Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1986, Page 6
6
DV. FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR1986
Viðskipti Viðskipti Viðskipti Viðskipti
Peningamarkaðurinn
Innlán með sérkjörum
Alþýðubankinn: Stjörnureikningar eru
fyrir 15 ára og yngri og 65 ára og eldri. Inn-
stæður þeirra yngri eru bundnar þar til þeir
verða fullra 16 ára. 65-74 ára geta losað inn-
stæður með 6 mánaða fyrirvara, 75 ára og
eldri með 3ja mánaða fyrirvara. Reikningam-
ir eru verðtryggðir og með 8% nafnvöxtum.
Þriggja stjörnu reikningar eru með hvert
innlegg bundið í tvö ár, verðtryggt og með
9% nafnvöxtum.
Lífeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá
lífeyrissjóðum eða almannatryggingum. Inn-
stæður eru óbundnar og óverðtryggðar. Nafn-
vextir eru 29% og ársávöxtun 29%.
Sérbók. Við fyrsta innlegg em nafnvextir
27% en 2% bætast við eftir hverja þrjá mánuði
án úttektar upp í 33%. Ársávöxtun á óhreyfðri
innstæðu er 33,5% á fyrsta ári.
Búnaðarbankinn: Sparibók með sér-
vöxtum, Gullbókin, er óbundin með 36%
nafnvöxtum og 36% ársávöxtun á óhreyfðri
innstæðu eða ávöxtun 3ja mánaða verð-
tryggðs reiknings reynist hún betri. Af hverri
úttekt dragast 1,7% í svonefnda vaxtaleiðrétt-
ingu.
18 mánaða reikningur er með innstæðu
bundna í 18 mánuði á 39% nafnvöxtum og
42,8% ársávöxtun, eða ávöxtun 6 mánaða
verðtryggðs reiknings reynist hún betri.
Iðnaðarbankinn: Bónusreikningar em
annaðhvort með 28(/0 nafnvöxtum og 30%
ársávöxtun eða verðtryggðir og með 3,5%
vöxtum. Hærri ávöxtunin gildir hvern mánuð.
Á hreyfðum innstæðum gildir verðtrygging
auk 2% vaxta í úttektarmánuðinum. Taka
má út tvisvar á hverju 6 mánaða tímabili án
þess að vaxtakjör skerðist. Vextir em færðir
30.06. og 31.12.
Landsbankinn: Kjörbók er óbur.din með
36% nafnvöxtum og 39,2% ársávöxtun eða
ávöxtun 3ja mánaða verðtryggðs reiknings
reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast
1,7% í svonefhda vaxtaleiðréttingu.
Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur
hefur stighækkandi vexti á hvert innlegg,
fyrst 22%, eftir 2 mánuði 25%, 3 mánuði 27%,
4 mánuði 29%, 5 mánuði 31%, eftir 6 mánuði
37% og eftir 12 mánuði 37%. Ársávöxtun á
óhreyfðu innleggi er 37%, eða eins og á 3ja
og 6 mánaða verðtryggðum reikningum reyn-
ist hún betri. Vextir færast einu sinni á ári.
Útvegsbankinn: Ábót ber annaðhvort
hæstu ávöxtun óverðtryggðra reikninga í
bankanum, nú 34,6%, eða ávöxtun 3ja mán-
aða verðtryggðs reiknings með 1% nafnvöxt-
um sé hún betri. Samanburður er gerður
mánaðarlega en vextir færðir í árslok. Sé
tekið út af reikningnum gilda almennir spari-
sjóðsvextir, 22%, þann mánuð.
Verslunarbankinn: Kaskóreikningur er
óbundinn. Þá ársfjórðunga sem innstæða er
óhreyfð eða aðeins hefur verið tekið út einu
sinni em reiknaðir hæstu vextir sparifjár-
reikninga í bankanum. Nú er ársávöxtun
annaðhvort 34,8% eða eins og á verðtryggðum
6 mánaða reikningum með 3,5% nafnvöxtum.
Af úttekinni upphæð reiknast almennir spari-
sjóðsvextir, 22%, og eins á alla innstæðuna
innan þess ársfjórðungs þegar tekið hefur
verið út oftar en einu sinni. Innlegg fær strax
hæstu ávöxtun sé það óhreyft næsta heila
ársfjórðung.
