Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1986, Page 20
20
DV. FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR1986
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
• ÁrniNjálsson
Árni Njáls
þjálfar hjá
Njarðvík
Robson
sýknaður
Haukar-ÍBK
Frá Magnúsi Gislasyni, fréttamanni
DV á Suðurnesjum.
Árni Njálsson íþróttakennari, hinn
kunni landsliðsmaður í knattspyrn-
unni hér á árum áður, hefur verið
ráðinn þjálfari Njarðvíkinga sem
leika i 2. deild. Árni var ráðinn fyrir
helgi og er þegar tekinn til starfa.
Júgóslavinn Mile þjálfaði Njarðvík-
inga á síðasta keppnistímabili en
verður nú þjálfari Magna, Grenivík.
Árni Njálsson hefur lengi verið þjálf-
ari knattspyrnuliða með góðum ár-
angri. hsím
i
1
Nefnd enska knattspyrnusam-
bandsins fjallaði um mál Bryan
Robson, fyrirliða Man. Utd og enska
landsliðsins, i gær vegna brottrekst-
urs hans af velli í bikarleiknum i
Sunderland á dögunum. Nefndin
sýknaði Robson, taldi að hann hefði
ekki „vanvirt knattspyrnuna" með
framkomu sinni i leiknum. Nefndin
hefur eflaust stuðst við myndbönd
frá leiknum. Robson og Barry Veni-
son, Sundcrland, flæktust saman og
féllu á völlinn. Dómarinn gerði enga
athugasemd en stöðvaði hins vegar
leikinn þegar annar línuvörðurinn
veifaði ákaft. Kallaði síðan leikmenn-
ina til sin og vísaði cftir það Robson
af velli. Ekki er enn ljóst hvort Rob-
son verður dæmdur í leikbann eins
og reiknað hafði verið með eða ekki.
Hann á eftir að mæta á fund hjá
einum forustumanni enska knatt-
spymusambandsins áður en ákvörð-
un um það verður tekin. Hins vegar
kæmi það á óvart ef hann fer i leik-
bann, sem í sjálfu sér skiptir hann
litlu máli þar sem hann á við meiðsli
að striða, eftir þessa sýknun enska
knattspyrnusambandsins.
Eftir leikinn í Sunderland lét Rob-
son þau orð falla „að hann hefði
ekkert til að skammast sin fyrir“.
Þessi orð hans hafa fallið i misjafnan
jarðveg hjá breskum fjölmiðlum.
hsim
Haukar og Keflvíkingar leika í
úrvalsdeildinni í körfuknattleik í
íþróttahúsi Hafnarfjarðar klukkan
átta í kvöld. Átjánda umferðin i deild-
inni fer sem sagt af stað í kvöld og
leikur liðanna er mjög mikilvægur
fyrir þau bæði.
Haukar stefaa auðvitað að sigri í
sjálftí deildarkeppninni fyrir úrslita-
keppnina. Til þess að sá möguleiki
eigi að vera fýrir hendi verða þeir
að vinna þá þrjá leiki sem þeir eiga
eftir. Keflvíkingar hafa svo gott sem
tryggt sig í úrslitakeppnina í vor en
með sigri í kvöld væri um gulltrygg-
inguaðræða. -SK,
- er liðið vann Hauka, 25-22, ífyrsta leik
úrslitakeppninnar um 1. deildarsætin
„Við spiluðum í fyrsta sinn skyn-
samlega í vetur og skutum á markið
í stað þess að rétta boltann frá okkur.
Við erum ákveðnir i að beijast fyrir
fyrstu deildar sæti okkar,“ sagði Gísli
Oskarsson, fyrirliði Þróttar, eftir að
liðið hafði komið á óvart og unnið
sigur á Haukum í fyrsta leik úrslita-
mótsins um fyrstu deildar sætin í
handboltanum, 25-22, í Iþróttahúsinu
í Hafnarfirði.
