Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1986, Qupperneq 2
2
DV. FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR1986
Össur Skarphéðinsson: - Undarlegt hversu lágt Guðmundur G. Þórarinsson
metur æru sína; álOOþúsund krónur.
lenska verslunarfélaginu í ársbyrjun
1979 og hafi síðan ekki átt neinna
hagsmuna að gæta í fyrirtækinu. Þó
starfaði hann sem annar af tveim
framkvæmdastjórum fyrirtækisins
frá í apríl 1983 fram í janúar ó næsta
ári.
Pólitískur þefur
„Mér þykir pólitískur þefur af
þessu máli. Það er athyglisvert að
Guðmundur lætur sér ekki nægja að
stefna okkur Áma Bergmann heldur
stefnir hann einnig Svavari Gests-
syni, formanni Útgáfustjórnar Þjóð-
viljans,“ sagði Össur Skarphéðins-
son. „Ég þekki Guðmund G. Þórar-
insson ekki neitt og hef ekkert á
móti manninum en undarlegt þykir
mér hversu lágt hann verðleggur æru
sína; aðeins á 100 þúsund krónur."
Æra borgaranna
Þá hefur Guðmundur G. Þórarins-
son kært Þjóðviljann og Lúðvík
Geirsson blaðamann til Siðanefndar
Blaðamannafélags íslands vegna
þessara skrifa. I þeirri kæru segir
Guðmundur meðal annars: „Á blaða-
mönnum hvílir mikil ábyrgð. Það er
útilokað að blaðamönnum geti leyfst
að fara með æru borgaranna sem
skít á götunum...Allar mínar hug-
myndir um siðfræði segja mér að frétt
Þjóðviljans og skrif, sem og fram-
koma blaðamannsins, sé siðlaus."
-EIR
„Við munum verjast af grimmd og
festu, sækja þetta mál fast og beita
fyrir okkur færustu lögmönnum,"
sagði Össur Skarphéðinsson, ritstjóri
Þjóðviljans, í samtali við DV. Þá
haTði Össuri nýlega verið birt stefna
vegna fréttar í Þjóðviljanum 7. jan-
úar síðastliðinn þar sem fjallað var
um meint skattsvik Þýsk-íslenska
verslunarfélagsins og tengsl Guð-
mundur G. Þórarinssonar, verkfræð-
ings og fyrrum alþingismanns, við
það fyrirtæki.
100.000 krónur
Guðmundur G. Þórarinsson stefnir
ritstjórum Þjóðviljans, þeim Össuri
Skarphéðinssyni og Árna Bergmann,
og að auki Útgáfufélagi Þjóðviljans
þar sem Svavar Gestsson, formaður
Alþýðubandalagsins, situr í forsæti.
Krefst Guðmundur þess að aðdrótt-
anir um stórfeild skattsvik hans, eins
og þær birtust í frétt Þjóðviljans,
verði dæmd dauð og ómerk og einnig
að stefndu verði gert að greiða sér
kr. 100.000,- í miskabætur ásamt
vöxtum.
Frétt Þjóðviljans um Þýsk-íslenska
verslunarfyrirtækið birtist undir eft-
irfarandi fyrirsögn: „GRIPNIR í
SKYNDIÚTHLAUPI - Eitt stærsta
innflutningsfyrirtæki landsins grun-
að um að hafa dregið á annað hundr-
að milljónir króna undan skatti.
Fyrrum stjórnarformaður og fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins var Guð-
mundur G. Þórarinsson, fyrrum
þingmaður og gjaldkeri flokksins."
Mannorð
Guðmundur G. Þórarinsson telur
Guðmundur G. Þórarinsson í ræðustóli Alþingis: - Útilokað að blaðamönnum
geti leyfst að fara með æru borgaranna sem skít á götunum.
að í þessari frétt Þjóðviljans felist í þeim tilgangi að sverta mannorð
gróf meiðyrði í hans garð enda virð- hans. Guðmundur staðhæfir að hann
ist svo sem fréttin sé aðallega skrifuð hafi selt eignarhlut sinn í Þýsk-ís-
Fréttir
Fréttir
Fréttir
GuðmundurG.
Þórarinsson
stefnir
ritstjórum
Þjóðviljans og
Svavari
Gestssyni:
Grimmd' harka og
skítur á götunum
Eskifjörður:
Loðnubryggjan að hruni komin
Frá Emil Thorarensen, Eskifirði:
Forgangsverkefni hafnarsjóðs
Eskifjarðar er afar brýnar endur-
bætur á loðnulöndunarbryggjunni á
Eskifirði. Stefnt er að því að setja
niður stálþil utan um þennan 20 ára
gamla trébryggjustúf, sem byggður
var á sandi.
Bryggja þessi er að hruni komin
og mikil hætta á ferðinni fyrir þau
skip, sem þar liggja hverju sinni, ef
eitthvað amar að veðri. Þá liggur
bryggjan öll á reiðiskjálfi og heilu
bryggjupollamir brotna eins og eld-
spýtur.
Sem betur fer hefur ennþá ekki
komið til þess að skip hafi losnað
frá. Hins vegar er sú hætta alltaf
fyrir hendi. Gæti þá hlotist mikið
tjón af þar sem stutt er upp í fjöm.
Auk þess eru á bryggjunni dýr lönd-
unartæki að viðbættu stálgrindar-
húsi að verðmæti um tíu milljónir
króna.
Samkvæmt áætlun frá því í nóv-
ember em framkvæmdir þær sem
fyrirhugaðar em upp á 30 milljónir
króna. Leitað var til fjárveitinga-
nefndar Alþingis í þessu sambandi
um úthlutun á fjárlþgum 1986. En
að sögn Jóhanns Klausen bæjar-
stjóra var ekki fimmdur að fá þar.
Gert er ráð fyrir að hafnarsjóður
fjármagni 25 prósent kostnaðarins
en ríkisframlag nemi 75 prósentum.
Hér er á ferðinni mjög alvarlegt
mál því að bryggjan er nánast ónot-
hæf og er þá ljóst að starfsemi loðnu-
verksmiðjunnar er ógnað. Hún legg-
ur drjúgan skerf til gjaldeyrisöflunar
þjóðarinnar. Á síðastliðnu ári fóru
til að mynda verðmæti um þessa
bryggju, það er að segja loðna og
loðnuafurðir, upp á um það bil 500
milljónir króna. Sýnir það væntan-
lega mikilvægi þess að löndunar-
bryggjan á skilið að fá vemlega
hressingu svo að hún geti staðið
undir nafni og haldið áfram að gegna
því hlutverki sem henni er ætlað.
-<•------------m
Þessar tvær myndir sýna erlent skip,
Unkas, liggja við loðnubryggjuna á
Eskifirði. Skipið er 115 metrar á lengd
en bryggjan, sem það liggur við, er
14 metrarálengd.
DV-myndir: Emil, Eskifirði.