Sparisjóðir: Trompreikningur er verð-
tryggður og með ávöxtun 6 mánaða reikninga
með 3% nafnvöxtum. Sé reikningur orðinn
3ja mánaða er gerður samanburður á ávöxtun
með svokölluðum trompvöxtum, 32%, með
34,3% ársávöxtun. Miðað er við lægstu inn-
stæðu í hverjum ásfjórðungi. Reynist tromp-
vextir gefa betri ávöxtun er þeim mun bætt
á vaxtareikninginn. Hreyfðar innstæður inn-
an mán^ðar bera trompvexti sé innstæðan
eldri en 3ja mánaða, annars almenna spari-
sjóðsvexti, 22%. Vextir færast misserislega.
Spariskírteini
Spariskírteini Ríkissjóðs íslands eru seld í
Seðlabankanum, viðskiptabönkum, sparisjóð-
um, hjá verðbréfasölum og í pósthúsum.
Nýjustu skírteinin eru að nafnverði 5, 10 og
100 þúsund krónur, nema vaxtamiðabréf sem
eru 50 þúsund að nafnverði.
Þau eru: Hefðbundin, til mest 14 ára. Með
þriggja ára binditíma eru ársvextir 7%, Qög-
urra ára 8,5% og sex ára 9%. Verðbætur,
vextir og vaxtavextir greiðast með höfuðstól
við innlausn. Með vaxtamiðum, til mest 14
ára, innleysanleg eftir fjögur ár. Ársávöxtun
er 8,16% á verðbættan höfuðstól hverju sinni
og vextir greiðast út 10.01. og 10.07. ár hvert.
Við innlausn greiðast verðbætur með höfuð-
stól. Gengistryggð skírteini eru til fimm ára.
í>au eru bundin safngjaldeyrinum SDR (til-
tekin samsetning af dollar, pundi, yeni, þýsku
marki og frönskum franka). Vextir eru 8,5%.
Höfuðstóll, vextir og vaxtavextir greiðast í
einu lagi við innlausn.
Almenn verðbréf
Fasteignatryggð verðbréf eru til sölu hjá
verðbréfasölum. Þau eru almennt tryggð með
veði undir 60% af brunabótamati fasteign-
anna. Bréfin eru ýmist verðtryggð eða óverð-
tryggð og með mismunandi nafnvöxtum. Þau
eru seld með afFöllum og ársávöxtun er al-
mennt 12-18% umfram verðtryggingu.
Húsnæðislán
Nýbyggingarlán frá Byggingarsjóði ríkis-
ins, F-lán, nema á 4. ársfjórðungi 1985: Til
einstaklinga 720 þúsundum króna, 2-4 manna
fjölskyldna 916 þúsundum, 5 manna og fleiri
1.073 þúsundum, 7 manna og fleiri (í sértilvik-
um) 1.237 þúsundum. Lánin eru til 31 árs.
Lán til kaupa á eldri íbúðum, G-lán, nema
á 4. ársfjórðungi 1985: Til kaupa í fyrsta sinn
er hámark 348 þúsund krónur til einstaklings,
annars mest 139-174 þúsund. 2-4 manna fjöl-
skylda fær mest 442 þúsund til fyrstu kaupa,
annars mest 177-221 þúsund. 5 manna fjöl-
skylda eða stærri fær mest 518 þúsundir til
fyrstu kaupa, annars mest 207-259 þúsund.
Lánstími er 21 ár.
Húsnæðislánin eru verðtryggð með láns-
kjaravísitölu og með 3,5% nafnvöxtum.
Fyrstu tvö árin er ekki greitt af höfuðstól,
aðeins vextir og verðbætur.
Útlán lífeyrissjóða
Um 90 lífeyrissjóðir eru í landinu. Hver
sjóður ákveður sjóðfélögum lánsrétt, lánsupp-
hæðir, vexti og lánstíma. Stysti tími að láns-
rétti er 30-60 mánuðir. Sumir sjóðir bjóða
aukinn lánsrétt eftir lengra starf og áunnin
stig. Lán eru á bilinu 150-700 þúsund eftir
sjóðum, starfstíma og stigum. Lánin eru verð-
tryggð og með 5-8% vöxtum. Lánstími er 15-35
ár.
Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur.
Hægt er að færa lánsrétt við flutning milli
sjóða eða safna lánsrétti frá fyrri sjóðum.
Nafnvextir, ársávöxtun
Nafnvextir eru vextir í eitt ár og reiknaðir
í einu lagi yfir þann tíma. Séu vextir reiknaðir
og lagðir við höfuðstól oftar á ári verða til
vaxtavextir og ársávöxtunin verður þá hærri
en nafnvextimir.
Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á
22% nafnvöxtum verður innstæðan í lok
tímans 1220 krónur og ársávöxtunin þannig
22%.
Liggi 1000 krónur inni í 6 + 6 mánuði á 22%
nafnvöxtum reiknast fyrst 11% vextir eftir 6
mánuði. Þá er upphæðin orðin 1110 krónur.
Á hana koma svo 11% vextir eftir næstu 6
mánuði. Þannig verður innstæðan í lok tím-
ans 1232 krónur og ársávöxtunin 23,2%.
Dráttarvextir
Dráttarvextir eru 3,75% á mánuði eða 45%
á ári. Dagvextir reiknast samkvæmt því
0,125%.
Vísitölur
Lánskjaravísitala í febrúar 1986 er 1396
stig en var 1364 stig í janúar. Miðað er við
grunninn 100 í júní 1979.
Byggingarvísitala á 1. ársfjórðungi 1986
er 250 stig á grunninura 100 frá 1983 en 3699
stig á grunni 100 frá 1975.
VEXTIR BANKA 0G SPARISJÓÐA (%) 01 -10.02. 1986
innlAnmeðsérkjörum sjAsérlista ilsf llli lifi liiiiiii
innlAn óverðtryggd SPARISJÚÐSBÆKUR Úbundin innstæða 22.0 22.0 22.0 22.0 22.0 22.0 22.0 22.0 22.0 22.0
SPARIREIKNINGAR 3ja mén. uppsögn 25,0 28.6 25.0 25.0 23.0 23.0 25.0 23,0 25.0 25.0
6 mén.uppsögn 31.0 33.4 30.0 28.0 26.5 30.0 29.0 31.0 28.0
12 mán.uppsogn 32,0 34,6 32,0 31.0 33.3
SPARNAÐUR- LANSRÉ7TUR Spanö 3-5 mán. 25.0 23.0 23.0 23.0 23,0 25.0 25.0
innlAnsskírteini Sp. 6 mán. og m. 29.0 26.0 23.0 29.0 28.0
Til 6 mánaöa 28.0 30.0 28,0 28.0
TÉKKAREIKNINGAR Avisanaraikningar 17.0 17.0 8.0 8.0 10,0 10.0 8.0 10.0 10.0
Hlaupareikningar 10.0 10.0 8.0 8.0 10.0 10.0 8.0 10.0 10.0
INNLAN VERÐTRYGGÐ SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsögn 6 mán. uppsögn 2.0 3.5 1.5 3.5 1.0 3.5 1.0 3.0 1.0 3.5 1.0 3.5 1.0 3.0 2.0 3.5 1.0 3.0
innlAn gengistryggð GJALDEYRISREIKNINGAR Bandarikjadollarar 8.0 8.0 7.5 7.0 7,5 7.5 7.5 7.5 8.0
Sterlingspund 11.5 11.5 11.0 11.0 11.5 11.0 11.0 11.5 11.5
Vestur-þýsk mörk 5.0 4.5 4.25 4.0 4.5 4.5 4.5 5.0 4.5
Dartskar krónur 10.0 9.5 8.0 8.0 9.0 9.0 9.0 10.0 9.0
útiAn úverðtryggð ALMENNIR VlXLAR (forvaxtir) 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30,0
VHJSKIPTAVlXLAR (forvextir) 34.02) kgt 34.0 kge 32,5 kge kge k|l* 34.0
ALMENN SKULDABRÉF 32.03) 32.0 32.0 32.0 32.0 32.0 32.0 32.0 32.0
VIÐSKIPTASKULDABRÉF 35.02) kot 35.0 kge 33,5 kge kfi* 35.0
HLAUPAREIKNINGAR ÍFIRDRATTUn 31,5 31.5 31.5 31.5 31.5 31,5 31.5 31.5 31.5
útlAn verðtryggð SKULDABRÉF Aö 21/2 árí 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.B 4.0 4.0
Lengri en 21 /2 ár 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0
ÚTLÁN TIL FRAMLEBSLll SJANEÐANMALS!)
l)Lán til innanlandsframleiðslu eru á 28,5% vöxtum. Vegna útflutnings, í SDR 10%,
í Bandaríkjadollurum 9,75%, í sterlingspundum 14,25%, í vestur-þýskum mörkum 6,25%.