Leikurinn var jafn allt fram á síð-
ustu mínútumar. Staðan var jöfn í
hálfleik, 13-13, og síðan skiptust liðin
á forystunni. Jafnt var, 19-19, en þá
tók Þróttur af skarið og vann sinn
fyrsta sigur á þessum vetri.
Mörk Þróttar: Konráð Jónsson og
Nikulás Jónsson 7, Haukur Haf-
steinsson og Guðmundur Óskarsson
4 og Gísli Óskarsson 3.
Mörk Hauka: Snorri Leifsson 8,
Ingimar Haraldsson 5, Pétur Guðna-
son, Öm Hauksson, Árni Sverrisson
og Sigurjón Sigurðsson 2, Sindri
Karlsson 1.
• Konráð Jónsson skoraði sjö mörk
fyrir Þrótt í gærkvöldi.
Keppt eftir
nýju sniði
— á afmælismóti
Öskjuhlíðaríkeilu
Afmælismót Öskjuhlíðar i keilu fer
fram tvo næstu laugardaga og hefst
klukkan ellefu báða dagana. Keppt
verður í þremur flokkum í einstakl-
ingskeppni, karla og kvenna og blön-
duðum unglingafiokki 10-16 ára.
Keppnin verður að þessu sinni með
nýju sniði, svonefndu Monrad kerfi.
Dregið er saman í fyrstu umferð en
síðan leika tveir hæstu menn saman,
tveir næstu og síðan koll af kolli.
Úrslitin ráðast ekki af fjölda keilna
sem rutt er heldur af mismunandi
skori keppenda. Fullvíst má telja að
mótsfyrirkomulagið gerir mótið
spennandi en skráning fer fram í
Umsjá gegn greiðslu þátttökugjalds
sem er krónur 600. Þátttaka tilkynn-
ist í dag og takmarkast við sextíu
manns í hverjum flokki. Vegleg verð-
laun eru í boði.
Samkomulag
um talna-
getraunir
íþróttasamband íslands, Ung-
mennafélag Islands og Öryrkja-
bandalag Islands hafa gert drög að
samkomulagi um rekstur talnaget-
rauna sem stundum hefur verið nefnt
lottó.
Lagt hefur verið fram frumvarp
sem kveður á um stofnun talnaget-
rauna. Samkvæmt því er gert ráð
fyrir að 60% ágóðans renni til
íþróttahreyfingarinnar (ÍSÍ 46,67%
og UMFÍ 13,33%) en til Öryrkja-
bandalagsins 40% -APH
Það voru margir kunnir kappar, sem fylgdust með leikjum íslenska lan
þeim mynd þegar ísland hafði skorað gegn Póllandi í úrslitaleiknum. Ler
Stefán Kristjánsson íþróttafulltrúi, þá Gísli Halldórsson, heiðursforseti Í!
íþróttakennari og landsliðsþjálfari yngri leikmanna, þá Sveinn Björnsson,
hiesen utanríkisráðherra og eiginkona hans, Sigrún Þorgilsdóttir.
Stórbikarkeppnin í ki
Liverpool-lið
stefnuna á ú
— Daglish jaf naði fyrir Liverpool í Norwic
„Það er greinilegt að Liverpool-
-liðin hafa sett stefnuna á úrslita-
leikinn í stórbikarkeppninni á
Wembley eftir jafnteflin á útivöllum
í gærkvöldi," sagði Peter Jones,
fréttamaður BBC, þegar ljóst var að
bæði LiverpooHiðin höfðu náð hag-
stæðum úrslitum í fyrri leikjunum í
undanúrslitum. Liverpool gert jafn-
tefli í Norwich, 1-1, með marki
Kenny Dalglish ellefu mínútum fyrir
leikslok og Everton gert jafntefli við
Tottenham á White Hart Lane í
Lundúnum. Síðari leikirnir í undan-
úrslitunum verða í Liverpool.
