Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1986, Page 40

Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1986, Page 40
MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR 1 986. Þorsteinn Pálsson: T* Stjórnarflokkarnir styrkja stöðu sína Þetta er svipuð útkoma eins og milli flokkanna, engar grundvallar- breytingar, þar sem aðeins munar prósentubroti tii eða frá frá seinustu skoðanakönnun í september. Þessi brot skipta ekki sköpum. Heldur er það þó í áttina fyrir ríkisstjórnina að hún eykur fylgi sitt. Þannig virðast stjórnarflokkarnir vera að styrkja stöðu sína. Athyglisvert er við þessa könnun að mun fleiri taka afstöðu til ríkis- stjórnarinnar heldur en til stjórn- málaflokkanna. Það er sennilega vegna þess að það er auðveldara að taka afstöðu til tveggja atriða en sjö. -A.Bj. Haraldur Ólafsson: Framsókn dregur stjórninaupp „Ef taka á trúanleg úrslit könnun- ar DV í gær um fylgi flokkanna er greinilegt að Framsóknarflokkurinn hefur bætt stöðu sína talsvert. Mér finnst eðlilegt að því fylgi aukið traust á ríkisstjórninni," sagði Har- aldur Ólafsson, þingmaður Fram- sóknarflokksins, um úrslit skoðana- könnunar blaðsins í dag. „Eins hefur það vafalaust áhrif að formaður Sjálfstæðisflokksins er kominn í stjórnina. Þótt ég vilji —«- aldrei segja neitt ljótt um Albert Guðmundsson þá þykir mér ekki ólíklegt að fólki þyki fjármálastjórn- in núna í traustari höndum. Þetta tvennt held ég að skipti mestu máli um frekar vaxandi fylgi ríkisstjórn- arinnar.“ -HERB HEIMSKERFI TIL HEIMANOTA LOKI Þau hljóta þá að minnka enn meira, litlu veitinga- húsin. INNLÁWSAUKNING EINKABANKA MEIRI Uppgjör innlána í bönkum og aukningu og þriðji ríkisbankinn, ingum um áramótin. Næstur kemur sparisjóðum á síðasta ári leiðir í Búnaðarbankinn, stóð sig miklu Búnaðarbankinn með 7.041 milljón, ljós að einkabankarnir hafa náð betur, náði 57,2% aukningu eða þá Útvegsbankinn með 3.752 millj- hlutfallslega meiri innlánaaukn- 20% meiru en Landsbankinn hlut- ónir, Iðnaðarbankinn með 2.828 ingu en ríkisbankamir. Einn failslega. Aukning hjá Iðnaðar- milljónir, Samvinnubankinn með einkabanki sker sig úr með 95,8% bankanum varð 57,3%, hjá Versl- 2.578 milljónir, Verslunarbankinn aukningu. Það er Alþýðubankinn. unarbankanum 59%, hjá Sam- með 1.756 milljónir og loks Al- En hlutfallslega langminnst aukn- vinnubankanum 61,2% og loks hjá þýðubankinn með 975 milljónir ing varð í Landsbankanum, sem er Alþýðubankanum 95,8%. Innlán í króna. ríkisbanki, 37,2%. Heildarinnlán í sparisjóðum jukust um 47,9% og í Bankamir eru samtals með 31.572 óllu keríínu jukust um 47,8%, sem innlánsdeildum kaupfélaga um milljónir á innlánsreikningum. er þá meðaltal þegar lagt er mat á 37,8%. Sparisjóðimir em samanlagt með einstaka stofnanir. Þrátt fyrir minnsta aukningu í 5.708 milljónir og innlánsdeildir Eins og fyrr segir varð aukning Landsbankanum á síðasta ári er kaupfélaga með 700 milljónir innlána minnst í Landsbankanum, hann ennþá langstærsti bankinn króna. 