Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1986, Page 35
DV. MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR1986.
35
„...Háskólinn naut starfskrafta
Helgu Kress og það er rétt að koma
fleiri góðum starfskröftum að. Og
þess vegna var það að ég valdi
Matthías Viðar sérstaklega til þess
að Háskólinn fengi að njóta starfs-
krafta hans líka því að þau báru
svona af i umsögninni."
íþrótta-
Kennara-
skólinn
Árni Njálsson íþróttakennari,
Reykjavík:
- Hvaða hugmyndir hefur þú um
framtíð fþróttakennaraskólans okk-
ar?
að skylda menn til þess að snara á
gott mál erlendu efni. Það er afskap-
lega mikilvægt að mínum dómi. En
ég get ekki svarað þér að þessu leyti,
Ari, því að þarna ertu að benda á
hlut sem ég hef ekkert verið að velta
fyrir mér,“ sagði Sverrir.
Verð að vinna
vondu
verkin líka
Steingrimur Steinþórsson, Reykja-
vík:
Telur þú réttlætanlegt að ráð-
herra brjóti lög til að ná fram
ákveðnum markmiðum? Þekkir þú
„Ég vona það. Ég hef mikinn áhuga
á þessu máli. Ég hef rætt þetta við
fulltrúa kvikmyndagerðarinnar og
það þarf ekki blöðum um það að
fletta að þetta er eitt albrýnasta
verkefnið í framtíðinni.
Ekki síst vegna íslenskrar tungu
þarf að leiða fólkið að landinu og
bókmenntunum. Ég mun ekki sætta
mig við þessa meðferð á kvikmynda-
sjóði. Ég hef verið að ráðfæra mig
við kunningja mína til að reyna að
finna ráð og fá fastar undir fætur.
Þetta er afskaplega mikilvægt."
Standa við
gef in loforð
Ágúst Thorstensen, Reykjavík:
-. Á ekkert að gera til að lækka
Mál kennara
hafa farið illa
úr hendi
Eggert Levy, Húnavöllum:
- Það er varðandi kennaraskort-
inn, hvað munt þú gera til þess að
fá kennaramenntað fólk til starfa?
„Eggert, við verðum að lagfæra það
sem úrskeiðis hefur farið í kjörum
ykkar kennara og allri aðstöðu,
menntun, réttindum og svo fram-
vegis. Hér er óhemjuverk að vinna.
Ykkar mál hafa farið illa úr hendi
um langa hríð. Ég vonast til að ég
geti fljótlega sest niður með samtök-
um kennara og tekið á þessum mál-
um. Það er mjög brýnt. Þú ert tíundi
Sverrir Hermannsson á beinni fínu DV: Ég er viðkvæmur fyrir Utvegsbankanum
„Hann kemur til mín á morgun,
hann Árni Guðmundsson, skólastjóri
á Laugarvatni, og ég á von á því að
við ræðum framtíðina. Ég var að
enda við að skipa endurskoðunar-
nefnd á íþróttalögum þannig að öll
þessi mál eru í deiglunni. Og við
þurfum að vanda okkur. Ertu óán-
ægður með eitthvað?"
- Já, mér finnst skólinn ekki svara
rás tímans og ekki hafa fylgt neinni
þróun á síðustu árum, langt í frá.
„Þú þekkir nú hann Reyni' Karls-
son. Hann var fúlbakkari í Fram eins
og þú í Val. Þú ættir að gefa honum
orð í eyra.“
Æf ing til að
geta svindlað
Ari Jóhannesson, Reykjavík:
- Ég set upp gervihnattamóttöku-
skerm heima hjá mér og fæ leyfi
samgönguráðherra til að dreifa sjón-
varpsefninu innanhúss, samkvæmt
reglum hjá þeim. 1 stigaganginum
hjá mér eru um 60 íbúðir en þá telst
það kapalkerfi, samkvæmt því sem
ég hef séð af drögum að reglugerð
um útvarpsstöðvar þar sem miðað
er við innan við 37 íbúðir. Þarf ég
þá að setja upp tvo diska hlið við
hlið til að dreifa í þessar 60 íbúðir?
„Aha-ha-ha! Já. Þú ert að benda á
kannski veikan hlekk í þessu öllu
saman og æfa þig í því að geta svindl-
að á þessu og farið í kringum reglur
og lög. Ég get sagt þér að þetta er
ekkert einfalt mál. Bráðum verður
tæknin orðin með þeim hætti að
vafalaust geta menn komið upp
móttöku sem kannski er eins og
kaffibolli á stærð og náð efni frá
öllum vígahnöttum sem koma til með
að sveima yfir okkur. Það verður
aldrei siglt fyrir öll sker í þessu en
mér leikur afskaplega mikill hugur
á þvi að við verjum tunguna okkar,
ekki lögin um réttindi og skyldur
opinberra starfsmanna?