Kenny Dalglish valdi sjálfan sig í
lið Liverpool vegna meiðsla Ian
Rush. Mikil barátta lengstum og
jafnræði með liðunum. Ekkert mark
skorað í fyrri hálfleiknum en á 49.
mín. náði Norwich, efsta liðið í 2.
deild, sem sló Man. Utd út í þessari
keppni, forustu með marki Kevin
Drinkell. Liverpool reyndi mjög að
jafna en tókst ekki vel upp gegn
sterkri vöm Norwich þar sem ensku
landsliðsmennirnir Chris Wood,
markvörður, og Dave Watson, voru
fremstir í flokki. En á 79. mín. sýndi
Dalglish gamla töfratakta. Fékk
knöttinn frá Dananum Jan Mölby,
sneri sér eldsnöggt eins og á krónu-
peningi og sendi knöttinn í markið
hjá Wood. Fleiri urðu ekki mörkin
og heimavöllurinn ætti að nægja
Liverpool til að komast í úrslitin.
Þessi stórbikarkeppni var sett á
þegar ensku liðin voru útilokuð frá
Evrópumótunum þremur vegna
harmleiksins í Brússel.
Tottenham vantaði sjö
Það var ekki sama spennan í hin-
Caron stóra stjaman á
sundmótinu í París
— synti 100 m skriðsund á 49,07 sek.
Franski sundmaðurinn Stephan
Caron, Evrópumeistari með meiru,
var stóra stjaman á sundmótinu
mikla í París um síðustu helgi. Þar
voru þátttakendur frá 20 þjóðum og
hér í blaðinu var talsvert sagt frá
fyrstu tveimur keppnisdógunum á
mánudag. Hins vegar urðum við að
sleppa síðasta keppnisdeginum
vegna þrengsla.
Caron náði þá snjöllum tíma í sinni
aðalgrein, 100 m skriðsundinu. Synti
á 49,07 sek. Heimsmetið á vega-
lengdinni í 25 metra laug á Banda-
ríkjamaðurinn Dave McCagg, 48,22
sek. Evrópumetið Jörg Woithe,
Austur-Þýskalandi, 48,89 sek. Caron
var nær tveimur sekúndum á undan
næsta manni í sundinu í París. Það
sýnir styrk Frakka á þessari vega-
lengd að þeir áttu sjö af átta kepp-
endum í úrslitasundinu. Svíinn Ulf
Eriksson var fjórði á 51,16 sek. I 100
m skriðsundi kvenna sigraði María-
Theresa Armentero, Sviss, á 55,83
sek. Sophie Kamoun, Frakklandi,
önnur á 56,23 og Agneta Eriksson,
Svíþjóð, þriðja á 56,24 sek.
mín. Frederic Delcourt, Frakklandi,
þriðji á 2:03,91 og Svíinn Hans Fredin
fjórði á 2:04,69 mín. Islandsmet Eð-
varðs Eðvarðssonar í 25 m laug er
2:02,23 mín.
Af öðrum úrslitum á mótinu í París
nefna að Adrian Moorhouse,
ma
Sovéski heimsmethafinn í bak-
sundinu, Igor Poliansky, sigraði í 100
og 200 m baksundi í París. Synti á
1:59,09 mín. í 200 m. Tamas Damyi,
Ungverjalandi, varð annar á 2:00,37
Bretlandi, sigraði í 100 m bringsundi
á 1:02,06 mín. Hann er Evrópumeist-
ari á vegalengdinni. Dimitri Volkov,
Sovétríkjunum, varð annar á 1:02,26
mín. Peter Berggren, Svíþjóð, þriðji
á 1:02,70 mín. Snjall tími Svíans og
Svíþjóð átti einnig annan keppanda
í úrslitasundinu, Andres Petersson,
sem varð sjöundi á 1:04,94 mín.
-hsím
• Kenny Dalglish, frábært
mark.
Fyrsti
Þróttar
sigur
í vetur
íþróttir
einnig
á bls. 22