það í fjölmiðlum hvað ég ætli að gera og leggja til um námslán og styrkveit- ingar. Nú skal ég upplýsa þig um eitt. Ég hef ekki tekið neinar ákvarð- anir um þetta. Nei, það vill þannig til. En allir þykjast vita hvað ég ætla að leggja til. Ég er rétt að byrja að líta ofan í drög að frumvarpi sem fólk hefur unnið fyrir mig. Ég á eftir að sjá hvernig styrkjafyrirkomulagið verður. Ég segi þér eins og er að ég er ekki bjartsýnn á að skynsamleg lausn finnist á þvi. Því yfirleitt vill fylgja öllu styrkjafyrirkomulagi að Parkinsorr kemur og veður yfir garða og þetta vex eins og snjóbolti. Lögvernd kennarastarfs Kristín H. Tryggvadóttir, Garðabæ: - Munt þú ekki leggja fram á þessu þingi frumvarp um starfsheiti og starfsréttindi kennara? „Ég hef nú löngun til þess, Kristín. Ég get ekki svarað þessu með jái eða neii. Og ekki með jái, því miður. Nefnd á vegum ráðuneytisins starfar að því að athuga um starfsréttindi kennara. Ég bíð eftir skýrslugjörð frá Sólrúnu Jensdóttur, skrifstofustjór- anum hjá mér, um þetta mál. Ákveðnar get ég ekki svarað þér. En það eru svo mörg mikilvæg atriði sem við verðum að finna lausn á vegna kennarastéttarinnar í landinu. Og ég mun sækja það mjög fast að fá að setjast niður með full- trúum kennara og hefja slíkar um- ræður og samningagerð." GamlaSigtún ónotað Þórir Steingrímsson, Garðabæ: - Hvernig gengur útvegun á hús- næði fyrir hina svokölluðu frjálsu leikhópa? Hvað um gamla Sjálfstæð- ishúsið og eru einhverjar viðræður í gangi um þetta? „Það er hneyksli að Sjálfstæðis- húsið skuli bara vera notað fimm daga vikunnar í hádeginu undir mötuneyti fyrir Póst og síma því þetta er eitt notalegasta lítið leikhús sem við höfum verið í. Ég get bara sagt þér að viðræður eru hafnar milli okkar Matthíasar Bjamasonar við- skiptaráðherra um málið. Ég vil ekki spá um framhald þeirra en bind miklar vonir við að við náum sam- komulagi um þetta. Það væri afskap- lega skemmtilegt að koma þama, hvort heldur það verður hjá Al- þýðuleikhúsinu eða öðrum leik- hópum. Ég skemmti mér konunglega þarna í gamla daga.“ Auglýsi eftir rektor Rósa Eggertsdóttir, Eyjafirði: - Þú ætlar að beita þér fyrir að setja á stofn háskólastig á Akureyri. Ert þú að leita að manni til að sinna því starfi? „Nefndin mín er að hefja störf undir formennsku Halldórs Blön- dals. Auk hans verða tveir menn að norðan, þeir Tryggvi Gíslason skóla- meistari og Bernharð Haraldsson, skólameistari Verkmenntaskólans. Héðan frá Reykjavík verða þeir Sig- mundur Guðbjarnason háskólarekt- or og Bjami Kristjánsson, rektor Tækniskólans. Ég sagði að ég hefði í huga að finna framkvæmdastjóra þessarar nefndar. Þá hefi ég í huga að hann verði gegnumlýstur af nefndinni og hann æfi sig í þeim undirbúningi sem þar fer fram með það fyrir augum að það verði kannski hægt að nota hann sem rektor þegar við hefjum háskóla- kennslu á Akureyri. En láttu mig endilega vita ef þú hefur uppástungu um mann í þetta starf.