Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1986, Blaðsíða 13
DV. FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR1986
13
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
Hræðilegt ástand á breskum sjúkrahúsum:
Tíundi hver sjúklingur
fær sjúkrahússýkingu
— og40 deyja úr matareitrun
í*v\wtá\ OvnWatl
AV ..4 Av tv. tnni 4 ..V O KV't tti ttW,
OvnWat
Ovnklar
úwíWtUs\mn.Wat pi\5nsln.
NyHedt Ovnklar
Í« íw\t 1 Klar pá '15
Æðsta skylda sjúkrahúsanna er að
skaða ekki sjúklingana, er haft eftir
Florence Nightingale sem talin er
vera fyrsti alvöru-hjúkrunarfræð-
ingurinn.
Það er einkennilegt að það skuli
vera ástæða til þess að taka þetta
fram en staðreynd er að um einn af
hverjum tíu sjúklingum á breskum
spítulum þjáist af sýkingu sem hann
hefur orðið fyrir á sjúkrahúsum. Það
er félag breskra sýkingarvama-
hjúkrunarfræðinga sem komist
hefur að þessari niðurstöðu að at-
huguðu máli. Margar af alvar-
legustu matareitrunum, sem verða
árlega í Bretlandi, verða einmitt inni
á sjúkrahúsunum. Talið að 15-20%
sjúklinga á breskum sjúkrahúsum
fái árlega matareitrun.
Frá þessu er skýrt í breska vikurit-
inu The Economist.
Versta dæmið er þegar nitján aldr-
aðir sjúklingar á geðsjúkrahúsi lét-
ust af völdum matareitrunar.
Nú nýlega var hafm rannsókn á
þessu ástandi á ríkisreknu sjúkra-
húsunum og segir í blaðinu að nánast
allir starfsmenn þeirra eigi hlut að
þessu máli. En vegna lögverndar
sjúkrahúsanna er ekki hægt að lög-
sækja þau.
Við rannsókn á sl. ári á helmingi
allra sjúkrahúsa i Englandi og Wales
þverbrutu þau reglugerðir og 16%
af þeim gætu átt á hættu lögsókn ef
ekki kæmi til lögvemdin.
Ástandið virðist hafa versnað síðan
svipuð könnun fór fram árið 1977.
Þá þverbrutu einnig um 60% sjúkra-
húsanna heilbrigðisreglur en aðeins
um 8% hefðu getað átt von á lögsókn.
Ein af bresku sjónvarpsstöðvunum
sendi sérfræðing á laun í rannsókn-
arleiðangur um eldhús eins spítal-
ans, eftir að stöðinni hafði verið
neitað um að taka þar myndir.
Ástandið var hræðilegt, ólýsanlegur
skítur, matvæli geymd á rangan hátt
og kakkalakkamir léku aðalhlut-
verkin í því næturleikhúsi.
Heilbrigðismálaráðherra Bret-
lands, Barney Heyhoe, sagði í viðtali
við sjónvarpsstöðina að lögverndin
væri í athugun. Hann sagði einnig
að hann teldi ekki að lögverndin
skipti öllu máli hvað varðar eldhús
spítalanna.
Hollustu- og umhverfisvemdar-
nefndin í Bretlandi telur að nauðsyn-
legt sé að lyfta lögverndinni af
sjúkrahúsunum hið fyrsta. Samt er
Með súpunni er þetta orðin heil máltíð og vel það á 315 krónur. Mynd: P.K.
SALATIÐ
HÆKKAÐI
UM 66%
Neytendasíðan fékk upphringingu
frá neytanda sem vildi vekja athygli
á salati sem Café Hressó í Austur-
stræti selur. Skýrði viðkomandi frá
því að síðan í haust hefði þessi til-
tekni salatréttur hækkað úr 190
krónum upp í 315 krónur, sem salatið
kostar nú. Þetta gerir um 66%
hækkun og leitaði DV skýringa hjá
forsvarsmönnum Café Hressó.
Einar Sigurjónsson varð fyrir svör-
um og sagði að við opnun í haust
hafi salatið verið selt á 190 þar til í
ljós kom að það varla nægði fyrir
hráefniskostnaði. Þá hefði það verið
hækkað upp í 235. Því næst hefðu
þær breytingar verið gerðar að súpu
og brauði hefði verið bætt við og
skammturinn stækkaður og hækkaði
því upp í 290. 25 krónurnar sem við
bættust komu til vegna hækkana á
hráefni er íslenska hráefhið var ekki
lengur fáanlegt og því keypt erlent
sem er á hærra verði.
Salötin sem hér um ræðir eru
kræklingasalat, túnfisksalat og
skinkusalat og með súpu og brauði
er þetta heil máltíð og vel það.
Vonast Neytendasíðan til að þessar
upplýsingar svari spumingum neyt-
anda. -S.Konn.
Florence Nightingale sem taldi það æðstu skyldu sjúkrahúsanna að skaða
ekki sjúklingana sina.
talið að geðsjúkrahúsið, sem nefnt
var hér áður, þar sem nítján sjúkl-
ingar létust af matareitrun, myndi
ekki hafa verið lögsótt. Þetta kom
ráðamönnum mjög á óvart.
Hollustu- og umhverfisvemdar-
nefndin segir að það sé ekki alltaf
lögsóknin sem hrífi best heldur hætt-
an á því að verða lögsóttur.
Ef lögverndinni vrði létt af sjúkra-
húsunum þyrftu að fara fram gagn-
gerar breytingar á eldhúsum 200
sjúkrahúsa. Það myndi kosta breska
skattgreiðendur tugi milljóna punda.
Opinberir starfsmenn hafa viður-
kennt að búið sé að kanna kostnað-
inn við slikar breytingar. Þá hefur
einnig heyrst að um 40 sjúklingar
deyi árlega af völdum matareitrunar
í breskum sjúkrahúsum þótt erfitt sé
að segja nákvæmlega til um dánaror-
sakir í mörgum tilfellum
Þess má geta að íslendingum, sem
fara til hjartaaðgerða á breska spít-
ala, kemur mörgum spánskt fyrir
sjónir að þeir eigi að hafa meðferðis
sápu og handklæði en slíkt verða
sjúklingarnir að skaffa sér sjálfir.-
A.Bj.
rúllurnar - nýjung á Islandi.
Beint úr frysti í ofn. Tilbúiö á 15 mín.
Daloon-rúllumar fyrirliggj andi:
Einkaumboðá Islandi:
Magnús Garðarsson - ögur hf.
Símar 68-72-66 og 68-73-25.
Nú er tækifærið til að gera góð kaup á
ýmsum varahlutum í eldri árgerðir
ALFASUD.
Dæmi um verð:
Stuðari kr. 500,-
Flauta kr. 250,-
Þurrkuarmur kr. 250,-
Heil hillustæða, full af alls konar
varahlutum sem kosta aðeins 100 krónur
stykkið.
Stórfelld verðlækkun.
Komdu og kíktu I útsöluhornið okkar.
JÖFUR HF
NYBÝLAVEGI 2
KÓPAVOGI
SÍMI 42600