2) Við kaup á viðskiptavíxlum og viðskiptaskuldabréfúm er miðað við sérstakt kaup-
gengi, kge, hjá þeim bönkum sem þannig er merkt við, einnig hjá sparisjóðunum í
Hafharfirði, Kópavogi, Keflavík, Sparisjóði Reykjavíkur og Sparisj. vélstj.
3) Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs vanskilalána er 2% á ári, bæði á verðtryggð og
óverðtryggð lán, nema í Alþýðubankanum og Verslunarbankanum.
Amgrímur dregur sig
út úr Air Arctic
„Ég hef sótt um annað flugrekstrarleyfi”
„Ég hef ákveðið að draga mig út
úr Air Arctic. Ég hef sótt um annað
flugrekstrarleyfi,“ sagði Arngrímur
Jóhannsson flugstjóri og annar af
frEunkvæmdastjórum og stofnendum
Air Arctic.
Arngrímur vildi ekki skýra frá
ástæðum ákvörðunar sinnar.
„Ég býst við að Einar Frederiksen
haldi áfram rekstri Air Arctic,“ sagði
hann um framtíð félagsins.
„Ég hyggst halda áfram á svipuð-
um grundvelli og ég hef gert,“ sagði
Amgrímur um sín áform. Hann hefur
þó ekki enn stofnað félag um rekstur-
inn.
Air Arctic, sem þeir Amgrímur og
Einar Frederiksen stofnuðu, hóf
rekstur í júlímánuði síðastliðið
sumar. Á tímabili hafði félagið þrjár
leiguþotur í rekstri.
Þessa dagana er Air Arctic með
tvær þotur í verkefnum erlendis.
Önnur flýgur með nautgripi milli
Kanada og Brasilíu. Hin flýgur fyrir
flugfélag Maldiveyja í Indlandshafi.
-KMU
•tlpHCfM! ;i|
.mjttcnc kfLmdic
****** •***•• *
Boeing 707-þota frá Air Arctic á Keflavíkurflugvelli fyrr í vetur.
DV-myndGVA.
Fasteignaverö:
Útborgun lækkar en
seklum eignum fækkar
FASTEIGNAUERÐ Á
EÖSTU VERÐLAGI ( Jan 1984=100 )
Fasteignaverð fór lækkandi á
þriðja ársfjórðungi síðasta árs, eða
tímabilinu júlí til september. Sölu-
verð íbúða hefur aldrei verið eins
lágt og í lok þess tímabils, síðan í
ársbyijun 1984, samkvæmt frétta-
bréfi frá Fasteignamati ríkisins.
Útborgun kaupverðs hefur auk
þess lækkað, er nú að meðaltali 72%
af heildarverði. Menn em famir að
varast verðtryggðu lánin. Hlutfall
þeirra núna er 9,5% af söluverði en
var á svipuðum tíma í fyrra 10,1%
af söluverði.
Fasteignasalan virðist einnig hafa
gengið treglega að undanförnu. í
markaðskönnun fasteignamatsins
fyrir tímabilið júlí til september 1985
komu talsvert færri eignir til út-
reiknings en á sama tímabili í fyrra.
-KB
Þróun fasteignaverðs frá 4. ársfjórð-
ungifoktóber til desember) 1984, mið-
að við að í janúar 1984 hafi það verið
á fasta verðlaginu 100. Línuritið sýnir
nokkuð stöðuga lækkun fasteigna-
verðs, var 115 á 4. ársfjórðungi 1984
og er komið niður í 93 á þriðja árs-
fjórðungi 1985.
Bók komin út um skreiðarvinnslu
Handbókin „Skreiðarvinnsla" er
komin út. Hún er ætluð fyrir verk-
stjóra og framkvæmdastjóra í fisk-
vinnslu, matsmenn og nemendur á
fiskvinnslunámskeiðum svo og
áhugasama einstaklinga.
Útgefandi er Rannsóknarstofnun
fiskiðnaðarins. Útgáfustjóri er
Jónas Bjarnason. Bókin fæst hjá
stofnuninni fyrir 1.100 krónur.
Rannsóknarstofnun fiskiðnaðar-
ins vinnur að gerð handbóka fyrir
hinar ýmsu greinar íslensks fisk-
iðnaðar. Fyrsta ritið, um saltfisk-
verkun, kom út fyrir tveimur árum.
Rit um síldarsöltun er í miðjum
klíðum. I undirbúningi eru rit um
frystingu og ferskfiskmeðferð.
Ennfremur er áformað að gefa út
handbækur fyrir lagmetisfram-
leiðslu, fiskimjölsframleiðslu og
ýmsa sérvinnslu.
-KMU