“ Ekkert vit í leiðara DV Helgi Jóhannesson, Reykjavik: - Þú hefur lesið leiðarann í DV í gær. Hvað viltu segja um þá fullyrð- ingu að aðgerðir þínar eigi eftir að kýla Vökuíkaf? „Jú, ég las hann. Það er ekkert vit í honum. Jónas er að gera mér upp alls konar skoðanir. Hann veit ekk- ert hvaða tillögur um breytingar á Lánasjóðnum ég mun bera fram. Það vita allir nema ég hver niðurstaðan verður. Ég er bara búinn að fá fyrstu drög og á eftir að gera upp hug minn um þetta og ráðfæra mig við hina stj ómarflokkana. Ég get heldur ekki ímyndað mér að það sé Vöku til bölvunar að stjómarmaður þeirra sitji út sitt kjörtímabil, sem lýkur eftir tvo mánuði. Það mætti nú fyrr vera því hann hefur staðið sig ágæta vel. Ólafur er drengilegur maður sem ég hef traust á og Vaka ætti ekki að veita honum vantraust." Égerréttað byrja að stjórna Karen Júlia Júlíusdóttir, Kópavogi: - Hvað munu loforð þín um afnám reglugerðar og fleira um LÍN kosta ríkissjóð á árinu 1986? „Ég get nú ekki svarað þér i tölum. En ég get svarað þér sem svona: Ef þessi reglugerðarbreyting mín héldi út allt árið gæti það kannski dregið saman útlán hjá sjóðnum um ef til vill 150 milljónir króna. Þetta er ágiskun. Það er ómögulegt að svara þessu til hlítar.“ - Nú lít ég þannig á málið að þú hafir traðkað á lögum og reglum þessa lands og gefið út yfirlýsingar í trássi við vilja Alþingis og ríkis- stjórnar. Finnst þér ekki tímabært að þú viðurkennir afglöp þín og segir afþér? „Það er nú öðru nær. Ég er rétt að byrja að stjórna eins og þarf.“ -Finnstþérþað? „Já. Og það eru áreiðanlega fleiri. Og ég verð kosinn á þing aftur til þess að halda mínum verkum áfram.“ Sjálfuraf barnsvana blótgjarn Anna Bjarkan, Reykjavík: - Það er svo algengt að fólk noti blótsyrði í byrjun eða enda setning- ar. Finnst þér þetta eðlilegt? „Ég er sjálfúr af bamsvana blót- gjam. Ég var alinn upp á sjó og þá mátti maður blóta í gríð og erg en ekki í landi. Ég hef ekki getað vanið mig af þessu. Þér finnst þetta auðvit- að illt og bölvað.“ Mérþótti þetta bölvað íris Sigurðardóttir, Reykjavík: - Fannst þér við hæfi að mæta ekki á hátíð stúdenta 1. des. sem haldin var undir kjörorðinu „öflugur háskóli - forsenda framfara? Og fannst þér þá við hæfi að kaffæra hátíðina með því að halda málrækt- arráðstefnu sama dag? „Það má kalla þetta mistök. Ég áttaði mig ekki á þessu fyrr en við vorum komnir langleiðina með und- irbúning ráðstefnunnar. Ég hefði þó átt að vita betur og mér þótti þetta bölvað að þetta varð svona. Hins vegar veit ég ekki hvort þetta hefur dregið úr aðsókn á hátíðina 1. de^. Það eru ekki allir á einu máli um það. Veiting lektorsstöðu örn Ólafsson, Reykjavik: - Nýlega veittir þú lektorsstöðu í íslenskum bókmenntum og gekkst þar í berhögg við vilja stofnunarinn- ar, heimspekideildar, með tilliti til starfsmenntunar og starfsreynslu. Er þetta ekki bara afturhvarf til einveldisstjómstíls átjándu aldar, svona geðþóttaákvarðanir? „Nei, nei, fjarri öllu lagi. Þessi dómnefnd, sem skipuð var, mat þau alveg jöfn, tók þau í sérflokk, Helgu Kress og Matthías Viðar. En þó hafði Helga vinninginn hjá þeim. Síðan var atkvæðagreiðsla og atkvæða- greiðsla með þessum hætti, - ég geri nú ekki margt með þær. En dósent sótti um lektorsstöðu sem er þremur launaflokkum lægri...“ - Já, já, en hún vildi bara færa sig yfir í íslenskar bókmenntir, enda Qallar hún mest um það...

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.