Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1986, Blaðsíða 31
DV. FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR1986
31
Sandkorn
Sandkorn
Dyraverðir verða að hafa
krafta í kögglum.
Kraftar í
kögglum
Veitingahús eitt hafði
auglýst eftir dyraverði. Var
nú allvænn hópur manna
mættur til viðtals og hafði
fyrsta umsækjandanum
verið vísað inn.
„Þú veist að menn verða
að hafa krafta í kögglum
ef þeir eiga að geta staðið
sig i þessu starfi,“ sagði
ráðningarstjórinn.
„Ég er nú ekkert hrædd-
ur við það,“ sagði umsækj-
andinn. „Ég var til dæmis
enga stund að henda þeim
sextán út sem biðu þarna
frammi áðan.“
Domino í
Broadway?
Veitingahúsið Broadway
tók upp það nýmæli ekki
alls fyrir löngu að fá hingað
til lands ýmsar breskar
hljómsveitir sem nutu mik-
illa vinsælda fyrir mörgum
árum. Má þar nefna The
Tremelos, The Searchers
og The Swinging Blue
Jeans. Skemmtu þær við
góðar undirtektir bæði
gestum og sjálfum sér, að
því er fregnir herma. Þótti
þeim landsmönnum, sem
komnir eru af léttasta
skeiði, mikill fengur í að fá
þessa kappa hingað.
Og nú segir sagan að von
sé á einu stórstirninu enn.
Það er gamli öðlingurinn
Fats Domino. Verða áreið-
anlega margir til að bregða
sér í Broadway til að sjá
hann og heyra.
Sá gamli mun vera nokk-
uð dýrkeyptur, því hann
tekur 500 þúsund fyrir
komuna fyrir utan ferðir
og uppihald. Vafalaust
finnst mörgum að þeim
peningum sé vel varið.
Aftur er talið að kostnað-
ur við „gömlu" hljómsveit-
irnar hafi ekki verið ýkja
mikill. Þær munu ekki
njóta sérlega mikiUa vin-
sælda í heimalandinu þar
sem þær eru taldar afdank-
aðar. Þykir Bretanum með
ólíkindum að íslendingar
skuli þyrpast á hljómleika
með þeim, því tæplega væri
hægt að hóa saman tuttugu
manns til að hlusta á þá i
heimalandinu. En sinn er
siður í landi hverju, eins og
þar stendur.
ÁTVRáSpáni
Menn spá mikið í breyt-
ingar hjá Áfengis- og tó-
baksverslun rikisins með
tilkomu nýs forstjóra. Eru
aUir á einu máli um að þær
geti ekki orðið til annars en
góðs verði þær einhverjar á
annað borð, því lengra
verði varla komist í hina
áttina. Raunar hefur nýi
forstjórinn, Höskuldur
Jónsson, boðað einhveijar
sviptingar í blaðaviðtölum.
Því var það að hana fór
að gruna ýmislegt, íslensku
stúlkuna sem var úti á
Kanaríeyjum um daginn.
Hún hafði nefnilega pantað
hálfflösku af Torres og á
Höskuldur hefur boðað breyt-
ingar hjá ÁTVR. Hveijar
skyldu þær verða?
flöskunni stóð skýrum stöf-
um , ,ÁTVR“. Stúlkan vildi
vera alveg viss og pantaði
aðra. Á henni stóð einnig
„ÁTVR“.
Nú var forvitni ferða-
1.\i W .H'
ÁTVR er heldur betur að færa
út kvíarnar ef marka má frá-
sögn Spánarfarans.
langsins vakin fyrir alvöru,
svo næsta skref var að kalla
á þjóninn og spyrja hann
skýringa á þessu. Þegar
hann kom að borðinu benti
stúlkan á fiöskuna og sagði
í spurnartón:
„Iceland, Iceland."
En þjónninn var litill
málamaður, því hann benti
á sjálfan sig og svaraði:
„Kanari, Kanari.“
Og þar með lauk þessum
samræðum. Gátan er þess
vegna óleyst enn.
Um margt að
velja
Þau höfðu verið gift í
mörg ár og höfðu orðið um
fátt að tala. Einhveiju sinni
tók hún þó á sig rögg og
sagði blíðum rómi:
„Ég vildi að þú myndir
kitla mig undir hökuna
núna eins og þú varst vanur
að gera þegar við vorum í
tilhugalífinu."
„Huh, hveija þeirra?!
Vel kynntir
í útlandinu
Ur því að verið er að fjalla
um Islendinga á Spáni er
sjálfsagt að geta þess sem
vel er gert við þá þar. Þeir
þurfa til að mynda ekki að
borga sig inn á diskótek
eins og innfæddir. Þykir
þetta fyrirkomulag allra
hagur, því íslendingar eru
ólatir við að fara á barinn
meðan Spánveijar eru að
gaufast með sama glasið
allt kvöldið. Hinir fyrr-
nefndu þykja þvi aufúsu-
gestir á skemmtistöðun-
um.
Kvikmyndir
Kvikmyndir
STJÖRNUBÍÓ - ST. ELMO’S FIRE
★ ★
Ungt fólk á krossgötum
SL Elmo's Fire. Leikstjóri: Joel Schumac-
ker.
Handrit: Joel Schumacker og Cari Kur-
lander.
