Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1986, Blaðsíða 9
DV. FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR1986
9
Útlönd Utlönd Utlönd' UBönd
Skákmót i
nafni Gulkos
Framkvæmdamenn og
hugmyndasmiðir hittast
Boris Gulko að tafli við Josif Dorfman á sovéska meistaramótinu.
Gulko hefur ítrekað verið neitað um brottfararleyfi frá Sovétrikjunum.
Bandarískir skákmenn skipuleggja nú skákmót í nafni Gulkos í Sviss.
Þeim sem hafa áhuga á að taka þátt í hugmyndastefnunni er
bent á að snúa sér til Iðnaðarráðuneytisins er veitir allar nánari
upplýsingar. Þátttökutilkynningum ber að skila til Iðnaðarráðu-
neytisins fyrir 10. febrúar nk. á þar til gerðum eyðublöðum sem
fást í ráðuneytinu. Þátttökugjald verður auglýst síðar.
IÐNAÐARRÁÐUNEYTIÐ
Árás í lögþingi Færeyja:
Löðrungaði lögmann
á fundi í lögþinginu
Eðvarð T. Jónsson, fréttaritari DV í
Færeyjum:
Atli Dam, lögmaður Færeyja, var
pústraður í þinghúsinu í gærmorgun.
Stóð þá yfir fundur í lögþinginu.
Maður á fimmtugsaldri kom inn í
salinn og gekk í átt til Atla lögmanns
sem stóð upp, þegar hann tók eftir
aðkomumanni, og rétti honum hönd-
ina. Maðurinn sló þá lögmann í
andlitið en flúði síðan úr þinghúsinu.
Tveir landstjómarmenn veittu
honum eftirför og handsömuðu þann
laushenta niðri i miðbæ. Var mann-
inum haldið þar til lögreglan kom á
vettvang. - Reyndist þetta sami
maðurinn og skaut á Atla Dam með
haglabyssu fyrir nokkrum árum og
særði hann á hné.
Maðurinn hlaut fyrir þá árás
þyngsta fangelsisdóm, sem kveðinn
hefur verið upp í Færeyjum, og af-
plánaði hann í Danmörku. Til Fær-
eyja kom maðurinn aftur fyrir
nokkrum vikum.
Eitt hans fyrsta verk eftir heim-
komuna var að brjóta allar rúður í
húsi lögþingsins í Þórshöfn. - Ekki
er þó talið að þessu maður hafi verið
að verki eða með i ráðum þegar til-
raun var gerð til þess fyrir þrem
vikum að sprengja þinghúsið í loft
upp með dínamíti. Það mál er enn
óupplýst.
Tveir bandarískir stórmeistarar í
skák (báðir frá Sovétríkjunum)
kunngerðu í gær að þeir ætluðu að
efna til skákmóts í Bern í Sviss til
þess að vekja athygli á raunum sov-
éska skákmeistarans Boris Gulko.
Þegar Gulko sótti í desember 1978
um leyfi til að flytja úr landi, var
tekið fyrir atvinnumennsku hans og
honum fyrirmunað að tefla á mótum,
að því er Lev Alburt segir. - Alburt
og stórmeistarinn Maxim Dlugy
segjast efna til skákmótsins í Bern
í apríl um leið og ráðstefna stendur
yfir um skoðun orðheldni stórveld-
anna varðandi mannréttindaákvæði
Helsinkisáttmálans.
Gulko var meistari Sovétríkjanna
1977 og kona hans, Anna, varð þrí-
vegis Sovétmeistari í kvennaflokki.
Gulko hefur leyfst síðustu árin að
tefla á mótum í Sovétríkjunum en
þegar hann hefur unnið hefur nafn
hans ekki verið birt meðal efstu
manna. Fjórði Sovétmeistaratitillinn
var með röngu hafður af Önnu þegar
reglugerðinni var breytt löngu eftir
að mót var byrjað.
Gulko hefur gripið til þess að fara
í hungurverkföll tii þess að knýja á
yfirvöld að leyfa honum að fara úr
Iandi en það hefur komið til lítils.
Þeir Alburt og Dlugy vonast til þess
að skákmótið færi Sovétstjórninni
heim sanninn um að athygli um-
heimsins beinist áfram að meðhöndl-
un þeirra á Gulkohjónunum.
Atli Dam lögmaður á sjúkrahúsi í Þórs-
höfn eftir fyrri líkamsmeiðingar árásar-
mannsins 1974.
Iðnaðarráðuneytið hefur ákveðið að gangast fyrir hugmynda-
stefnu ef næg þátttakafæst.
. •
Fyrirhugað er að sýna á hugmyndastefnunni uppfinningar og
framleiðsluhæfar hugmyndir, sem tilbúnar eru til markaðsfærslu
af hálfu höfunda.
Sýningunni er fyrst og fremst ætlað að miðla framleiðsluhug-
myndum til þeirra sem hafa hug á að framleiða, fjármagna eða
setja á markað nýjungar í iðnaði en einnig er henni ætlað að veita
upplýsingar um þjónustu og fyrirgreiðslu opinberra aðila við
nýsköpun í atvinnulífinu.