37,2%. Útvegsbankinn náði 45,2% með 12.641 milljón á innlánsreikn- -HERB Leiðtogar atvinnurekenda og launþega stinga saman nefjum i gær. Samningafundur var haldinn i gær milli ASI og forsvarsmanna atvinnurekenda. Málin voru rædd vítt og breitt en ekki tóks að semja að þessu sinni. Akveðið var að næsti samningafundur yrði nk. fimmtudag. DV-mynd KAE Samdráttur í rekstri litlu veitingahúsanna 56 matargestir f níu veitingahúsum sem DV heimsótti í Reykjavik í gærkvöldi „Það er samdráttur í rekstri litlu veitingahúsanna. Það eru komnir of margir staðir og enn eru veit- ingahús að bætast við. Sá tími mun koma að veitingahúsin týni tölunni," sagði einn eigandi veit- ingahúss í Reykjavík þegar DV heimsótti nokkur veitingahús í gærkvöldi. Um sextíu minni veit- ingahús eru á Stór-Reykjavíkur- svæðinu. „Þetta er svona hjá okkur í miðri viku,“ sagði þjónn á einu veitinga- húsinu þar sem ekki var sála inni. Alls voru 56 gestir í mat í þei mníu veitingahúsum sem DV heimsótti eða að meðaltali sex gestir í hverj- um veitingastað sefn hver fyrir sig hefði hæglega getað tekið á móti þessum 56 gestum. „Þið komið á slæmu kvöldi. Hér er mest um að vera um helgar," sagði þjónn á einum staðnum. Það var samdóma álit þeirra starfsmanna, sem við ræddum við á stöðunum, að janúar hefði verið mjög slæmur mánuður. Fólk væri ekki farið að hugsa sér til hreifings eftir jólasteikumar í heimahúsum. Ástandið er orðið þannig að menn, sem hafa staðið i veitinga- rekstri, hafa gefist upp og selt staði sína eða eru að selja. Nú eru þrír veitingastaðir til sölu í miðborg Reykjavíkur. Á einum þeirra var öllu starfefólkinu sagt upp um áramót og á þeim stað var óvissan mikil á meðal starfsfólks í gær- kvöldi. -SOS Sigríður Dúna Kríst- munds- dóttir: Varla merkjan- leghreyting „Þetta er svo lítil breyting á fylgi ríkisstjómarinnar að hún er varla merkjanleg. Það er samt athyglisvert að ríkisstjómin skuli þó halda þessu fylgi eftir að hafa nýlega tekið nýja syrpu frammi fyrir alþjóð í gerræðisleg- um vinnubrögðum. Eitt er víst að hún á þetta fylgi ekki skilið." -APH Svavar Gestsson: Trúiþessuekki „Ég trúi því ekki að fólk vilji þakka stjóminni fyrir kjaraskerðinguna, sjúklingaskattinn, vömgjaldið og flugvallarskattinn," sagði Svavar Gestsson, formaður Alþýðubanda- lagsins, um niðurstöður skoðana- könnunar DV um fylgi ríkisstjórnar- innar. „Þetta sýnir líka að þessir hlutir hafa ekki komist nægilega vel til skila. Það sýnir okkur að Sjálfstæð- isflokkurinn hefur notað sér aðgang- inn að ríkisfjölmiðlunum. Stjómin nýtur þess líka að spenningur vegna borgarstjórnarkosninganna er að aukast," sagði Svavar Gestsson. -GK Sighvatur Björgvins- son: Staðfestingá tapi stjórnarinnar „Ég held að ef stjórnarandstaðan fær tæplega helming atkvæða í næstu kosningum þá hljótum við að vera ánægð með þá niðurstöðu því þá hefur stjórnin tapað miklu fylgi frá síðustu kosningum,“ sagði Sig- hvatur Björgvinsson, þingmaður Alþýðuflokksins, um niðurstöðu skoðanakönnunar DV um fylgi við ríkisstjórnina. „í þessari skoðanakönnun kemur fram staðfesting á því almenna við- horfi að ríkisstjórnin hefur stórtapað fylgi frá því hún var mynduð og ég sé ekki að hún eigi eftir að bæta við það,“ sagði Sighvatur. -GK Kolbrún Jónsdóttir: Kemuráóvart Þessar niðurstöður koma mér mjög á óvart en stjómin getur vel við unað að hafa tiltrú þjóðarinnar. Ég get samt ekki skilið ástæðurnar fyrir þessari fylgisaukningu. Að mínu mati hefúr allt gengið á afturfótun- um á stjómarheimilinu og ástandið í þjóðmálum ekki batnað. -APH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.