„Égþekki þau.“
- Samt brýtur þú þessi lög í sam-
bandi við brottrekstur framkvæmda-
stjóra Lánasjóðsins?
„Ert þú að dæma hvort ég brýt lög
eða ekki? Menn greinir mjög á um
þetta. Það sem ég hef framkvæmt
finnst mér í fyllsta máta eðlilegt, ella
myndi ég ekki framkvæma það,
maður minn. Dettur þér í hug að ég
líði það í opinberum rekstri sem ég
myndi ekki líða andartak hjá einka-
fyrirtæki mínu? Dettur þér í hug að
ég ætli að bera ábyrgð á slíkri starf-
semi sem ég þreifaði á þama, þar sem
mér vom gefnar rangar upplýsingar
og lá við að ég yrði beinn svikari við
þúsundir ungmenna í afgreiðslum á
peningum? Ég taldi þetta nauðsyn-
legt til að komast áfram með breytta
starfshætti sjóðsins sem ég er nú með
í athugun. Menn, sem vilja bera
ábyrgð, verða að vinna vondu verkin
líka.
Leiða f ólkið
að landinu
Þráinn Bertelsson, Reykjavík:
- Þegar íslensk tunga á hvergi eins
mjög í vök að verjast og á sviði sjón-
varps og myndbanda þá eru lög-
bundin framlög til kvikmyndasjóðs
skorin niður. Það vantar duglegan
mann til að bjarga þessu. Ért þú
ekki maðurinn?
skatta eða framlengja greiðslufrest
skatta húsbyggjenda?
„Sjálfstæðisflokkurinn lofaði fyrir
síðustu kosningar að afleggja tekju-
skattinn. Við höfum ekki staðið við
þetta kosningaloforð nema að hluta.
Kjósendur verða að knýja á um það
að stjórnmálaflokkur eins og minn
flokkur standi við gefin loforð. Við
verðum að taka okkur á að þessu
leyti. Margs þarf okkar bú við. Verð-
bólgan eyðileggur svo margt fyrir
okkur og það er glíman við verð-
bólguna sem skiptir öllu. Við vinnum
þann bjöm held ég fljótlega svo að
við getum boðið þegnunum okkar
upp á sæmilega afkomu. Við getum
ekki lofað alveg strax miklum íviln-
unum í að létta gjöldum af. En að
standa við það sem við höfum lofað,
það megum við til með að reyna.“
Námsmenn
eiga ekki
að slugsa
Gylfi Garðarsson, Keflavík:
- Hvaða aðili á að skera úr um
hvað er arðbært nám?
„Þú ert að tala um þessar óljósu
hugmyndir um styrki sem menn eru
að tala um. Ég held að það sé afar
flókið mál. Og þó að þessar hug-
myndir hafi verið settar fram um
styrkina þá er ég hreint ekki tilbúinn
að fallast á þær og hef ekki tekið
ákvörðun um framhaldið. Ég held
að þetta sé mjög varhugavert og
flókið mál. Ég er afskaplega skammt
á veg kominn með að taka ákvarðan-
ir um þessi mál. Fjölmiðlar eru að
taka þær fyrir mig um þessar mundir.
En ég ætla samt að fylgjast með því
að námsmenn séu ekki að slugsa og
geri það fyrir peninga þjóðfélagsins.
maður sem spyrð þessarar spurning-
ar.“
- Hvað um endurmat á störfum
kennara?
„Þetta er einn af þeim þáttum sem
við þurfum bara að ræða. Þetta er
allt órætt. Menn hafa bara kallast á
með yfirlýsingum um langa hríð. Við
verðum að setjast niður.“
Við höf um
slugsað
Jóhanna Valdimarsdóttir, Hafnar-
firði:
- Ég er með tölur um réttindalausa
kennara hér. Hvaða ráð telur þú
vænlég til að breyta þessu og gera
starf kennara eftirsóknarvert?
Hyggstu beita þér fyrir því að laun
kennara hækki til muna?
„Tölurnar eru ískyggilegar. Ég
hyggst mæta á fund kennara á Hótel
Sögu á morgun (í dag) og ég vona
að ég hafi einhverjar fréttir að færa
þeim. Ætlar þú ekki að mæta sjálf?
Ágætt.