Kvikmyndun: Stephen Burum.
Tóniist: David Foster.
Aðaileikarar: Emilio Estevez, Rob Lowe,
Demi Moore og Ally Sheedy.
Svo sannarlega bjóst ég við að St.
Elmos Fire mundi koma með ein-
hverja nýja útfærslu á hinum sívin-
sælu bandarísku táningamyndum.
Sú von varð fljótlega að engu.
Efnisþráðurinn er ósköp venjuleg-
ur og í hefðbundum stíl. St. Elmos
Fire hefur fengið mjög góðar við-
tökur vestanhafs, bæði hjá gagn-
rýnendum og áhorfendum.
Kannski er það skiljanlegt því
myndin er eins amerísk og ein
kvikmynd getur orðið. Og stendur
hún langt að baki Diner sem helst
má líkja henni við.
St. Elmo’s Fire fjallar um sjö
ungmenni sem hafa nýútskrifast
og tilraunir þeirra til að finna sér
samastað í hinni hörðu lífsbaráttu.
Unga fólkið er eins ólíkt hvað öðru
og verið getur. Hver á sinn eigin
draum sem fer kannski ekki alveg
saman við þann sem næst stendur
þótt vináttuböndin séu sterk hjá
sjömenningunum. Foringi hópsins
er Alex (Judd Nelson) sem hyggur
á frama í pólitík, ásamt þeirri ætlun
sinni að giftast Leslie (Ally Sheedy)
sem er ekki alveg eins viss um
hvort Alex sé rétti maðurinn enda
á hann erfitt með að segja nei við
aðrar konur. Kevin (Andrew Mc
Carthy) á sér draum að verða rit-
höfundur og elskar Leslie á laun.
Býr hann með Kirbo (Emilio
Estevez) sem er nokkuð áttavilltur
í lífinu. Hans vandamál er það að
Uppáhaldsstaður klíkunnar er St. Elmos.
hann elskar út af lífinu nokkrum
árum eldri læknanema, Dale
(Andie MacDowell), sem tekur lítið
mark á ástleitni hans. Á hann eftir
að lenda í miklum vandræðum út
af þessari ást sinni. Wendy (Mare
Winningham) er dóttir ríkra for-
eldra og skammast sín fyrir útlit
sitt ásamt því að elska annan
tveggja vandaræðagemlinganna í
hópnum, Billy (Rob Lowe), sem vill
helst leika á saxófón og tollir
hvergi í vinnu. Hinn vandræða-
gemlingurinn er Jules (Demi Mo-
ore) sem er glæsilegasta stúlkan í
hópnum en er að ánetjast eiturlyíj-
um ásamt því að halda við yfir-
mann sinn í vinnunni.
Trygglyndi er mikið innan hóps-
ins og vandamál hvers fyrir sig
leyst á raunsæjan máta, án þess
að vinskapurinn slitni þó oft liggi
við að hópurinn splundrist.
Það sem gerir St. Elmos fyrst og
síðast að aðgengilegri kvikmynd
eru hinir ungu sjö leikarar sem
fara með aðalhlutverkin. Þetta eru
ungir leikarar sem vert er að fylgj-
ast með því þrátt fyrir ungan aldur
eru þau öll með nokkra reynslu að
baki og þau í sameiningu bjarga
myndinni frá því að vera hreint út
sagt leiðinleg.
- Hilmar Karlsson
———Stór™—■
skó-útsala
Margs konar skófatnaður
i Stóra skóútsalan, Hverfisgötu 89.
irkirk Frábær ★★★ Góð ★* Miðlungs ★ Léleg 0 Afieit
Opiö á laugardögum
PANTANIR
SÍMI13010
VISA
E
KREDIDKOR TAÞJONUS TA
HÁRGREIÐSLUSTOFAN
KLAPPARSTÍG 29.
NYTT HEIMILISFANG:
NÝTT SÍMANÚMER:
Höfum flutt starfsemi okkar að
Hjarðarhaga 47.
Við höfum fengið nýtt símanúmer
16350-16351
Bitstál sf.
Hjarðarhaga 47. Simi 16350 -16351
BOLTA MAÐIIRÍNM
ÚTSALA-ÚTSALA
Lisch austurrískar skíðastretchbuxur
dökkbláar
Stærðir 38-54
ACT úlpur
Stærðir 4-6-10-12-14
3 litir
Breskar úlpur frá Phönix
Margir litir
Stærðirl-2-3-4
Ath. stærð 1 passar á 2-3 ára
Verð áður 3.995
nú 2.400
Verð áður 2.380
Verðnú 1.825
Verð áður 3.490
Verð nú 2.400
Lúffur 1 lúffa á 150 kr.
2 lúffurá 250 kr. Verð áður 300-500
3lúffurá325kr.
Vatthúfur, margir litir
Stærðir 53-55-57 Verð nú 495, áður 752
Stærðir 59-60-61 Verð nú 525, áður 7931
Ý mislegt annað, svo sem:
Trimmgallar, stutterma bolir,
leikfimifatnaður, skór o.fl. o.fl.
á afslætti frá
KREOITKORT
Póstsendum samdægurs:
E
BOLTA MAÐURÍNM
LAUGAVEGI 27 - SlMI 15599