Eigum við ekki fyrst að fá launin
samræmd og leiðrétt við það sem
aðrir hafa fengið? Við skulum byrja
á því. Það eru ótal atriði sem þarfn-
ast lagfæringar. Við höfum slugsað
í þessum efnum og þurfum að taka
okkur á svo ekki fari illa. Þú kemur
á fundinn."
Dagur
loginn fullur
Þráinn Stefánsson, Akureyri:
- í viðtali við Dag bar dóttur þína
eitthvað á góma í sambandi við
akstur...
„Að Dagur hafi verið loginn fúllur
um þessa dóttur mína, að hún æki
mér á hverjum morgni í vinnuna.
Það er ekki flugufótur fyrir þessu.
Þetta er tómt bull. Og síðan kemur
stjórnmálaleiðari hjá þessu stuðn-
ingsblaði ríkisstjórnarinnar og segir
náttúrlega að það sé nú farið að
kasta tólfunum þegar börn ráðherra
séu ræst til að fá þriggja tíma útkall
við að keyra hann í vinnu. Það er
ekki heil brú... Hann Hermann birti
leiðréttingu á þessu í Degi i gær.
Þetta eru alveg ósköp að vita þetta,
Þráinn minn. Hvað segirðu annars?“
- Allt ágætt, bara. En er nokkuð
hægt að fá vinnu hjá þér sem bílstjóri
ef einhver dettur út?
„Það er ekkert laust eins og er.
En þú athugar það bara og fylgist
með því. Ertu sæmilegur í akstri?
Og sparakstri líka?“
Námslán sér-
skólanema
Stefán Ólafsson, Stykkishólmi:
- Til sjúkraliðanáms virðast ékki
vera nein námslán eða dreifbýlis-
styrkir. Finnst þér þetta réttlátt?
„Sérskólanemar hafa nú haft að-
gang að námslánum. En ég skal ekki
dæma alveg. Ég þekki ekki þetta út
í hörgul. Ég vil gjarnan athuga þetta,
Stefán.“
Jöfn aðstaða til
bæja og sveita
Anna María Egilsdóttir, Suður-
Þingeyjarsýslu:
- Telur ráðherra æskilegt að
krakkar í sveitum fái miklu minni
kennslu en krakkar i kaupstöðum?
„Auðvitað er það ekki eðlilegt.
Aðstaðan er misjöfn, það vitum við,
og það er mikilvægt að jafna alla
aðstöðu frá upphafi í sambandi við
nám og kennslu."
- Er ekl.i betra fyrir krakkana að
vera i heimavist í viku heldur en að
vera í kennslu 3 daga i viku?
„Já, þú segir þetta. Málið hefur
verið mikið rætt og menn ekki á eitt
sáttir um heimanaksturinn og
heimavistina. Fyrir yngri krakkana
er ég helst á því, ef því verður við
komið, að þeir fái að vera sem lengst
í foreldrahúsum. En þetta gengur
náttúrlega úr hófi, þessi feiknalega
mikla keyrsla og langa á börnum i
skóla."
Er að f á nasa-
sjónaf þessu
Rúnar Sigþórsson, Eiðum á Héraði:
Er svokallaður gæslukvóti nægi-
legur á heimavistarskólum og eru
þeir í stakk búnir til að sinna nem-
endurn sem skyldi?
„Ég held að það sé afskaplega
misjafnt. Ég þori ekki að dæma því
ég er svo nýr í embætti; er nú sem
óðast að kynna mér mál. Ég er að
byrja að heimsækja skóla hér í
Reykjavík á morgnana og heimsótti
alla skóla á Akureyri þegar ég var
þar. Ég er rétt að fá nasasjón af þessu
og get því ekki gefið þér viðhlítandi
svar.
Fólk þurfi
ekki að sitja af
sér nám f yrir
fátæktarsakir
Ásgeir Margeirsson, Reykjavík, sem
hyggst fara til náms erlendis næsta
haust, spyr um Lánasjóð islenskra
námsmanna og horfur i lánamálum
námsmanna.
„Meginmarkmið sjóðsins verður
hið sama og óður: að jafna aðstöðu
fólks til náms og að fólk þurfi ekki
fyrir fátæktar sakir að sitja af sér
nám. Ef þú ert duglegur í námi og
forsjáll maður hef ég enga trú ó öðru
en að þú spjarir þig og fáir þá fyrir-
greiðslu sem hrekkur til. Og þó að
þú vinnir eitthvað ó sumrin þó ætla
ég ekki að hegna þér með því að
draga það frá lánamöguleikum þín-
, __(<
um.